
Lögreglan

Heilbrigðisstarfsfólk fær milljarð í umbun á meðan lögreglumenn bíða eftir nýjum kjarasamningi
Lögreglumenn saka samninganefnd ríkisins um að tefja fyrir í samningaviðræðum um nýjan kjarasamning. Þeir fagna því að milljarður verði veittur til þess að umbuna heilbrigðisstarfsfólki í framlínu.

Útköll lögreglu tímafrekari og erfiðari úrlausnar
Útköllum og verkefnum lögreglu hefur fækkað frá því að kórónuveiran kom til Íslands. Útköllin hafa að sama skapi breyst. Eru mörg hver tímafrekari og erfiðari úrlausnar. Fíkniefnamálum hefur fækkað og ofbeldismálum fjölgað.

„Þessu fólki líður örugglega ekki vel í dag“
Allt viðbragðsteymi lögreglu og sjúkraflutningamanna á Selfossi þurfti að fara í sóttkví í nótt eftir að hafa sinnt fólki sem átti að vera í sóttkví og hafði velt bíl sínum á Þingvallavegi. Fólkið slapp með minniháttar meiðsl.

Lögreglumenn lausir úr sóttkví eftir útkall vegna bílveltu
Þrír sluppu með minniháttar meiðsl í umferðarslysi við Þingvelli í nótt. Fólkið í bílnum átti að vera í sóttkví og var grunur um kórónuveirusmit hjá einu þeirra. Lögreglumenn og sjúkraflutningamenn sem kallaðir voru á vettvang þurftu því að fara í úrvinnslusóttkví eftir að hafa sinnt fólkinu. Sýni

Smit greindist í smitrakningarteyminu
Einn starfsmaður smitrakningarteymis sóttvarnalæknis og ríkislögreglustjóra hefur verið greindur með Covid-19 smit.

Fjórar umsóknir um stöðu lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu
Fjórar umsóknir bárust um stöðu lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu en umsóknarfrestur rann út í gær, mánudaginn 30. mars.

Óprúttinn aðili náði stjórn á Facebook-síðu lögreglunnar
Svo virðist sem að óprúttinn aðili hafi náð stjórn á Facebook-síðu Lögreglunnar á Norðurlandi eystra. Lítið er vitað um atvikið eins og er en nú rétt fyrir hádegi var nafni síðunnar breytt.

Margrét María nýr lögreglustjóri Austurlands
Margrét María Sigurðardóttir hefur verið skipuð í embætti lögreglustjórans á Austurlandi.

Lýsa eftir Sean Bradley
Lögreglan á Suðurlandi lýsir eftir Sean Aloysius Marius Bradley sem fæddur er 22. apríl 1957 og skráður til búsetu að Austurvegi 34 á Selfossi.

Vonar að ekki komi til þess að almennir borgarar verði kvaddir til starfa sem hjálparliðar
Ríkislögreglustjóri vonar að ekki komi til þess að almennir borgarar verði kvaddir til starfa sem hjálparliðar í þágu almannavarna.

Ráðherra uppfærir reglur um starfsskyldu borgara á hættustundu
Reglur um starfsskyldu allra á aldrinum 18 til 65 ára til að starfa í hjálparliði almannavarna sé þess óskað voru uppfærðar á dögunum.

Embætti lögreglustjóra á höfuðborgarsvæðinu auglýst til umsóknar
Dómsmálaráðuneytið hefur auglýst embætti lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu laust til umsóknar.

Hulda Elsa byrjar sem lögreglustjóri á höfuðborgarsvæðinu
Tekur við starfi Sigríðar Bjarkar Guðjónsdóttur þar til nýr lörgeglustjóri verður skipaður.

Sigríður Björk skipuð ríkislögreglustjóri
Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir dómsmálaráðherra hefur skipað Sigríði Björk Guðjónsdóttur í embætti ríkislögreglustjóra.

Sigríður Björk þykir hæfust
Hæfisnefnd sem dómsmálaráðherra skipaði hefur komist að þeirri niðurstöðu að þrír af sjö umsækjendum um embætti ríkislögreglustjóra séu taldir hæfir til þess að gegna embættinu.

Gerir sjö tillögur að úrbótum á rekstri ríkislögreglustjóra
Óskýr valdmörk í skipulagi lögreglu hafa valdið vaxandi togstreitu um yfirstjórnunarhlutverk ríkislögreglustjóra á undanförnum árum.

Enn beðið eftir áliti hæfnisnefndar um stöðu ríkislögreglustjóra
Hæfnisnefnd hefur enn ekki skilað ráðherra áliti sínu um mat á umsækjendum um stöðu ríkislögreglustjóra.

Stjórnsýsluúttekt á embætti ríkislögreglustjóra tilbúin
Úttekt Ríkisendurskoðunar um embætti ríkislögreglustjóra er lokið og hefur skýrsla verið send Alþingi til meðferðar.

Þrjú lögregluembætti vinna að því að greina ferðir mannsins
Víðir Reynisson, yfirlögregluþjónn hjá ríkislögreglustjóra, brýnir fyrir fólki að leita til fjölmiðla fyrir upplýsingar um þróun mála varðandi kórónuveiruna COVID-19.

Kjartan tímabundið áfram ríkislögreglustóri
Kjartan Þorkelsson verður áfram settur ríkislögreglustjóri, fimmtán daga til viðbótar eða til 15. mars. Þetta hefur fengist staðfest frá dómsmálaráðneytinu.

Lögreglumaðurinn á Klapparstíg gekk mun lengra en tilefni var til
Þrítugur lögreglumaður sem sakfelldur var í Héraðsdómi í Reykjanesi fyrir líkamsárás og brot í opinberu starfi gekk mun lengra en tilefni var til að mati dómara. Dómur var kveðinn upp í gær en ekki birtur á vefsíðu dómstólsins fyrr en í dag.

Þyrlusveit og sérsveitarmenn birtust á Mosfellsheiði
Þyrlusveit Landhelgisgæslunnar og sérsveitarmenn frá ríkislögreglustjóra stunduðu æfingar á Mosfellsheiði í morgun. Sverrir Steinn Sverrisson var að aka Mosfellsheiðina um ellefuleytið í morgun þegar þyrla gæslunnar lenti á heiðinni.

Lögreglumaður dæmdur fyrir líkamsárás í starfi
Þrítugur lögreglumaður var dæmdur í 45 daga fangelsi í Héraðsdómi Reykjaness í dag fyrir fyrir líkamsárás og brot í opinberu starfi. Dómurinn er skilorðsbundinn til tveggja ára.

Laun yfirmanna hjá lögreglunni hækkuðu um 48% með samkomulagi Haraldar
Föst mánaðarlaun tveggja yfirlögregluþjóna og sjö aðstoðaryfirlögregluþjóna hækkuðu um 48% að meðaltali með samningi sem Haraldur Johannessen, fyrrverandi ríkislögreglustjóri, gerði við umrædda starfsmenn embættisins.

Hrunverjar fá greiddar bætur vegna hlerana
Ellefu einstaklingar sem sæta máttu því að símar þeirra voru hleraðir fá nú greiddar út bætur.

Ráðningu nýs ríkislögreglustjóra mögulega frestað
Dómsmálaráðuneytið vinnur að því að ráða í þrjár mikilvægar embættisstöður og átti að setja í þær allar 1. mars. Ráðning í embætti ríkislögreglustjóra er í algjörum forgangi innan ráðuneytisins og því líkur á að setning í embætti lögreglustjórans á Austurlandi og í embætti sýslumannsins í Vestmannaeyjum frestist um einhvern tíma.

Upptökur úr búkmyndavél sendar til NEL
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu ætlar að senda upptökur úr búkmyndavélum lögreglumanna sem tóku þátt í aðgerðum í Bankastræti aðfaranótt laugardags, til Nefndar um eftirlit með lögreglu.

Segir orðspor lögreglumannsins dregið niður í svaðið
Yfirlögregluþjónn hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu segir að með fullri vissu sé hægt að segja að áverkar rúmlega tvítugs karlmanns hafi ekki komið til vegna aðgerða lögreglu í Bankastræti aðfaranótt laugardags. Myndefni úr búkmyndavélum lögreglumanna og úr öryggismyndavélum sýni það.

Segja myndefni staðfesta að áverkar mannsins hafi verið tilkomnir áður en lögregla var kölluð til
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu segir að eftir skoðun á myndefni frá viðskiptum rúmlega tvítugs karlmanns og lögreglu um helgina verði ekki annað ráðð en að áverkar mannsins hafi verið tilkomnir áður en lögreglan var kölluð til.

Erfitt að halda uppi löggæslu í fíkniefnamálum sökum álags
Lögreglan á Suðurnesjum lagði hald á rúmlega 63 kíló af hörðum fíkniefnum í fyrra, rúmlega fjórfalt meira en árið á undan. Lögreglustjóri segir embættið vera í vandræðum með að halda uppi löggæslu í málaflokknum. Álag á lögreglumönnum sé gríðarlegt.