
Píratar

Píratar og prinsipp í pólitík
Þann 8. nóvember 2017 var allt galopið varðandi myndun ríkisstjórnar, að sögn fráfarandi forsætisráðherra, Katrínar Jakobsdóttur. Þetta var eftir að Framsóknarflokkurinn sleit ríkisstjórnarviðræðum VG, Samfylkingarinnar, Pírata og Framsóknar.

Framsókn geti ekki lengur falið sig á bak við „stóra bróður“
Formaður þingflokks Pírata fagnar því að losna við Sjálfstæðisflokkinn úr fjármálaráðuneytinu með uppstokkun á ríkisstjórninni. Nú geti Framsóknarflokkurinn hins vegar ekki lengur falið sig á bak við að „stóri bróðir“ komi í veg fyrir að hann uppfylli kosningaloforð sín.

Hefðu lent í vandræðum án frestunar
Þórhildur Sunna Ævarsdóttir þingkona Pírata sagði það í raun eðlilegt að Birgir Ármannsson, forseti þingsins, hefði tekið öll mál af dagskrá og slitið fundi. Ríkisstjórnin sé ekki starfhæf og ekki við hæfi að ræða mál á þingi sem ekki sé hægt að leysa.

Segir mögulegt framboð Katrínar jafngilda vantraustsyfirlýsingu á ríkisstjórn
Þingmaður Pírata segir það jafngilda vantraustsyfirlýsingu á ríkisstjórnina ef forsætisráðherra ákveður að fara í forsetaframboð. Hún segir það sýna mikið dómgreindarleysi að íhuga framboð sem forsætisráðherra og að ríkisstjórnin sé búin að gera skrípaleik úr því að stjórna landinu.

Segir „leik“ Katrínar stærsta aprílgabb sem til er
Björn Leví Gunnarsson þingmaður Pírata fer hörðum orðum um vinnubrögð Katrínar Jakobsdóttur forsætisráðherra vegna mögulegs forsetaframboðs í Facebook færslu í dag.

Staðan í stjórnmálum vorið 2024
Ég heyri reglulega alls konar greiningar á stjórnmálunum og oftar en ekki þá er ekki öll sagan sögð. Yfirleitt er það annað hvort af því að viðkomandi þekkir ekki öll sjónarmið eða gögn mála eða er einfaldlega bara að flytja ákveðinn pólitískan boðskap.

Öld húsnæðis
Að eiga þak yfir höfuðið á Íslandi er bara ansi erfitt. Að leigja þak yfir höfuðið á Íslandi er hins vegar nær því að vera dystópísk martröð, að minnsta kosti í samanburði við samanburðarlönd.

Kópavogsbær ætlar ekki að standa við skuldbindingar sínar í húsnæðismálum
Fulltrúar Framsóknar og Sjálfstæðisflokksins í Kópavogi samþykktu í gær að úthluta lóðum undir 184 íbúðir í Vatnsendahvarfi, allar lóðirnar verða boðnar út og afhentar hæstbjóðanda. Þetta er fyrsta stóra lóðaúthlutunin í Kópavogi síðan árið 2015. Engar lóðir eru skilyrtar fyrir húsnæði á viðráðanlegu verði þrátt fyrir skuldbindingar bæjarins þess efnis.

Litlar breytingar á fylgi flokkanna
Litlar breytingar urðu á fylgi stjórnmálaflokkanna fyrri hluta marsmánaðar ef marka má nýja könnun Maskínu.

70% færri kvartanir vegna vetrarþjónustu í kjölfar úrbóta
Ánægja með vetrarþjónustu Reykjavíkur hefur stóraukist með breyttu verklagi eftir heildarendurskoðun.

Kópavogur skorar á Alþingi að jafna atkvæðavægi milli kjördæma
Bæjarstjórn Kópavogs hefur skorað á Alþingi að jafna atkvæðarétt milli kjördæma. Sérstaklega halli á Suðvesturkjördæmi í þessu efni.

Hvað er að þessari pólitík?
Forsætisráðherra Íslands er spurð hvort hún sé að íhuga forsetaframboð og hún getur ekki svarað þeirri einföldu spurningu með einföldu svari. Hversu undarleg þarf pólitíkin að vera til þess að sitjandi forsætisráðherra getur ekki svarað bara með “nei, ég er ekki að fara að bjóða mig fram í embætti forseta Íslands”?

„Snöggskilnaðir“ hafi slegið í gegn
„Ást og lögfræði eru ekki alltaf besta blandan. Þannig hefur það lengi verið í hjúskaparlögum að þröskuldurinn til að ganga í hjónaband er frekar lágur, en til að losna úr því hefur þurft að leggja talsvert á sig.“

Snöggskilnaðir slá í gegn
Ást og lögfræði eru ekki alltaf besta blandan. Þannig hefur það lengi verið í hjúskaparlögum að þröskuldurinn til að ganga í hjónaband er frekar lágur, en til að losna úr því hefur þurft að leggja talsvert á sig.

Sjúklingasamtök fagna frumvarpi um Umboðsmann sjúklinga
Sjúklingasamtök og samtök heilbrigðisstarfsmanna fagna frumvarpi um Umboðsmann sjúklinga. Þau segja ekki vanþörf á því að sjúklingar á Íslandi geti leitað til utanaðkomandi aðila þegar þeir lenda á vegg í kerfinu og lýsa dæmum í umsögnum.

Reykjavík sparar tíma, fé og minnkar mengun með nútímavæðingu þjónustu
Við erum að nútímavæða þjónustu borgarinnar með stafrænni umbreytingu. Hér eru örfá dæmi um nýleg verkefni á umhverfis- og skipulagssviði Reykjavíkur en þetta er bara toppurinn á ísjakanum.

Við og þau
Má maður ekki tala um útlendinga án þess að vera kallaður rasisti?

Ekki alveg kominn tími á Vísisfrétt á fjórða deiti
Arndís Anna Kristínardóttir Gunnarsdóttir segist aldrei hafa pælt mikið í eigin kynhneigð og skilgreinir sig ekki sem hinsegin. Hún segir umræðuna í kringum handtöku sína á Kíkí hafa reynt mjög á fjölskyldu sína og dyraverðir á skemmtistaðnum orðið fyrir aðkasti í kjölfar málsins.

„Ég er bara ég og geri bara það sem mér sýnist“
Arndís Anna Kristínardóttir Gunnarsdóttir þingmaður segist aldrei hafa átt erfitt með breytingar. Hún segist þvert á móti jafnvel leitast eftir því að flækja lífið þegar það er orðið of þægilegt.

Öll velkomin í Pírata
Hver eru eiginlega stefnumál Pírata? Er hvítur Monster betri? Um hvað snúast Píratar? Hvers konar flokkur eruð þið, ég skil það ekki alveg?

Samfylkingin bætir við sig fylgi eftir ummæli Kristrúnar
Samfylkingin mælist með 27,2 prósent fylgi í nýrri könnun Maskínu og bætir flokkurinn við sig einu og hálfu prósentustigi á milli mánaða. Mikil umræða hefur farið fram um skoðanir Kristrúnar Frostadóttur, formanns flokksins, á útlendingamálum undanfarnar vikur.

Opin landamæri
Málefni flóttafólks á Íslandi eru í grunninn frekar einföld, þrátt fyrir tilraunir ýmissa afla til að þyrla upp ryki með ósannindum og upplýsingaóreiðu. Hér verður gerð ein tilraun af mörgum til þess að leiðrétta þrálátar staðreyndavillur í umræðunni.

Skýra hvað gervigreind megi nota: Hemmi Gunn í Áramótaskaupinu sýndi alþjóð möguleg áhrif
Þingmaður Pírata hefur lagt fram frumvarp þar sem kveðið er á um hvað gervigreind má nota og hvað ekki. Innkoma gervigreindarútgáfu af Hemma Gunn í áramótaskaupinu flýtti fyrir útgáfu frumvarpsins.

Þegar óttinn ræður för
Það er mannlegt að óttast hið óþekkta. Fordómar gegn hinu óþekkta eru líka algeng og skiljanleg viðbrögð við þessum ótta en við megum ekki leyfa þeim að stjórna okkur. Við megum ekki leyfa fordómunum að varða veg mikilvægra ákvarðana því þeir byggja eðli málsins samkvæmt ekki á raunveruleikanum og staðreyndum heldur þessum tiltekna ótta við hið óþekkta.

Áfallið kalli á heildarendurskoðun
Þingmaður Pírata lýsir yfir áhyggjum af því að stjórnvöld hyggist fjármagna uppkaup á húsnæði Grindvíkinga með lántöku en ekki sértækri skattheimtu. Þá veltir hún því upp hvort verið sé að stefna getu þjóðarinnar til að bregðast við náttúruhamförum í hættu með því að ganga á sjóði náttúruhamfaratrygginga. Fjármálaráðherra segir þörf á heildarendurskoðun málaflokksins.

Frumvarpið gangi gegn eigin markmiðum
Skilyrði fyrir alþjóðlegri vernd verða þrengd og móttökumiðstöð fyrir flóttamenn stofnuð. Þetta er hluti af stefnu ríkisstjórnar í útlendindingamálum sem miðar að því að fækka umsækjendum. Þingmaður Pírata segir tillögurnar ganga gegn meintum markmiðum, meðal annars um aukna inngildingu og skilvirka málsmeðferð.

Fyrirmæli um stjórnarskrárbrot
Kosningalög voru uppfærð síðasta vor, í þeim breytingum var mælt fyrir um nokkrar reglugerðir, drög að þeim reglugerðum liggja nú fyrir. Því miður eru á þeim alvarlegir gallar, allt að því að mæla fyrir um framkvæmd sem gengur gegn stjórnarskrá.

Lifir lýðræðið gervigreindina af?
Systkini sitja saman við morgunverðarborðið og skrolla á sitthvoru tækinu á samfélagsmiðlum. Algrím samfélagsmiðlana mata þau með svo ólíkum upplýsingum um heiminn að þau gætu allt eins búið í sitthvoru stjörnukerfinu en ekki á sama heimili.

Hvað á að gera við afa?
Undanfarið hefur Ásdís Kristjánsdóttir, bæjarstjóri Kópavogs, rekið kynningarherferð á tillögum fjárfesta um nýtt hverfi langt fyrir utan þéttbýlismörk með þeirri aðskilnaðarstefnu að þar eigi eingöngu að hýsa eldra fólk. Tillagan er kynnt undir því yfirskini að vera uppbygging á lífsgæðakjarna en um það bil allt við tillöguna er á skjön við þá hugmyndafræði.

Bjarni skipað 23 vinkonur í sendiherrastöður miðað við höfðatölu
Heitar umræður sköpuðust um útlendingamál og stöðu fólks á Gasa, sem komið er með dvalarleyfi á Íslandi, í Pallborðinu á Vísi í gær. Samstaða náðist um fátt, fyrir utan að stytta þarf málsmeðferðartíma hjá hælisleitendum.