Almannavarnir

Hættustig, neyðarstig og alls konar bannað
Það er óhætt að ætla að hertar sóttvarnaaðgerðir sem kynntar voru í dag og taka gildi á miðnætti hafi verið mörgum vonbrigði. Aðgerðirnar eru þær hörðustu sem gripið hefur verið til hér á landi vegna kórónuveirufaraldursins og ná til landsins alls. Til viðbótar við hertar aðgerðir hefur hættustigi verið lýst yfir á Landspítala og neyðarstigi almannavarna hefur sömuleiðis verið lýst yfir.

Neyðarstigi almannavarna lýst yfir
Ákveðið hefur verið að færa almannavarnastig úr hættustigi og upp í neyðarstig vegna kórónuveirufaraldursins. Síðast var neyðarstig í gildi hér á landi 12. Febrúar en þann dag var neyðarstig lækkað niður á hættustig. Samkvæmt tilkynningu frá almannavarnadeild ríkislögreglustjóra nú í kvöld hefur verið ákveðið að færa almannavarnastigið aftur upp á neyðarstig.

Rýma Geldingadal: Gasmengun í dældum gæti nálgast lífshættuleg gildi
Nágrenni eldgossins í Geldingadal verður rýmt klukkan 17:00 í dag en Veðurstofan varar við því að hættulegar gastegundir geti safnast fyrir í lægðum og dældum þegar veður lægir. Styrkur gassins þar gæti verið lífshættulegur.

Fólk verður að yfirgefa svæðið í síðasta lagi klukkan fimm
Seinni partinn í dag og á morgun verður ekki óhætt að vera nálægt eldstöðvunum í Geldingadal vegna gasmengunar. Náttúruvársérfræðingur segir að fólk verði að hafa yfirgefið svæðið fyrir klukkan fimm, í síðasta lagi. Við eldgosið séu skaðlegar gastegundir og meðal annars ein sem fólk hvorki sér né finnur lykt af.

Leiðin sem flestir mæla með að gosinu í Geldingadal
Margir hafa velt því fyrir sér hvaða leið sé best að fara að gosinu í Geldingadal. Á laugardag mælti Víðir Reynisson yfirlögregluþjónn með því að ganga frá Bláa lóninu.

Brýnt að virða tilmæli því á morgun gæti mengun orðið lífshættuleg
Náttúruvársérfræðingur segir að staðan á eldgosinu sé svipuð og í upphafi og að það sé ekkert sem bendi til þess að því ljúki í dag. Biðlað er til fólks um að virða tilmæli almannavarna því þegar lægir á morgun gæti gosmengun í Geldingadal orðið lífshættuleg.

„Fólk var að koma niður örmagna og að detta í ofkælingarástand“
Rúmlega 140 björgunarsveitarmenn tóku þátt í aðgerðum á Suðurnesjum í nótt vegna fólks sem hafði farið að gossvæðinu í Geldingadal og lent í miklum vandræðum þegar veður tók að versna.

Svæðinu við gosið lokað vegna gasmengunar
Við mælingar í morgun kom í ljós að gasmengun er á gossvæðinu í Geldingadal og er mælingin komin upp fyrir hættumörk.

Slæmt veður á gossvæðinu og biðja fólk að snúa við
Lögreglan á Suðurnesjum biðlar til þeirra sem hyggjast ganga að gosstöðvunum í nótt að snúa við. Afar slæmt veður er á svæðinu og er spáð versnandi veðri í nótt.

Segir að fólk hafi verið að „gleyma sér í gleðinni“ áður en svæðinu var lokað
Rögnvaldur Ólafsson, aðstoðaryfirlögregluþjónn hjá almannavörnum, segir að vilji hafi verið til að hafa svæðið opið en fólk hafi hegðað sér fremur óvarlega á gossvæðinu í dag.

Telja ekki hættu á gasmengun nema næst gosstöðvunum
Eldgos heldur áfram og hraunflæði virðist vera stöðugt samkvæmt nýrri færslu Veðurstofu Íslands á Twitter.

„Finnst fólk vera komið full nálægt þessu“
Rögnvaldur Ólafsson hjá almannavarnadeild ríkislögreglustjóra kveðst skilja áhuga fólks á því að vilja sjá eldgosið í Geldingadal með berum augum. Honum hugnist ekki að stilla upp löggæslu til að koma í veg fyrir að fólk fari inn á svæðið en brýnir á sama tíma fyrir því að mikilvægt sé að kynna sér þá hættu sem er til staðar á svæðinu. Fjöldi fólks hefur í dag lagt leið sína að gosstöðvunum en fólk er varað við því að fara of nálægt.

Nýjar hrauntungur geta brotist fram á miklum hraða sem erfitt er að forðast á hlaupum
Vísindaráð almannavarna varar við dvöl nálægt gosstöðvunum í Geldingadal. Mælt er með því að fólk virði fyrir sér gosstöðvarnar frá hæðum í kringum Geldingadal en fari ekki of nálægt. Til að mynda er varað við því að glóandi hraun geti fallið úr hraunjaðrinum og „hröð og skyndileg framhlaup orðið þar sem nýjar hrauntungur brjótast fram úr hraunjaðrinum með miklum hraða sem erfitt að forðast á hlaupum.“

Stríður straumur fólks í Geldingadal: Dæmi um að fólk mæti á gallabuxum og strigaskóm
Fólk hefur í dag lagt leið sína í stríðum straumum að eldgosinu í Geldingadal. Lokað er fyrir bílaumferð inn á svæðið en fólki hefur verið hleypt inn á svæðið fótgangandi. Dæmi eru um að fólk hafi lagt af stað á vettvang illa búið fyrir þær aðstæður sem blasa við á svæðinu.

Mjög óvarlegt að ganga nálægt svæðinu án þess að huga að gosmengun
Gosið í Geldingadal er líklega minna en það sem kom upp í Fimmvörðuhálsi árið 2010 og ekki er talið að það muni hafa áhrif á flugumferð. Mesta hættan er af gasmengun en hún virðist þó ekki vera mikil að sögn veðurfræðings.

Ekki líklegt að gasmengun berist til Grindavíkur
Fannar Jónasson, bæjarstjóri Grindavíkur, segir að eldgosið í Geldingadal hafi létt á spennu á svæðinu og þess sé vænst að jarðskjálftum muni fækka. Enn sé þó mögulegt að þeim gæti fjölgað, þó það sé ólíklegra.

Almannavarnastig lækkað niður á hættustig
Almannavarnastig hefur verið lækkað niður á hættustig vegna eldgoss í Geldingadal. Þetta kemur fram í tilkynningu frá almannavörnum. Neyðtarstigi var lýst í gærkvöldi þegar ljóst var að byrjað var að gjósa.

Boða til upplýsingafundar vegna eldgossins
Almannavarnir og Veðurstofa Íslands boða til upplýsingafundar klukkan 14 þann 20. mars vegna eldgossins í Geldingadal. Sýnt verður beint frá fundinum hér á Vísi.

Ráðleggingar um viðbrögð við gasmengun
Miðað við umfang gossins í Geldingadal nú virðist það ekki koma til með að ógna byggð eða mannvirkjum. Aftur á móti er möguleiki á því að gasmengun geti valdið óþægindum hjá fólki.

„Það er engin bráðahætta í gangi“
Víðir Reynisson yfirlögregluþjónn hjá almannavörnum var ræstur út í húsakynni Almannavarna í Skógarhlíð á tíunda tímanum í kvöld þegar flest benti til þess að eldgos væri hafið á Reykjanesi. Sú reyndist raunin.

Almannavarnir biðla til almennings: Verið heima!
Almannavarnir biðla til fólks um að halda sig heima og fylgjast með fréttum í stað þess að þjóta af stað til að fylgjast með nýhöfnu gosi.

Svona var 169. upplýsingafundurinn vegna kórónuveirunnar
Almannavarnadeild ríkislögreglustjóra og embætti landlæknis boða til reglulega upplýsingafundar klukkan 11 í dag.

Almannavarnir sendu óvart SMS-skilaboð til íbúa á höfuðborgarsvæðinu
SMS-skilaboð frá almannavörnum sem voru ætluð vegfarendum í námunda við Keili og Fagradalsfjall dreifðust um of stórt svæði og voru meðal annars send í símtæki í Grindavík og á höfuðborgarsvæðinu. Í skilaboðunum var ítrekað að enn væri varhugavert að vera nálægt Keili og Fagradalsfjalli.

Covid-tölur gærdagsins „gleðilegar“
Tölur um fjölda þeirra sem greindust með kórónuveiruna hér á landi eru „gleðilegar“ að sögn samskiptastjóra almannavarna. Almannavarnir veita ekki upplýsingar um tölur varðandi framgang kórónuveirufaraldursins hér á landi um helgar.

Sér fram á að á annað hundrað verði í sóttkví í lok dags
Smitrakningarteymi almannavarna er nú önnum kafið við að ná utan um alla þá sem gætu hafa orðið útsettir fyrir smiti vegna þeirra tveggja sem greindust með kórónuveiruna utan sóttkvíar í gær.

Ekki miklar líkur á eldgosi í núverandi ástandi
Engar vísbendingar eru um að kvika færist hratt nær yfirborði á Reykjanesskaga og telur vísindaráð almannavarna ekki miklar líkur á eldgosi á meðan það ástand varir. Jarðskjálfti upp á allt að 6,5 að stærð er talinn á meðal líklegustu sviðsmynda í jarðskjálftavirkninni á svæðinu.

Ný hraunflæðispá: Fjögur svæði þar sem gos gæti komið upp
Eldfjallafræði og náttúruvárhópur Háskóla Íslands hefur birt nýja hraunflæðispá þar sem miðað er við þróun jarðhræringanna á Reykjanesi frá því í nótt. Spáin gerir nú ráð fyrir fjórum svæðum þar sem eldgos gæti komið upp.

Rýmingaráætlun fyrir Vogana á lokametrunum
Viðbragðsaðilar á Suðurnesjum eru við öllu búnir og í startholunum ef til eldgoss kemur að sögn Úlfars Lúðvíkssonar, lögreglustjóra á Suðurnesjum, en rætt var við hann í beinni útsendingu í hádegisfréttum Bylgjunnar.

Fólk geti lent mjög óvænt í aðstæðum sem það kemst ekki úr ef það fer inn á svæðið
Víðir Reynisson, yfirlögregluþjónn hjá almannavarnadeild ríkislögreglustjóra, beinir því til almennings að vera ekki á ferðinni á því svæði á Reykjanesskaga þar sem óróinn og skjálftavirknin er hvað mest.

Mæla hvort kvikugas streymi til yfirborðs
Jarðvísindamenn fylgjast náið með því hvort einhverjar vísbendingar sjáist um kvikuhreyfingar í tengslum við jarðskjálftahrinuna á Reykjanesskaga. Einn liður í eftirlitinu eru daglegar mælingar á gasuppstreymi.