Lengjubikarinn: Fylkir vann Breiðablik og FH skoraði sjö Fjórir leikir voru á dagskrá A-deildar Lengjubikars karla í fótbolta í kvöld. Fylkir hafði betur gegn ungu liði Breiðabliks og FH valtaði yfir Þrótt Reykjavík. Íslenski boltinn 6.2.2026 21:35
Eyjamenn skoruðu fjörutíu mörk gegn Selfyssingum Tveimur leikjum er lokið í Olís deild karla í handbolta í kvöld. FH-ingar höfðu betur gegn HK og þá áttu Eyjamenn ekki í neinum vandræðum með Selfyssinga. Handbolti 4.2.2026 19:41
Stúka við Kórinn mun skera niður framtíð HK í fótbolta! Að byggja stúku sem minnkar æfingasvæðið fyrir yngri iðkendur HK er skref afturábak. Við eigum að huga að framtíð HK, ekki þrengja að henni. Í Skoðun 30.1.2026 16:31
Haukar fóru létt með HK Haukar lögðu HK örugglega að velli með 33-19 sigri á Ásvöllum í Olís deild karla í handbolta. Handbolti 20. nóvember 2025 20:10
„Ég væri miklu frekar til í að skipta deildinni í efri og neðri“ Gunnar Heiðar Þorvaldsson sem er nýtekinn við störfum hjá HK og ætlar með liðið upp í Bestu deildina, en veit vel hversu erfitt verkefni það verður. Íslenski boltinn 20. nóvember 2025 08:33
Baldur Fritz fór á kostum og Afturelding styrkti stöðuna Fjórir leikir fóru fram í 9. umferð Olís deildar karla í kvöld. Topplið Aftureldingar lagði FH að velli, ÍR tók stig gegn ÍBV og HK vann fallbaráttuslaginn gegn Selfossi. Auk þess vann Valur öruggan sigur gegn Fram. Handbolti 6. nóvember 2025 21:28
Magnús Már í viðræðum við HK Magnús Már Einarsson, þjálfari fótboltaliðs Aftureldingar, er samningslaus og að skoða næstu skref á þjálfaraferli sínum. Íslenski boltinn 30. október 2025 07:20
Fram kjöldró HK og spenna í Eyjum Tveir leikir fóru fram í Olís-deild karla í handbolta í dag. Íslandsmeistarar Fram unnu afar öruggan ellefu marka útisigur gegn HK og ÍBV vann nauman tveggja marka sigur gegn KA. Handbolti 25. október 2025 16:39
Haukar einir á toppnum og HK á hraðri leið upp töfluna Haukar eru einir á tpppnum eftir sannfærandi sigur á Stjörnunni í Olís-deild karla í handbolta í kvöld. HK-ingar sóttu tvö stig á Akureyri og fögnuðu þar þriðja deildarsigri sínum í röð. Handbolti 16. október 2025 21:02
Bikarmeistararnir sluppu með skrekkinn Bikarmeistarar Fram unnu Víking, sem leikur í Grill 66 deildinni, með tveggja marka mun, 39-41, í tvíframlengdum leik í sextán liða úrslitum Powerade-bikars karla í handbolta. Leikurinn fór fram á heimavelli Víkinga í Safamýrinni þar sem Framarar léku í mörg ár. Handbolti 6. október 2025 21:32
Uppgjörið: Keflavík - HK 4-0 | Keflavík í Bestu deildina Keflavík og HK mættust á Laugardalsvelli í úrslitaleik um sæti í Bestu deild karla. Keflavík vann að lokum öruggan 4-0 sigur og leikur því í Bestu deildinni að ári. Íslenski boltinn 27. september 2025 19:40
„Held að skipið sé siglt að maður verði kallaður í landsliðið“ „Ég er bara mjög spenntur sko. Að fá að spila á þessum velli er mjög spennandi. Ég held að skipið sé siglt að maður verði kallaður í landsliðið einhvern tímann. Það er bara tækifæri að fá að spila á þessum velli,“ segir Arnþór Ari Atlason fyrirliði HK fyrir úrslitaleikinn gegn Keflavík á Laugardalsvelli í dag klukkan 16:15. Íslenski boltinn 27. september 2025 10:30
„Lærðum það í fyrra hvað það er leiðinlegt að tapa“ „Ég er spenntur og það var gaman að koma hingað í fyrra og við erum bara spenntir að koma aftur,“ segir Frans Elvarsson fyrirliði Keflavíkur fyrir úrslitaleikinn gegn HK á Laugardalsvelli í dag klukkan 16:15. Sæti í Bestu-deildinni er undir. Íslenski boltinn 27. september 2025 09:32
KA sótti sigur gegn stigalausu liði HK HK tapaði 27-31 gegn KA og er enn stigalaust eftir fjórar umferðir í Olís deild karla. Handbolti 26. september 2025 21:10
„Held við séum búnir að sjúga karamelluna nægilega mikið“ „Við fórum nokkuð hátt eftir sigurinn á Njarðvík en ég held við séum búnir að sjúga karamelluna nægilega mikið og komnir niður á jörðina aftur,“ segir Haraldur Freyr Guðmundsson þjálfari Keflavíkur fyrir úrslitaleikinn gegn HK á Laugardalsvelli á morgun klukkan 16:15. Íslenski boltinn 26. september 2025 18:32
Lofar æðislegum leik „Mér líður bara æðislega og við erum búnir að stefna að þessu síðasta mánuðinn. Við erum statt og stöðugt búnir að stefna að því að koma okkur á Laugardalsvöllinn,“ segir Hermann Hreiðarsson þjálfari HK fyrir úrslitaleikinn gegn Keflavík á Laugardalsvelli á morgun. Sæti í Bestudeildinni er undir. Íslenski boltinn 26. september 2025 17:02
Úrslitaspurningin var um húðflúr aðalleikarans í Breaking Bad Valur og HK mættust í 16 liða úrslitum Kviss á laugardagskvöldið. Þau Dóra Júlía og Jóhann Alfreð mættu fyrir hönd Vals og VÆB bræður fyrir hönd HK í hörku viðureign. Lífið 22. september 2025 13:00
„Heldur þessi veisla ekki bara áfram?“ Hermann Hreiðarsson þjálfari HK var að vonum ánægður eftir 2-3 sigur á Þrótti í seinni leik liðanna í úrslitakeppni Lengjudeildar sem fór fram í dag. HK vann fyrri leikinn 4-3 og því um algjöra markaveislu að ræða. Hermann viðurkenndi að hann væri í skýjunum með sigurinn. Íslenski boltinn 21. september 2025 17:56
Uppgjörið: Þróttur - HK 2-3 | Mæta Keflavík í úrslitum eftir markaveislu Þróttur tók á móti HK í seinni leik í einvígi liðanna í úrslitakeppni Lengjudeildarinnar í dag. Fyrri leikur liðanna fór 4-3 og þurftu heimamenn því að sækja til að eiga möguleika á að snúa einvíginu. Íslenski boltinn 21. september 2025 16:30
Stjarnan vann háspennuleik gegn HK Stjarnan fagnaði sínum fyrsta sigri í Olís deild karla í handbolta eftir æsispennandi leik gegn HK. Lokatölur í Garðabænum 26-25 eftir sannkallaðan spennutrylli. Handbolti 19. september 2025 20:45
„Sex til sjö leikmenn haltrandi inni á vellinum“ Hermann Hreiðarsson, þjálfari HK, kunni vel að meta að leikmenn beggja liða gáfu allt í botn í seinni hálfleik í sigri hans manna gegn Þrótti í fyrri undanúrslitaleik í umspili um sæti í efstu deild karla í fótbolta í Kórnum í kvöld. Íslenski boltinn 17. september 2025 23:32
Uppgjörið: HK - Þróttur 4-3 | HK fer með eins marks forskot í senini leikinn eftir rússibanareið HK og Þróttur áttust við í fyrri viðureign liðanna í undanúrslitum umspils Lengjudeildar karla í fótbolta um laust sæti í efstu deild í Kórnum í kvöld. Eftir markalausan fyrri hálfleik opnuðust flóðgáttir í þeim seinni og HK fór með 4-3 sigur af hólmi. Íslenski boltinn 17. september 2025 21:08
Umspilið hefst í kvöld: „Fengum hjálp frá greiningardeildinni á Húsavík“ Umspilið um laust sæti í Bestu deild karla hefst í kvöld. Tveir Eyjapeyjar stýra liðum gegn hvor öðrum í undanúrslitunum, þegar HK og Þróttur mætast í Kórnum. Þjálfari HK-inga sótti sér aukaþekkingu á ferð liðsins til Húsavíkur. Íslenski boltinn 17. september 2025 13:13
Valsmenn semja við einn markahæsta leikmanninn í Lengjunni Valsmenn hafa skrifað undir fimm ára samning við framherjann Dag Orra Garðarsson. Íslenski boltinn 4. september 2025 14:44