

KA/Þór vann sannfærandi sigur á baráttglöðum HK-ingum í Olís deild kvenna, 27-31.
Halldór Harri Kristjánsson mun hætta sem þjálfari kvennaliðs HK í handbolta að tímabilinu loknu.
Nóg var um að vera í Lengjubikar karla í fótbolta í dag, en alls er nú sjö leikjum lokið. Íslandsmeistarar Víkinga unnu öruggan 3-1 sigur gegn HK og Fram vann 6-2 stórsigur gegn Selfyssingum.
Fjórir leikir fóru fram í 16-liða úrslitum Coca Cola bikars kvenna í handbolta í kvöld. Haukar, HK, ÍBV og ÍR tryggðu sér öll sæti í átta liða úrslitum, en ÍR þurfti tvöfalda framlengingu til að slá Gróttu úr leik.
Valur er komið í 8-liða úrslit Coca Cola bikarsins eftir tveggja marka sigur á HK að Hlíðarenda í kvöld.
Sérfræðingar Seinni bylgjunnar eru sammála um að HK þurfi að leita aftur í grunninn til að komast á sigurbraut í Olís-deild kvenna á ný.
Sigurjón Guðmundsson varði átján skot í marki HK í sigrinum á Fram, 28-23. Hann var að vonum kátur í leikslok enda fyrsti sigur HK-inga í vetur.
HK vann sinn fyrsta sigur í Olís-deild karla á tímabilinu þegar liðið lagði Fram að velli, 28-23, í dag.
Valur vann afar sannfærandi níu marka sigur, 23-14, er liðið heimsótti HK í Olís-deild kvenna í handbolta í dag.
Stjarnan vann góðan þriggja marka sigur er liðið tók á móti HK í Olís-deild kvenna í handbolta í kvöld. Lokatölur urðu 27-24, en Stjarnan er nú með fimm stiga forskot á HK í sjötta sæti deildarinnar.
FH er í harðri baráttu um efsta sæti Olís-deildar karla í handbolta og tók á móti botnliði HK í kvöld. HK tókst ekki að vinna leik fyrir áramót og tókst það heldur ekki í kvöld, lokatölur 33-24 heimamönnum í vil.
Haukar unnu átta marka sigur á HK 28-20. Fyrri hálfleikur Hauka var afar vel spilaður og héldu heimakonur sjó í síðari hálfleik þrátt fyrir meiri mótspyrnu gestanna.
HK tapaði sínum fyrsta leik á árinu 2022 gegn Haukum á Ásvöllum. Fyrri hálfleikur Hauka var frábær og enduðu heimakonur á að vinna átta marka sigur 28-20. Halldór Harri Kristjánsson, þjálfari HK, var afar svekktur eftir leik.
HK vann tveggja marka sigur á Aftureldingu í Olís deildinni í handbolta í dag þegar liðin áttust við í Kórnum.
Tveir leikir fóru fram í riðli 1 í A-deild Fótbolti.net mótsins í fótbolta í dag. Breiðablik vann 2-0 sigur gegn nágrönnum sínum í HK og Leiknir vann 2-1 sigur gegn Keflvíkingum.
Í kvöld fékk HK Val í heimsókn í Kórinn í þrettándu umferð Olís-deildar karla í handbolta, sem er jafnframt síðasta umferðin sem verður leikin á árinu 2021. Lauk leiknum með tveggja marka sigri Íslands- og bikarmeistarar Vals, 29-31, í hörku leik.
Danielle Marcano mun leika með Þrótti Reykjavík í Pepsi Max deild kvenna í knattspyrnu næsta sumar. Hún lék með HK í Lengjudeild kvenna síðasta sumar.
Einar Þorvarðarson var ekki bara lykilleikmaður íslenska handboltalandsliðsins í langan tíma og framkvæmdastjóri HSÍ í enn lengri tíma. Hann á mikinn þátt í stofnun eins af félögunum sem nú skipa Olís deild karla í handbolta.
Eftir að hafa staðið í Val nær allan leikinn nýverið var búist við spennandi leik er HK tók á móti Fram í Olís-deild kvenna í handbolta í dag. Annað kom á daginn þar sem Fram vann 13 marka sigur, lokatölur 20-33.
„Ég held bara áfram að vera heiðarlegur og segi að ég er brjálæðislega stoltur af mínu liði. Ég fullyrði það bara, ég veit að öllum þjálfurum þykir sitt lið best þá er ég bara þannig líka og finnst liðið mitt best,“ sagði Sebastian Alexanderson þjálfari HK eftir tap á móti KA í KA heimilinu í kvöld, 33-30.
KA vann mikilvægan sigur á HK í Olís deild karla í kvöld, lokatölur 33-30 eftir spennuleik þar sem bæði lið áttu sína kafla. KA er því komið með tvo sigra úr síðustu tveimur leikjum og fara upp í 8 stig í deildinni.
Seinni bylgjan fjallaði um elleftu umferð Olís-deildar karla í handbolta í síðasta þætti og þar á meðal um 78 marka leik ÍBV og HK í Vestmannaeyjum. Eitt af þessum 78 mörkum í leiknum var nefnilega mjög sérstakt mark.
Stefán Árni Pálsson, þáttastjórnandi Seinni bylgjunnar, velti því fyrir sér hvort Hafsteinn Óli Ramos Rocha hefði átt að fá dæmt á sig víti og í kjölfarið rautt spjald undir lok leiks ÍBV og HK í Vestmannaeyjum um helgina.
HK náði loks í stig í Olís-deild karla er liðið gerði jafntefli við ÍBV í Vestmannaeyjum, lokatölur 39-39 í ótrúlegum leik. Gestirnir geta þakkað Einari Braga Aðalsteinssyni fyrir stigið en kappinn skoraði 16 mörk í leiknum.
Sebastian Alexandersson, þjálfari HK, hafði mikið að segja eftir að lið sótti sitt fyrsta stig á tímabilinu til Vestmannaeyja í miklum markaleik þar sem lokatölur urðu 39-39.
HK-ingar sóttu sitt fyrsta stig á tímabilinu með því að skora 39 mörk gegn ÍBV í Vestmannaeyjum. Þessi fjöldi marka ætti að duga til sigurs í langflestum handboltaleikjum, en heimamenn skoruðu einnig 39 og því varð jafntefli niðurstaðan.
Topplið Olís-deildar kvenna vann einkar nauman sigur er HK heimsótti Hlíðarenda í dag. Frábær endasprettur gestanna kom örlítið of seint en aðeins munaði einu marki á liðunum er flautað var til leiksloka, staðan þá 18-17.
Víkingur vann sinn fyrsta leik á tímabilinu með 4 marka sigri á HK 26-22. Víkingur spilaði frábæran seinni hálfleik sem tryggði heimamönnum fyrsta sigur vetrarins.
HK tapaði sínum níunda leik í röð í kvöld þegar HK sótti Víking heim. Víkingur keyrði yfir HK í seinni hálfleik og vann að lokum fjögurra marka sigur 26-22. Sebastian Alexandersson, þjálfari HK, var afar svekktur eftir leik.
Seinni bylgjan ræddi rauða spjaldið sem Haukakonan Berglind Benediktsdóttir fékk þegar Haukarnir heimsóttu HK í Kórinn í síðustu umferð Olís deildar kvenna í handbolta.