

42 liggja á Landspítalanum með Covid-19. Einn er á gjörgæslu, ekki í öndunarvél.
Boris Johnson, forsætisráðherra Bretlands, tilkynnti þinginu í dag að frá og með 1. apríl næstkomandi verði öllum takmörkunum vegna Covid aflétt í landinu. Stór skref verða sömuleiðis tekin til afléttingar síðar í vikunni.
Landspítalinn hyggst ekki sækja um undanþágur frá einangrun fyrir starfsfólk sitt nema brýna nauðsyn beri til, að sögn forstjórans. Sóttvarnalæknir segir að forsendur séu fyrir því að veita slíkar undanþágur í ljósi mikillar útbreiðslu kórónuveirusmita og mönnunarvanda á heilbrigðisstofnunum.
Langtímafyrirkomulag sóttvarna á landamærum verður til umræðu á ríkisstjórnarfundi á morgun. Þar má vænta mikilla tilslakana og jafnvel algerra afléttinga fyrir bólusetta. Nokkrar útfærslur eru til skoðunar en samkvæmt heimildum fréttastofu er stærsta spurning hvort halda eigi strangari reglum fyrir óbólusetta sem koma inn í landið.
Karlmaður á tíræðisaldri, sem var smitaður af Covid, lést á Sjúkrahúsinu á Akureyri um helgina. Hann lá inni vegna annarra veikinda en Covid en samkvæmt framkvæmdastjóra lækninga sjúkrahússins er talið næsta víst að Covid-sýkingin hafi verið helsta dánarorsökin.
Leikskólastjóra í Stykkishólmi leist ekki á blikuna í gær þegar tilkynningar um fjarveru starfsmanna byrjuðu að hrannast inn hver af annarri. Alls vantaði 16 af 26 starfsmönnum í morgun en flestir eru ýmist í einangrun eða að bíða eftir niðurstöðu PCR-sýnatöku.
Dagur B. Eggertsson hefur fengið staðfestingu á Covid-19 smiti. Hann segir niðurstöðuna ekki koma á óvart enda sé hann sá síðasti af sex meðlimum fjölskyldunnar sem hafa skipst á að smitast frá því í janúar.
Landspítalinn hefur nú tekið fyrsta skref í átt að því að reyna að leysa mönnunarvanda vegna fjölda smitaðra starfsmanna. Framvegis mega þríbólusettir og einkennalausir starfsmenn spítalans mæta til vinnu beint eftir fimm daga einangrun.
Sigurður Einar Sigurðsson, framkvæmdastjóri lækninga við Sjúkrahúsið á Akureyri segir að með þessu áframhaldi sé útlit fyrir að skerða þurfi valþjónustu enn frekar.
Söngvarinn Justin Bieber þurfti að aflýsa tónleikum sínum í Las Vegas í gær með aðeins sólarhrings fyrirvara. Fulltrúi poppstjörnunnar staðfesti í samtali við People að ástæðan væri að Bieber greindist með Covid.
Sóttvarnalæknir telur forsendur fyrir því að heimila starfsfólki heilbrigðisstofnana að mæta til vinnu, sé það einkennalaust. Þegar hefur eitt hjúkrunarheimili fengið undanþágu frá einangrun.
2.393 greindust smitaðir af kórónuveirunni innanlands í gær. Það eru töluvert færri en í fyrradag en þá greindust 2.692 smitaðir af veirunni.
Ástralía hefur opnað á komu erlendra gesta í fyrsta sinn í rúmlega tvö ár en landinu var svo gott sem lokað í kórónuveirufaraldrinum í mars árið 2020.
Elísabet Bretadrottning hefur greinst með kórónuveiruna. Í tilkynningu frá bresku konungsfjölskyldunni segir að hún sé með væg kvefeinkenni eins og er.
480 starfsmenn Landspítalans eru nú í einangrun vegna Covid-19 og hafa þeir aldrei verið fleiri.
Karlmaður sem átti að vera í einangrun vegna Covid-19 var gripinn af lögreglu í gær er hann var að skutla fólki niður í miðborg Reykjavíkur í nótt.
Forseti heimastjórnarinnar í Madrid er sökuð um að hafa látið heilbrigðisyfirvöld í höfuðborginni kaupa sóttvarnagrímur fyrir andvirði 200 milljónir króna af fyrirtæki besta vinar síns og bróður síns og fullyrt er að bróðir hennar hafi hagnast um andvirði 40 milljóna króna á viðskiptunum.
2.692 greindust smitaðir af Covid-19 innanlands í gær. 141 greindist á landamærunum. Þetta segir Hjördís Guðmundsdóttir, upplýsingafulltrúi Almannavarna, í samtali við fréttastofu.
Aldrei hafa fleiri starfsmenn Landspítala verið í einangrun. Stjórnendur spítalans funda um stöðuna á eftir og segjast munu gera allt til að koma í veg fyrir að kalla þurfi einkennalaust starfsfólk úr einangrun í vinnu.
Fjörutíu sjúklingar liggja nú inni á Landspítala með Covid-19 og fækkar þeim um fimm á milli daga.
Framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins segir ekkert benda til þess að fullyrðing Alþýðusambandsins, um að mörg fyrirtæki hafi makað krókinn á ríkisstyrkjum, eigi við rök að styðjast. Hann fagnar því þó að ASÍ kalli eftir ábyrgð í ríkisfjármálum.
Yfir hundrað þúsund manns hafa nú greinst með kórónuveiruna innanlands frá upphafi faraldurs en sóttvarnalæknir bendir á að þeir gætu í raun verið allt að tvö hundruð þúsund og hjarðónæmi þannig mögulega handan við hornið. Hann telur ekki rétt að meta það fyrr en í næstu viku hvort fresta ætti allsherjarafléttingum, í ljósi erfiðrar stöðu í heilbrigðiskerfinu.
Alþýðusambandið telur víst að mörg fyrirtæki hafi makað krókinn á ríkisstyrkjum og krefst þess að rannsókn fari fram á því hvert ríkisfjármunir fóru í faraldrinum. Eðlilegt sé að þau fyrirtæki sem hafi greitt sér út arð þrátt fyrir að hafa þegið ríkisstyrki verði látin endurgreiða þá.
Rúmlega tuttugu prósent starfsmanna hafa smitast af kórónuveirunni síðustu tvo mánuði. Þegar litið er á skiptingu eftir starfsstéttum og deildum hafa flest smitanna komið upp meðal hjúkrunarfræðinga og á bráðamóttöku.
Hundrað þúsund smita múrinn var brotinn í gær hérna á Íslandi. Nú hafa yfir hundrað þúsund greinst smitaðir af kórónuveirunni frá upphafi faraldurs, eða um fjórðungur þjóðarinnar.
Fjörutíu og fimm sjúklingar liggja nú inni á Landspítala með Covid-19 og fjölgar þeim um einn frá því í gær. Fjórir eru á gjörgæslu og einn í öndunarvél, en í gær voru þrír á gjörgæslu og enginn í öndunarvél.
Lögreglan í kanadísku höfuðborginni Ottawa hefur handtekið tvo einstakling sem sagðir eru leiðtogar mótmælanna sem verið hafa í borginni síðustu vikur.
Lögreglan í Ottawa í Kanada segja aðgerðir gegn mótmælendum þar í borg yfirvofandi. Mótmælendum hafa nú verið sagt að yfirgefa svæðið ella sæta handtöku.
Hátt í tíu prósent starfsmanna Landspítala eru nú frá vinnu vegna Covid og annarra veikinda. Staðan er því mjög þung á spítalanum um þessar mundir og má gera ráð fyrir að hún verði það áfram næstu vikurnar. Framkvæmdastjóri mannauðs á Landspítala vonar að fjöldi starfsmanna með Covid sé á leiðinni niður.
Farsóttanefnd og viðbragðsstjórn Landspítala hafa nú þungar áhyggjur af stöðu mála innan heilbrigðiskerfisins en fjöldi starfsmanna er nú frá vegna Covid, sem og annarra veikinda. Stjórnendur spítalans samþykktu í dag að framlengja álagsgreiðslur til starfsmanna.