
Ástin og lífið

Kynntust í fyrri seríunni
Önnur þáttaröðin af Svörtu Söndum er farin í loftið á Stöð 2 en fyrri serían naut mikilla vinsælda.

Unnur Eggerts og Travis eiga von á öðru barni
Unnur Eggertsdóttir, leikkona og verkefnastjóri og hugmynda- og textasmiður hjá Maurum auglýsingastofu, á von á sínu öðru barni með unnusta sínum Travis. Hún deilir gleðitíðindunum með fylgjendum sínum á Instagram.

Skylduð til að bæta Baltasarsdóttir við
Dóttir leikstjórans Baltasars Kormáks og Sunnevu Ásu Weisshappel, myndlistarkonu og leikmyndahönnuðar var skírð þann 5. október síðastliðinn og fékk hún nafnið Kilja Kormákur. Parið þurfti að sækja um sérstakt leyfi til Mannanafnanefndar og segir að það hafi komið þeim á óvart að Kilja væri ekki til sem íslenskt kvenmannsnafn.

Dóttir Sunnevu og Baltasars ber nafnið Kormákur
Leikstjórinn Baltasar Kormákur og Sunneva Ása Weisshappel, myndlistakona og leikmyndahönnuður, eignuðust stúlku þann 5. ágúst síðastliðinn. Stúlkan hefur fengið nafnið Kilja Kormákur.

Bündchen 44 ára og ólétt
Brasilíska ofurfyrirsætan Gisele Bündchen og þjálfarinn Joaquim Valente, eiga von á sínu fyrsta barni saman. Tímaritið People hefur fengið þetta staðfest.

Móðurmál: Tvær óvæntar þunganir eftir óútskýrða ófrjósemi
„Ég væri til í endurupplifa þessar stundir milljón sinnum. Það er svo magnað að á einni millisekúndu fer maður frá mesta sársauka sem ég hef upplifað yfir í bestu tilfinningu lífs míns,“ segir Jóna Kristín Hauksdóttir, hagfræðingur og þriggja barna móðir, í viðtalsliðnum Móðurmál.

Nýfæddur sonur Gylfa og Alexöndru kominn með nafn
Alexandra Helga Ívarsdóttir, eigandi barnafataverslunar, og Gylfi Þór Sigurðsson knattspyrnumaður eignuðust dreng þann sautjánda október. Nú hefur drengurinn fengið nafnið Róman Þór Gylfason.

Ragga Holm og Elma eignuðust dreng
Reykjavíkurdóttirin Ragga Holm og kærastan hennar Elma Valgerður eignuðust frumburð sinn þann 22. október síðastliðinn. Öllum heilsast vel og segist Ragga ekki geta sett það í orð hve stolt hún er af konunni sinni.

Stjörnulífið: Seiðandi ofurskvísur og hrekkjavaka
Mikið var um veisluhöld um helgina þar sem árshátíðir fyrirtækja og hrekkjavökuteiti voru áberandi á samfélagsmiðlum. Stjörnur landsins tóku forskot á sæluna og klæddu sig upp sem Hollywood-stjörnur. Helgi Ómars skellti sér í jógakennaranám á meðan Elísabet Gunnars eyddi vetrarfríinu með börnunum í Vestmannaeyjum.

Einhleypan: Góðmennska og húmor heillar
Lárus Thor er 23 ára nemi, búsettur á Seltjarnarnesi. Hann er mikill fótboltaáhugamaður og þykir fátt betra en að fá sér góða nautasteik. Lárus er Einhleypan á Vísi.

Edda Falak fagnar tveimur mánuðum sem móðir
Edda Falak, baráttukona og áhrifavaldur, og Kristján Helgi Hafliðason, glímukappi og þjálfari í Mjölni, eignuðust fallegan dreng fyrir tveimur mánuðum. Um fyrsta barn parsins er að ræða. Þessu greinir Edda frá í færslu á Instagram-reikning sínum.

Átján ára og ólétt en lét það ekki stoppa sig
„Það var kannski mesta sjokkið að vera komin rúma þrjá mánuði þegar ég fæ staðfest að ég sé ólétt. En ég er alveg viss um að þetta átti að gerast. Ég veit ekkert hvar ég væri í dag ef ég hefði ekki átt hana,“ segir leikkonan og grínistinn Birna Rún Eiríksdóttir sem varð ólétt átján ára gömul og byrjaði í Listaháskólanum með nokkurra mánaða gamalt barn. Birna Rún er viðmælandi í Einkalífinu.

Stamaði svo mikið að hann varð að fara í talþjálfun í fimm ár
Seðlabankastjórinn Ásgeir Jónsson bjóst við að verða bóndi, átti erfitt með lestur í æsku en kláraði á endanum doktorspróf.

Tveir urðu að sjö: „Ég veit ekki neitt hvað ég að gera“
Óvænt sjón blasti við Örnu Ýr Jónsdóttur, hjúkrunarfræðingi og þriggja barna móður, þegar hún kom heim úr fríi með fjölskyldunni frá Flórída í vikunni. Fimm hamstraungar höfðu bæst við fjölskylduna.

Nadine og Snorri eiga von á barni
Hjónin Nadine Guðrún Yaghi, forstöðumaður samskipta- og markaðssviðs Play, og eiginmaður hennar Snorri Másson fjölmiðlamaður eiga von öðru barni í apríl næstkomandi.

Littler opinberaði óvart nýju kærustuna
Pílukastsstjarnan unga, Luke Littler, virðist vera kominn með nýja kærustu. Það komst upp á nokkuð spaugilegan hátt.

Stjörnulífið: Ástin, afmæli og stórir draumar
Síðastliðin vika var viðburðarík að vanda hjá samfélagsmiðlastjörnum landsins. Árshátíðir fyrirtækja, afmæli, tónleikar og kvennakvöld íþróttafélaga voru áberandi um helgina. Þá voru myndir frá ferðalögum erlendis áberandi og virðast Íslendingar æstir í að ná nokkrum sólargeislum fyrir veturinn.

Einhleypan: Vandræðalegt þegar þeir eru giftir eða í sambandi
„Vinir mínir kalla mig Bat-girl því ég vaki oft langt fram á nótt,“ segir Bjargey Ingólfsdóttir, jógakennari og fararstjóri, í samtali við Makamál. Hún lýsir sjálfri sér sem litríkri, góðhjartaðri og lífsglaðri manneskju sem líður eins og hún sé ekki deginum eldri en 25 ára.

Birta Líf og Gunnar eiga von á dóttur
Birta Líf Ólafsdóttir, markaðssérfræðingur og hlaðvarpsstjórnandi, og Gunnar Patrik Sigurðsson fasteignasali eiga von á dóttur.

Lét sauma bangsa úr fötum látins sonar síns
Tinna Björnsdóttir upplifði martröð allra foreldra í mars á seinasta ári þegar einkasonur hennar, Gabríel Dagur Hauksson lést af völdum ofskömmtunar, einungis tvítugur að aldri. Tinna hefur síðan þá lagt upp með að halda minningu sonar síns á lofti og vera opinská með allt það sem hún hefur gengið í gegnum í sorgarferlinu.

Goðsögnin um að fara áfram
Var og er enn kenning um að það eigi ekki að dvelja í huganum í fortíðinni. Það er ekki þannig, ekki það einfalt fyrir lífið. Enda er reynsla saga lífsins. Og oft tækifæri til að hugsa um það og gera sitt til að gera betur.

María Thelma og Steinar Thors héldu brúðkaup ársins
Nýgiftu hjónin María Thelma Smáradóttir leikkona og Steinar Thors, skiptastjóri hjá Straumi, gengu í hjónaband við fallega athöfn í Hallgrímskirkju liðna helgi. Lífið ræddi við hjúin um stóra daginn, og ógleymanlegt og þaulskipulagt bónorð Steinars.

Er alltaf hrædd
„Ég er nýbyrjuð hjá Maurum sem er mjög skemmtileg og kreatív stofa með fjölbreytta viðskiptavini. Við fjölskyldan höldum svo áfram okkar endalausa flakk milli New York og Íslands á meðan við klárum ýmis verkefni sem bíða okkar á báðum stöðum,“ segir hin glaðlynda og fjölhæfa Unnur Eggertsdóttir.

Malín Agla og Svavar eiga von á öðru barni
Dansarinn Malín Agla Kristjánsdóttir og Svavar Ingvarsson einkaþjálfari eiga von á sínu öðru barni saman.

„Ég myndi aldrei fara í samband með einhverjum fávita“
„Ég myndi örugglega ekki fara á fyrsta deit einhvers staðar á almannafæri, ég get ekki verið að láta að sjá mig,“ segir Guðrún Svava betur þekkt sem Gugga í gúmmíbát. Hún er viðmælandi í Einkalífinu og ræðir meðal annars stefnumótamenninguna hérlendis, eða öllu heldur takmörk hennar, og draumaprinsinn.

„Ekki þurrt auga í salnum“
„Við vissum svo sem að þetta yrði magnað en vá, það var bara ekki þurrt auga í salnum á þessu augnabliki,“ segir Guðríður Gunnlaugsdóttir. Hún og eiginmaður hennar Andri Jóns komu sínu nánasta fólki rækilega á óvart um helgina þegar tvöfalt fertugsafmæli þeirra breyttist óvænt í brúðkaup.

Ástarvika
Svo hljóðaði forleikurinn að Ástarvikunni í Bolungarvík, kærleiksríkri menningarhátíð, sem haldin hefur verið a.m.k. liðinn áratug, skemmtilegu framtaki, með það að markmiði að fjölga bæjarbúum eða með öðrum orðum að nokkur ástarvikubörn líti dagsins ljós að níu mánuðum liðnum.

Er ást nóg fyrir ástarsamband ?
Ást er yndisleg, ást er að þekkja ástartungumál hvors annars, ást er virðing, aðdáun, skilningur og skot. Ástin leiðir af sér ástarsambönd og jafnvel hjónaband. En hvað svo? Dugar ástin ein til að viðhalda heilbrigðu og hamingjuríku sambandi?

Sungu bakraddir fyrir Heru og eru nú byrjuð saman
Íris Hólm Jónsdóttir, tónlistar- og leikkona, og Arnar Jónsson tónlistarmaður eru nýtt par. Parið hefur verið að stinga saman nefjum undanfarna mánuði og virðist ástin blómstra á milli þeirra.

Stjörnulífið: Kóngar, drottningar og stjörnur í útlöndum
Konunglegar heimsóknir og brúðkaup voru meðal þess sem bar hæst í vikunni sem leið hjá stjörnum landsins. Það hefur ekki farið framhjá neinum að það hefur kólnað allhressilega á landinu og jörðin víðast hvar orðin hvít. Það er ekki að sjá hjá mörgum stjörnum sem eru í sólinni í útlöndum.