
Skoðanakannanir

Nærri helmingur fólks óánægður með að endurtalningin hafi verið látin ráða
Fjörtíu og sex prósent fólks á kosningaaldri eru óánægð með að endurtalningin í Norðvesturkjördæmi hafi verið látin standa, ef marka má niðurstöður nýrrar skoðanakönnunar Prósents.

Tuttugu og tvö prósent kjósenda VG mjög óánægð með ríkisstjórnina
Ný ríkisstjórn Sjálfstæðisflokks, Framsóknarflokks og Vinstri-grænna fellur vel í kramið hjá minna en helmingi landsmanna ef marka má nýja könnun sem Prósent gerði fyrir Fréttablaðið.

Ánægja með Dag minni í austurborginni
Reykvíkingar eru ánægðari með störf Dags B. Eggertssonar borgarstjóra en aðrir landsmenn. Íbúar í vesturhluta borgarinnar eru mun ánægðari með störf borgarstjóra en aðrir.

MMR: Fylgi Vinstri grænna eykst og Framsóknar dregst saman milli mælinga
Fylgi Sjálfstæðisflokksins mælist nú 22,2 prósent og mælist flokkurinn sem fyrr stærstur samkvæmt nýrri könnun MMR. Fylgi flokksins er nær óbreytt frá síðustu fylgismælingu og rúmum tveimur prósentustigum minna en við síðustu Alþingiskosningar.

71 prósent segjast frekar versla við innlendar netverslanir
Mikil aukning hefur verið í netverslun Íslendinga á undanförnum misserum og gera um 23 prósent ráð fyrir því að versla meira á netinu á næstu tólf mánuðum. Þá segjast um 71 prósent Íslendinga versla frekar við innlendar vefverslanir en erlendar.

Fleiri hafa áhyggjur en ekki af sölu Símans á Mílu til Frakklands
Kjósendur Flokks fólksins, Miðflokksins og Sósíalistaflokksins hafa langmestar áhyggjur af sölu Símans á Mílu. Þetta kemur fram í nýrri Maskínukönnun. Fleiri landsmenn hafa áhyggjur vegna sölunnar en ekki.

Íslendingar minna hræddir við Covid-19
Íslendingar eru minna hræddir við að smitast af Covid-19 og treysta almannavörnum og heilbrigðisyfirvöldum minna til að takast á við faraldur kórónuveirunnar, þó langflestir geri það enn.

Píratar bæta við sig en Sjálfstæðisflokkurinn tapar fylgi
Píratar mælast nú með 11,7 prósenta fylgi en fengu 8,6 prósent í Alþingiskosningunum. Viðreisn bætir einnig við sig og fer úr 8,3 prósentum í 10 prósent. Samfylkingin og Framsóknarflokkurinn bæta lítillega við sig en Miðflokkurinn fer undir 5 prósent.

Um fjórðungur vill að kosið verði aftur í Norðvesturkjördæmi
Flestir telja að seinni talning atkvæða í Norðvesturkjördæmi eigi að gilda í nýafstöðnum Alþingiskosningum, eða nær 37%. Á meðan telja um 28% að fyrri talning atkvæða ætti að gilda og tæplega 24% að kjósa ætti aftur í Norðvesturkjördæmi.

Tæplega 60 prósent vilja Katrínu áfram sem forsætisráðherra
Tæp 58% kjósenda vilja að Katrín Jakobsdóttir, formaður Vinstrihreyfingarinnar - græns framboðs, verði áfram forsætisráðherra Íslands. Þetta sýna niðurstöður nýrrar könnunar Maskínu.

Tæpur fjórðungur vantreystir niðurstöðum kosninganna
Tæpur fjórðungur landsmanna treystir niðurstöðum nýafstaðinna Alþingiskosninga illa. Traustið er komið niður í það sem þekkist í nágrannalöndum eftir að hafa sögulega séð verið mjög mikið hér á landi.

Ríkisstjórnin heldur velli samkvæmt nýrri könnun Gallup
Ríkisstjórnin heldur velli nokkuð örugglega, samkvæmt nýrri könnun Gallup fyrir Ríkisútvarpið, og fengi 35 þingmenn.

Ánægja með göngugötur eykst á milli ára
Tæplega 70 prósent Reykvíkinga eru jákvæð gagnvart göngugötum borgarinnar, um tveimur prósentustigum fleiri en árið á undan, samkvæmt niðurstöðum könnunar Maskínu sem Reykjavíkurborg lét vinna.

Framsókn í bókstaflegri framsókn
Mikil hreyfing er enn á fylgi flokkanna en samkvæmt nýrri könnun Maskínu fyrir Stöð 2, Vísi og Bylgjuna myndi ríkisstjórnin sem var fallin í gær fá lágmarksmeirihluta á Alþingi í kosningunum á morgun.

Ný Maskínukönnun: Ríkisstjórnin nær til sín tveimur þingmönnum og heldur velli
Framsóknarflokkurinn mælist með 15,4 prósenta fylgi í nýrri Maskínukönnun fyrir fréttastofu Stöðvar 2, Vísis og Bylgjunnar. Fyrir vikið fengi flokkurinn ellefu þingmenn og er næststærsti flokkur landsins.

Katrín um skoðanakönnun Maskínu: Erum ekki að uppskera sama og síðast
Forystufólk stjórnmálaflokkanna var missátt við niðurstöðu skoðanakönnunar Maskínu sem birt var í kvöldfréttum Stöðvar 2, þegar þau voru spurð út málið í leiðtogaumræðunum sem standa nú yfir. Öll voru þau þó bjartsýn með framhaldið.

Ný Maskínukönnun: Hvorki ríkisstjórnin né Reykjavíkurmódelið ná meirihluta
Ef úrslit kosninganna á laugardag verða eins og í könnun Maskínu fyrir fréttastofuna væri Sjálfstæðisflokkurinn að fá sögulega útreið með 20,6 prósent atkvæða. Flokkur forsætisráðherrans, Katrínar Jakobsdóttur, væri líka að tapa verulegu fylgi frá síðustu kosningum með 11,5 prósent. Könnun Maskínu var gerð 15.-22. september og tóku tæplega sex þúsund afstöðu.

Fylgi Katrínar meira en næstu þriggja samanlagt
Þegar landsmenn eru spurðir að því hvern af leiðtogum stjórnmálaflokkanna þeir vilji sjá sem næsta forsætisráðherra þá svara 36 prósent þeirra: Katrín Jakobsdóttir. Þetta kemur fram í nýrri Maskínukönnun.

Jafnmargir treysta Katrínu mikið og treysta Bjarna lítið
Yfir helmingur landsmanna segjast bera mikið traust til Katrínar Jakobsdóttur, forsætisráðherra og yfir þriðjungur til Sigurðar Inga Jóhannssonar, formanns Framsóknarflokksins. Bjarni Benediktsson er í þriðja sæti yfir þá sem landsmenn treysta þótt enn fleiri beri lítið traust til hans.

Stjórnarflokkarnir með 43 prósent samkvæmt nýrri könnun
Sjálfstæðisflokkurinn mælist með 20 prósenta fylgi í nýrri könnun sem rannsóknafyrirtækið Prósent gerði fyrir Fréttablaðið og birt er í dag. Flokkurinn tapar rúmu prósenti frá síðustu könnun blaðsins en er þó enn stærsti flokkur landsins.

Vinstri sveiflan snýst við
Fylgi Sjálfstæðisflokksins hefur aukist nokkuð á undanfarinni viku samkvæmt nýrri könnun MMR fyrir Morgunblaðið og mbl.is sem kynnt var í dag. Fylgi flokksins hefur aukist um 1,5 prósent síðan á föstudaginn í síðustu viku en vinstri flokkar virðast hafa misst dampinn miðað við síðustu könnun MMR.

Hafna alfarið sögusögnum um að eldra fólk sé undanskilið
Gallup, Maskína og MMR hafna því að eldri aldurshópar séu undanskildir í fylgiskönnunum fyrirtækjanna í aðdraganda alþingiskosninga.

Skoðanakannanir fyrir kosningar valdi fjárfestum áhyggjum
Íslenski hlutabréfamarkaðurinn virðist sveiflast í takt við skoðanakannanir í aðdraganda alþingiskosninga. Aðalhagfræðingur Íslandsbanka segir fjárfesta hafa áhyggjur, hvort sem þær séu réttmætar eða ekki, af stjórnvöldum sem hyggi á þrálátri skuldasöfnun ríkissjóðs sem leiði til hækkunar stýrivaxta.

Mælanleg vinstri sveifla viku fyrir kosningar
Greinilega sveiflu til vinstri má sjá í niðurstöðum nýrrar skoðanakönnunar MMR sem gerð var í samstarfi við Morgunblaðið og mbl.is. Eykst fylgi Vinstri grænna, Samfylkingar, Pírata og Sósíalista milli kannanna á sama tíma og fylgi Sjálfstæðisflokksins dalar töluvert.

Einungis um annar hver kjósandi kynnt sér frambjóðendur að ráði
Nú þegar um vika er í kosningar hefur um annar hver kjósandi varla kynnt sér frambjóðendur samkvæmt nýrri Maskínukönnun. Þeir sem hyggjast kjósa Samfylkinguna telja sig hafa kynnt sér frambjóðendur best.

Stjórnarflokkarnir með samtals 44 prósenta fylgi
Ríkisstjórnarflokkarnir – Sjálfstæðisflokkurinn, Vinstri græn og Framsókn – fá samtals 44 prósenta fylgi í nýrri könnun Prósents sem unnin var fyrir Fréttablaðið.

Ríkisstjórnin kolfallin samkvæmt könnun Maskínu
Ríkisstjórnin er kolfallin samkvæmt nýrri könnun Maskínu fyrir Bylgjuna, Stöð 2 og Vísi og fengju stjórnarflokkarnir samanlagt aðeins tuttugu og níu þingmenn.

Dregur úr fylgi Sjálfstæðisflokksins í nýrri könnun
Töluvert dregur úr fylgi Sjálfstæðisflokksins í nýrri könnun sem MMR gerir fyrir Morgunblaðið og greint er frá í blaði dagsins.

Bjarni með pálmann í höndunum samkvæmt könnun
Formaður Sjálfstæðisflokksins er með pálmann í höndunum við myndun nýrrar ríkisstjórnar samkvæmt könnun Maskínu fyrir fréttastofu Stöðvar 2, Vísis og Bylgjunnar. Ríkisstjórnin héldi velli og Miðflokkurinn næði ekki inn manni.

Aukinn stuðningur við móttöku flóttafólks
Tæp 40% landsmanna eru þeirrar skoðunar að fleira flóttafólk ætti að fá hæli hér á landi. Þetta kemur fram í nýrri skoðanakönnun MMR. 35% svöruðu því til að fjöldi flóttafólks væri hæfilegur, en 26% þótti of margt flóttafólk fá hér hæli.