Faraldur kórónuveiru (COVID-19)

Sóttvarnastofnun Evrópu uppfærir íslensku tölurnar
Samkvæmt upplýsingum fréttastofu munu ríki sem sett höfðu Ísland á áhættulista uppfæra sína lista nú í vikunni til samræmis.

Þrír af hverjum tíu gætu veikst alvarlega
Heilbrigðistofnun Ameríkuríkja varar nú við því að kórónuveirufaraldurinn á svæðinu sýni engin merki þess að vera að hægja á sér.

Trump biðlar til Bandaríkjamanna að bera grímur fyrir vitum
Donald Trump Bandaríkjaforseti sagði á blaðamannafundi í Hvíta húsinu í dag að kórónuveirufaraldurinn muni fara stigversnandi áður en hann hægi á sér og bað hann Bandaríkjamenn jafnframt um að bera grímur fyrir vitum.

Mun fleiri ferðamenn hafa komið hingað til lands en búist var við
Um fjögur hundruð þúsund ferðamenn hafa komið til landsins á þessu ári og þar af mun fleiri á síðustu vikum en búist var við að sögn aðalhagfræðings Íslandsbanka.

Kórónuveiran í brennidepli í nýrri seríu Grey's Anatomy
Kórónuveirufaraldurinn verður í brennidepli í sautjándu seríu vinsælu læknaþáttanna Grey‘s Anatomy að sögn aðalframleiðanda þáttanna.

Hugmyndin kviknaði vegna Covid-gremju
Raddir um þrjátíu þúsund manns alls staðar að úr heiminum hafa hljómað í íslenskri náttúru undanfarna daga. Sumir öskra, aðrir syngja eða bera upp bónorð.

Björgunarpakki og fjárlög marki tímamót fyrir ESB
Leiðtogar ESB segja fjárlög sambandsins og risa björgunarpakka vegna kórónuveirufaraldursins marka tímamót í sögu Evrópu. 800 milljarða evra björgunaraðgerðir tryggi vonandi enduruppbyggingu álfunnar.

Segja Kínverja hafa reynt að stela rannsóknum á bóluefni
Mennirnir tveir eru ekki í haldi yfirvalda, og er talið ólíklegt að þeir komi nokkurn tíma til Bandaríkjanna.

„Ekki fara sænsku leiðina“
Tuttugu og fimm sænskir vísindamenn segja leiðina sem farin var í Svíþjóð til að bregðast við kórónuveirufaraldrinum gott dæmi um hvernig eigi ekki að bregðast við honum. Sænska leiðin hafi leitt til dauða, sorgar og þjáninga.

Opið til miðnættis strax eftir verslunarmannahelgi
Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir hefur sent heilbrigðisráðherra minnisblað þar sem lagt er til að afgreiðslutími vínveitinga- og skemmtistaða verði lengdur til miðnættis þriðjudaginn 4. ágúst.

Tekur ekki undir gagnrýni yfirlæknis sem sagði skimun LSH vera „sóun á almannafé“
„Nei bara alls ekki. Það er mjög röng nálgun eða þröngt sjónarhorn á hlutverk háskólasjúkrahússins. Ég geri hins vegar alls ekki athugasemdir við það að fólk hafi mismunandi skoðanir. Ég þarf ekki að vera sammála þeim.

Meta virði öskurverkefnisins á 1,7 milljarða
Mikil ánægja Íslandsstofu með markaðsherferðina „Let it out“

Boðar breyttar áherslur gegn faraldri sem gæti varað í ár
Breyta þarf viðbrögðum við kórónuveiruheimsfaraldrinum úr neyðarstjórnun í daglegt verkefni í ljósi þess að heimsbyggðin þarf að lifa með honum næstu mánuðina eða jafnvel árin, að mati Þórólfs Guðnasonar, sóttvarnalæknis.

Afkastageta fimmtánfaldast með nýjum verkferlum
Afkastageta Sýkla- og veirufræðideildar Landspítalans í greiningu kórónuveirusmita úr sýnum hefur fimmtán faldast að mati starfsfólks og mun aukast enn á næstu vikum og mánuðum að sögn Páls Matthíassonar, forstjóra Landspítalans.

Svona var 87. upplýsingafundur almannavarna
Almannavarnadeild ríkislögreglustjóra og embætti landlæknis boða til upplýsingafundar vegna kórónuveirunnar fyrir fjölmiðla klukkan 14 í dag.

Sterkari undirstöður komi í veg fyrir langtímavandræði
Aðalhagfræðingur Íslandsbanka telur að kostnaður af efnahagsaðgerðum íslenskra stjórnvalda vegna kórónuveirunnar sé ekki til þess fallinn að baka þjóðarbúinu langtímavandræði.

Björgunarpakkinn klassískt dæmi um hlutverk Evrópusambandsins
Samkomulag náðist um 750 milljarða evra björgunarpakka á fundi leiðtoga Evrópusambandsins í Brussel í nótt. Eiríkur Bergmann stjórnmálafræðingur segir að um sé að ræða klassískt dæmi um störf og hlutverk Evrópusambandsins.

Tveir bíða eftir mótefnamælingu
Tveir greindust með kórónuveiruna við landamæraskimun síðasta sólarhringinn en bíða báðir eftir mótefnamælingu.

Bandaríski sendiherrann fær það óþvegið á samfélagsmiðlum
Sakaður um rasisma og sagt að snauta heim til sín.

Smit með mótefnum ekki lengur talin með í heildarfjölda smita
Frá og með gærdeginum hafa verið gerðar breytingar á framsetningu gagna frá Sóttvarnalækni á vefnum covid.is. Ekki eru lengur talin með í heildarfjölda smita þau tilvik landamæraskimunar þar sem mótefni hafa mælst gegn veirunni.

Segir greiðslumiðlunarfyrirtæki halda 15 milljónum í gíslingu
Einn eigenda ferðaþjónustunnar Vogafjóss í Mývatnssveit segir greiðslumiðlunarfyrirtækið Korta hafa haldið eftir nær öllum kreditkortagreiðslum til fyrirtækisins frá því að staðurinn opnaði að nýju í lok maí eftir lokun vegna kórónuveirufaraldursins. Korta hafi haldið yfir fimmtán milljónum eftir.

Samkomulag um björgunarpakkann í höfn
Leiðtogum Evrópusambandsins tókst í nótt að ná samkomulagi um 750 milljarða evra björgunarpakka sem ætlað er að endurreisa efnahag álfunnar eftir kórónuveirufaraldurinn.

Bandaríski sendiherrann á Íslandi tístir um „ósýnilegu Kínaveiruna“
Sendiherrann var skipaður af Donald Trump á þarsíðasta ári.

Segir verkalýðsforingja reyna að knésetja Icelandair
Þorsteinn Víglundsson segir framgöngu verkalýðshreyfingarinnar til skammar með því að reyna að hafa áhrif á ákvarðanatöku um fjárfestingar í Icelandair. Unnur Gunnarsdóttir, varaseðlabankastjóri fjármálaeftirlits, segir að fulltrúum í stjórnum lífeyrissjóða sé óheimilt að láta undan slíkum þrýstingi.

Sér ekki hvernig um höfundaréttarbrot geti verið að ræða
Íslandsstofa segist ekki geta séð hvernig verkefnið „Let it out“ geti verið byggt á hugverki listamannsins Marcus Lyall.

Blaðamaður sem afhjúpaði spillingu handtekinn
Lögregla í Simbabve handtók í dag rannsóknarblaðamann sem afhjúpaði spillingu innan heilbrigðisráðuneytisins sem tengdist búnaði vegna kórónuveirufaraldursins. Á sama tíma var leiðtogi stjórnarandstöðuflokks sem skipulagði mótmælaaðgerðir tekinn höndum.

Gekk vel fyrsta daginn án Íslenskrar erfðagreiningar
Virkum smitum Covid-19 fjölgaði um þrjú á milli daga, eitt á landamærum í gær og tvö í fyrradag.

Vænir Íslandsstofu og M&C Saatchi um stuld á höfundarréttarvörðu efni
Listamaðurinn Marcus Lyall segir öskurverkefni umdeilda nákvæma eftirlíkingu á verki sínu.

Bóluefni Oxford-háskóla sagt gefa góða raun
Tilraunir á mönnum benda til þess að nýtt bóluefni sem Oxford-háskóli hefur unnið að gegn nýju afbrigði kórónuveirunnar sé öruggt og þjálfi ónæmiskerfi til þess að berjast gegn veirunni. Frekari tilraunir standa fyrir dyrum og of snemmt er sagt að meta virkni bóluefnisins.

Þrjú virk smit bætast við
Einn greindist með virkt kórónuveirusmit við skimun á landamærum síðasta sólarhringinn.