Faraldur kórónuveiru (COVID-19)

Minnst 84 greindust innanlands í gær
Í gær greindust hið minnsta 84 einstaklingar innanlands með Covid-19. 60 voru utan sóttkvíar við greiningu. Eru nú 1.376 í einangrun og 1.755 í sóttkví hér á landi.

Veirunni sama hvað þú skrifar margar tilfinningar í dagbók
Ragnhildur Þórðardóttir, betur þekkt sem Ragga Nagli sálfræðingur og einkaþjálfari, segir að kórónuveiran spyrji ekki um hreysti né heilsu. Ragga sem er þekkt fyrir heilsusamlegt líferni, smitaðist sjálf af veirunni í apríl á þessu ári.

„Langtímaáhrifin af Covid eru í fyrsta lagi svolítið ýkt“
Kári Stefánsson, forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar, segist hafa haldið sig frá líkamsræktarstöðvum á eftir að kórónuveirufaraldurinn hófst og bóluefni stóð ekki til boða. Nú þegar hann hefur verið fullbólusettur reynir hann að fara daglega í líkamsræktarstöð.

Óbólusettir?
Morgunblaðið greindi frá því að um 40% þeirra sem hefðu lagst inn á Landspítalann í fjórðu COVID-19 bylgjunni væru óbólusettir. Orðið „óbólusettir“ samkvæmt orðabókinni malid.is þýðir „sá sem hefur ekki fengið bólusetningu“.

Fagráð kallar eftir breytingum: „Það þýðir ekki að hika lengur“
Fagráð Landspítalans segir stjórnvöld og stjórnendur sjúkrahússins þurfa aða leita allra leiða til að veita starfsfólki viðunandi vinnuaðstæður. Skapa þurfi umhverfi þar sem ekki sé þörf á að kalla fólk inn úr sumarfríi og tryggja að ekki sé gengið á réttindi starfsfólk.

Hinn duldi faraldur
Ofbeldi er ekkert annað en faraldur. Ógeðslegur faraldur af mannavöldum sem hefur gríðarlegan eyðileggingarmátt. Ný bylgja skall á með krafti. Enn ein bylgjan.

Þúsundir fengu saltvatnslausn í stað bóluefnis
Yfirvöld í norðurhluta Þýskalands hafa biðlað til fjölda einstaklinga um að þiggja viðbótarskammt af bóluefni gegn Covid-19 eftir að grunur vaknaði um að hjúkrunarfræðingur hefði sprautað þúsundir með saltvatnslausn í stað bóluefnis.

Slökkviliðið „stóð á haus“: 57 Covid-19 flutningar
„Staðið á haus er það stundum kallað þegar mörg verkefni eru í gangi í einu en það mætti segja um gærkvöldið og síðasta sólahring,“ segir í færslu sem birtist á Facebook-síðu Slökkviliðsins á höfuðborgarsvæðinu í morgun.

Fjórða bylgjan: Einmana í fjarvinnu
Margir sáu fyrir sér í hillingum að í kjölfar sumarfría myndu vinnufélagar hittast á ný í ágúst. Á mörgum vinnustöðum eftir langa fjarveru teyma. En nú blasir við fjórða bylgjan og aftur stefnir í að fjöldi fólks fari inn í haustið í fjarvinnu.

Facebook lokar áróðurssíðum gegn vestrænum bóluefnum
Stjórnendur Facebook segja að hundruð reikinga eða notenda með tengsl við Rússlandi hafi verið fjarlægðir vegna herferðar þeirra gegn tilteknum bóluefnum og falsfrétta um þau.

Segir ósamræmi í stefnu ríkisstjórnar og menntamálaráðherra
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir, þingmaður Viðreisnar og nefndarmaður í allsherjar- og menntmálanefnd þingsins, er gagnrýnin á Lilju Alfreðsdóttur, mennta- og menningarmálaráðherra, vegna óljósra skilaboða um hvernig skólahaldi verður háttað í haust.

Ráðherra samþykkir bólusetningu barna
Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra hefur fallist á tillögu sóttvarnalæknis um að gefa börnum á aldrinum 12 til 15 ára kost á bólusetningu við Covid-19, með bóluefni Pfizer.

Tveir fullbólusettir bættust á gjörgæslu
Þeim sem lagst hafa inn á gjörgæslu á Landspítalanum í þessari bylgju kórónuveirufaraldursins hefur fjölgað úr sex í átta í dag. Þetta má ráða úr tilkynningu sem spítalinn sendi frá sér í dag.

Fjórðungur landsmanna kominn með Covid-kvíða
Kvíði landsmanna hefur aukist mikið samhliða vexti faraldursins og segist nú fjórðungur þjóðarinnar kvíðinn vegna Covid-19. Biðlistar eftir sálfræðiaðstoð hjá Kvíðameðferðarstöðinni hafa aldrei verið eins langir og nú.

Taka þurfi mark á ábendingum varðandi spítalann
Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra segir skipta miklu máli að tekið sé mark á þeirri vinnu sem unnin hefur verið í tengslum við stöðuna á Landspítalanum og afköst innan stofnunarinnar.

Telur ótækt að láta veiruna ganga óhindraða um samfélagið
Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra segir að á hverjum degi sé unnið að því að bregðast við stöðunni á Landspítalanum, en líkt og fjallað hefur verið um eru blikur á lofti um hvort spítalinn ráði við mikið fleiri innlagnir af völdum Covid-19. Hún segir ljóst að óhindruð útbreiðsla myndi valda miklu álagi á heilbrigðiskerfið.

200 manna samkomubann framlengt um tvær vikur
Heilbrigðisráðherra hyggst framlengja gildandi sóttvarnatakmarkanir innanlands um tvær vikur í samræmi við tillögu sóttvarnalæknis. Verður því 200 manna samkomumann og eins metra regla í gildi til og með 27. ágúst. Núgildandi reglugerð átti að gilda til og með næsta föstudegi.

Ríkisstjórnin kynnti aðgerðir á blaðamannafundi
Ríkisstjórnin mun kynna næstu skref í innanlandsaðgerðum á blaðamannafundi klukkan 16. Fundurinn er sendur út frá Grindavík þar sem ríkisstjórnin hefur fundað í dag.

Ekki ástæða til að herða aðgerðir á meðan flestir eru með væg einkenni
Sóttvarnalæknir telur ekki ástæðu til að grípa til harðari innanlandsaðgerða á meðan faraldurinn valdi mestmegnis tiltölulega vægum einkennum hjá bólusettu fólki. Hann telur þó óráðlegt að slaka á aðgerðum eins og staðan er núna.

Fundi ríkisstjórnar lokið en ráðherra veitir ekki viðtal
Ríkisstjórnin situr á árlegum sumarfundi sínum í Salthúsinu í Grindavík þar sem aðgerðir innanlands vegna Covid-19 eru til umræðu. Núverandi aðgerðir til þriggja vikna, sem fela meðal annars í sér 200 manna samkomubann og eins metra reglu, gilda til föstudagsins 13. ágúst.

Hvetur efasemdafólk um bólusetningar til að rölta um kirkjugarða borgarinnar
Ónæmisfræðingur segir mikinn sigur að bóluefnin sem hafi ekki verið þróuð gegn delta-afbrigðinu veiti eins góða vörn gegn alvarlegum veikindum og raun ber vitni. Hann hvetur þá sem vilja ekki láta bólusetja sig til að skoða legsteina barna sem fallið hafa í fyrri faröldrum.

Fiðluleikararnir megi sín lítils ef stjórnandinn er ekki með á nótunum
Bjarni Benediktsson fjármálaráðherra skýtur föstum skotum að stjórnendum Landspítalans og segir ótækt að „stíflur í kerfinu“ séu að valda því að grípa þurfi til almennra sóttvarnaaðgerða til að standa vörð um spítalann.

Að minnsta kosti 97 greindust smitaðir af veirunni
Að minnsta kosti 97 greindust smitaðir af kórónuveirunni innanlands í gær samkvæmt tilkynningu frá Almannavörnum.

Segir upplýsingar um framhald aðgerða eiga að liggja fyrir í hádeginu
Spurð að því hvaða sóttvarnaaðgerðir tækju við í lok vikunnar, þegar núverandi aðgerðir falla úr gildi, hvatti Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra til þolinmæði og sagði að það myndi liggja fyrir í hádeginu.

Langtíma sóttvarnaaðgerðir ekki kynntar í dag
Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra segir ekki reiknað með að í dag verði kynntar sóttvarnaaðgerðir til lengri tíma. En ríkisstjórnin kemur saman til reglulegs fundar á Suðurnesjum í dag og fundar einnig með sveitarstjórnarfólki þar.

Ísland komið í hæsta áhættuflokk vestanhafs
Sóttvarnastofnun Bandaríkjanna (CDC) ráðleggur Bandaríkjamönnum nú alfarið frá ferðalögum til Íslands vegna stöðu kórónuveirufaraldursins hér á landi. Ísland er nú komið í hæsta áhættuflokk; orðið „rautt“ í bókum vestanhafs.

Furðar sig á því að hafa ekki þurft að sýna rándýrt vottorð á landamærunum
Ómar Úlfur Eyþórsson, útvarpsmaður á X-977, borgaði 34 þúsund krónur fyrir hraðpróf á Gardermoen, flugvellinum í Osló, þar sem hann taldi sig munu þurfa að framvísa vottorði um neikvæða niðurstöðu Covid-19 sýnatöku. Þegar á hólminn var komið reyndust útgjöldin óþarfi.

Ekki forsvaranlegt að leyfa veirunni að ganga yfir að svo stöddu
Ekki verður hægt að meta hvort forsvaranlegt sé að leyfa kórónuveirunni að ganga yfir samfélagið fyrr en bólusetningum verður lokið eftir nokkra mánuði, að sögn staðgengils sóttvarnalæknis. Þá þurfa viðkvæmir hópar mögulega að ganga lengra en aðrir í persónulegum sóttvörnum næstu misseri.

„Við erum ekki að horfa á pest sem við losum okkur við á skammri stundu“
Kári Stefánsson forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar segir óbólusetta aldrei í meiri hættu gagnvart kórónuveirunni en í dag. Margir séu sýktir í samfélaginu án þess að vita af því. Veiran verði ekki stöðvuð en bólusetningin eigi að koma í veg fyrir slæmar afleiðingar hennar.

Segja aðgerðapakka ríkisstjórnarinnar boða grundvallarbreytingar til hins verra
Samtök fyrirtækja í velferðarþjónustu, SFV, lýsa stuðningi við markmið stjórnvalda að styðja við Landspítalann í því ástandi sem þar er uppi vegna faraldurs Covid-19. Hins vegar segja samtökin að hluti aðgerðanna feli í sér grundvallarbreytingar til hins verra á getu hjúkrunarheimila landsins til að tryggja öryggi og heilsu íbúa sinna.