Hernaður
40 41 42 43 44 45 46 47 48 … 55 ›
Vaktin: Flugu með kjarnorkuvopn inn í lofthelgi Svíþjóðar Breska varnarmálaráðuneytið segir rússneskar innrásarsveitir hafa neyðst til að hörfa aftur til Rússlands og Hvíta-Rússlands til enduskipuleggja sig og sækja birgðir. Ákvörðun Rússa um að einbeita sér að því að „frelsa“ Donetsk og Luhansk sé líklega til marks um að þeir geti ekki sótt fram nema á einum stað. Erlent 30.3.2022 06:24
Meint raunasaga úkraínskrar flóttakonu tekin upp af leyniþjónustu Rússlands Ríkismiðlar Rússlands birtu nýverið myndband af úkraínskri flóttakonu frá Marípuól þar sem hún sagði Azov-herdeildina umdeildu og aðra úkraínska hermenn hafa framið umfangsmikla stríðsglæpi í borginni. Hún sagði úkraínska hermenn hafa myrt íbúa og skýlt sér bakvið þá. Erlent 30.3.2022 11:51
Talsmaður Pútín slær á væntingar til friðarviðræðanna Dmitry Peskov, talsmaður stjórnvalda í Moskvu, sagði á daglegum fundi með blaðamönnum í morgun að ekkert hefði komið fram í viðræðum Rússa og Úkraínumanan í Tyrklandi í gær sem gæfi sérstakt tilefni til bjartsýni. Erlent 30.3.2022 11:03
Tvö þýsk herskip komin til Reykjavíkur Tvö þýsk herskip komu til hafnar við Skarfabakka í Reykjavík í morgun. Þau liggja þar við bryggju. Á Marine Traffic má sjá að annað þeirra ber nafnið Schleswig Holstein en hitt Sachsen eftir samnefndum þýskum sambandslöndum. Innlent 30.3.2022 10:15
Geyma líkin í frystikistum og leita smiða til að smíða líkkistur Sprengingar hafa heyrst í Kænugarði síðasta sólahringinn, þrátt fyrir yfirlýsingar Rússa um að þeir hyggist draga sig til baka á svæðinu. Svo virðist þó sem um sé að ræða átök á útjaðri borgarinnar en ekki í borginni sjálfri. Erlent 30.3.2022 07:37
Vaktin: Allt að 75 prósent herafla Rússlands sagður taka þátt í innrásinni Dmitry Peskov, talsmaður stjórnvalda í Moskvu, segir Atlantshafsbandalagið hafa ýtt Rússlandi út í horn með þenslustefnu sinni. Viðskiptaþvinganir Vesturlanda væru á við stríðsyfirlýsingu gegn Rússum. Erlent 29.3.2022 06:43
Úkraínumenn vilja fresta ákvörðun um Krímskaga um 15 ár Eitthvað virðist hafa þokast áfram í viðræðum Úkraínumanna og Rússa sem fram fóru í Tyrklandi í morgun en Rússar hafa meðal annars ákveðið að draga úr hernaðaraðgerðum við Kænugarð og tengja það við viðræðurnar. Erlent 29.3.2022 13:14
Friðarviðræður báru engan árangur og óljóst hvort haldið verði áfram á morgun Friðarviðræður milli Rússa og Úkraínumanna í Tyrklandi stóðu stutt í morgun. Þar var möguleikinn á vopnahléi ræddur og öryggistryggingar Úkraínu ræddar. Ekkert kom út úr fundinum og er óljóst hvort sendinefndir landanna haldi áfram að funda á morgun. Erlent 29.3.2022 12:00
„Það er enginn að hugsa um að nota... um, einu sinni hugmyndina um að nota kjarnorkuvopn“ Það er enginn að hugsa um að beita kjarnorkuvopnum, sagði Dmitry Peskov, talsmaður stjórnvalda í Moskvu, í viðtali við PBS í gær. Stjórnvöld hefðu aðeins viljað vara önnur ríki við afskiptum af átökunum í Úkraínu. Erlent 29.3.2022 06:19
Vaktin: Úkraínski herinn sækir á Skólar í Kænugarði munu „opna“ í dag en öll kennsla fer fram um netið. Frá þessu greindi borgarstjórinn Vitali Klitschko á Telegram í gær. Fréttastofa Vísis, Stöðvar 2 og Bylgjunnar fylgist með þróun mála í Úkraínu í allan dag. Erlent 28.3.2022 06:46
Telja að eitrað hafi verið fyrir Abramovich og erindrekum Úkraínu Þrír meðlimir sendinefndar Úkraínumanna í friðarviðræðum Úkraínu og Rússlands, auk Romans Abramovich, rússnesks auðjöfurs og eiganda Chelsea FC, eru taldir hafa verið fórnarlamb eitrunar fyrr í þessum mánuði. Abramovich er hefur komið að friðarviðræðunum fyrir hönd Úkraínumanna. Erlent 28.3.2022 16:52
Samskiptaóreiða sögð hafa kostað Rússa mikið Leiðtogar rússneskra hersveita í Úkraínu hafa að miklu leyti notast við samskiptabúnað sem er ekki dulkóðaður. Má þar nefna farsíma og talstöðvar sem hver sem er getur hlustað á. Þetta hefur kostað Rússa verulega þar sem ætlanir þeirra og staðsetningar hafa verið aðgengilegar. Erlent 28.3.2022 11:54
Segja Rússa beita efnavopnum í Austur-Úkraínu Bandaríkjaforseti var harðorður í garð forseta Rússlands í ávarpi sem hann flutti í Varsjá í Póllandi í gærkvöldi. Hann kallaði Vladimír Pútín slátrara og lýsti því yfir að hann gæti ekki setið lengur á valdastóli. Erlent 27.3.2022 12:32
Rússar sprengdu upp eldsneytisgeymslu í Lviv Rússar sprengdu upp vöruhús úkraínska hersins í borginni Lviv í nótt, sem er í vesturhluta landsins. Rússneska varnarmálaráðuneytið gaf það út í morgun að hárnákvæmar stýriflaugar hafi verið notaðar til verksins. Erlent 27.3.2022 07:56
Vaktin: Kjarnakljúfur varð fyrir tjóni eftir sprengjuárás Kjarnakljúfur í borginni Karkív í norðausturhluta Úkraínu hefur orðið fyrir tjóni eftir víðtækar sprengju- og stórskotaliðsárásir Rússa á svæðið. Ekki hefur enn verið hægt að meta umfang tjónsins, þar sem árásir Rússa eru nánast linnualausar. Erlent 26.3.2022 07:20
Vaktin: Pútín fangelsar þá sem dreifa „falsfréttum“ Boris Johnson sagði við BBC Newsnight í gærkvöldi að hann væri ekki bjartsýnn á að Vladimir Pútín vildi frið í Úkraínu. Hann teldi frekar að Rússlandsforseti myndi endurtaka leikinn frá Grozny, það er að segja umkringja borgir landsins og eyðileggja þær með sprengjuárásum. Erlent 25.3.2022 06:56
Rússar segjast hafa náð markmiðum sínum og einbeita sér að Donbas Rússar segjast að mestu hafa náð markmiðum sínum í Úkraínu og skaða her ríkisins verulega. Nú ætli þeir að einbeita sér að því að „frelsa“ Donbas-hérað að fullu. Erlent 25.3.2022 14:42
„Við verðum að tryggja að fjölskyldur í Evrópu komist í gegnum þennan vetur og næsta“ Bandaríkjamenn og Evrópusambandið hafa komist að samkomulagi um að setja á fót starfshóp sem er ætlað að finna leiðir til að draga úr þörf Evrópuríkjanna á að kaupa orku frá Rússlandi. Erlent 25.3.2022 11:12
Sammælast um vopnahlé í Tigray-héraði Stjórnvöld í Eþíópíu lýstu í morgun yfir ótímabundið vopnahlé af mannúðarástæðum í Tigray-héraði í norðurhluta landsins þar sem stríð hefur geisað frá árinu 2020. Ástæðan er að gefa íbúum á stríðssvæðunum færi á að taka á móti hjálpargögnum. Erlent 25.3.2022 09:44
Sjálfboðaliðar í Úkraínu: Kemst í vígaham þegar hann hugsar um að kýla Tucker Carlson Fyrrverandi hermaður sem tekur þátt í átökunum í Úkraínu segist að hluta til finnast eins og hann sé í „æðislegu og mjög hættulegu fríi“. James Vasquez, starfaði í her Bandaríkjanna og rekur smíðafyrirtæki í Connecticut. Erlent 25.3.2022 09:25
Úkraínumenn snúa vörn í sókn Vísbendingar eru uppi um að Úkraínumönnum sé að takast að snúa vörn í sókn á sumum svæðum og setja áætlanir Rússa í enn frekara uppnám. Yfirvöld í Úkraínu segja þeim hafa tekist að hrekja Rússa til baka, meðal annars norður af Kænugarði. Erlent 25.3.2022 06:31
Vaktin: Úkraínumenn berjast gegn hersveitum Rússa Leiðtogar Atlantshafsbandalagsins, sjö helstu iðnríkja heims og Evrópusambandsins funduðu í Brussel í dag en þar var ákveðið að auka viðbúnað NATO herja í bandalagsríkjum í austur Evrópu.Fréttastofa Vísis, Stöðvar 2 og Bylgjunnar fylgist með þróun mála í allan dag. Erlent 24.3.2022 06:31
„Við erum staðráðin í að gera allt sem við getum til að styðja Úkraínu“ Jens Stoltenberg, framkvæmdastjóri Atlantshafsbandalagsins, segir leiðtoga bandalagsins hafa ákveðið að auka viðbúnað þess á öllum sviðum. Á láði, leiði og í lofti. Þeir hafi sömuleiðis samþykkt aukna aðstoð við Úkraínumenn til að hjálpa þeim að verjast innrás Rússa. Erlent 24.3.2022 14:05
Taldir ætla að króa fjórðung úkraínska hersins af í Donbas Þó hægt hafi á sóknum Rússa á mörgum vígstöðvum Úkraínu, og þeir hafi jafnvel þurft að hörfa undan gagnárásum Úkraínumanna í grennd við Kænugarð og Mykolaiv, hafa Rússar sótt fram í Donbas-héraði. Sú sókn hefur gengið hægt og rólega en hún hefur gengið. Erlent 24.3.2022 11:26
Stærstu eldflaug Norður-Kóreu skotið á loft Ríkisstjórn Kim Jong Un, einræðisherra Norður-Kóreu, skaut í morgun stærstu eldflaug sem verkfræðingar einræðisríkisins hafa hingað til framleitt á loft. Eldflaugin flaug í þúsunda kílómetra hæð og lenti í sjónum undan ströndum Japans, innan lögsögu ríkisins. Erlent 24.3.2022 10:04
„Tígris-teymið“ skoðar viðbrögð vegna efna- og kjarnorkuvopnaárása Hvíta húsið hefur kallað saman teymi sérfræðinga á sviði þjóðaröryggismála til að skoða möguleg viðbrögð við því ef Vladimir Pútín Rússlandsforseti grípur til þess að nota efna, lífefna eða kjarnorkuvopn í Úkraínu. Erlent 24.3.2022 06:51
Saka Rússa formlega um stríðsglæpi: „Að ráðast vísvitandi á óbreytta borgara er stríðsglæpur“ Anthony Blinken, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, segir bandarísk stjórnvöld hafa formlega lýst því yfir að rússneskar hersveitir hafi framið stríðsglæpi í Úkraínu með því að ráðast á óbreytta borgara. Hann segir skýr sönnunargögn um að árásir Rússa hafi valdið dauða og eyðileggingu um alla Úkraínu. Erlent 23.3.2022 19:00
Vaktin: Kallar eftir allsherjarmótmælum um allan heim á morgun Sérstakur leiðtogafundur Atlantshafsbandalagsins, G-7 ríkjanna og Evrópusambandsins fer fram í Brussel á morgun en forseti Úkraínu kallar eftir allsherjarmótmælum um allan heim. Þetta sagði Vólódímír Selenskí, forseti Úkraínu, í daglegu ávarpi sínu í nótt. Erlent 23.3.2022 06:47
Aftur til fortíðar? Skortur og raðir í Rússlandi Refsiaðgerðir bandamanna gegn Rússum eru farnar að bitna á almennum borgurum, sem þurfa nú að greiða töluvert meira fyrir innfluttan varning en áður, ekki síst vegna gengislækkunar rúblunnar. Erlent 23.3.2022 08:58
Bandaríkjamenn gagnrýna „hættulegt“ tal Rússa um notkun kjarnorkuvopna John Kirby, talsmaður bandaríska varnarmálaráðuneytisins, fordæmdi ummæli talsmanns stjórnvalda í Moskvu á CNN í gær, þar sem hann sagði að kjarnorkuvopnum yrði mögulega beitt ef „tilvistaleg ógn“ steðjaði að Rússum. Erlent 23.3.2022 06:19