
Íþróttir

Kidd með þrefalda tvennu
Jason Kidd lét brákað rifbein ekki stöðva sig í viðureign New Jersey gegn Sacramento í NBA-deildinni í nótt heldur náði hann sinni níundu þreföldu tvennu á leiktíðinni í 109-96 sigri sinna manna. Þetta var í 84. skiptið á ferlinum sem Kidd nær þrefaldri tvennu. Fjölmargir leikir fóru fram í NBA í nótt.

Laporta: Tapið gegn Liverpool var slys
Joan Laporta, forseti Barcelona, kveðst ekki í neinum vafa um að lærisveinar Frank Rijkaard geti farið með öruggan sigur af hólmi þegar liðið sækir Liverpool heim í síðari viðureign liðanna í 16-liða úrslitum Meistaradeildarinnar. Laporta hefur fulla trú á leikmannahóp liðsins og segir tapið á Nou Camp hafa verið “slys”.
Njarðvík hafði betur í grannaslagnum
Njarðvík endurheimti toppsætið í Iceland-Express deild karla í kvöld með góðum útisigri á grönnum sínum og erkifjendum í Keflavík, 70-83. Þá vann Skallagrímur öruggan sigur á Haukum í Borgarnesi, 122-106, og tryggði stöðu sína í þriðja sæti deildarinnar.

Emerson orðaður við AC Milan
Brasilíski miðjumaðurinn Emerson hjá Real Madrid er nú sterklega orðaður við sölu til AC Milan, en hann hefur engan veginn náð sér á strik á Spáni í vetur. Emerson er sagður hafa neitað að spila í sigurleik Real á Bayern Munchen í Meistaradeildinni á þriðjudag og vilja forráðamenn spænska liðsins hann burt.
Hooijdonk spilar sjö leiki í Ástralíu
Hollenski framherjinn Pierre van Hooijdonk hefur ákveðið að ganga til liðs við ástralska úrvalsdeildarfélagið Perth Glory eftir núverandi keppnistímabil. Hooijdonk, sem er á mála hjá Feyenoord í Hollandi, skrifar undir mjög sérstakan samning sem gildir í sjö leiki og er hann sagður hljóta væna summu fyrir.

Materazzi óánægður með Capello
Ítalski varnarmaðurinn Marco Materazzi hjá Inter Milan hefur gagnrýnt landa sinn Fabio Capello harðlega fyrir nýleg ummæli sín um ítalska knattspyrnu. Capello, sem nú stjórnar Real Madrid á Spáni, segir enga raunverulega samkeppni vera í ítölsku A-deildinni og því sé hún leiðinleg. Materazzi segir Capello vera að gera lítið úr sjálfum sér með ummælunum.

Shevchenko er alveg eins og allir hinir
Kerry Dixon, ein af helstu goðsögnum Chelsea, segir að frammistaða Andriy Shevchenko gegn Porto í Meistaradeildinni í vikunni sýni að úkraínski framherjinn sé kominn í sitt besta form. Dixon segir að Shevchenko sé ekkert frábrugðinn öðrum erlendum leikmönnum sem komi inn í ensku deildina – allir lendi í erfiðleikum fyrst um sinn.

Button er ekki bjartsýnn
Ökuþórinn Jenson Button segir að Honda bíllinn í ár standi öðrum bílum töluvert langt að baki og hann sé því ekki bjartsýnn á góðan árangur á komandi leiktíð í formúlu 1 kappakstrinum. Forráðamenn Honda liðsins höfðu áður gert sér vonir um að berjast um sjálfan heimsmeistaratitilinn á þessu tímabili.

Inter ætlar að losa sig við Adriano
Brasilíski sóknarmaðurinn Adriano verður að öllum líkindum seldur frá Inter Milan í sumar og er talið að forráðamenn ítalska félagsins séu að undirbúa risatilboð í Cristiano Ronaldo hjá Man. Utd, þar sem Adriano mun verða hluti að kaupverðinu.

Terry verður ekki lengi frá
John Terry, fyrirliði ensku meistaranna í Chelsea, verður kominn aftur í slaginn mun fyrr en talið var í fyrstu eftir að hafa meiðst í vikunni og segir knattspyrnustjórinn Jose Mourinho að hann muni líklega getað spilað um næstu helgi. Hann hefur hins vegar verið útilokaður frá þáttöku í úrslitum deildabikarsins.

Mourinho mun aldrei yfirgefa Chelsea
Jose Mourinho, stjóri Chelsea, var hinn önugasti á blaðamannafundi fyrir úrslitaleik Chelsea og Arsenal í deildabikarnum í morgun og brást illa við vangaveltum blaðamanna um að þetta gæti orðið síðasti titilinn sem hann vinnur með Chelsea. Mourinho svaraði fullum hálsi og sagðist aldrei ætla að yfirgefa stuðningsmenn Chelsea.

Benitez væntir mikils af Mascherano
Rafael Benitez, knattspyrnustjóri Liverpool, telur sig hafa gert kjarakaup í Javier Mascherano og segir argentínska miðjumanninn geta slegið rækilega í gegn í ensku úrvalsdeildinni. Mascherano verður enn ein viðbótin í flóru spænskumælandi leikmanna á Anfield og telur Benitez að það muni koma til með að hjálpa honum mikið.
KR tapaði naumlega fyrir Rosenborg
KR tapaði naumlega fyrir norsku meisturunum í Rosenborg, 1-0, á æfingamóti á La Manga í dag. Eftir því sem fram kemur á vef Nettavisen í Noregi áttu KR-ingar fínan leik og hefðu vel getað skorað mörk í leiknum. Það var Alexander Banor Tettey sem skoraði mark Rosenborg.

Capello vill sjá Beckham í landsliðinu
David Beckham er greinlega orðinn að algjöru uppáhaldi hjá stjóra sínum Fabio Capello. Ekki er nóg með að hann skuli aftur vera kominn í byrjunarlið Real Madrid heldur hefur Capello nú hvatt Steve McLaren, þjálfara enska landsliðsins, að velja Beckham á ný í liðið. Capello telur að Beckham geti haft sömu áhrif á enska liðið og hann hafði á lið Real um síðustu helgi.

Nistelrooy segir Ferguson hafa sparkað í sál sína
Hollenski framherjinn Ruud van Nistelrooy hefur tjáð sig í fyrsta sinn um hvað það var sem olli trúnaðarbresti hans og Sir Alex Ferguson, stjóra Man. Utd. á síðustu leiktíð. Ósættið leiddi til þess að Nistelrooy var seldur til Real Madrid í sumar, og segist sá hollenski hafa hafnað AC Milan og Bayern Munchen áður en hann ákvað að skrifa undir hjá spænska stórliðinu.

Henry hefur það of gott hjá Arsenal
Thierry Henry er ekki á leið frá Arsenal til Ítalíu, að sögn hans fyrrum félaga hjá enska liðinu, Patrick Vieira. Henry og Vieira eru góðir félagar og ræðast reglulega við, en miðjumaðurinn segir að Henry hafi það einfaldlega of gott hjá Arsenal til að geta hugsað sér að fara frá félaginu.

AC Milan stefnir á úrslit Meistaradeildarinnar
Georgíski varnarmaðurinn Kakha Kaladze hjá AC Milan telur að ítalska liðið hafi alla möguleika á að komast í úrslitaleik Meistaradeildarinnar í Aþenu í maí. AC Milan hefur ekki vegnað sem skyldi í deildarkeppninni á Ítalíu og segir Kaladze að fyrir vikið sé allt kapp sé lagt á að ná árangri í Meistaradeildinni.
Sharapova og Williams ekki með í Dubai
Maria Sharapova, stigahæsti tennisspilari heims í kvennaflokki, og Serena Williams, sigurvegari Opna ástralska meistaramótsins frá því fyrir skemmstu, hafa afboðað komu sína á Opna Dubai mótið sem hefst í næstu viku. Þetta er mikið áfallt fyrir mótshaldara í Dubai, enda höfðu einhverjir gert sér vonir um að þær myndu endurtaka úrslitaviðureignina frá því í Ástralíu á mótinu.
Birgir Leifur komst áfram í Indónesíu
Birgir Leifur Hafþórsson er í 42.-58. sæti á opna indónesíska meistaramótinu í golfi þegar aðeins nokkrir kylfingar eiga eftir að ljúka keppni. Má telja nánast öruggt að Birgir Leifur komist í gegnum niðurskurð mótsins, sem er hluti af Evrópumótaröðinni. Birgir Leifur lék á einu höggi yfir pari í dag.

Nýr framkvæmdastjóri KSÍ
Stjórn KSÍ samþykkti á fundi sínum í dag að veita Geir Þorsteinssyni, nýjum formanni sambandsins, heimild til að ráða Þóri Hákonarson í stöðu framkvæmdastjóra.

Materazzi: Við verðum meistarar
Marco Materazzi, hinn umdeildi varnarmaður Inter Milan, er sannfærður um að lið sitt hampi meistaratitlinum þar í landi í ár. Hann segir að 2-3 sigrar í viðbót muni fara langt með að tryggja meistaratitilinn, en Inter hefur unnið 15 leiki í röð í deildinni til þessa.

Hardaway úti í kuldanum
Ummælin sem Tim Hardaway lét falla í gær um John Amaechi og annað samkynheigt fólk hafa vakið gríðarlega athygli í Bandaríkjunum. Hardaway hefur verið útilokaður frá allri kynningarstarfsemi í kringum stjörnuleik NBA sem fram fer á sunnudaginn. Amaechi sjálfur segir orð Hardaway vera lituð hatri í garð samfélags samkynheigðra.

Mellberg: Leikjaskipulagið er fáránlegt
Olaf Mellberg hjá Aston Villa hefur tekið undir orð stjóra síns, Martin O´Neill, og gagnrýnt leikjafyrirkomulagið í ensku úrvalsdeildinni harðlega. Villa léku gegn Reading um síðustu helgi en næsti leikur liðsins er þann 3. mars næstkomandi. Sú staðreynd að 21 dagur sé á milli leikja er merki um glórulausa skipulagningu, segir Mellberg.

Robinho: Tottenham er ekki nógu stórt félag
Brasilíski sóknarmaðurinn Robinho hjá Real Madrid segir ekkert til í þeim orðrómi að hann sé á leið til Tottenham í sumar, eftir að hafa fallið niður í goggunarröðinni hjá Real. Robinho segir ástæðuna afar einfalda – Tottenham er ekki nægilega stórt félag fyrir hann.

Ronaldo í byrjunarliðinu á morgun
Brasilíski sóknarmaðurinn Ronaldo verður að öllum líkindum í byrjunarliði AC Milan í fyrsta skipti þegar liðið tekur á móti Siena í ítölsku A-deildinni á morgun. Þjálfarinn Carlo Ancelotti segir að Ronaldo sé óðum að komast í gott form og sé í nægilega góðu ástandi til að vera í byrjunarliðinu.

Casillas gagnrýnir spænska fjölmiðla
Iker Casillas, markvörður Real Madrid, gerir lítið úr meintu uppþoti í herbúðum Barcelona, hvað meintar deilur Samuel Eto´o, Ronaldinho og þjálfarann Frank Rijkaard varðar. Casillas harmar hvernig spænskir fjölmiðlar hafa blásið málið upp.

Nonda ætlar að sanna sig fyrir Hughes
Shabani Nonda, framherjinn knái sem er í láni hjá Blackburn frá Roma, vill helst af öllu vera áfram hjá enska liðinu og vonast til að forráðamenn ítalska félagsins séu reiðubúnir að selja hann í sumar. Nonda hefur verið hrósað mikið fyrir frammistöðu sína með Blacburn, nú síðast í gær þegar stjórinn Mark Hughes fór um hann fögrum orðum.

Neville veit ekkert hvað hann talar um
Darryl Powell, fyrrum leikmaður Derby og Birmingham í enska boltanum og núverandi umboðsmaður, segir að Gary Neville viti ekkert hvað hann sé að tala um þegar hann segir umboðsmenn leikmanna vera óþarfa. Ummæli Neville frá því í gær hafa vakið hörð viðbrögð á meðal umboðsmanna, sem telja vegið óþarflega að starfsheiðri sínum.

Dallas marði sigur á Houston
Dallas vann sinn níunda leik í röð í NBA-deildinni þegar liðið bar sigurorð af Houston í nótt. Bakvörðurinn Jason Terry var maðurinn á bakvið sigur Dallas, en hann skoraði mikilvægar körfur á lokamínútum leiksins. Cleveland lagði LA Lakers í hinum leik næturinnar en nú verður gert hlé á deildarkeppninni vegna stjörnuleiksins sem fram fer á sunnudag.

Hvað er motocross ?
Margir hafa eflaust velt fyrir sér hvað motocross þýðir í raun og veru. Í þessari grein mun ég fara ofan í hvað motocross er í raun og veru og útskýra hvernig keppnir fara fram o.fl.