
Innlendar

Einar Daði endaði í 13. sæti - náði lágmarkinu fyrir EM 22
Einar Daði Lárusson endaði í 13. sæti af alls 22 keppendum á sterku tugþrautarmóti sem fram fór í Kladno í Tékklandi. Einar bætti stöðu sína á lokadeginum og þokaði sér upp um eitt sæti en hann fékk 7587 stig og náði auðveldlega lágmarkinu fyrir Evrópumeistaramót 22 ára og yngri en lágmarkið fyrir það mót var 7.300 stig.

Helga var nálægt því að bæta Íslandsmetið - endaði í fimmta sæti
Helga Margrét Þorsteinsdóttir frjálsíþróttakona úr Ármanni var nálægt því að bæta eigið Íslandsmet í sjöþraut á alþjóðlegu móti sem fram fór í Kladno í Tékklandi. Helga fékk samtals 5.856 stig en Íslandsmet hennar er 5.878 stig. Tatyana Chernova frá Rússlandi sigraði en hún fékk 6.773 stig en Helga endaði í fimmta sæti.

Einar Daði í fjórtánda sæti eftir frábæran fyrri dag
ÍR-ingurinn Einar Daði Lárusson er í fjórtánda sæti eftir fyrri daginn á alþjóðlega sjöþrautarmótinu í Kladno í Tékklandi en hann er þarna að keppa við alla sterkustu tugþrautarmenn heims.

Helga Margrét í sjötta sæti eftir fyrri daginn
Ármenningurinn Helga Margrét Þorsteinsdóttir er í sjötta sæti eftir fyrri daginn á alþjóðlega sjöþrautarmótinu í Kladno í Tékklandi þar sem Helga Margrét er að reyna að ná lágmarki inn á Heimsmeistaramótið í Suður-Kóreu í haust.

Helga Margrét í eldlínunni í Tékklandi
Helga Margrét Þorsteinsdóttir úr Ármanni hefur hafið keppni í sjöþrautt í Kladno í Tékklandi. Helga hljóp 100 metra grindahlaup í morgun á 14.97 sekúndum og nældi sér í 846 stig.

Lið TBR keppir í Evrópukeppni félagsliða
Tennis- og badmintonfélag Reykjavíkur er á meðal liða í Evrópukeppni félagsliða sem hefst í Zwolla í Hollandi í dag. Fyrsti leikur TBR er gegn franska liðinu Bordeaux Union St. Bruno sem var raðað annað inn í mótið.

Einar Daði mætir Seberle í Tékklandi
Tugþrautarmaðurinn Einar Daði Lárusson úr ÍR keppir á miðvikudag og fimmtudag á sterku fjölþrautarmóti í Kladno í Tékklandi. Þetta er í fyrsta sinn sem Einar Daði, sem er á 21. aldursári, keppir í tugþraut í karlaflokki.

Helga Margrét mætt til Kladno og reynir við lágmark á HM í Daegu
Ármenningurinn Helga Margrét Þorsteinsdóttir er komin til Kladno í Tékklandi þar sem að hún mun taka þátt í fyrstu sjöþrautinni sinni á þessu ári. Helga Margrét keppir þar í einni sterkustu sjöþrautarkeppni heims og það er til mikils að keppa fyrir bestu sjöþrautarkonu landsins.

Ragna í átta manna úrslit í Litháen
Ragna Ingólfsdóttir er komin í átta manna úrslit á alþjóðlegu badmintonmóti sem fram fer í Litháen. Ragna lék gegn Rússanum Anastasia Nazarchuk í fyrstu umferð og sigraði auðveldlega, 21-9 og 21-13. Anastasia Kharlampovich frá Rússlandi var mótherju Rögnu í 2. umferð og þar sigraði Ragna með yfirburðum, 21-13 og 21-12.

Jón Margeir setti aftur heimsmet
Jón Margeir Sverrisson setti heimsmet í 200 metra skriðsundi í 25 metra laug á bikarkeppni Íþróttafélags fatlaðra um síðustu helgi. Jón Margeir synt á tímanum 2:00,74 og bætti heimsmetið um tæpa sekúndu.

Skúli Jón: Við Hannes áttum góða stund saman
Skúli Jón Friðgeirsson leikmaður KR var í skýjunum með sigurinn á FH.

Þormóður endaði í sjöunda sæti á heimsbikarmóti í Búkarest
Júdómaðurinn Þormóður Jónsson varð í sjöunda sæti á Heimsbikarmóti í Búkarest um helgina í +100 kg flokki en þangað fór hann strax að loknum Smáþjóðaleikunum ásamt Hermanni Unnarssyni sem keppti í -81 kg flokki.

Pistillinn: Fórnir eða forréttindi?
Ég er oft spurð að því hvort ég þurfi ekki að fórna miklu fyrir íþróttirnar. Þá er oftast verið að vísa í þá staðreynd að líf mitt er töluvert frábrugðið lífi flestra jafnaldra minna. Ég drekk ekki, fer sjaldan út á lífið, ég borða ekki óhollan mat og það er ekki hlaupið að því fyrir mig að skreppa út á kvöldin að hitta vini mína þegar það er morgunæfing daginn eftir og ég þarf að fara snemma að sofa.

Óðinn var stjarnan á JJ-móti Ármanns í gær
FH-ingurinn Óðinn Björn Þorsteinsson náði bestum árangri á JJ-móti Ármanns sem fór fram á Laugardalsvellinum í gær. Helga Margrét Þorsteinsdóttir og Ásdís Hjálmsdóttir sigruðu báðar í sínum greinum en voru aðeins frá sínu besta. Fremur kalt var í veðri sem hafði greinileg áhrif á árangur, sérstaklega í spretthlaups- og tæknigreinum.

Helga Margrét og Ásdís keppa á Laugardalsvellinum í kvöld
Tvær fremstu frjálsíþróttakonur landsins, Ármenningarnir Helga Margrét Þorsteinsdóttir og Ásdís Hjálmsdóttir, verða báðar í eldlínunni í kvöld þegar JJ-mót Ármanns fer fram á Laugardalsvellinum. Þetta er í fyrsta sinn sem þær stöllur keppa á Íslandi á þessu ári.

Íris leggur skíðin á hilluna
Írís Guðmundsdóttir, núverandi Íslandsmeistari í svigi og stórsvigi, hefur ákveðið að leggja skíðin á hilluna einungis 21 árs að aldri. Þrátt fyrir ungan aldur hefur Íris verið í fremstu röð íslenskra skíðakvenna undanfarin ár.

Röng íþróttasíða fylgdi Fréttablaðinu í dag
Vegna mistaka fylgdi röng íþróttasíða Fréttablaðinu í dag. Síðan sem birtist í blaðinu í gær var birt aftur í dag.

Jón Margeir setti heimsmet
Jón Margeir Sverrisson setti í morgun heimsmet í 800 metra skriðsundi í flokki S14 þegar hann synti á tímanum 9.07,25 mín. Gamla heimsmetið var 9.07,55 mín en í þessu sama sundi á millitíma í 400 metra skriðsundi setti hann nýtt Íslandsmest á 4.32,38mín.

Glæsilegt Íslandsmet hjá Jóni Margeiri
Jón Margeir Sverrisson setti í morgun Íslandsmet í 200 metra skriðsundi á opna þýska meistaramótinu í sundi fatlaðra. Jón Margeir, sem keppir fyrir Ösp/Fjölni, synti á 2:05,98 mínútum sem er fjórði besti tími ársins í S14 flokki þroskahamlaðra.

Arndís Ýr og Þórólfur Ingi unnu 96. Víðavangshlaup ÍR
Arndís Ýr Hafþórsdóttir úr Fjölni og Þórólfur Ingi Þórsson úr ÍR voru sigurvegarar í 96. Víðavangshlaup ÍR sem fram fór í miðbæ Reykjavíkur á Sumardaginn fyrsta. 370 hlauparar á öllum aldri tóku þátt þrátt fyrir leiðinda veður en hlaupið er liður í Powerade mótaröðinni.

Rósa og Róbert Íslandsmeistarar í skvassi
Róbert Fannar Halldórsson og Rósa Jónsdóttir urðu í dag Íslandsmeistarar veggtennis í karla – og kvennaflokki. Róbert lagði Þorbjörn Jónsson í úrslitum en þetta er í fjórða sinn sem Róbert verður Íslandsmeistari. Rósa sigraði Dagnýu Ívarsdóttur í úrslitum og er þetta í 9. sinn sem Rósa verður meistari.

Þróttur Neskaupstað Íslandsmeistari í blaki kvenna
Þróttur frá Neskaupstað varð í dag Íslandsmeistari í blaki kvenna eftir að hafa lagt HK 3-2 í oddaleik í úrslitum Íslandsmótsins. Þróttur hefur unnið alla titla sem voru í boði í blakinu í vetur og oddaleikurinn í dag var æsispennandi.

Úrslitin á Íslandsmótinu í skvassi ráðast í dag
Úrslitin á Íslandsmótinu í skvassi ráðast í dag en keppnin fer fram í húskynnum Veggsports, Stórhöfða 17. Til úrslita í karlaflokki leika þeir Róbert Fannar Halldórsson og Þorbjörn Jónsson og hefst úrslitaleikurinn kl. 16.00.

Pistillinn: Að skora á sjálfan sig
Karolina Klüft er ein besta frjálsíþróttakona sem uppi hefur verið. Ég hef verið svo ótrúlega heppin að fá að kynnast henni og það hefur vakið mig til umhugsunar um hvað það er sem aðgreinir framúrskarandi afreksíþróttamenn frá þeim sem ná ekki jafn góðum árangri.

Gerpla Íslandsmeistari í hópfimleikum
A-sveit Gerplu varð í kvöld Íslandsmeistari í hópfimleikum en alls tóku sex sveitir frá þremur félögum þátt í mótinu.

Ragna Íslandsmeistari í áttunda sinn
Ragna Ingólfsdóttir varð Íslandsmeistari í einliðaleik í badminton í áttunda sinn í dag. Ragna vann þá öruggan sigur á Tinnu Helgadóttur í úrslitaleik.

Magnús Ingi Íslandsmeistari í badminton
Magnús Ingi Helgason varð í dag Íslandsmeistari í einliðaleik í badminton. Hann lagði Atla Jóhannesson í úrslitaleik, 2-1.

Íslandsmet hjá Ingibjörgu
Nú er undanrásum laugardags á ÍM í 50 metra laug í sundi lokið og þennan morguninn féll eitt íslandsmet, eitt drengjamet auk þess sem tvær sundkonur syntu undir HM lágmarki.

Viktor og Thelma Rut bæði inn á topp 50 á EM í fimleikum
Íslandsmeistararnir Viktor Kristmannsson og Thelma Rut Hermannsdóttir náðu bestum árangri Íslendinga á Evrópumótinu í áhaldafimleikum í Berlín í Þýskalandi sem stendur nú yfir. Íslensku keppendurnir hafa lokið keppni en alls tóku níu þátt í mótinu í ár.

Eygló Ósk með Íslandsmet í 200 metra baksundi
Eygló Ósk Gústafsdóttir úr Ægi setti í morgun glæsilegt Íslandsmet í 200 metra baksundi í undanrásum á Íslandsmótinu í 50 metra laug sem fram fer í Laugardalshöllinni um helgina.