

Lárus Jónsson sagði lítið að marka úrslitin í leiknum gegn Grindavík í kvöld enda heimaliðið án tveggja sterkra leikmmanna. Hann sagði Þórsara ekki geta verið alltof ósátta þó deildarmeistaratitillinn hafi runnið úr þeirra greipum.
Sverrir Þór Sverrisson þjálfari Grindavíkur var nokkuð rólegur eftir átta stiga tap gegn Keflavík í kvöld og sá greinilega ýmsa ljósa punkta í leik sinna manna. Grindavík hittu afleitlega í kvöld en voru þó í góðum séns undir lokin þar sem þeir minnkuðu muninn í fimm stig. Leiknum lauk þó 78-70 Keflavík í vil.
Keflavík vann góðan átta stiga sigur á grönnum sínum frá Grindavík í Subway-deild karla í körfubolta í kvöld. Sigurinn þýðir að Grindavík getur ekki náð Keflavík en aðeins ein umferð er nú eftir áður en úrslitakeppnin hefst.
Fjölnir steig stórt skref í átt að deildarmeistaratitlinum í Subway deildinni í körfubolta með torsóttum sigri á Grindavík í dag.
„Þetta var bara villa. Hann er með lítinn skurð á enninu sem blæðir úr þannig að það segir allt sem segja þarf,“ sagði Friðrik Ingi Rúnarsson þjálfari ÍR sem vildi villu í síðustu sókn ÍR í tapleiknum gegn Grindavík í kvöld.
Grindavík, botnlið Subway-deildar kvenna í körfubolta, gerði sér lítið fyrir og lagði nýkrýnda bikarmeistara Hauka á þeirra heimavelli í leik liðanna í kvöld. Lokatölur 83-77 gestunum frá Grindavík í vil.
Grindvíkingar heimsóttu Fram í lokaleik liðanna í fjórða riðli A-deildar Lengjubikars karla í kvöld. Hvorugt liðið hafði að neinu að keppa, en það voru Grindvíkingar sem unnu góðan 5-3 útisigur.
Keflavíkurkonur unnu öruggan sigur á botnliði Grindavíkur í Subway deildinni í kröfubolta í kvöld þegar liðin mættust í Grindavík.
Stjarnan vann mikilvægan fjögurra stiga sigur gegn Grindvíkingum í Subway-deild karla í körfubolta í kvöld, 91-87. Grindvíkingar leiddu með tuttugu stigum í hálfleik, en Garðbæingar snéru taflinu við í síðari hálfleik og höfðu að lokum betur í framlengingu.
Sverrir Þór Sverrisson, þjálfari Grindavíkur, var sár og svekktur eftir að hafa misst niður nánast unnin leik gegn Stjörnunni í Garðabæ.
Nýliðar Njarðvíkur og Grindavíkur mættust í Ljónagryfjunni í kvöld í hörku leik. Þrátt fyrir að hlutskipti liðanna í deildinni sé ansi ólíkt, var ekki að sjá á leik þeirra að hér væru lið að berjast á sitthvorum enda töflunnar.
Þorleifur Ólafsson, Lalli, þjálfari Grindavíkur var kampakátur í leikslok í Ljónagryfjunni í kvöld þar sem hans konur lönduðu miklum baráttusigri gegn Njarðvík.
Haukar unnu fjórða leikinn sinn í röð er liðið heimsótti Grindavík í Subway-deild kvenna í körfubolta í kvöld. Lokatölur 93-78.
Haukar lönduðu þegar upp var staðið nokkuð öruggum sigri í Grindavík í kvöld, en það var þó ekki fyrr en rétt síðustu fimm mínúturnar eða svo sem gestirnir náðu að slíta sig almennilega frá heimakonum í Grindavík, staðan 71-75 þegar 5:32 lifðu leiks. Bjarni Magnússon, þjálfari Hauka, tók undir þá greiningu blaðamanns að þær hefðu þurft að hafa töluvert fyrir sigrinum í kvöld.
Grindavík vann Vestra í endurkomu Sverris Þórs Sverrissonar sem þjálfara Grindavíkur. Eftir hikandi byrjun duttu heimamenn í gang í öðrum leikhluta og litu aldrei um öxl eftir það. Grindavík vann á endanum sextán stiga sigur 90-74.
Grindavík vann sextán stiga sigur á Vestra í HS-Orku höllinni í kvöld. Sverrir Þór Sverrisson, þjálfari Grindavíkur, var afar ánægður með að byrja á sigri í sínum fyrsta leik sem nýr þjálfari Grindavíkur.
Sverrir Þór Sverrisson hefur verið ráðinn þjálfari liðs Grindavíkur í Subway-deild karla í körfubolta. Grindvíkingar hafa verið án þjálfara síðan Daníel Guðni Guðmundsson var látinn taka poka sinn á dögunum.
„Ég veit ekki hvort nokkur sé sáttur þegar maður er rekinn. Þetta kom mér á óvart,“ segir körfuboltaþjálfarinn Daníel Guðni Guðmundsson sem fékk að vita það í gærkvöld að honum hefði verið sagt upp starfi sem þjálfari karlaliðs Grindavíkur.
Stjórn körfuknattleiksdeildar Grindavíkur vinnur nú að því að ákveða hver stýra muni karlaliði félagsins út leiktíðina eftir að hafa ákveðið að láta Daníel Guðna Guðmundsson taka pokann sinn.
Fjölnir komst aftur á sigurbraut er liðið valtaði yfir Grindavík. Frábær fjórði leikhluti Fjölnis gerði útslagið og endaði leikurinn 90-66. Umfjöllun og viðtöl.
Grindavík steinlá fyrir Fjölni í Subway-deild kvenna í kvöld. Leikurinn endaði 90-66 og var Þorleifur Ólafsson, þjálfari Grindavíkur, afar svekktur með úrslitin.
Jóhann Þór Ólafsson, aðstoðarþjálfari Grindavíkur, var við stjórnvölin í kvöld þar sem Daníel Guðni tók út leikbann. Hann tók undir þá greiningu mína að það hefði verið engu líkara en tvö mismunandi Grindavíkurlið hefðu mætt til leiks í fyrri og seinni hálfleik, en frammistaðan var eins og svart og hvítt hjá þeim gulklæddu í kvöld.
Grindavík vann frábæran endurkomusigur á Val, 99-92, í Subway-deild karla í kvöld. Sigurinn þýðir að Grindavík hefur jafnað Val að stigum í deildinni.
Grindvíkingar eru komnir niður í sjötta sæti Subway-deildar karla í körfubolta og eru á hraðri niðurleið eftir einstaklega slakt gengi á móti neðstu liðum deildarinnar að undanförnu.
Breiðablik er áfram á sigurbraut í Subway-deild karla í körfubolta. Að þessu sinni var það Grindavík sem lá í valnum, lokatölur í Smáranum 104-92. Blikar eru svo sannarlega komnir í baráttuna um sæti í úrslitakeppninni.
Ivan Aurrecoechea Alcolado átti góðan leik er Grindavík lagði Tindastól í síðustu umferð Subway-deildar karla í körfubolta. Strákarnir í Körfuboltakvöldi eru þó á því að þessi 26 ára Spánverji gæti orðið enn betri ef hann breytir leik sínum örlítið.
Grindavík vann góðan 101-93 sigur á Tindastól í Subway-deild karla í kvöld. Þetta var fyrsti sigur heimamanna á árinu.
„Það er gott að verja heimavöllinn og ná loksins í sigur á þessu ári,“ sagði Daníel Guðni Guðmundsson, þjálfari Grindavíkur, eftir sigurinn á Tindastól í Subway-deildinni í körfuknattleik í kvöld.
Keflavík vann öruggan sigur á nágrönnum sínum úr Grindavík í Subway deildinni í körfubolta í kvöld.
Grindavík beið lægri hlut fyrir Keflavík í Subway deildinni í körfubolta í kvöld en þrátt fyrir það er engan bilbug að finna á Grindavíkurkonum.