Ástin á götunni

Morten Beck telur sig eiga inni fjórtán milljónir hjá FH
Danski framherjinn Morten Beck hefur ákveðið að fara í mál við knattspyrnudeild FH þar sem hann telur sig eiga inni 14 milljónir íslenskra króna hjá félaginu.

Guðmann leggur skóna á hilluna
Hinn 36 ára gamli Guðmann Þórisson hefur ákveðið að leggja knattspyrnuskóna á hilluna. Hann tilkynnti það á sinn einstaka hátt á Instagram-síðu sinni.

Skoraði í dag en á reynslu hjá FCK í gær
Daníel Ingi Jóhannesson skoraði síðara mark ÍA í 2-0 sigri liðsins á Grindavík í dag. Daníel Ingi var staddur í Kaupmannahöfn í gær þar sem hann var á reynslu hjá FC Kaupmannahöfn. Eldri bróðir hans, Ísak Bergmann, spilar með Danmerkurmeisturunum.

Knattspyrnudeild Breiðabliks nauðbeygð til að skipta um gervigras
Knattspyrnudeild Breiðabliks var nauðbeygð til þess að skipta um gervigras á Kópavogsvelli til að liðið gæti spilað sína heimaleiki í Evrópukeppnunum í fótbolta í sumar.

Áfrýjun Sigurðar skilaði engu
Áfrýjunardómstóll KSÍ hefur staðfest úrskurð um að fótboltamaðurinn Sigurður Gísli Bond Snorrason skuli sæta banni frá knattspyrnu til 15. nóvember, fyrir að veðja á eigin fótboltaleiki.

Sjáðu mörkin í jafntefli Keflavíkur og Fylkis | Blikar skoruðu átta á Króknum
Íslenskt knattspyrnufólk reimaði á sig markaskóna í Lengjubikarnum í dag þar sem fjölmörg mörk litu dagsins ljós í A-deildum karla og kvenna.

Kom sérstaklega við í Grindavík vegna tölvuleiks
Englendingurinn Jay gerði sér ferð frá Englandi til Grindavíkur vegna þess eins að hann hafði náð eftirtektarverðum árangri með Grindavík í tölvuleiknum Football Manager. Jón Júlíus Karlsson, framkvæmdastjóri Grindavíkur, tók vel á móti kauða.

Lettneskt lið vill bikarmeistarann Loga
Víkingurinn Logi Tómasson er eftirsóttur maður en Riga frá Lettlandi gerði á dögunum tilboð í drenginn. Bikarmeistarar Víkings afþökkuðu pent.

Sakaður um dónaskap eftir heilahristing: „Svona skrif er ekki hægt að láta liggja“
Knattspyrnumaðurinn Gísli Eyjólfsson, leikmaður Breiðabliks, fékk þungt höfuðhögg í leik liðsins gegn Leikni í Lengjubikarnum í gærkvöldi.

Óvæntur sigur í Breiðholtinu og sex marka jafntefli á Nesinu
Tveir leikir fóru fram í A-deild Lengjubikarsins í kvöld þar sem Leiknir vann óvæntan 2-0 sigur gegn Íslandsmeisturum Breiðabliks í riðli 2 og Grótta og Stjarnan gerðu 3-3 jafntefli í riðli 3.

Vanda og Klara samtals með tæplega 37 milljónir í árslaun
Vanda Sigurgeirsdóttir og Klara Bjartmarz, formaður og framkvæmdastjóri Knattspyrnusambands Íslands, voru samtals með tæplega 37 milljónir króna í laun árið 2022. Þetta kemur fram í árskýrslu sambandsins.

Fylkir rúllaði yfir Þór | KA vann í Grafarvogi
Fylkir, sem leikur að nýju í Bestu deild karla í fótbolta næsta sumar, vann einkar öruggan 5-0 sigur á Þór Akureyri í Árbænum. Þá gerði KA góða ferð í Grafarvog og vann 2-1 sigur á Fjölni.

Sigurður Bjartur sá um HK í Vesturbænum
KR tók á móti HK í Lengjubikar karla í knattspyrnu í Vesturbænum í dag. Fór það svo að heimamenn unnu öruggan 6-1 sigur á gestunum sem eru nýliðar í Bestu deild karla á komandi tímabili.

Valsmenn með fullt hús eftir sigur á Skaganum
Valur vann góðan 2-0 sigur er liðið sótti ÍA heim í riðli 1 í A-deild Lengjubikars karla í knattspyrnu í dag.

Blikar hefndu fyrir tapið gegn FH
Íslandsmeistarar Breiðabliks unnu góðan 3-1 sigur er liðið tók á móti FH í riðli tvö í A-deild Lengjubikarsins í fótbolta í kvöld.

Víkingur hafði betur gegn Stjörnunni
Víkingur vann góðan 2-1 sigur er liðið tók á móti Stjörnunni í riðli þrjú í A-deild Lengjubikars karla í fótbolta í kvöld.

Þórsarar unnu stórsigur á Keflavík
B-deildarlið Þórs vann þriggja marka sigur á Bestu deildarliði Keflavíkur í síðasta leik helgarinnar í Lengjubikarnum í fótbolta.

Þór/KA skoraði sex gegn FH
Norðankonur hófu Lengjubikarinn af miklum krafti.

Dilja Ýr kemur inn í hópinn fyrir Spánarferðina
Dilja Ýr Zomers, leikmaður sænska liðsins Häcken, kemur inn í leikmannahóp íslenska kvennalandsliðsins í fótbolta fyrir Pinatar-æfingamótið sem hefst Spáni í næstu viku.

Stjarnan skoraði sex gegn Tindastóli
Stjarnan vann öruggan 6-0 sigur þegar liðið mætti Tindastóli í Miðgarði í A-deild Lengjubikars kvenna í fótbolta í dag.

Víkingar byrja á sigri | Kjartan Henry kominn á blað hjá FH
Fjöldi leikja í Lengjubikar karla í knattspyrnu fór fram í kvöld. Víkingar unnu torsóttan 3-1 sigur á Njarðvík á meðan ríkjandi Lengjubikarmeistarar FH unnu Selfoss í Hafnafirði.

Stefnir allt í að Oliver spili í grænu
Það virðist nær klappað og klárt að Skagamaðurinn Oliver Stefánsson muni spila fyrir Íslandsmeistara Breiðabliks síðasta sumar. Hann kemur frá sænska liðinu Norrköping en lék með ÍA á láni síðasta sumar.

Selfoss heldur áfram að sækja leikmenn til Bandaríkjanna
Segja má að það verði bandarískt yfirbragð yfir Selfyssingum í Bestu deild kvenna í knattspyrnu í sumar. Liðið tilkynnti í dag að framherjinn Mallory Olsson myndi spila með liðinu í sumar.

Ólafur Karl í Fylki og Viktor Andri í Keflavík
Nýliðar Fylkis hafa samið við framherjann Ólaf Karl Finsen um að leika með liðinu í Bestu deild karla í knattspyrnu næsta sumar. Þá hefur Keflavík samið við Viktor Andra Hafþórsson.

„Svo dúkkar þessi bakvarðar pæling ekki aftur upp fyrr en af illri nauðsyn“
Íslandsmeistarinn og fyrirliðinn Höskuldur Gunnlaugsson er með áhugaverðari leikmönnum Bestu deildar karla í fótbolta fyrir margar sakir. Segja má að hann fari ótroðnar slóðir innan vallar sem utan en hér verður meira einblínt á það sem gerist innan vallar.

Selfoss og ÍBV fá leikmenn frá Bandaríkjunum
Bæði Selfoss og ÍBV hafa sótt leikmenn úr bandaríska háskólaboltanum fyrir komandi tímabil í Bestu deild kvenna í fótbolta.

Vann fjórðu deildina í fyrra en nær ekki að manna liðið í ár
Ungmennafélagið Einherji frá Vopnafirði nær ekki að senda lið til keppni í Íslandsmóti karla í knattspyrnu í sumar. Liðið vann sér inn sæti í þriðju deild með því að sigra fjórðu deildina á seinasta tímabili.

Sjáðu mörkin þegar Keflavík kom til baka og vann gegn KA
Lengjubikarinn í knattspyrnu er kominn af stað og mættust Keflavík og KA í A-deildinni en leikurinn fór fram í Reykjaneshöllinni.

„Ef ég hefði þann eiginleika líka væri ég mögulega að spila á hærra getustigi“
Það voru engin smá fótspor sem Júlíus Magnússon þurfti að feta í þegar hann tók við fyrirliðabandi þáverandi Íslands- og bikarmeistara Víkings. Að taka við af Kára Árnasyni og Sölva Geir Ottesen er svo sannarlega ekki allra en með Júlíus sem fyrirliða þá varð liðið bikarmeistari enn á ný, fór langt í Evrópu en hélt því miður ekki dampi í Bestu deildinni.

FH lyfti Þungavigtarbikarnum eftir stórsigur á Íslandsmeisturunum
FH vann Breiðablik 4-0 í fyrsta úrslitaleik Þungavigtarbikarsins.