Boðar aukin ríkisafskipti og heitir því að verða áfram „maður fólksins“ Andy Burnham, fyrrverandi borgarstjóri Manchester, er nú formlega formaður Verkamannaflokksins. Hann tekur við forsætisráðherraembættinu af Keir Starmer á mánudaginn. Burnham heitir því að verða forsætisráðherra allra Breta, hlusta á þjóðina og vinna í hennar þágu. Erlent 17.7.2026 12:20
Starmer segir af sér Keir Starmer hyggst segja af sér sem leiðtogi breska Verkamannaflokksins og forsætisráðherra Bretlands. Hann mun gegna embættunum þar til að nýr leiðtogi Verkamannaflokksins hefur verið kjörinn í haust. Erlent 22.6.2026 08:38
Ætla að sækja óeirðaseggi í Belfast til saka Keir Starmer, forsætisráðherra Bretlands, segir að óeirðaseggir í Belfast muni verða sóttir til saka. Óöldin sem þeir ollu í borginni sé sjokkerandi og með öllu ólíðanleg. Ekkert geti réttlætt ofbeldi og það hvernig ýtt var undir óeirðirnar á netinu og annarsstaðar. Erlent 10.6.2026 10:18
Svarar til saka fyrir morð á „blóðuga sunnudeginum“ Réttarhöld yfir breskum uppgjafarhermanni fyrir morð og tilraunir til manndráps í Londonderry/Derry á Norður-Írlandi á blóðuga sunnudeginum svonefnda hefjast í dag. Enginn hefur nokkru sinni verið dæmdur sekur um fjöldamorðið. Erlent 15. september 2025 09:19
Rappsveitin sem sætti hryðjuverkarannsókn sleppur með skrekkinn Breska ákæruvaldið hefur ákveðið að aðhafast ekki í máli írsku rapphljómsveitarinnar Kneecap sem var til rannsóknar hjá lögreglu vegna ummæla sem hljómsveitarmeðlimir létu falla á tónlistarhátíðinni Glastonbury. Erlent 18. júlí 2025 18:32
Réðust á tómstundamiðstöð fyrir útlendinga þegar óeirðir héldu áfram Grímuklæddir óeirðaseggir lögðu eld að tómstundamiðstöð sem er notuð sem skýli fyrir förufólk á Norður-Írlandi í gærkvöldi. Fólkið í stöðinni hafði flúið óeirðir í bænum Ballymena sem hafa nú geisað þrjár nætur í röð. Erlent 12. júní 2025 13:38
„Rasísk glæpamennska“ hélt áfram á Norður-Írlandi í nótt Sautján lögreglumenn særðust þegar óeirðarseggir köstuðu bensínsprengjum, múrsteinum og flugeldum í þá í ofbeldisfullum mótmælum sem héldu áfram á Norður-Írlandi, aðra nóttina í röð. Lögreglan lýsir mótmælunum sem „rasískri glæpamennsku“. Erlent 11. júní 2025 13:05
Jonny Evans heiðraður fyrir landsleik kvöldsins Norður-Írinn Jonny Evans lék á dögunum sinn síðasta fótboltaleik með Manchester United og hefur lagt fótboltaskóna á hilluna. Norður-írska knattspyrnusambandið mun heiðra hann, ásamt annarri hetju, Steven Davis á Windsor Park í kvöld. Fótbolti 10. júní 2025 12:33
Rapphljómsveit til rannsóknar hjá hryðjuverkadeildinni Norður-írsk rapphljómsveit er til rannsóknar hjá hryðjuverkadeild bresku lögreglunnar. Hún er sökuð um að vera hliðholl hryðjuverkasamtökum á borð við Hamas og Hezbollah og hvetja til morðs á embættismönnum. Lífið 1. maí 2025 14:59
Rauðar viðvaranir vegna Éowyn Óveðrið Eowyn gengur nú yfir Bretlandseyjar og Írland er veðrið þegar farið að valda vandræðum. Þannig hefur fjölmörgum flugferðum verið aflýst á flugvöllunum í Glasgow, Edinborg og í Dyflinni. Erlent 24. janúar 2025 07:51
Umdeild stytta af drottningu sögð líkjast grínkarakter Ný bronsstytta af Elísabetu annarri Bretadrottningu hefur vakið mikil viðbrögð meðal íbúa á Norður Írlandi. Sumir segja styttuna móðgandi þar sem hún líkist grínkarakter frekar en drottningunni sjálfri. Lífið 14. september 2024 19:03
Írskur þjóðernissinni forsætisráðherra Norður-Írlands í fyrsta sinn Michelle O'Neill, þingkona Sinn Féin, skráði sig í sögubækurnar þegar hún tók við embætti sem forsætisráðherra Norður-Írlands þegar þing kom saman í dag eftir tveggja ára sniðgöngu sameiningarsinna. Erlent 3. febrúar 2024 18:44
Rappa um verkalýðinn, sameinað Írland og málvernd Írska rapptríóið Kneecap hefur vakið mikla athygli á heimsvísu og það bæði af góða og slæma toganum. Það er kannski helst fyrir ögrandi textasmíð og krassandi framkomu. Í lögum sínum láta þeir í ljós vanþóknun sína á hendur ráðandi öflum, stuðning þeirra við hinn umdeilda Írska lýðveldisher og ýmislegt fleira lítt ríkisútvarpshæft. Tónlist 9. nóvember 2023 08:00
EM 2028 haldið á Bretlandseyjum en á Ítalíu og Tyrklandi 2032 Englendingar, Skotar, Írar og Walesverjar munu í sameiningu halda Evrópumótið í fótbolta árið 2028 en þetta var endanlega ákveðið á fundi Evrópska knattspyrnusambandsins UEFA í Sviss í dag. Þá var einnig ákveðið hvar mótið fari fram árið 2032. Fótbolti 10. október 2023 10:24
Telja gögn um lögreglumenn í höndum herskárra hópa Norðurírska lögreglan telur sig hafa vissu fyrir því að herskáir hópar lýðveldissinna hafi undir höndum gögn um lögreglumenn sem hún deildi óvart opinberlega í síðustu viku. Óttast er að hóparnir noti upplýsingarnar til þess að ógna lögreglumönnum og skapa ótta. Erlent 16. ágúst 2023 09:25
Biden heimsækir Norður-Írland Mikil öryggisgæsla er nú á Norður-Írlandi en Joe Biden Bandaríkjaforseti komar þangað í opinbera heimsókn í gærkvöldi. Erlent 12. apríl 2023 07:37
Norður-Írar á varðbergi yfir páskana Í gær voru liðin 25 ár frá því að föstudagssáttmálinn var undirritaður á Norður-Írlandi. Friðarsáttmálinn, sem kenndur er við föstudaginn langa (e. The Good Friday Agreement), var undirritaður árið 1998 og batt hann enda á þriggja áratuga löngu stríði milli írskra kaþólska þjóðernissinna og breska mótmælendur sem varð 3.600 manns að bana. Skoðun 8. apríl 2023 18:00
Hættan á hryðjuverkum sögð veruleg og viðbúnaður aukinn Bresk yfirvöld hafa ákveðið að hækka áhættumat fyrir Norður-Írland upp á næst hæsta viðbúnaðarstig, sem þýðir að hryðjuverk þykja afar líkleg. Ákvörðnin var tekin í kjölfar skotárásar á háttsettan yfirmann í lögreglunni í febrúar. Erlent 28. mars 2023 12:42
Íslenskir dómarar dæma í norður-írsku deildinni Íslenskt dómaratríó verður að störfum í norður írsku úrvalsdeildinni í fótbolta um helgina. Þetta kemur fram á heimasíðu KSÍ. Íslenski boltinn 17. mars 2023 17:00
Breskir hjúkrunarfræðingar leggja niður störf Umfangsmestu verkfallsaðgerðir breskra hjúkrunarfræðinga í sögunni hefjast klukkan átta þegar hjúkrunarfræðingar í Englandi, Wales og Norður-Írlandi munu leggja niður störf. Erlent 15. desember 2022 06:36
Herinn í viðbragðsstöðu fyrir umfangsmikil verkföll á Bretlandseyjum Hjúkrunarfræðingar, sjúkraliðar og sjúkraflutningamenn eru meðal þeirra sem hafa boðað umfangsmikil verkföll á Bretlandseyjum í desember vegna launamála. Breski herinn hefur verið settur í viðbragðsstöðu vegna málsins. Verkalýðsfélög innan annarra geira hafa sömuleiðis boðað verkfall. Erlent 30. nóvember 2022 17:19
Kaþólikkar orðnir fleiri en mótmælendur á Norður-Írlandi Fleiri Norður-Írar telja sig nú kaþólikka en mótmælendur í fyrsta skipti samkvæmt nýbirtu manntali. Tölurnar eru taldar verða vatn á myllu þeirra sem berjast fyrir sameiningu Írlands. Erlent 22. september 2022 10:35
Tók síðustu ljósmyndirnar af Elísabetu Ljósmyndarinn Jane Barlow var ein þeirra sem tók myndir af Elísabetu II og Liz Truss á þriðjudaginn er sú síðarnefnda var gerð að forsætisráðherra Bretlands. Óafvitandi var Barlow að taka síðustu myndirnar af Elísabetu. Lífið 9. september 2022 14:25
Verður Karl III Bretlandskonungur Karl Bretakonungur, sonur Elísabetar Englandsdrottningar, verður þekktur sem Karl III Bretlandskonungur. Hann er tekinn við sem konungur Bretlands eftir að móðir hans lést í dag. Erlent 8. september 2022 18:44