Breiðablik

Óskar Hrafn ofarlega á óskalista Norrköping
Óskar Hrafn Þorvaldsson, þjálfari Breiðabliks, er ofarlega á óskalista sænska úrvalsdeildarliðsins Norrköping sem er í þjálfaraleit.

Sjáðu Blika klára Skagamenn á níu mínútna kafla
Breiðablik lenti undir á móti botnliði Skagamönnum í Bestu deild karla í gær en toppliðið snéri leiknum við með þremur mörkum á níu mínútna kafla í seinni hálfleiknum.

Óskar Hrafn: Dagur Dan frábær í algjörlega nýrri stöðu
Óskar Hrafn Þorvaldsson, þjálfari Breiðabliks, var heilt yfir sáttur við lærisveina sína í 3-1 sigri liðsins á móti Skagamönnum í 15. umferð Bestu deildar karla í fótbolta á Kópavogsvelli í kvöld.

Leik lokið: Breiðablik-ÍA 3-1 | Blikar komu til baka gegn Skagamönnum
Breiðablik bar sigurorð af ÍA með þremur mörkum gegn einu þegar liðin áttust við í 15. umferðar í Bestu deild karla í fótbolta á Kópavogsvelli í kvöld. Skagamenn komust yfir í leiknum en þrjú mörk Blika á níu mínútna kafla tryggðu heimamönnum sigur og níu stiga forystu á toppi deildarinnar.

Tveir sem spiluðu úrslitaleik HM 2014 gætu mætt á Kópavogsvöll
Breiðablik fær heldur betur krefjandi verkefni í 3. umferð forkeppni Sambandsdeildar Evrópu. Í liði andstæðinganna eru meðal annars tveir leikmenn sem byrjuðu inn á í úrslitaleik HM 2014.

Ásmundur: Vorbragur þrátt fyrir það sé júlí
Breiðablik vann í kvöld sannfærandi 5-0 sigur á KR í 11. umferð Bestu deildar kvenna í fótbolta en deildin hafði verið í pásu vegna Evrópumótsins síðan um miðjan júní. Ásmundur Arnarsson, þjálfari Breiðabliks, var ánægður með frammistöðuna þrátt fyrir að lið hans hafi verið lengi í gang.

Umfjöllun og viðtöl: Breiðablik - KR 5-0 | Blikar kaffærðu KR á lokakafla leiksins
Breiðablik tók á móti KR í 11. umferð Bestu deildar kvenna í fótbolta í kvöld en leikið var að nýju eftir rúmlega mánaðar pásu á deildinni vegna Evrópumóts kvenna í knattspyrnu. Breiðablik komst yfir í fyrri hálfleik og á síðustu 20 mínútunum bættu þær fjórum mörkum við til viðbótar.

Umfjöllun: Buducnost 1-2 Breiðablik | Breiðablik áfram í næstu umferð
Breiðablik er komið áfram í næstu umferð Sambandsdeildar evrópu eftir 2-1 tap í Podgorica í Svartfjallalandi í kvöld. Samanlagt vann Breiðablik einvígið 3-2 og mætir Istanbul Basaksehir í þriðju umferðinni. Umfjöllun væntanleg.

Sonur gamla körfuboltamannsins í Val og Breiðabliki í ensku úrvalsdeildina
Bandaríski landsliðsmaðurinn Chris Richards hefur fært sig úr þýsku bundesligunni yfir í ensku úrvalsdeildina.

Agla María: Lærði helling þó spiltíminn hafi verið lítill
Agla María Albertsdóttir er sátt við að vera kominn aftur í Breiðablik eftir skammvinna dvöl hjá sænska félaginu Häcken.

Adam Örn leikur með Leikni fram á haustið
Adam Örn Arnarson, leikmaður Breiðabliks, hefur verið lánaður í Leikni Reykjavík og mun hann leika þar út yfirstandandi leiktíð.

Breiðablik sækir annan leikmann úr sænsku úrvalsdeildinni
Knattspyrnudeild Breiðabliks tilkynnti fyrr í dag um félagskipti Öglu Maríu Albertsdóttur fyrir komandi átök í Bestu-deild kvenna en rétt í þessu tilkynnti félagið einnig komu markvarðarins Nichole Persson frá Piteå.

Blikar tilkynna liðsstyrk | Eiga bara eftir að sækja Kana
Breiðablik hefur bætt við nýjum leikmanni í leikmannahóp sinn fyrir komandi átök í Subway-deild karla. Liðið sótti Clayton Riggs Ladine frá Hraunamönnum í næst efstu deild.

Sjáðu dramatískan sigur KA í Keflavík og rauða spjaldið í Kaplakrika
Tveir leikir voru á dagskrá í Bestu-deild karla í knattspyrnu í gær þegar Keflavík tók á móti KA annars vegar og topplið Breiðabliks heimsótti FH-inga.

Agla María snýr aftur í Breiðablik
Agla María Albertsdóttir hefur fengið félagaskipti í Breiðablk frá sænska félaginu Häcken. Þetta kemur fram á heimasíðu knattspyrnusambands Íslands.

Umfjöllun og viðtöl: FH - Breiðablik 0-0 | FH-ingar náðu ekki að nýta liðsmuninn gegn Blikum
FH gerði markakaust jafntefli við topplið Breiðabliks í Bestu deild karla í fótbolta þegar liðin mættust á Kaplakrikavelli í kvöld.

„Ætla rétt að vona að rauða spjaldið hafi verið rétt ákvörðun“
FH og Breiðablik skildu jöfn í 14. umferð Bestu-deildarinnar. Óskar Hrafn Þorvaldsson, þjálfari Breiðabliks, var ánægður með hvernig hans menn spiluðu manni færri í tæplega 85 mínútur.

Segja leikmenn og stuðningsmenn Blika hafa „ögrað þeim stanslaust“
Leikmönnum Breiðabliks og dómurum leiks þeirra við Buducnost Podgorica eru ekki vandaðar kveðjurnar á heimasíðu svartfellska félagsins. Breiðablik vann leikinn 2-0 þar sem tveimur leikmönnum Buducnost, og þjálfara liðsins, var vikið af velli.

„Fullmikið drama miðað við það sem ég sagði“
Damir Muminovic, varnarmaður Breiðabliks, kveðst ekki hafa verið með mikinn dónaskap við leikmenn Buducnest Podgorica frá Svartfjallalandi eftir 2-0 sigur Blika á liðinu á Kópavogsvelli á fimmtudagskvöld. Hann hlakkar til síðari leiksins ytra.

Sjáðu mörkin, rauðu spjöldin, vítin og lætin þegar Blikar og Víkingar unnu
Breiðablik og Víkingur unnu bæði góða 2-0 sigra í Sambandsdeild Evrópu í gærkvöld. Hitinn var öllu meiri í Kópavogi en í Fossvogi og fór rauða spjaldið þrisvar á loft auk þess sem litlu munaði að upp úr syði í leikslok.

Allt brjálað í síðasta heimaleik mótherja Blika og þeim refsað
Mótherjar Breiðabliks í Sambandsdeild Evrópu, Buducnost Podgorica frá Svartfjallalandi, hafa verið sektaðir og þeim gert að loka hluta leikvangs síns vegna mikilla óláta í síðasta heimaleik sínum.

Lögregla brást við látunum í Kópavogi en Blikar halda óhræddir út
Fulltrúi UEFA var jákvæður eftir leik varðandi öryggisgæslu Breiðabliks á hitaleiknum við svartfellska liðið Buducnost í gærkvöld. Lögregla fylgdist með stuðningsmönnum gestanna og kom inn á völlinn þegar læti urðu í leikslok.

Útlitið orðið mikið betra fyrir íslensk félagslið
Sigrar Breiðabliks og Víkings í gærkvöldi, gegn liðum frá Svartfjallalandi og Wales, eru gífurlega mikilvægir varðandi stöðu Íslands á styrkleikalista UEFA vegna Evrópukeppna í fótbolta karla.

Óskar Hrafn segist aldrei hafa séð aðra eins reiði í boðvangi andstæðinganna
„Ég er auðvitað mjög ánægður með að við náðum að skora tvö mörk, fannst við eiga það skilið. Þetta var erfitt, tók tíma að brjóta þá á bak aftur. Varð ekkert léttara þegar þeir voru að fara af velli, urðu tíu og svo níu,“ sagði Óskar Hrafn Þorvaldsson, þjálfara Breiðabliks eftir 2-0 sigur sinna manna á Budućnost í undankeppni Sambandsdeildar Evrópu í fótbolta í kvöld.

Umfjöllun og myndir: Breiðablik-Budućnost 2-0 | Frábær sigur Blika þar sem allt ætlaði um koll að keyra í lok leiks
Breiðablik vann Budućnost Podgorica frá Svartfjallalandi 2-0 í undankeppni Sambandsdeildar Evrópu í fótbolta er liðin mættust á Kópavogsvelli í kvöld. Um var að ræða fyrri leik liðanna og ætti seinni leikurinn að verða einkar áhugaverður þar sem allt ætlaði fjandans til undir loks leiks.

„Þurfum bara að mæta með kassann úti og keyra yfir þá“
Breiðablik tekur á móti Budućnost Podgorica í fyrri leik liðanna í forkeppni Sambandsdeildar Evrópu í kvöld. Óskar Hrafn Þorvaldsson, þjálfari liðsins, ræddi við Stöð 2 í dag og fór yfir möguleika sinna manna.

Breiðablik segir orðaval umræðu ekki endurspegla félagið
Fyrr í kvöld sendi knattspyrnudeild Breiðabliks frá sér tilkynningu vegna fréttaflutnings um bréf þjálfara hjá félaginu vegna mætingu stúlkna á viðburði ReyCup. Deildin segist harma það orðaval sem fram komi í umræðunni.

Foreldrar stúlkna varaðir við því að senda þær á viðburði ReyCup
Foreldrum þrettán og fjórtán ára gamalla stúlkna í fjórða flokki í Breiðablik hefur verið sent bréf frá þjálfurum liðsins. Í bréfinu eru foreldrar hvattir til þess að halda börnum sínum frá því að fara á ball og í sundlaugarpartý í tengslum við ReyCup.

Víkingur gæti mætt pólsku meisturunum og Blikar á leið í langt ferðalag
Drátturinn í þriðju umferð forkeppni Smabandsdeildar Evrópu fór fram í dag. Íslensku liðin tvö, Víkingur og Breiðablik, eiga erfið verkefni fyrir höndum takist þeim að sigra viðureignir sínar í annarri umferð.

Umfjöllun og viðtöl: Keflavík-Breiðablik 2-3 | Blikar tryggðu enn einn sigurinn á síðustu stundu
Breiðablik vann frækinn sigur í Keflavík í kvöld í Bestu deildinni. Eftir að hafa lent undir í leiknum þá skoraði Höskuldur Gunnlaugsson sigurmarkið úr umdeildri vítaspyrnu skömmu fyrir leikslok.