
Dýraheilbrigði

Svandís fari með fleipur um erfðablöndun eldislaxa og villtra laxa
Jóhannes Sturlaugsson líffræðingur, sérfræðingur um laxfiska, segir Svandísi Svavarsdóttur matvælaráðherra hreinlega fara með rangt mál þegar hún heldur því fram að ekki liggi fyrir staðfest erfðablöndun eldislaxa og villtra laxa.

Ástand í búfjáreftirliti háalvarlegt varðandi dýr í neyð
Sá óhugnaður á vanhöldum dýra í Borgarnesi sem birst hefur á samfélagsmiðlum og fjölmiðlum síðustu daga og vikur er hörmulegur. Nú hafa verið birtar myndir af kúm sem skv. heimildum hefur verið haldið inni undanfarin þrjú ár, en voru settar út að lokum og standa þær nú í köldu haustveðrinu, grindhoraðar og með takmarkaðan aðgang að vatni og fóðri. Einnig eru áhyggjur af sauðfé á bænum.

MAST neitaði að selja vanrækta hesta
Matvælastofnun neitaði að samþykkja kauptilboð í hesta sem endað hafa í vörslu stofnunarinnar vegna vanrækslu. Stofnunin segir að lagaheimild fyrir kaupunum sé ekki til staðar og hyggst halda áfram að slátra hestum sem enda í vörslu stofnunarinnar, bregðist eigendur ekki við.

Ráðherra krefur MAST svara um velferð dýra
Svandís Svavarsdóttir, matvælaráðherra, hefur kallað eftir upplýsingum frá Matvælastofnun um framkvæmd eftirlits þeirra og verkferla vegna velferðar dýra þegar grunur vaknar um að umráðamenn uppfylli ekki ákvæði laga þess efnis.

Skæð fuglaflensa gengur enn
Skæð fuglaflensa gengur og greinist enn í villtum fuglum hér á landi. Meira en hálft ár er liðið síðan flensan fór að greinast í villtum fuglum hér á Íslandi en Matvælastofnun telur ekki tímabært að aflétta sóttvarnaaðgerðum sem eru í gildi vegna flensunnar.

Telur sig mega sæta ofsóknum af hálfu MAST
Árni Stefán Árnason lögfræðingur, sem hefur sérhæft sig í dýraverndunarlöggjöf og barist ákaft fyrir velferð dýra, telur borðleggjandi að Matvælastofnun ofsæki sig vegna skoðana sinna og gagnrýni sem hann hefur sett fram á hendur stofnuninni.

Hin hrossin send aftur til eigenda
Þrettán hross í Borgarfirði voru aflífuð af Matvælastofnun (MAST) í gær vegna alvarlegs ástands. Önnur hross reyndust vera í ásættanlegum holdum og var skilað til umráðamanns. Tíu þeirra eru þó sögð vera í viðkvæmu ástandi.

Segja hrossin hafa verið færð í sláturhús og folald fellt á staðnum
Tólf af hrossunum í Borgarfirði sem Vísir hefur fjallað um síðan í sumar eru sögð hafa verið felld. Matvælastofnun hafi mætt á vettvang.

Efast um hæfi MAST
Samtök um dýravelferð á Íslandi (SDÍ) segja viðbrögð Matvælastofnunar (MAST) við vanrækslu hrossa í Borgarfirði ekki vera í samræmi við alvarleika málsins. Samtökin skora á MAST að tryggja viðunandi aðbúnað dýranna á meðan málið er enn í skoðun.

Evrópumeistarar í dýraníði - það er Ísland - fyrri hluti
Ef ég ætti, að skilgreina opinbera dýravernd og að nokkru leyti dýravernd umráðamanna hérlendis sækir sú hugsun fyrst að mér að við séum Evrópumeistarar í dýraníði.

„Þetta er svo mikill hryllingur“
Búið er að hleypa hestunum í Borgarfirði sem Vísir hefur fjallað um í sumar út. Þeir voru lokaðir inni um langt skeið og efast hestafólk í nærsveitum um að þeir lifi veturinn af, svo illa eru þeir farnir.

Til Svandísar Svavarsdóttur matvælaráðherra
Sæl Svandís, ég er að setja mig í samband við þig vegna dýraníðs í Borgarfirði. Þú hefur örugglega heyrt af þessu máli í fjölmiðlum. Steinunn Árnadóttir benti á þetta og hefur fylgt málinu eftir. MAST gerir ekkert. Lögreglan og dýraeftirlitsmaður á svæðinu gerir ekkert.

Handtekinn fyrir framan fimmtán ára son sinn: „Þetta var ekki rétt“
Leigusali karlmanns sem var handtekinn fyrir að skjóta hest með boga var handtekinn fyrir framan fimmtán ára son sinn í aðgerðum sérsveitarinnar á aðfararnótt laugardags. Feðgarnir gagnrýna vinnubrögð lögreglu en þeir þurftu báðir að dvelja á lögreglustöðinni á Selfossi langt fram á nótt.

Sérsveit handtók bogmann í nótt
Sérsveit ríkislögreglustjóra handtók í nótt mann sem grunaður er um að hafa skotið hest með boga. Við húsleit fannst bogi, örvar og nokkur fjöldi eggvopna.

„Gjörningur einhvers níðings og mannleysu“
Ör var skotið um 15 sentimetra inn í læri hests frá Tjarnabyggð skammt frá Selfossi. Eigendum er verulega brugðið og segja þetta vekja óöryggi á heimilinu. Búið er að kæra atvikið til lögreglu.

Húsvíkingar ósáttir við himinhátt kattagjald og slæma þjónustu: „Það er mikið dýrahatur sem fólk finnur fyrir“
Nokkrir kattaeigendur á Húsavík hafa óskað eftir að afskrá ketti sína eftir að leyfisgjaldið hækkaði um rúmlega tíu þúsund krónur milli ára og er nú það hæsta á landinu öllu. Einn kattareigandi segir að um óskiljanlega hækkun sé að ræða, þar sem ekkert sé í raun innifalið í gjaldinu og kettirnir fái ekki einu sinni að fara út. Það sé sjálfsagt að kattaeigendur sýni ábyrgð en eitthvað þurfi að koma á móti.

Halló! Er einhver heima?
Matvælaráðherra, Svandís Svavarsdóttir! Hversu langt er hægt að láta skepnuníð viðgangast?

Varaþingmenn viðriðnir hrossamálið segja af sér
Mæðgur sem bendlaðar hafa verið við meint dýraníð í Borgarfirði hafa sagt af sér varaþingmennsku fyrir Flokk fólksins.

Fólk í fjölskyldu-eða nágrannaerjum misnoti ábendingakerfi MAST
Hrönn Ólína Jörundsdóttir, forstjóri Matvælastofnunar, segir að starfsfólk stofnunarinnar geti ekki varið sig þegar gagnrýnin umræða fari af stað um stofnunina. Það hafi ekki til þess heimild.

Varaþingmaður hættur í Flokki fólksins vegna hrossamálsins
Varaþingmaður Flokks fólksins er hættur í flokknum vegna tengsla við meint dýraníð í Borgarfirði. Formanni flokksins blöskraði að varaþingmaðurinn væri tengdur málinu.

Ákærður fyrir dýraníð fyrir áratug: Kýr með halabrot og -slit
Bóndi sem sakaður hefur verið um illa meðferð hrossa í Borgarfirði var ákærður fyrir dýraníð fyrir tæpum áratug. Matvælastofnun segir ákvarðanir í dýravelferðarmálum geta verið mjög íþyngjandi og því nauðsynlegt að stíga varlega til jarðar í slíkum málum. Stofnunin hefur verið gagnrýnd fyrir viðbrögð sín í málinu.

Stíga þurfi varlega til jarðar í dýravelferðarmálum vegna „íþyngjandi ákvarðana“
Matvælastofnun segir ákvarðanir í dýravelferðarmálum geta verið mjög íþyngjandi og því sé nauðsynlegt að stíga varlega til jarðar í slíkum málum. Brugðist sé við öllum ábendingum um illa meðferð dýra en oftast sé ekki þörf á þvingunaraðgerðum enda bregðist umráðamenn oftast við og bæti úr.

Kraftaverkakötturinn Grána gamla lifði af alvarlega árás
Það þykir kraftaverki líkast að átján ára köttur hafi lifað af alvarlega árás sem talin er vera eftir hund. Þetta er í annað skipti á stuttum tíma sem köttur er illa leikinn eftir slíka árás. Eigandinn biðlar til hundaeigenda að passa upp á dýrin sín.

Eigandinn hafi mætt með leyfi MAST til að flytja hryssuna og folaldið: „Fólk er við það að taka völdin í sínar hendur“
Íbúi í Borgarnesi sem hefur ítrekað kvartað vegna slæmrar meðferðar á hestum í Borgarfirði segir íbúa öskuilla þar sem eigendur hafi fengið leyfi MAST til að flytja illa haldna hryssu og folald sem höfðu verið innilokuð. Samkvæmt upplýsingum frá matvælaráðuneytinu sé málið til skoðunar og samráðsfundur fari fram síðar í mánuðinum. Tilkynning Ríkisendurskoðunar um úttekt á eftirliti MAST hafi verið áfangasigur.

Segir hryssu og folald enn innilokuð án dagsbirtu
Íbúi í Borgarnesi segir hryssu og folald enn innilokuð í hesthúsi í Borgarnesi, þar sem ekki sjáist til sólar. Eigandinn var tilneyddur í gær að færa önnur hross sín, sem voru vannærð og illa haldin, á beit en hryssa með folald er enn innilokuð í hesthúsinu.

Áfall þegar hún sá myndir af hryssunum sínum í fjölmiðlum
Fyrrverandi eigandi þriggja hrossa úr stóði, sem sagt er hafa sætt illri meðferð núverandi eigenda, segir það hafa verið gríðarlegt áfall að sjá myndir af hrossunum í fjölmiðlum í gær. Hún leitar nú leiða til að fá hrossin aftur til sín.

Skoða hvernig MAST stendur sig í eftirliti með velferð dýra
Ríkisendurskoðun hefur ákveðið að hefja frumkvæðisúttekt á eftirliti Matvælastofnunar með velferð dýra. Þetta kemur fram á vef stofnunarinnar. Tilefni ákvörðunarinnar er ekki tiltekin en hún kemur í beinu framhaldi af háværri gagnrýni á eftirlit MAST með dýravelferð í Borgarbyggð.

Húðskamma MAST og vilja aðgerðir í Borgarbyggð strax
Eigandi hrossa í Borgarfirði, sem sakaður hefur verið um illa meðferð á skepnum sínum, hefur orðið við kröfum MAST og flutt hrossin á beit, að sögn dýralæknis hrossasjúkdóma hjá stofnuninni. Íbúi í nágrenninnu segir yfirvöld ekki aðhafast nóg - og alltof seint. Lögregla var kölluð til vegna málsins í gærkvöldi. Dýraverndarsambandið kallar eftir aðgerðum strax.

Lögreglumenn fóru að bænum í gærkvöldi
Lögregla á Vesturlandi segir enga kæru hafa borist vegna máls hrossaræktenda, sem sakaðir hafa verið um illa meðferð á skepnum sínum, í nágrenni Borgarnes. Málið hafi hins vegar verið tilkynnt til lögreglu í ágúst og í gærkvöldi hafi lögreglumenn sinnt útkalli að bænum.

Segir eigendur vannærðu hestanna reyna að flytja þá í skjóli nætur
Hrossaræktendur í Borgarfirði í nágrenni Borgarness sem sakaðir hafa verið um illa meðferð á skepnum sínum virðast ætla að flytja hestana úr hesthúsi sínu í skjóli nætur. Lögregla hefur verið kölluð til og er á svæðinu.