
Besta deild karla

Heimir: Óli Jó fann upp barnasálfræðina í íslenskri knattspyrnu
Heimir Guðjónsson, þjálfari FH, segir að hans menn hafi verið sterkari aðilinn gegn toppliði Vals og átt skilið að vinna 2-1 sigur. Fyrir vikið náði FH að minnka forystu Vals á toppnum í sex stig.

Umfjöllun, viðtöl, myndir og einkunnir: Víkingur R - ÍBV 1-1 | Castillion bjargaði stigi fyrir Víking | Sjáðu mörkin
Víkingur R og ÍBV skildu jöfn í Fossvoginum í kvöld. Eyjamenn komust yfir snemma leiks, en enn og aftur ná þeir ekki að klára færin sín og Víkingar jöfnuðu undir lok leiksins.

Þegar Gummi Ben gabbaði FH-inga upp úr skónum án þess að koma við boltann | Myndband
Valsmenn geta í kvöld sótt sigur í Kaplakrika eitthvað sem hefur ekki tekist hjá Hlíðarendaliðinu í tæp tíu ár eða síðan 23. september 2007.

Kjóstu um besta mark og besta leikmann júlí
Pepsi-mörkin hafa tilnefnt þrjá bestu leikmenn og þrjú bestu mörk Pepsi-deildar karla í júlímánuði.

Valsmenn urðu Íslandsmeistarar síðast þegar þeir náðu að vinna FH í Kaplakrika
Valsmenn geta stigið stórt skref í átt að fyrsta Íslandsmeistaratitli sínum í heilan áratug með sigri á Íslandsmeisturum FH í Kaplakrika í kvöld. Liðin mætast þá í stórleik fjórtándu umferðar Pepsi-deildar karla og verður leikurinn sýndur beint á Stöð 2 Sport.

Walesverji dæmir Kríuna
Nick Pratt frá Wales dæmir leik ÍA og KR í Pepsi-deild karla annað kvöld.

Þóroddur hættir að dæma í haust: Fleiri símaklefar en dómarar á norðurlandi
Einn reynslumesti dómari Íslands ætlar að leggja flautuna á hilluna í haust þrátt fyrir að mega dæma í áratug í viðbót.

Umfjöllun, viðtöl og einkunnir: KA - FH 0-0 | Meistararnir töpuðu dýrmætum stigum í titilbaráttunni
Valsmenn standa enn betur að vígi á toppi deildar karla eftir að FH mátti sætta sig við markalaust jafntefli gegn nýliðum KA á Akureyri.

Sigrar hjá Liverpool og Tottenham
Ensku liðin enda undirbúningstímabilið með því að leggja sterka andstæðinga að velli.

Heimir afskrifar titilinn: Leikurinn við Val verður æfingaleikur fyrir bikarúrslitin
Heimir Guðjónsson, þjálfari FH, hefur játað sig sigraðan í baráttunni við Val um Íslandsmeistaratitilinn.

Félög mega ræða við leikmenn þegar sex mánuðir eru eftir af samningi
Stjórn Knattspyrnusambands Íslands hefur samþykkt breytingar á félagsskiptareglum hér á landi en þær snúa að reglum um hvenær megi hefja viðræður við leikmenn.

Óskar Hrafn: Kennie Chopart er kominn langleiðina upp á Everest
KR-ingurinn Kennie Chopart hefur verið sérlega seinheppinn upp við mark andstæðinganna í sumar.

Óskar Hrafn: Menn eru alltaf tilbúnir að tala hann niður
Markverðir Vals og ÍA áttu ólíku gengi að fagna þegar liðin mættust í 13. umferð Pepsi-deildar karla í gær.

Haukur Páll í banni gegn FH
Haukur Páll Sigurðsson, fyrirliði Vals, verður ekki með liðinu þegar það sækir FH heim eftir viku í 14. umferð Pepsi-deild karla.

Grétar: Bjerregaard býr til eitthvað úr engu
André Bjerregaard hefur hleypt nýju lífi í lið KR.

Óskar Hrafn: Það er eins og Derby sé með framheilaskaða
Derby Rafael Carillo átti afar athyglisverðan leik þegar ÍBV og Stjarnan gerðu 2-2 jafntefli í 13. umferð Pepsi-deildar karla á sunnudaginn.

Atli lánaður til uppeldisfélagsins
KR hefur lánað miðjumanninn Atla Sigurjónsson til Þórs á Akureyri.

FH fær króatískan kantmann
Íslandsmeistarar FH hafa samið við Matija Dvornekovic, 28 ára króatískan kantmann.

"Gunnlaugur með fullt traust stjórnar eins og staðan er núna“
Magnús Guðmundsson, formaður knattspyrnudeildar ÍA, segir að Gunnlaugur Jónsson, þjálfari liðsins, hafi traust stjórnar eins og staðan sé núna.

Ögrað með vatnbyssum en enginn tekinn hálstaki
Það voru ekki bara læti inni á vellinum þegar KR og Víkingur Ó. mættust í 13. umferð Pepsi-deildar karla í gærkvöldi, heldur einnig í stúkunni á Alvogen-vellinum. KR vann leikinn 4-2.

Stærsta tap ÍA frá upphafi
Eitt sigursælasta lið íslenskrar knattspyrnu fékk slæma útreið í gærkvöldi.

Gulli Jóns: Stjórnin þarf að spá í málin
Þjálfari ÍA, Gunnlaugur Jónsson, var ekki sáttur eftir 6-0 tap sinna manna gegn toppliði Vals í Pepsi deild karla í kvöld. Hann segist ekki óttast um stöðu sína eins og er, en stjórnin þurfi að spá í málin eftir þessa útreið.

Umfjöllun, viðtöl og einkunnir: Grindavík - Víkingur R. 1-2 | Þriðja tap Grindavíkur í röð
Víkingar frá Reykjavík unnu afar kærkominn sigur þegar þeir lögðu Grindvíkinga suður með sjó í kvöld. Sigurinn er sá fyrsti í Pepsi-deildinni í júlí og lyftir þeim upp í 7.sæti deildarinnar. Grindavík er enn í 3.sæti.

Umfjöllun, viðtöl og einkunnir: Valur - ÍA 6-0 | Leikur kattarins að músinni
Valsmenn rúlluðu yfir botnlið ÍA í Pepsi-deild karla í kvöld og náðu átta stiga forystu á toppi deildarinnar.

Milos: Af því að hann er sköllóttur þá heldurðu að hann sé reyndur?
Milos Milojevic, þjálfari Breiðabliks, var ánægður með 2-1 sigur sinna manna á liði Fjölnis á Kópavogsvelli í kvöld.

Bjerregaard: Það eru allir svo almennilegir hérna
André Bjerregaard hefur komið eins og stormsveipur inn í Pepsi-deild karla. KR hefur unnið alla þrjá leikina sem þessi öflugi Dani hefur spilað og Vesturbæingar virðast vera komnir á beinu brautina eftir erfiða byrjun á tímabilinu.

Umfjöllun, viðtöl og einkunnir: KR - Víkingur Ó. 4-2 | Rússíbanareið í Frostaskjólinu
KR vann sinn þriðja sigur í röð þegar liðið lagði Víking Ó. að velli, 4-2.

Óli Stefán: Auðvelt að vera þjálfari hjá liði í velgengni
“Þetta er svona týpískur leikur fyrir okkar stöðu í augnablikinu. Við eigum fantabyrjun, þeir bjarga á línu strax í upphafi og eiga skot í slá. Þegar augnablikið er svona eins og núna þá fellur það ekki alveg með okkur,” sagði Óli Stefán Flóventsson þjálfari Grindavíkur eftir tapið gegn Víkingum í Pepsi-deildinni í kvöld.

Umfjöllun, viðtöl og einkunnir: Breiðablik - Fjölnir 2-1 | Pedersen sökkti gamla liðinu sínu
Martin Lund Pedersen skoraði bæði mörk Breiðabliks í 2-1 sigri gegn hans gamla félagi úr Grafarvoginum.

KR-ingar buðu Joey Barton á völlinn
Knattspyrnumaðurinn Joey Barton er í fríi á Íslandi.