
Þór Akureyri

„Ekki tími ársins til að fara inn í einhverja skel“
„Mér fannst við vera í hörku séns á vinna þennan leik þrátt fyrir þunnskipaðan hóp og án stórra pósta en fínasta frammistaða, bara leiðinlegt að þetta sveiflast til þeirra þarna í restina“, sagði Daníel Andri Halldórsson, þjálfari Þórs, eftir tap gegn Val í fyrsta leik liðanna í 8-liða úrslitum Bónus deildar kvenna en úrslitin réðust á lokamínútu leiksins.

Uppgjörið: Þór - Valur 86-92 | Sterkur sigur sóttur í fyrsta leik
Valur leiðir 1-0 í einvígi sínu gegn Þór Akureyri í 8-liða úrslitum Bónus deildar kvenna eftir 86-92 sigur fyrir norðan í fyrsta leik liðanna og hirti þar með heimavallarréttinn. Vinna þarf þrjá leiki til að komast í undanúrslit.

Þórsarar tryggðu sér úrvalsdeildarsæti með sigri í lokaumferðinni
Þór Akureyri tryggði sér sæti í úrvalsdeild karla í handbolta á næsta tímabili með 37-29 sigri gegn HK í lokaumferðinni. Þá er einnig orðið ljóst hvaða lið mætast í umspilinu um hitt lausa sætið.

Breiðablik Lengjubikarmeistari eftir öruggan sigur á Þór/KA
Íslandsmeistarar Breiðabliks hefja knattspyrnuvorið á sömu nótum og þær luku síðasta sumri en liðið tryggði sér Lengjubikarinn í kvöld með 4-1 sigri á Þór/KA.

Þór/KA vann í vítaspyrnukeppni og mætir Breiðabliki í úrslitaleik
Þór/KA mætti með laskað lið til leiks en sló Stjörnuna út í vítaspyrnukeppni eftir 1-1 jafntefli í undanúrslitum Lengjubikarsins. Breiðablik bíður þeirra í úrslitaleiknum næsta sunnudag.

Uppgjörið: Grindavík - Þór Ak. 92-80 | Grindavík hefndi fyrir tapið í fyrra og fer í úrslit
Grindavík vann 92-80 gegn Þór Akureyri í svakalega sveiflukenndum undanúrslitaleik bikarkeppni kvenna í körfubolta. Grindavík hefndi þar með fyrir tapið gegn Þór í undanúrslitum í fyrra og mun mæta Njarðvík í úrslitaleiknum næsta laugardag.

Óbærileg bið eftir kvöldinu
Daníel Andri Halldórsson, þjálfari kvennaliðs Þórs í körfubolta, segir mikla spennu fyrir undanúrslitaleik kvöldsins við Grindavík í bikarkeppninni. Biðin sé heldur löng eftir kvöldinu.

Uppgjörið: Haukar - Þór Ak. 97-73 | Haukar deildarmeistarar
Eftir brösuga byrjun settu Haukar í fluggír til að leggja Þórskonur að velli í 21. umferð Bónus deildar kvenna. Leikurinn endaði 97-73 og með sigrinum tryggðu Haukar sér deildarmeistaratitilinn en þær hafa fjögurra stiga forskot á Njarðvík fyrir lokaumferðina.

Þór/KA konur áfram í undanúrslit eftir sigur í Árbænum
Þór/KA fór í góða ferð suður í kvöld og fagnaði flottum sigri á Fylkiskonum í Lengjubikar kvenna í fótbolta.

Þór ekki í teljandi vandræðum með Val
Þór Akureyri vann sannfærandi sigur á Val þegar liðin mættust í A-riðli Bónus deildar kvenna í körfubolta.

Uppgjörið: Njarðvík - Þór Ak. 93-80 | Sjötti sigur grænna í röð
Njarðvík tók á móti Þór Akureyri í kvöld þegar Bónus deild kvenna hélt áfram göngu sinni. Búið er að skipta deildinni upp í efri og neðri hluta og mættust liðin í fyrstu umferð efri hlutans í IceMar-höllinni í Njarðvík. Það er vika síðan þessi lið mættust á sama velli og þá hafði Njarðvík betur með tíu stigum. Þær bættu um betur í kvöld og höfðu að lokum þrettán stiga sigur 93-80.

Öruggur sigur Akureyrarkvenna í Lengjubikarnum
Lið Þór/KA vann í dag öruggan sigur á Fram þegar liðin mættust í A-deild Lengjubikars kvenna í Boganum.

Vígja Mörthu í goðsagnarhöllina
Það verður stór dagur í KA-heimilinu í dag þegar stelpurnar í KA/Þór taka á móti deildarmeistaratitlinum í Grill 66 deild kvenna í handbolta. Norðanmenn ætla nefnilega líka að heiðra mikla hetju í leiðinni.

Uppgjörið: Njarðvík - Þór Ak. 94-80 | Sigurganga Njarðvíkur heldur áfram
Njarðvíkingar unnu sannfærandi sigur gegn Þór Akureyri 94-80. Þetta var fimmti sigur Njarðvíkur í röð sem tryggði liðinu annað sætið áður en deildinni verður skipt upp í efri og neðri hluta.

Háspennuleikir á Akureyri og Króknum
Það voru vægast sagt spennandi leikir sem fóru fram í Bónus deild kvenna í körfubolta á Akureyri og Sauðárkróki í dag.

KA/Þór beint aftur upp í deild þeirra bestu
KA/Þór tryggði sér í dag sigur í 1. deild kvenna í handbolta en liðið hefur ekki enn tapað leik á leiktíðinni. Eftir fall á síðustu leiktíð hefur liðið sýnt og sannað að það er alltof gott fyrir 1. deildina og mun leika í Olís-deildinni á næstu leiktíð.

Tvær þrennur í níu marka stórsigri
Þór/KA vann 9-0 stórsigur gegn Tindastóli í fyrstu umferð Lengjubikars kvenna. KA sótti 0-1 sigur til Njarðvíkur í annarri umferð Lengjubikars karla.

Þórskonur eiga von á nýjum leikmanni: „Til að hjálpa okkur að halda þessari sigurgöngu áfram“
Amandine Toi varð stigahæst í öruggum sigri gegn Aþenu í sextándu umferð Bónus deildar kvenna. Þór Akureyri hefur nú unnið tíu leiki í röð og jafnað toppliðið að stigum. Sem stendur er leikmannahópur liðsins fremur þunnskipaður en Amandine vonast til að bæta leikmönnum við áður en félagaskiptaglugginn lokar um mánaðamótin.

Uppgjörið: Aþena - Þór Ak. 85-95 | Tíundi deildarsigur Þórs í röð
Þór Akureyri hélt sigurgöngu sinni í Bónus deild kvenna áfram í kvöld og vann tíunda leikinn í röð gegn Aþenu, neðsta liði deildarinnar sem hefur nú tapað síðustu átta leikjum. Lokatölur í Breiðholtinu 85-95.

Ótrúlegar Þórskonur: „Þær eru stórhættulegar“
Þórskonur virðast hreinlega óstöðvandi í Bónus-deildinni í körfubolta og þar hjálpar til mögnuð þriggja stiga hittni þeirra Amandine Toi og Esther Fokke, eins og fjallað var um í Körfuboltakvöldi kvenna á Stöð 2 Sport.

Þór Ak. lagði toppliðið og galopnaði toppbaráttuna
Toppbarátta Bónus-deildar kvenna í körfubolta er galopin eftir sigur Þórs Akureyrar á toppliði Hauka. Þá vann Keflavík sjö stiga sigur á Hamar/Þór.

„Erum með samfélag sem trúir á okkur“
Maddie Sutton, leikmaður Þórs Akureyri, var ánægð og stolt með að komast í undanúrslit VÍS-bikarins eftir 94-87 sigur á Haukum á Akureyri í dag.

Njarðvíkingar kláruðu Stólana í lokin
Njarðvík er komið í undanúrslit VÍS-bikars kvenna eftir

Uppgjörið: Þór Ak. - Haukar 94-87 | Þórsarar á leið í undanúrslit annað árið í röð
Þór Akureyri er komið í undanúrslit VÍS-bikarsins eftir sjö stiga sigur gegn Haukum á Akureyri í dag. Þór hafði yfirhöndina í leiknum en Haukar gerðu leikinn spennandi í lokin sem dugði þó ekki til. Lokatölur 94-87 og Þór í undanúrslit bikarsins annað árið í röð.

Uppgjör: Tindastóll - Þór Ak. 80-83 | Átta sigrar í röð hjá Þórskonum
Tindastólskonum tókst ekki að stöðva sigurgöngu Þórskvenna í Bónus deild kvenna í körfubolta í kvöld þrátt fyrir góða byrjun því Akureyringar fóru í stuð í þriggja leikhluta í Síkinu og unnu að lokum spennandi slag um Norðurland.

Uppgjör og viðtöl: Þór Ak.-Keflavík 109-87 | Þórskonur áfram í stuði á heimavelli
Þórskonur héldu áfram sigurgöngu sinni í Bónus deild kvenna í körfubolta í kvöld með 22 stiga sigri á Íslandsmeisturum Keflavíkur, 109-87.

„Vonandi náum við að stækka hópinn og gera magnaða hluti í vor”
Daníel Andri Halldórsson, þjálfari Þórs, var mjög sáttur og virkilega ánægður með frammistöðu síns liðs eftir sigur á Íslandsmeisturum Keflavíkur i kvöld.

Uppgjörið: Grindavík - Þór Ak. 64-84 | Þór hafði betur í Smáranum
Þór Akureyri hafði betur gegn Grindavík í leik liðanna í Bónus deild kvenna í dag er liðin mættust í Smáranum.

„Himinlifandi“ eftir að hafa landað fyrirliða Fylkis
Þór/KA hefur tryggt sér liðsstyrk fyrir næstu leiktíð í Bestu deild kvenna í fótbolta með því að fá Evu Rut Ásþórsdóttur frá Fylki.

Norðankonur áfram fullkomnar á heimavelli
Þór Akureyri hélt sigurgöngu sinni áfram á heimavelli sínum í Bónus deildar kvenna í körfubolta í kvöld.