Dýraheilbrigði

Fagráð um velferð dýra segir hvalveiðar ekki samræmast lögum
Fagráð um velferð dýra hefur komist að þeirri niðurstöðu að sú veiðiaðferð sem beitt er við veiðar á stórhvelum samræmist ekki ákvæðum laga nr. 55/2013 um velferð dýra. Ekki sé hægt að uppfylla þau skilyrði sem nauðsynleg eru til að tryggja velferð dýra við aflífun.

Stjörnugrís leyfir fjölmiðlum ekki að mynda gösun svína
Samtök um dýravelferð á Íslandi skora á Stjörnugrís að bjóða fjölmiðlum og fulltrúum dýravelferðarsamtaka að koma og fylgjast með slátrun. Stjörnugrís mun ekki heimila það.

Eitt sláturhús á Íslandi gasar svín
Eitt af fjórum svínasláturhúsum á Íslandi notar koltvíoxíð gas til að aflífa svín. Thelma Róbertsdóttir sérgreinadýralæknir hjá Matvælastofnun segir þetta samræmast lögum um dýravelferð og Evrópureglugerð. Enn þá sé þetta besta aðferðin til aflífunar svína.

Upphaf hvalveiðivertíðar í uppnámi
Umhverfisráðuneytið áformar að vísa frá beiðni Hvals hf. um undanþágu frá starfsleyfi. Fyrirtækið sótti um undanþáguna vegna óvissu um að veiðar gætu hafist á hefðbundnum tíma. Vertíðinni gæti því seinkað í ár.

Fólk beðið um að láta af brauðgjöf til andanna
Dýravinir á öllum aldri eru beðnir um að standast þá freistingu að gefa öndunum brauð við Tjörnina í Reykjavík í sumar. Ástæðan eru sílamávar sem eru líklegir til að vaða í nýklakta andarungana.

Bein útsending: Rostungur í fjörunni á Álftanesi
Rostungur sem sást í Hafnarfjarðarhöfn liggur nú í fjörunni á Álftanesi. Þar hefur hann verið í nokkrar klukkustundir. Fólk er varað við því að koma ekki nær en hundrað metra frá rostungnum

Segja prímata hafa stundað sjálfsfróun í 40 milljón ár
Þróunarfræðingar segja sjálfsfróun hafa verið iðkaða meðal prímata fyrir allt að 40 milljón árum síðan. Þeir hafa kortlagt hegðunina meðal núlifandi prímata en segja enn óljóst hvaða þróunarfræðilega tilgangi hún hefur þjónað.

Meðvirkni og aðgerðarleysi viðhaldi hræðilegu ástandi á Höfða
Sveitarstjórnarfulltrúi og bóndi í Borgarbyggð segir Matvælastofnun bregðast bændum og kindum á Höfða í Borgarfirði og að meðvirkni einkenni málið. Þrátt fyrir yfirlýsingar um aðgerðir hafi stofnunin ekkert gert og ástandið farið versnandi með hverju ári.

Fuglaflensa ekki talin ástæða fjöldadauðans
Fuglaflensa er ekki talin ástæða fjöldadauða fugla sem hefur valdið vísindamönnum áhyggjum upp á síðkastið. Hundruð fugla hafa fundist dauð víða um land.

„Þau áttuðu sig á því sjálf að þau réðu ekki við þetta“
Matvælastofnun (MAST) hefur bannað dýrahald á sauðfjárbýli á Vesturlandi og falið lögreglustjóra að gefa út ákæru. Bæði búpeningur og gæludýr eru þegar farin af bænum.

MAST sviptir bændur leyfi til dýrahalds
Starfsmenn Matvælastofnunar hafa lagt fram beiðni til lögreglu um að ábúendur á bóndabæ á Vesturlandi verði meinað að hafa dýr í þeirra umsjá. Beiðnin byggir á lögum um velferð dýra en í yfirlýsingu frá stofnuninni segir að eftirlit á bænum hafi leitt í ljós óviðunandi ástand þar.

Bólusetja endur í haust
Franska landbúnaðarráðuneytið hefur tilkynnt að bólusetningartilraunir við fuglaflensu á öndum hafi gefið viðunandi árangur. Stefnt er að því að bólusetja aliendur í haust.

Meint dýraníð látið viðgangast í áraraðir
Íbúi í Borgarfirði segir fé á bænum Höfða í Borgarfirði hafa búið við slæman aðbúnað í áraraðir. Húsakostur rúmi ekki allt féð sem ráfi vannært og illa farið um sveitina. Hvorki Matvælastofnun né sveitarstjóri geri nokkuð í málinu sem hafi verið opinbert leyndarmál í rúm fimmtán ár.

„Ég man ekki eftir svona miklum dauða“
Dauðir lundar og ritur hafa sést hundraðatali í fjörum á Faxaflóasvæðinu undanfarna daga. Stórfelldur fugladauði þvert á tegundir þykir óvenjulegur og mikið áhyggjuefni að mati fuglafræðings.

Fjöldadauði fugla á Faxaflóa
Óútskýrður fjöldadauði fugla á Faxaflóa veldur vísindamönnum áhyggjum. Hundruð fugla hafa fundist dauðir í fjörum, jafnvel á stöðum þar sem þeir eru ekki vanir að halda sig.

Stjórnvöld verði að breyta sínum áherslum í riðumálum
Sveitarstjóri Húnabyggðar segir að sauðfjárbændur í Austur Húnavatnssýslu séu á nálum yfir því að riða getið komi upp á svæði þeirra eftir að riða kom upp á tveimur bæjum í Vestur Húnavatnssýslu í vor.

Vonir um að útbreiðslan sé ekki mikil
Niðurstöður sem komnar eru úr greiningu riðusýna í Miðfjarðarhólfi vekja vonir um að útbreiðslan sé ekki mikil. Því er brýnt að hefta hana með fumlausum viðbrögðum og í því sambandi mikilvægast að taka mögulega smitbera úr umferð eins fljótt og hægt er.

Hvalur biður ráðherra um undanþágu til að geta hafið veiðar
Hvalur hf. hefur sótt um undanþágu frá starfsleyfi til ráðherra til að geta hafið starfsemi og hvalveiðar í sumar. Samkvæmt úttekt heilbrigðiseftirlits þyrfti að gera úrbætur á frágangi við olíutank áður en slíkt yrði gefið út. Framkvæmdastjóri Heilbrigðiseftirlits Vesturlands telur samt ólíklegt að leyfið muni stranda á því.

Skoðar hvort hægt sé að takmarka hvalveiðar
Matvælaráðherra segir til skoðunar að takmarka hvalveiðar í sumar þrátt fyrir hún telji ekki lagastoð fyrir afturköllun á veiðileyfi. Hollywood-stjarna hvetur fólk til þess að mótmæla veiðunum.

Ekki lagastoð til að stöðva hvalveiðar í sumar
Matvælaráðherra ítrekaði að hann teldi hendur sínar bundnar í að stöðva veiðar á langreyðum í sumar á fundi þingnefndar í morgun. Engin lagastoð væri fyrir því að afturkalla gildandi veiðileyfi. Enginn ákvörðun hafi verið tekin um veiðar á næsta ári en við blasi að endurskoða þurfi lög um hvalveiðar almennt.

Bein útsending: Hvalaskýrslan til umræðu á opnum fundi atvinnuveganefndar
Ný skýrsla Matvælastofnunar um velferð hvala við veiðar á langreyðum á Íslandi 2022 verður til umfjöllunar á opnum fundi atvinnuveganefndar Alþingis sem hefst klukkan 8:30.

Smáhveli rak á land við Sandgerði
Dautt smáhveli rak á land í Sandgerðisfjöru. Líklegt er talið að það hafi rekið á land um helgina.

Gæludýraormalyf virka betur fyrir fólk en mannalyf
Ormalyf fyrir gæludýr virka betur á fólk en þau lyf sem eru ætluð fólki. Meiri peningum er varið í ormalyfjarannsóknir fyrir gæludýr en fólk, en sjúkdómarnir herja aðallega á fólk í þróunarlöndum.

Viðurkennir að hafa farið rangt að við veiðar
Kristján Loftsson, forstjóri Hvals, viðurkennir að betur hefði mátt standa að hvalveiðum þegar hvalur var eltur í tvær klukkustundir í myrkri og sex sprengiskutlum skotið á hann.

Hundruð dauðra fugla í fjörunni á Fitjum í Njarðvík
Tæplega hundrað ritur auk nokkurra dauðra gæsa og álfta fundust dauðar í sjávarmálinu og við tjarnirnar á Fitjum í Njarðvík. Meindýraeyðir segir að hræjum fuglanna hafi verið komið yfir til Matvælastofnunar til rannsóknar. Sérfræðingar Matvælastofnunar hafa áður viðrað áhyggjur sínar af óútskýrðum fjöldadauða rita.

Fara með hvalveiðileyfi til EFTA
Náttúruverndarsamtök Íslands hafa vísað veitingu hvalveiðileyfis til Hvals hf. til eftirlitsstofnunar EFTA. Lögfræðingur samtakanna segist telja að leyfið stangist á við Evrópureglur og vonar að stofnunin bregðist hratt við.

„Þá þarf hún bara að biðja lögfræðingana um breyta kerfinu með sér“
Rúmlega hundrað manns á öllum aldri mættu í miðbæ Reykjavíkur í dag til að mótmæla hvalveiðum á sama tíma og þjóðarleiðtogarnir mættu í Hörpu. Einn skipuleggjanda segir lög hafa verið brotin og ráðherra geti ekki leyft því að viðgangast út þetta veiðiár.

Hyggjast ná augum og eyrum þjóðarleiðtoganna við mótmæli gegn hvalveiðum
Boðað hefur verið til mótmæla í miðbæ Reykjavíkur síðdegis í dag vegna hvalveiða og er þess krafist að veiðar verði stöðvaðar. Skipuleggjandi segir vel hægt að afturkalla hvalveiðileyfi þar sem ljóst sé að dýravelferðarlög hafi verið brotin.

Bændur ekki á einu máli um að afhenda féð
Síðustu kindurnar sem átti að skera niður í Miðfirði vegna riðusmits sem þar kom upp hafa ekki enn verið afhentar. Bændur eru ekki á einu máli og tíminn er af skornum skammti.

Brotið á dýri sem háði tveggja tíma dauðastríð
Á eftirlitsmyndbandi Matvælastofnunar sést tveggja klukkustunda langt dauðastríð langreyðar sem hæfa þurfti fjórum sinnum með skutlum. Formaður Dýralæknafélags Íslands telur ljóst að lög um dýravelferð hafi verið brotin og vandséð að hægt verði að komast hjá því við veiðarnar.