Stórbruni í Skeifunni

Penninn lagði VÍS í brunadeilu fyrir Hæstarétti
Hæstiréttur hefur staðfest sigur Pennans í deilu verslunarinnar við Vátryggingafélag Íslands varðandi kröfu Pennans til greiðslu bóta úr rekstrarstöðvunartryggingu vegna bruna í Skeifunni í júlí 2014. Verslun Griffils varð eldinum að bráð í brunanum.

Deila vegna stórbrunans í Skeifunni kemur til kasta Hæstaréttar
Hæstiréttur hefur samþykkt málskotsbeiðni tryggingafélagsins VÍS í deilu félagsins og Pennans sem rekja má til stórbrunans í skeifunni þar sem húsnæði sem hýsti verslunina Griffils, í eigu Pennans, brann til kaldra kola.

Ár liðið frá stórbrunanum í Skeifunni
Stórtjón varð í brunanum og lagði mikinn reyk yfir borgina.

Griffill opnar skiptibókamarkað í Laugardalshöll
Ákveðið hefur verið að opna skóla- og skiptabókamarkað Griffills í Laugardalshöll á morgun og verður greiddur bónus fyrir hverja skiptbók sem tekið verður á móti fram að verslunarmannahelgi.

Eldurinn átti upptök sín við þvottagrindur í Fönn
Lögreglan hefur lokið rannsókn sinni á brunanum í Skeifunni.

„Ég bara lokaði glugganum og það bjargaði skrifstofunni“
Jón Magnússon lögmaður vill yfirleitt hafa glugga í kringum sig opna og loftið ferskt. En einhverra hluta vegna lokaði hann glugganum á skrifstounni sinni í Skeifunni rétt fyrir brunann. Það, og gott starf slökkviliðsins, bjargaði skrifstofunni.

Grilluðu fyrir hetjurnar í Skeifunni
Á annað hundrað manns komu að björgunaraðgerðum sem stóðu langt fram á nótt.

Fönn þakkar slökkviliðsmönnum
Þvottahúsið Fönn er nú þegar byrjað að þjónusta viðskiptavini sína þrátt fyrir áfallið sem fyrirtækið varð fyrir í brunanum í Skeifunni síðastliðinn sunnudag.

Tæknideild hefur lokið rannsókn í Skeifunni
Deildin mun þó áfram fylgjast með hreinsun á svæðinu.

Frábær tækifæri til uppbyggingar í Skeifunni
Formaður umhverfis- og skipulagsráðs segir að í Skeifunni gæti risið glæsilegt hverfi þar sem blandað væri saman viðskiptum og íbúðahúsnæði í anda Meat District á Manhattan og Soho í Lundúnum.

Þurfti að brjóta niður grindverk við brunahana: "Þetta getur tafið okkur mikið“
Yfirmaður forvarnadeildar Slökkviliðsins minnir á mikilvægi brunahana. Í brunanum í Skeifunni var grindverk upp við einn brunahanann sem þurfti að brjóta niður.

Tryggingarnar ná ekki yfir allt
Gríðarlegt fjárhagslegt tjón varð í Skeifubrunanum á sunnudag.

Aðstæður of hættulegar til rannsóknar
Eldvarnir voru augljóslega ekki í lagi í þeim hluta húsanna sem brann illa en eigendurnir fóru þó eftir settum reglum.

Rannsókn á brunanum í Skeifunni frestað
Hætta er á að þverbitar í þeim byggingum sem brunnu séu ótryggir og hætta á að þeir geti hrunið.

Rannsókn eldsupptaka að hefjast
Lögregla byrjar í dag rannsókn á eldsupptökum í rústum húsanna, sem brunnu í Skeifunni í Reykjavík í fyrrakvöld.

„Við höldum áfram“
"Við erum að fara í gegnum þvottinn sem að slapp og koma honum í þvott aftur. Svo erum við að skoða stöðu fyrirtækja sem er í þjónustu hjá okkur og erum í sambandi við þau um framhaldið“, sagði Hjördís Guðmundsdóttir, einn eiganda Fannar.

Lögreglumenn ósáttir með að hafa ekki verið kallaðir út
Formaður Landssambands lögreglumanna óttast um að um sé að ræða bókhaldsdæmi, þar sem ekkert þurfi að greiða björgunarsveitarmönnum.

„Þó svo að það kvikni í okkur, þá þýðir það ekki að þú verðir að brenna með“
Griffill sendir neytendum sínum skilaboð eftir brunann í gær.

„Við þökkum slökkviliðsmönnum, vindátt og veðurguðunum“
Verslunarstjóri Rúmfatalagersins þakkar fyrir að verslunin hafi sloppið í brunanum í gærkvöldi.

Fólk virðir ekki gulan borða lögreglunnar
Þegar blaðamaður var staddur í Skeifunni í hádeginu voru margir sem einfaldlega fóru undir borða lögreglunnar, sem er strengdur við suður- og suðausturhlið hússins.

„Við erum í næsta húsi þannig að við vorum tvær mínútur á staðinn“
Engin merki voru í fyrstu um að eldur hefði kviknaði í húsnæði Fannar þegar starfsmenn Securitas mættu á vettvang.

Slökkti eld á stuttbuxum: „Ég tímdi ekki að fara heim“
"Þegar svona eldur kemur upp eru svo ótrúlega mörg verk sem þarf að vinna – meira að segja fyrir mann á stuttbuxum. Þannig að ég vissi að ég þyrfti að rjúka til og hjálpa,“ segir Stefán Már Kristinsson sem vakti mikla athygli lesenda Vísis í gær, fyrir að vera á stuttbuxunum að slökkva eldinn í Skeifunni.

Sluppu þrátt fyrir sprengingar á neðri hæðinni
"Það brann fyrir neðan okkur. Það brann fyrir aftan okkur, en við sluppum að mestu leyti,“ segir Guðmundur Pálmason, framkvæmdastjóri Promennt sem er til húsa á hæðunum fyrir ofan Rekstrarland í Skeifunni.

Rjúkandi sala á pylsum í brunanum í gær
"Þetta hefur bara verið eins á sautjánda júní fyrir pyslusalann. Þarna var löng röð, allir vildu pylsu."

Eigandi Víðis: „Kraftaverk að við sluppum“
Eiríkur Sigurðsson, eigandi matvöruverslunarinnar Víðis, bjó sig undir það versta þegar hann fylgdist með eldinum á hliðarlínunni í gærkvöldi.

Hunsaði viðvaranir lögreglunnar
Myndband sem sýnir foreldra fylgja börnum sýnum yfir viðvörunarborða lögreglunnar hefur vakið mikið umtal.

Mannmergðin truflaði ekki slökkvistarf
Slökkviliðið gerir ráð fyrir því í sínum áætlunum að fólk safnist saman í kringum stórbruna. Þetta segir Ólafur Ingi Grettisson, innivarðsstjóri slökkviliðsins í Skógarhlíð.

Brunabótamat Skeifunnar 11 rúmlega 1,8 milljarðar
Skemmdirnar á húsnæðinu eru mismiklar en ólíklegt verður að teljast að einhver hluti þess hafi sloppið alfarið við tjón.

Hætt við að hús í Skeifunni hrynji
Stórhætta er á brunastað og líklegt að þök hrynji en þau eru byggð með strengjasteypu. Eins og að vera staddur í styrjöld, segir slökkviðliðsvarðsstjóri.

Magnaðar myndir: Gífurlegt tjón er Skeifan 11 brann
"Í fljótu bragði man ég ekki eftir jafn miklu flatarmáli sem hefur verið undir í svona alvarlegum eldi,“ sagði Bjarni Kjartansson.