Ástin á götunni

Segir að Sævar fari gegn Vöndu í formannsslag hjá KSÍ
Sævar Pétursson, framkvæmdastjóri KA, ætlar að bjóða sig fram sem formaður Knattspyrnusambands Íslands á komandi ársþingi í næsta mánuði.

Lengjubikarinn sýndur á Stöð 2 Sport
Knattspyrnusamband Íslands og Stöð 2 Sport hafa gert samkomulag um að sýnt verði frá A-deildum deildarbikarkeppni karla og kvenna, Lengjubikarnum, á Stöð 2 Sport.

Stjarnan lagði meistarana í úrslitum | Leiknir tók þriðja sætið í átta marka leik
Stjarnan bar sigur úr býtum er liðið mætti Breiðablik í úrslitum Fótbolta.net mótsins í knattspyrnu í kvöld. Lokatölur urðu 3-1, en Blikar unnu mótið í fyrra. Þá vann leiknir ÍA 5-3 í leiknum um þriðja sætið fyrr í kvöld.

Qvist til liðs við Breiðablik
Danski varnarmaðurinn Mikkel Qvist hefur samið við Breiðablik og mun leika með liðinu næsta sumar. Hann kemur til félagsins frá AC Horsens í Danmörku.

Félögin hvött til að senda fleiri konur
Stjórn Knattspyrnusamband Íslands hefur sent knattspyrnufélögum landsins hvatningu um að huga að kynjaskiptingu á komandi ársþingi KSÍ.

Alexander Helgi ekki með Breiðabliki í sumar
Miðjumaðurinn Alexander Helgi Sigurðarson mun ekki spila með Breiðabliki í sumar. Hann hefur samið við sænska þriðju deildarfélagið Vasalunds um að leika með liðinu meðan hann stundar nám í Svíþjóð.

Leiknir fær tvo Dani | Brynjar Hlöðversson framlengir
Leiknir R. samdi í dag við þrjá leikmenn fyrir komandi átök í efstu deild karla í fótbolta næsta sumar.

Íslandsmeistararnir kláruðu Fjölni á lokamínútunum
Íslandsmeistarar Víkings mættu Fjölni á Reykjavíkurmóti karla í fótbolta í kvöld. Víkingar höfðu betur 5-2, en staðan var jöfn þar til að um stundarfjórðungur var til leiksloka.

Blásið til sóknar á Hlíðarenda
Þó enn sé töluvert í að knattspyrnusumarið hér á landi fari af stað þá er aldrei of snemmt að spá í spilin. Eftir skelfingartímabil á síðasta ári hafa Valsmenn blásið í herlúðra og virðist sem markmiðið sé einfaldlega að skora meira en hinir.

Fyrirliði Íslandsmeistaranna áfram á Hlíðarenda
Íslandsmeistarar Vals tilkynntu í dag að Elísa Viðarsdóttir, fyrirliði þeirra, hefði skrifað undir nýjan samning. Samningurinn er til eins árs.

Þróttur heldur áfram að bæta við sig leikmönnum
Sæunn Björnsdóttir hefur gengið til liðs við Þrótt Reykjavík á lánssamningi frá Haukum. Mun hún leika með liðinu í efstu deild kvenna í knattspyrnu í sumar.

Aftur er Caroline fengin til að leysa Natöshu af hólmi
Keflavík hefur samið við bandaríska miðvörðinn Caroline Van Slambrouck og mun hún standa vaktina í vörn liðsins í Pepsi Max deild kvenna í knattspyrnu næsta sumar.

Íslandsmeistararnir komu til baka eftir að lenda þremur mörkum undir
Það tók Íslands- og bikarmeistara Víkings dágóða stund að sýna hvers þeir eru megnugir er Víkingur og Fylkir mættust í Reykjavíkurmóti karla í knattspyrnu í kvöld. Eftir að lenda 3-0 undir vann Víkingur á endanum 4-3 sigur.

Danskt úrvalsdeildarlið á eftir Atla Barkarsyni
Atli Barkarson, vinstri bakvörður Íslands- og bikarmeistara Víkings, gæti verið á leið til Danmerkur en SöndejyskE hefur boðið í leikmanninn.

Norðankonur sækja liðsstyrk til Bandaríkjanna
Þór/KA tilkynnti um nýjan leikmann á Gamlársdag.

Arnar lét músaganginn ekki hrella sig
Það þarf meira en smá músagang til að hrella Arnar Gunnlaugsson, þjálfara Íslands- og bikarmeistara Víkings.

„Var aldrei að fara verða atvinnumaður en ætlaði að gera knattspyrnuna að atvinnu minni“
Freyr Alexandersson, þjálfari Lyngby í dönsku B-deildinni í knattspyrnu, hefur þrátt fyrir ungan aldur áorkað miklu hér á landi sem og erlendis. Hann segist eiga Elísabetu Gunnarsdóttur mikið að þakka sem og æskuárunum í Fellahverfinu.

Selfyssingar framlengja við Áslaugu Dóru
Áslaug Dóra Sigurbjörnsdóttir skrifaði í dag undir nýjan tveggja ára samning við knattspyrnudeild Selfoss.

Hermann fann aðstoðarmann sinn á Bretlandseyjum
Þrautreyndur breskur þjálfari að nafni Dave Bell mun aðstoða Hermann Hreiðarsson við þjálfun fótboltaliðs ÍBV í A-deildinni á næstu leiktíð.

Guðlaugur til aðstoðar á Skaganum
Guðlaugur Baldursson hefur verið ráðinn aðstoðarþjálfari A-deildarliðs ÍA.

Um 150 milljóna króna jólagjöf til yngri flokka Íslands frá UEFA og KSÍ
Knattspyrnusamband Íslands tilkynnti í dag um úthlutun fjár frá UEFA, knattspyrnusambandi Evrópu, og KSÍ til íslenskra félaga vegna þróunarstarfs barna og unglinga í fótbolta.

Víðir segir að Víkingur og Breiðablik hafi tekið mjög stórt skref í þróun fótboltans
Gaupi fékk Víði Sigurðsson meðal annars til að velja þann besta í 40 ára sögu bókaflokksins Íslenskar knattspyrnu þegar hann hitti reyndasta íþróttafréttamanna Íslands fyrr og síðar.

Faðir Sölva Geirs um bílslysið: Ég skil ekki hvernig þeir lifðu þetta af
Annar þátturinn af „Víkingar: Fullkominn endir“ var sýndur um síðustu helgi en að þessu var fyrirliðinn Sölvi Geir Ottesen í aðalhlutverki. Meðal annars var fjallað um bílslysið sem Sölvi Geir lifði af á ótrúlegan hátt en hann var þá átján ára gamall.

Sveindís og Kári knattspyrnufólk ársins
Sveindís Jane Jónsdóttir og Kári Árnason hafa verið útnefnd knattspyrnufólk ársins 2021 af leikmannavali KSÍ. Þetta er í fyrsta sinn sem bæði fá þessa viðurkenningu.

KA fær nýjan heimavöll með gervigrasi eftir þrjú ár
Samkvæmt fjárhagsáætlun Akureyrarbæjar mun KA leika heimaleiki sína á nýjum gervigrasvelli eftir þrjú ár. Fjárhagsáætlunin var samþykkt á fundi bæjarstjórnar í gær.

Þróttur sækir sóknarmann úr Kópavogi
Danielle Marcano mun leika með Þrótti Reykjavík í Pepsi Max deild kvenna í knattspyrnu næsta sumar. Hún lék með HK í Lengjudeild kvenna síðasta sumar.

Atli Viðar segir Vöndu ekki réttu manneskjuna til að leiða KSÍ inn í framtíðina
Atli Viðar Björnsson, markahæsti FH-ingur sögunnar og þriðji markahæsti leikmaður efstu deildar karla frá upphafi, var gestur hjá Ríkharð Guðnasyni og Kristjáni Óla Sigurðssyni í nýjasta þættinum af Þungavigtinni.

Hásteinsvöllur verður að gervigrasvelli
Heimavöllur ÍBV, Hásteinsvöllur, verður gerður að gervigrasvelli með flóðlýsingu á næstunni. Framkvæmdir hefjast næsta haust og vonast er til að völlurinn verði klár fyrir upphaf Íslandsmótsins 2023.

„Hann átti það nú ekki skilið, minn kæri vinur“
Fagnaðarlæti í íþróttum eiga það til að fara úr böndunum, bæði innan vallar sem utan. Það er þó sjaldan sem bíllyklar koma við sögu en það gerðist þó er Kristinn Kjærnested fagnaði ásamt góðvini sínum Jónasi Kristinssyni hér um árið.

Stjarnan staðfestir komu Jóhanns Árna
Knattspyrnudeild Stjörnunnar staðfesti í dag komu Jóhanns Árna Gunnarssonar til félagsins. Hann kemur frá Fjölni en í gær var greint frá því að hann væri á leiðinni í Garðabæinn.