
Viðreisn

Samskipta- og upplýsingatækni og grænn ferðamáti – eru allir á sömu línu?
Nú á 21. öldinni er samfélagið okkar að taka hröðum breytingum á mörgum sviðum. Alþjóðavæðing, stefanan um skóla án aðgreiningar, stefnan um sjálfstætt líf, grænni hugsun og svo mætti áfram telja. Allar þessar breytingar eru af hinu góða og liður í átt að betra samfélagi. En er ekki nauðsynlegt að skoða málin oft betur, til að sem flestir geti notið þeirra?

Prófkjörsslagur Innherja: Þórdís Jóna og Þórdís Lóa bítast um fyrsta sætið
Nöfnurnar og flokkssysturnar Þórdís Jóna Sigurðardóttir og Þórdís Lóa Þórhallsdóttir, sitjandi oddviti Viðreisnar í borginni, heyja nú baráttu um oddvitasætið í fyrsta prófkjöri Viðreisnar sem fram fer dagana 4.-5. mars. Þórdís Lóa er gjarnan kölluð Lóa og verður kölluð það í greininni, til að aðgreina frambjóðendur.

Ef við værum að búa til skóla
Ímyndum okkur að við værum fyrst núna að búa til grunnskóla. Við kæmum saman og tækjum þá ákvörðun að börnin okkar ættu að fara eitthvert alla virka daga til að öðlast þekkingu, reynslu og þroska meðan foreldrar þeirra væru í vinnunni.

Þorgerður Katrín: Samstaða á alþjóðavettvangi framar viðskiptahagsmunum
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir þingmaður Viðreisnar segir stöðuna í Úkraínu óþolandi og grafalvarlega. Utanríkismálanefnd Alþingis fundaði tvívegis um málið í dag.

Fimm nýir grunnskólar - Fimm ný hverfi
Undanfarin ár hafi verið slegin met í fjölda nýrra íbúða í Reykjavík. Seinustu þrjú ár hafa hér verið byggðar yfir þúsund íbúðir á ári. Það er ekkert útlit er fyrir að lát verði á þessari miklu uppbyggingu. Alla vega ekki vegna skorts á skipulögðum svæðum. Það eru til dæmis fimm nýir grunnskólar á teikniborðinu í borginni.

Færri stefnur og fleiri aðgerðir í Reykjavík
Byrjum á titli þessarar greinar, stefnur er góðar, þetta ætti ég að vita eftir að hafa starfað um árabil við stjórnun og stefnumótun hjá fjölda fyrirtækja og stofnana. Stefnur draga fram sýn stjórnenda og hagsmunaaðila og geta þannig verið fyrsta skref í átt að nýjum markmiðum.

Þetta þarf ekki að vera svona
Efnahagslegur stöðugleiki er eitt stærsta hagsmunamál almennings á Íslandi. Það er staðreynd að við búum ekki við slíkan stöðugleika í dag með vaxtastigið á fleygiferð og verðbólguna sömuleiðis. Eins og svo oft áður. Fyrirsjáanleikinn í heimilisbókhaldi landsmanna er enginn.

Nýtum krafta Þórdísar Sigurðardóttur í þágu borgarbúa
Hvernig má bæta starfsanda, rekstur, þjónustu og auka fagþekkingu? Mín reynsla er sú að það er best gert með því að treysta því fólki sem vinnur verkin sem ætlast er til þess að séu unnin betur til að hafa áhrif á starf.

Þjóðareign eða einkaeign?
Við rífumst um mismunandi leiðir til að stjórna fiskveiðum. Okkur greinir líka á um hversu hátt gjald eigi að koma fyrir veiðirétt. En í langan tíma hafa flestir verið á einu máli um að fiskveiðiauðlindin væri sameign þjóðarinnar.

Þorgerður fékk loðin svör frá Svandísi um hækkun veiðigjalda
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, formaður Viðreisnar, kvað sér hljóðs í óundirbúnum fyrirspurnum á Alþingi fyrr í dag og vildi knýja fram afstöðu ráðherra sjávarútvegsmála, Svandísar Svavarsdóttur, til hækkunar veiðigjalda.

Bein útsending: Frambjóðendur Viðreisnar takast á um borgina
Frambjóðendur í prófkjöri Viðreisnar í Reykjavík taka í dag þátt í pallborðsumræðu á vegum Uppreisnar, ungliðahreyfingar Viðreisnar. Þetta er í fyrsta sinn sem Viðreisn heldur prófkjör.

Mótmælum ofsóknum á fjölmiðlafólki
Í dag klukkan 14 boða ungliðahreyfingarnar Ungir jafnaðarmenn, Ungir Sósíalistar, Ung Vinstri græn, Uppreisn – ungliðahreyfing Viðreisnar og Ungir Píratar til mótmæla á Austurvelli í Reykjavík og á Ráðhústorginu á Akureyri klukkan 14:00. Við gerum það vegna aðfarar að einni af grunnstoðum frjáls lýðræðissamfélags: frjálsri blaða- og fréttamennsku.

Sjö vilja í fjögur efstu sætin hjá Viðreisn í Reykjavík
Sjö sækjast eftir fjórum efstu sætunum á lista Viðreisnar í Reykjavík í prófkjöri flokksins sem fer fram helgina fjórða til fimmta mars. Tvær sækjast eftir fyrsta sæti, einn eftir öðru sæti, þrjú eftir þriðja sæti og ein eftir þriðja til fjórða sæti.

Forystu Viðreisnar varð að ósk sinni um slag í borginni
Frestur til að tilkynna um framboð í prófkjöri Viðreisnar í Reykjavík rennur út á morgun og þegar hafa sjö skilað inn framboði.

Þórdís fer fram gegn nöfnu sinni
Þórdís Sigurðardóttir framkvæmdastjóri hefur ákveðið að sækjast eftir oddvitasætinu í prófkjöri Viðreisnar fyrir borgarstjórnarkosningarnar í Reykjavík. Nafna hennar Þórdís Lóa Þórhallsdóttir, núverandi oddviti, sækist einnig eftir fyrsta sætinu.

Verbúðin er enn okkar saga
Mér finnst eins og þjóðin hafi setið límd við sjónvarpsskjáinn í gær. Síðustu vikurnar hafa kaffistofur landsmanna rætt síðasta þátt og um leið rifjað upp tímann sem var, fatnaðinn, reykingarnar og hártískuna og lífið í verbúðinni.

Við viljum bara einfaldara líf
Í Silfrinu í gær ræddi reynt sveitarstjórnarfólk um mikilvægi þess að einfalda þjónustuna fyrir fólk. Að einfalda lífið fyrir íbúa Reykjavíkur er ástæðan fyrir því að ég fór í pólitík og að því hef ég unnið í borgarstjórn á þessu kjörtímabili.

Sigmar sakar Sjálfstæðisflokkinn um efnahagslegt metnaðarleysi
Sigmar Guðmundsson, þingmaður Viðreisnar, gerði vaxtahækkanir og hækkandi afborganir almennings af húsnæðislánum sínum að umtalsefni í óundirbúnum fyrirspurnum í þinginu í dag og sakaði Sjálfstæðisflokkinn um efnahagslegt metnaðarleysi.

Þjóðarleikvang í Kaplakrika
Nú um mundir er unnið að undirbúningi vegna þjóðarleikvangs fyrir knattspyrnu sem er fyrirhugaður í Laugardal í Reykjavík. Þessi nýi leikvangur er fagnaðarefni fyrir alla unnendur knattspyrnu og boðar nýja tíma fyrir alla landsmenn.

Færist fjör í leika í fyrsta prófkjöri Viðreisnar
Þórdís Sigurðardóttir, fyrrverandi framkvæmdastjóri Hjallastefnunnar til margra ára, eigandi Manifesto ráðgjafafyrirtækis og stjórnarmaður, íhugar um þessar mundir að bjóða sig fram í fyrsta sæti á lista Viðreisnar í borginni.

Áföll í barnæsku tengd geðheilsuvanda og heilsubrest á fullorðinsárum
Á dögunum voru kynntar nýjar niðurstöður rannsóknar Áfallasaga kvenna sem sýna að sterk tengsl eru á milli fjölda áfalla í æsku og geðheilsuvanda og skertrar getu til að takast á við áskoranir daglegs lífs á fullorðinsárum. Rétt er að taka fram að rannsóknin er ein sú stærsta sinnar tegundar á heimsvísu.

Dagur í lífi Sigmars: „Ekkert betra en fyrsti bolli dagsins"
Sigmar Guðmundsson, þingmaður Viðreisnar, segir nýja starfið á þinginu gjörólíkt gamla starfinu á RÚV. Fundarharkan sé talsvert meiri. Hann segir frúnna með mikið keppnisskap og ekki sætta sig við að tapa á spilakvöldum fjölskyldunnar.

Dagur segir hvergi hafa borið skugga á meirihlutasamstarfið en Viðreisn heldur öllu opnu
Oddvitar þeirra fjögurra flokka sem mynda meirihluta í borginni, Samfylkingar, Viðreisnar, Vinstri grænna og Pírata segja samstarfið hafa gengið vel og myndu vilja halda því áfram. Oddviti Viðreisnar ítrekar að samstarfið sé gott en er sá oddviti sem sker sig úr um að leggja áherslu á að flokkurinn gangi óbundinn til kosninga.

Þórdís Lóa staðfestir oddvitaframboð
Þórdís Lóa býður sig fram í fyrsta sæti til að leiða lista Viðreisnar í prófkjöri flokksins fyrir sveitarstjórnarkosningarnar í maí.

Þórdís Lóa vill áfram leiða lista Viðreisnar í borginni
Þórdís Lóa Þórhallsdóttir, borgarfulltrúi og formaður borgarráðs, hefur ákveðið að bjóða sig fram til að áfram leiða lista Viðreisnar í Reykjavík í prófkjöri flokksins fyrir komandi sveitarstjórnarkosningar.

Má bjóða þér að þjást?
Það var áhugavert að hlusta á nýjan forstjóra Landspítalans í viðtali á RÚV á dögunum. Hann lagði þar áherslu á að fólkið í landinu vilji fyrst og fremst öfluga heilbrigðisþjónustu. Sömuleiðis sagði hann að skilgreina þurfi hlutverk spítalans og undirstrikaði að það sé ekki sjálfgefið að spítalinn sinni öllum þeim verkefnum sem hann sinnir núna.

Diljá vill þriðja sætið hjá Viðreisn í Reykjavík
Diljá Ámundadóttir Zoëga hefur ákveðið að bjóða sig fram í prófkjöri Viðreisnar í Reykjavík og stefnir á 3. sætið á lista.

Pawel sækist aftur eftir öðru sæti Viðreisnar í Reykjavík
Borgarfulltrúinn Pawel Bartoszek sækist eftir öðru sæti í prófkjöri Viðreisnar fyrir komandi borgarstjórnarkosningar. Pawel var í öðru sæti á lista flokksins fyrir síðustu kosningar.

Geir vill þriðja sætið hjá Viðreisn í borginni
Geir Finnsson varaborgarfulltrúi hefur ákveðið að bjóða sig fram í þriðja sæti í prófkjöri Viðreisnar í Reykjavík vegna komandi borgarstjórnarkosninga.

Er ímyndin ímyndun?
Í Garðabæ hefur um langt skeið verið staðið undir afar metnaðarfullu loforði fyrir barnafjölskyldur, um að öll börn skuli hafa pláss á leikskólum við 12 mánaða aldur. Þjónusta við börn hefur löngum verið einkenni bæjarins og hingað hafa barnafjölskyldur flutt til að fá góða þjónustu.