Sex marka sýning Villa og ótrúleg endurkoma Real Madrid Það rigndi mörkum í Meistaradeild Evrópu í fótbolta í kvöld og þar á meðal skoruðu Aston Villa-menn sex gegn Fenerbahce. Real Madrid vann magnaðan endurkomusigur gegn Roma á Ítalíu og Bodö/Glimt fagnaði sigri gegn Dortmund í Noregi. Fótbolti 14.10.2026 21:01
Tvenna Haalands dugði skammt gegn PSG Evrópumeistarar PSG unnu frábæran 4-2 útisigur gegn Manchester City í stórleik kvöldsins í Meistaradeild Evrópu í fótbolta. Fótbolti 14.10.2026 18:33
Guardiola sá versta hálfleik City á heimavelli í fjórtán ár Manchester City átti afar erfitt uppdráttar gegn Evrópumeisturum PSG í fyrri hálfleik í kvöld, í Meistaradeild Evrópu í fótbolta. Fótbolti 14.10.2026 20:23
Mörkin úr Meistaradeildinni: Hákon gegn Arsenal, dramatík og óvænt úrslit Fjölmargir leikir fóru fram í Meistaradeild Evrópu í gær. Hákon Arnar Haraldsson og liðsfélagar hans í Lille fengu erfitt verkefni gegn Englandsmeisturum Arsenal og ein óvæntustu úrslit tímabilsins áttu sér stað í Noregi. Fótbolti 14. október 2026 09:31
Lét gamminn geisa og fær að heyra það Sparkspekingar hafa látið Lisandro Martinez, leikmann Manchester United, heyra það eftir að hann lét stór orð falla í viðtali í kjölfar 2-0 taps liðsins gegn Atletico Madrid í Meistaradeildinni í gær. Ummæli Martinez hafi verið skammarleg. Enski boltinn 14. október 2026 08:02
Dagskráin í dag: Liverpool, Man. City, PSG og Real í Meistaradeild Evrópu Eftir bráðfjörugan gærdag er dagskráin litlu síðri á sportrásum Sýnar í dag en þar verður Meistaradeild Evrópu í fótbolta í aðalhlutverki að þessu sinni. Sport 14. október 2026 06:01
Norsku meistararnir magnaðir gegn Bayern Það voru óvænt úrslit í Meistaradeild Evrópu í kvöld þegar til að mynda Noregsmeistarar Viking náðu 3-3 jafntefli við Bayern á heimavelli og Inter tapaði 4-3 á heimavelli gegn Club Brugge. Fótbolti 13. október 2026 21:14
Hákon og félagar máttu sín lítils þegar ensku meistararnir skiptu um gír Hákon Arnar Haraldsson og félagar í Lille urðu að sætta sig við 3-0 tap gegn Englandsmeisturum Arsenal í London í kvöld, í Meistaradeild Evrópu í fótbolta. Fótbolti 13. október 2026 18:39
Atlético yfir í 89 mínútur og raunir United-manna aukast Atlético Madrid vann 2-0 sigur gegn Manchester United í Meistaradeild Evrópu í fótbolta í kvöld eftir að hafa komist yfir strax á fyrstu mínútu leiksins. Rauða spjaldið fór á loft þegar korter var til leiksloka. Fótbolti 13. október 2026 18:30
Dagskráin í dag: United-menn í Madrid og Hákon mætir Arsenal Meistaradeild Evrópu snýr aftur í kvöld með afar áhugaverðum leikjum og má þar nefna leik Arsenal og Lille sem er með Skagamanninn Hákon Arnar Haraldsson í stóru hlutverki. Körfuboltakvöld Extra snýr líka aftur og 3. umferðin í Bónus-deild kvenna verður gerð upp í beinni útsendingu. Fótbolti 13. október 2026 06:00
Félag Hákonar hótar lögsóknum eftir mikið áfall Daginn fyrir stórleikinn við Arsenal í Meistaradeild Evrópu hefur franska knattspyrnufélagið Lille, sem Hákon Arnar Haraldsson leikur með, greint frá því að portúgalski bakvörðurinn Tiago Santos sé með slitið krossband í hné í annað sinn á ferlinum. Fótbolti 12. október 2026 21:34
Tveir leikmenn Arsenal meiddust eftir leik: „Aldrei gerst áður“ Tveir leikmenn Englandsmeistara Arsenal meiddust á æfingu á Emirates-leikvanginum stuttu eftir sigur liðsins gegn Leeds United um nýliðna helgi. Enski boltinn 12. október 2026 13:29
Þorsteinn Leó frá í 8-12 vikur Landsliðsmaðurinn Þorsteinn Leó Gunnarsson verður frá keppni í allt að tólf vikur eftir að hafa meiðst illa í leik með Porto gegn Veszprem í Meistaradeild Evrópu í vikunni. Handbolti 19. september 2026 11:08
Halda úrslitaleikinn aftur 30 árum síðar Barcelona hefur verið verðlaunað fyrir veigamiklar framkvæmdir á hinum sögufræga Nývangi þar sem félagið fær að halda úrslitaleik Meistaradeildarinnar á vellinum árið 2029. Það er sléttum 30 árum eftir að Manchester United vann einn frægasta úrslitaleik keppninnar þar vorið 1999. Fótbolti 15. september 2026 20:31
Gummi Ben fór á kostum: „Hvað varst þú að gera?!“ Á rétt rúmum fimm mínútum fór Gummi Ben frá því að vera í himnasælu yfir í að húðskamma 31 árs gamlan Tékka, í Meistaradeildarmessunni á Sýn Sport í gærkvöld. Fótbolti 11. september 2026 11:01
Sjáðu markaveislur United og Bayern München Lokakvöld fyrstu umferðar Meistaradeildar Evrópu fór fram í gær þar sem nóg var skorað af mörkum. Tvö stærstu lið kvöldsins, Bayern München og Manchester United, skoruðu saman níu mörk. Fótbolti 11. september 2026 07:30
Vandræðalegasta viðtal sögunnar? „Þetta er bara eitt það pínlegasta sem ég hef séð,“ sagði í Meistaradeildarmörkunum eftir viðtal við Michael Olise eftir leik kvöldsins. Viðtalið var ekki gott líkt og viðbrögð sérfræðinga þáttarins sýna. Fótbolti 10. september 2026 22:11
Hætti strax eftir leik en forsetinn hafnar uppsögninni Það gengur á ýmsu hjá Fenebahce eftir 1-1 jafntefli liðsins við Roma í fyrstu umferð Meistaradeildar Evrópu í fótbolta í kvöld. Þjálfarinn hætti en forsetinn neitar að taka uppsögninni. Fótbolti 10. september 2026 21:18
Lumbrað á Norðmönnum og dramatík í Prag Fyrstu umferð Meistaradeildar Evrópu lauk í kvöld með fjórum leikjum þar sem gekk á ýmsu. Fótbolti 10. september 2026 21:04
United aldrei í vandræðum Manchester United vann 4-0 sigur á liði Sabah frá Aserbaídsjan í fyrstu umferð Meistaradeildar Evrópu í fótbolta á Old Trafford í kvöld. Fótbolti 10. september 2026 20:55
Bakverðir til bjargar Jafnt var í tveimur fyrir leikjum dagsins í Meistaradeild Evrópu í fótbolta sem fram fóru í Istanbúl og Eindhoven. Bakverðir tryggðu liðum sínum stig í leikjunum tveimur. Fótbolti 10. september 2026 18:37
Góðar og slæmar fréttir fyrir íslensku liðin sem ætla í Evrópudeildina Um klukkan 21 annað kvöld ætti að koma í ljós hvort það verður Afturelding eða Breiðablik sem verður fulltrúi Íslands í 1. umferð undankeppni Evrópudeildarinnar næsta sumar. Leið þess liðs inn í Evrópudeildina er orðin enn torfærari en áður en leið Íslandsmeistaranna virðist mun greiðfærari. Íslenski boltinn 10. september 2026 13:32
Stjórn Como gefur frá sér sína miða Como tryggði sig í Meistaradeild Evrópu í fyrsta skipti í sögu félagsins og mun spila sinn fyrsta Meistaradeildarleik þegar liðið mætir RB Leipzig á heimavelli. Stjórnarmeðlimir félagsins hafa ákveðið að gefa frá sér miðana sína til elstu stuðningsmanna félagsins. Fótbolti 10. september 2026 11:30
Nýr Camp Nou míglekur Það var ekki aðeins á vellinum sem mikil úrkoma vakti athygli þegar Barcelona tók á móti Feyenoord í Meistaradeildinni í gær. Blaðamenn á leikvanginum fengu heldur betur að finna fyrir veðrinu þegar vatn tók að flæða inn á fjölmiðlasvæðið. Fótbolti 10. september 2026 10:31