Fótbolti
121 122 123 124 125 126 127 128 129 … 334 ›
Dregið í þriðju umferð FA bikarsins: Manchester City mætir Chelsea Dregið var í þriðju umferð FA bikarsins á Englandi nú rétt í þessu. Stórleikur umferðarinnar er viðureign Englandsmeistara Manchester City og Chelsea. Enski boltinn 28.11.2022 20:01
Casemiro skaut Brasilíu í sextán liða úrslit Brasilía er komin í 16-liða úrslit HM í fótbolta eftir 1-0 sigur á Sviss. Miðjumaðurinn Casemiro skaut Brasilíu áfram með marki þegar lítið var eftir af venjulegum leiktíma. Fótbolti 28.11.2022 15:31
KSÍ segir ráðuneytið hafa gefið grænt ljós á samning við Sáda Utanríkisráðuneytið sá ekkert athugavert við fyrirhugað samstarf og landsleik á milli Íslands og Sádi-Arabíu í fótbolta, samkvæmt svari við fyrirspurn Knattspyrnusambands Íslands á síðasta ári. Fótbolti 28.11.2022 16:14
Hetja Þjóðverja fékk tönn inn í sig eins og Jónatan Niclas Füllkrug er á allra vörum í Þýskalandi eftir að hafa haldið góðu lífi í HM-þátttöku Þjóðverja með jöfnunarmarki sínu gegn Spáni í Katar í gær. Fótbolti 28.11.2022 13:30
Sjáðu hópslagsmálin þegar allt sauð upp úr í leik Zenit og Spartak Zenit St. Pétursborg og Spartak Moskva áttust við í rússneska bikarnum í knattspyrnu á sunnudag. Það væri ekki frásögu færandi nema fyrir þá staðreynd að það sauð allt upp úr í leiknum og á endanum fengu sex leikmenn rautt spjald eftir hópslagsmál undir lok leiks. Þá höfðu alls tíu gul spjöld farið á loft í venjulegum leiktíma. Fótbolti 28.11.2022 07:01
Landsliðsmarkvörðurinn Sandra um HM í Katar: „Þetta er högg í magann“ Sandra Sigurðardóttir, markvörður Íslands- og bikarmeistara Vals sem og íslenska landsliðsins, var gestur í Silfrinu á RÚV í dag. Hún segir það högg í magann fyrir baráttu samkynhneigðra að heimsmeistaramót karla í knattspyrnu sé haldið í Katar. Fótbolti 27.11.2022 23:29
Messi færist nær Miami Lionel Messi mun að öllum líkindum ganga í raðir Inter Miami í MLS-deildinni í Bandaríkjunum í sumar. Hann yrði launahæsti leikmaður í sögu deildarinnar. Messi er ekki eini leikmaðurinn orðaður við Inter Miami en Sergio Busquets, fyrirliði spænska landsliðsins, er einnig sagður vera á leiðinni til félagsins. Fótbolti 27.11.2022 22:01
Þjóðverjar halda í vonina eftir jafntefli við Spán Spánn og Þýskaland gerðu 1-1 jafntefli í stórleik dagsins á HM í fótbolta. Að liðin deili með sér stigunum þýðir að Spánn er í kjörstöðu til að fara áfram í 16-liða úrslit þökk sé ótrúlegum 7-0 sigri á Kosta Ríka í fyrstu umferð mótsins. Þýskaland þarf hins vegar sigur gegn Kosta Ríka í lokaumferðinni sem og að treysta á að Spánn vinni Japan. Fótbolti 27.11.2022 18:31
Dagný skoraði og Glódís Perla hélt hreinu Fyrirliðinn Dagný Brynjarsdóttir skoraði annað mark West Ham United í 2-0 sigri á Birmingham City í enska deildarbikarnum í fótbolta í dag. Þá stóð Glódís Perla Viggósdóttir vaktina í hjarta varnar Bayern München sem vann sannfærandi 2-0 sigur á Essen í þýsku úrvalsdeildinni í dag. Fótbolti 27.11.2022 18:46
Frábær endurkoma Króatíu sem ætlar sér langt í Katar Þrátt fyrir að lenda undir snemma leiks þá sneri Króatía taflinu sér í við og vann á endanum magnaðan 4-1 sigur á Kanada í F-riðli HM karla í fótbolta. Fótbolti 27.11.2022 15:30
Íhuga að fá Pulisic á láni til að fylla skarð Ronaldo Forráðamenn Manchester United íhugðu að sækja bandaríska landsliðsmanninn Christian Pulisic á láni frá Chelsea síðasta sumar. Áhuginn er enn sá sami og gæti Man United reynt að fá leikmanninn í sínar raðir þegar félagaskiptaglugginn opnar í janúar. Fótbolti 27.11.2022 17:00
Marokkó galopnaði F-riðilinn með sigri gegn Belgum Marokkó vann mikilvægan 2-0 sigur er liðið mætti Belgíu í F-riðli heimsmeistaramóts karla í knattspyrnu sem fram fer í Katar. Með sigrinum stökk marokkóska liðið á topp riðilsins. Fótbolti 27.11.2022 12:31
Eitt skot á mark og Kosta Ríka heldur sér á lífi Kosta Ríka vann lífsnauðsynlegan 1-0 sigur er liðið mætti Japan á HM í Katar í dag. Keysher Fuller skoraði eina mark leiksins með fyrsta skoti Kosta Ríka á markið í keppninni. Fótbolti 27.11.2022 09:31
Stuðningsmaður Wales lést í Katar Velska knattspyrnusambandið hefur staðfest að einn stuðningsmaður velska landsliðsins hafi látist í Katar þar sem heimsmeistaramótið í fótbolta fer nú fram. Ekki er talið að neitt saknæmt hafi átt sér stað. Fótbolti 26.11.2022 23:31
Fiskaði víti og kallaður snillingur Meðlimur nefndar sem greinir alla leiki á HM í Katar fyrir Alþjóðaknattspyrnusambandið, FIFA, hrósar Cristiano Ronaldo og segir portúgalska framherjann með snilligáfu. Ástæðan er hvernig Ronaldo fiskaði vítaspyrnu í 3-2 sigir Portúgals á Gana. Fótbolti 26.11.2022 13:00
Ástralía lætur sig dreyma eftir sigur á Túnis Ástralía vann 1-0 sigur á Túnis í fyrsta leik dagsins á HM í Katar. Sigurinn þýðir að Ástralía á enn möguleika á að komast áfram í 16-liða úrslit keppninnar. Fótbolti 26.11.2022 09:31
Felix vill yfirgefa Madríd Portúgalski landsliðsmaðurinn João Félix hefur fengið nóg af bekkjarsetunni hjá Atlético Madríd og vill yfirgefa félagið þegar félagaskiptaglugginn opnar í janúar. Fótbolti 26.11.2022 11:30
Southgate hrósaði hugarfarinu og segir liðið í góðri stöðu Gareth Southgate, landsliðsþjálfari Englands, talaði lið sitt upp eftir frekar dapra frammistöðu í markalausu jafntefli liðsins gegn Bandaríkjunum á HM í Katar. Southgate var sérstaklega sáttur með varnarleik sinna manna. Fótbolti 26.11.2022 10:30
Íranskur landsliðsmaður handtekinn eftir æfingu Voria Ghafouri, landsliðsmaður Írans í fótbolta, hefur verið handtekinn, sakaður um að dreifa „áróðri“ gegn íranska ríkinu. Fótbolti 24.11.2022 15:17
Blikar kræktu í góðan bita úr Laugardal Breiðablik hefur fengið til sín hina nítján ára gömlu Andreu Rut Bjarnadóttur frá Þrótti R., sem þrátt fyrir ungan aldur var að ljúka sinni þriðju heilu leiktíð í efstu deild. Íslenski boltinn 24.11.2022 09:46
Íslandsvinurinn Ratcliffe mun bjóða í Man United Hinn moldríki Sir Jim Ratcliffe hefur á lífsleiðinni keypt margar jarðir hér á landi og stefnir nú á að kaupa Manchester United. Enski boltinn 24.11.2022 07:01
Danmörk vill segja sig úr FIFA og KSÍ endurskoðar stuðning sinn við Infantino Það gustar verulega um Alþjóðaknattspyrnusambandið, FIFA vegna heimsmeistaramótsins sem nú fer fram í Katar. Danmörk íhugar að segja sig úr FIFA og Vanda Sigurgeirsdóttir, formaður Knattspyrnusambands Íslands segir að sambandið ætli að endurskoða stuðning sinn við Gianni Infantino, forseta FIFA. Fótbolti 23.11.2022 23:15
Þriðji yngsti frá upphafi Spánverjinn Gavi varð í dag þriðji yngsti markaskorari í sögu HM í fótbolta. Aðeins Manuel Rosa og Pelé voru yngri þegar þeir skoruðu sín fyrstu mörk á HM. Fótbolti 23.11.2022 22:47
Sveindís Jane lék í jafntefli á meðan Berglind Björg sat á bekknum í stórsigri Alls fóru fjórir leikir fram í Meistaradeild Evrópu í fótbolta í kvöld. Berglind Björg Þorvaldsdóttir sat allan tímann á bekknum í 5-0 sigri París Saint-Germain en Sveindís Jane Jónsdóttir spilaði síðari hálfleikinn í 1-1 jafntefli Wolfsburg í Róm. Fótbolti 23.11.2022 22:09
Vertonghen segir að leikmönnum sé „stjórnað“ í Katar Jan Vertonghen, leikmaður belgíska landsliðsins, segir að leikmönnum sé „stjórnað“ á HM í fótbolta sem nú fer fram í Katar. Fótbolti 23.11.2022 18:46
Spánverjar í sjöunda himni eftir stórsigur á Kosta Ríka Spánverjar byrja HM í Katar vægast sagt af krafti en Spánn lagði Kosta Ríka með sjö mörkum gegn engu. Spánn hafði ekki unnið fyrsta leikinn á síðustu þremur stórmótum en bætti heldur betur fyrir það. Fótbolti 23.11.2022 15:30
Ronaldo í tveggja leikja bann Cristiano Ronaldo var í dag dæmdur í tveggja leikja bann vegna atviks sem átti sér stað á síðustu leiktíð. Bannið mun ekki hafa áhrif á leiki hans með Portúgal á HM en mun taka gildi sama með hvaða félagsliði hann mun spila næst. Einnig var hann sektaður um 50 þúsund pund. Enski boltinn 23.11.2022 17:00
„Okkar starf í vikunni sem var að líða var að einbeita okkur að fótbolta“ Gareth Southgate, landsliðsþjálfari Englands, var eðlilega kampakátur með 6-2 sigur sinna manna á Íran þegar þau hófu leik á HM sem fram fer í Katar. Southgate var þó ósáttur með varnarleik sinna manna og sagði að hann yrði að vera betri það sem eftir lifir móts. Fótbolti 21.11.2022 23:31
Nýliðar FH tilkynna tvo nýja leikmenn FH leikur í Bestu deild kvenna í fótbolta á næstu leiktíð og hefur þegar hafið að styrkja leikmannahóp sinn fyrir komandi átök. Í dag tilkynnti liðið að tveir ungir og efnilegir leikmenn hefðu samið við FH. Íslenski boltinn 21.11.2022 22:01
Bale bjargaði stigi fyrir Wales Wales lék í kvöld sinn fyrsta leik á HM í fótbolta frá árinu 1958. Það var vel við hæfi að Gareth Bale, einn besti íþróttamaður í sögu landsins, hafi tryggt þeim stig en Wales gerði 1-1 jafntefli við Bandaríkin. Fótbolti 21.11.2022 18:31