Miðflokkurinn

Enn rís Miðflokkurinn
Samfylkingin mælist með tæplega 26 prósenta fylgi og er enn stærsti stjórnmálaflokkurinn samkvæmt nýrri könnun Maskínu. Fylgi Miðflokksins eykst þriðju mælinguna í röð og mælist flokkurinn nú með tólf prósenta fylgi.

Nomalísering daglegrar neyslu vímuefna er uppgjöf
Víða í heiminum og ekki síst hér á Íslandi hefur náðst góður árangur við að hjálpa fíknisjúklingum frá neyslu til edrúmennsku, ekki síst með tilkomu AA samtakana sem stofnuð voru árið 1935 í USA. Stofnfundur AA samtakana á Íslandi var 16. apríl 1954. Nær eingöngu var þá um að ræða einstaklinga sem áttu við áfengissýki að etja.

Frumvarp matvælaráðherra lélegt kosningaplagg!
Nú hefur umsagnafrestur um fiskveiðifrumvarp matvælaráðherra verið framlengdur. Ráðherra hlýtur að gera sér grein fyrir að frumvarpið í núverandi mynd verður aldrei samþykkt í núverandi ríkisstjórn.

Sigmundur Davíð vill að byggð verði ný Grindavík
Breið samstaða er að myndast um að stjórnvöld leysi þá Grindvíkinga sem þess óska undan húseignum þeirra. Fulltrúar allra stjórnarandstöðuflokka á Alþingi tóku undir þetta í Pallborðinu í dag. Formaður Miðflokksins vill að reist verði ný Grindavík.

Áhyggjuefni að umboðsmaður setji dýravelferð til hliðar í álitinu
Dýraverndarsamband Íslands (DÍS) segir það vonbrigði að umboðsmaður Alþingis gefi gömlum hvalveiðilögum meira vægi en nýjum dýraverndarlögum í nýju áliti sínu um hvalveiðar.

Vantrauststillaga lögð fram um leið og þing kemur saman
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Miðflokksins, segir flokkinn munu leggja fram vantrauststillögu á Svandísi Svavarsdóttur matvælaráðherra um leið og Alþingi kemur saman 22. janúar næstkomandi.

Bíða viðbragða ríkisstjórnarinnar
Stjórnarandstaðan er ekki samstíga um hvort leggja eigi fram vantrausttillögu á matvælaráðherra þegar Alþingi kemur saman á ný. Sumir eru á því á meðan aðrir telja þetta vandamál ríkisstjórnar.

Aldrei mælst minni í Þjóðarpúlsi Gallup
Sjálfstæðisflokkurinn mælist nú með átján prósenta fylgi í nýjum Þjóðarpúlsi Gallups og hefur flokkurinn aldrei mælst með minna fylgi í rúmlega þriggja áratuga sögu Þjóðarpúlsins. Samfylkingin mælist enn stærst með 28 prósenta fylgi og Miðflokkurinn mælist þriðji stærsti flokkurinn.

Ætlar upp á drottninguna á árinu
Formenn þingflokkanna fóru yfir áramótaheit sín fyrir árið 2024 í Kryddsíld á gamlársdag. Þar kenndi ýmissa grasa, loforð um sumarfrí, minna álag og nýjan hund. Áætlanir um að verða öflugri en nokkru sinni fyrr og loforð um minna mas. Utanríkisráðherra ætlar að hætta að grána, hitta vini og klífa drottningu íslenskra fjalla, Herðubreið.

Níu prósentum munar á Samfylkingu og Sjálfstæðisflokknum
Fylgi Samfylkingarinnar eykst lítillega á milli mánaða og mælist nú rúmlega 26 prósent samkvæmt nýrri könnun Maskínu. Fylgi Sjálfstæðisflokks dalar lítillega á milli mánaða og mælist nú rúm 17 prósent.

„Mjög svo“ ósáttur við ferðagjöld og vöruflutningagjöld milli landa
Forseti Alþingis segir Alþingi hafa náð að klára þau mál sem áttu að klárast á síðasta þingfundi fyrir jól. Þingmaður Miðflokksins segist mjög ósáttur við afgreiðslu ríkisstjórnarinnar á máli um ný gjöld á flugferðir og vöruflutninga milli landa.

Gagnrýna seinagang ríkisstjórnarinnar: „Hvaða endemis della er þetta?“
Þingmenn úr öllum flokkum stjórnarandstöðu stigu í pontu Alþingis síðdegis til að gagnrýna vinnubrögð ríkisstjórnarinnar en þingflokksformenn fengu skilaboð um kvöldmatarleytið í gær um að til stæði að taka fyrir 56 blaðsíðna frumvarp umhverfisráðherra í dag sem meðal annars inniheldur fjórtán ESB lagagerðir.

Spyr hvort atlot séra Friðriks hafi verið eins og atlot ættingja
Formaður Miðflokksins segist hafa miklar áhyggjur af framgöngu almennings við séra Friðrik Friðriksson heitinn, en til stendur að taka niður styttu af honum sem stendur við Lækjargötu. Hann veltir fyrir sér hvort atlot séra Friðriks, við unga drengi, hafi verið sama eðlis og atlot ættingja við börn sem þeim þykir vænt um.

Gunnar Bragi ráðgjafi Miðflokksins en ekki kominn aftur í pólitík
Gunnar Bragi Sveinsson, fyrrverandi þingmaður og ráðherra, hefur verið skráður sem starfsmaður þingflokks Miðflokksins.

Nú eru menn ekki að lesa salinn
Lögð hefur verið fram tillaga tveggja þingmanna Miðflokksins á Alþingi þess efnis að jafnlaunavottun verði afnumin. Það er ekki mjög hressandi að uppgötva hvað menn lesa salinn illa eftir að 100.000 konur og kvár hittust í miðbæ Reykjavíkur þann 24. október s.l. En það er svo sem ekki nýtt.

Vilja leggja jafnlaunavottunina niður
Miðflokkurinn, þeir Sigmundur Davíð Gunnlaugsson og Bergþór Ólason, hafa lagt fram þingsályktunartillögu þar sem gert er ráð fyrir því að jafnlaunavottunin verði lögð niður.

Bein útsending: Sigmundur Davíð ávarpar Miðflokksmenn
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Miðflokksins, mun flytja ræðu á landsþingi Miðflokksins klukkan 13 í dag.

Þingflokkurinn fagni afsögn eigin formanns sem hans besta verki
Ráðherrar Sjálfstæðisflokksins skiptust á ráðuneytum í dag. Þingmenn stjórnarandstöðunnar segja stjórninni haldið í öndunarvél og að hún minni á dauðadæmdan þjálfara sem fær stuðningsyfirlýsingu frá félagi sínu. Ólafur Harðarson telur að Bjarni sé nú búinn að koma böndum á villiketti flokksins.

Enn um lýðræði og jaðarsetningu þess
Á fallegum síðsumarsdegi eða 11 ágúst síðastliðinn sendi undirritaður grein hingað á visir.is, undir yfirskriftinni „lýðræðislegur ómöguleiki“. Grunnurinn að greininni er hugsuninn um pólitíska samsetningu ríkisstjórnarinnar frá vinstri yfir miðju til hægri = xV, xB og xD.

„Virðist nú bara vera einhvers konar sprell hjá þeim“
Formenn tveggja stjórnarandstöðuflokka á þingi segja það sem kynnt er í fjárlagafrumvarpi fjármálaráðherra ekki vera neitt nýtt. Formaður Miðflokksins segir fyrirætlanir ríkisstjórnarinnar um aðhald í ríkisrekstri hljóma eins og „sprell“.

Skilur ekkert í yfirlýsingum um aðhald í ríkisfjármálum
Formaður Miðflokksins gefur lítið fyrir yfirlýsingar fjármálaráðherra um aðhald í ríkisfjármálum þegar fjárlagafrumvarpið var kynnt. Þingmaður Viðreisnar segir lítið nýtt í frumvarpinu.

Mútumálið á Selfossi komið á borð héraðssaksóknara
Héraðssaksóknari hefur boðað Tómas Ellert Tómasson, bæjarfulltrúa í Árborg í skýrslutöku vegna frétta af mögulegu mútubroti Leós Árnasonar fjárfestis. Tómas Ellert greindi frá því að Leó hafi boðið honum fjáhagslega aðstoð í næstu kosningum gegn því að hann stuðlaði að því að sveitarfélagið félli frá kaupum á húsi Landsbankans á Selfossi.

Tilraunadýr Seðlabankans
Seðlabankastjóri hefur líkt 14 stýrivaxtahækkunum bankans við n.k. tilraun. Í hartnær tvö ár hef ég ásamt tugþúsundum annarra Íslendinga verið í óumbeðnu ólaunuðu aukastarfi sem tilraunadýr seðlabankastjórans og peningastefnunefndar.

Sakar eiganda fasteignafélags um að reyna að kaupa greiða
Fyrrverandi bæjarfulltrúi Miðflokksins í Árborg sakar forsvarsmann fasteignafélagsins Sigtúns um að hafa boðist til þess að greiða fyrir kosningabaráttu flokksins gegn því að hann legðist gegn því að sveitarfélagið keypti hús Landsbankans á Selfossi.

Stefna Miðflokksins í málefnum útlendinga er skýr
Það er merki um sterka málefnastöðu Miðflokksins þegar andstæðingar hans í stjórnmálum hoppa á vagna sem flokkurinn hefur dregið all lengi oftast einn. Er þakkarvert og styrkur að því að aðrir taki undir málefni sem barist hefur verið fyrir um árabil. En það er líka merki um hugmyndafátækt og kjarkleysi pólitískra andstæðinga þegar þeir stökkva til og þramma braut sem aðrir hafa rutt.

Hneykslaður á framferði aðgerðarsinna eftir útleigu til Samtakanna 22
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson þingmaður segist hneykslaður á framferði aðgerðasinna þegar í ljós kom að Miðflokkurinn hugðist leigja húsnæði sitt undir málþing Samtakanna 22, sem oft hafa verið sökuð um transfóbíu.

Sparnaðartillögur ríkisstjórnarinnar séu í raun gjaldahækkanir
Formaður Miðflokksins segir lítið að frétta í sautján milljarða sparnaðaraðgerðum ríkisstjórnarinnar sem sé nýbúin að auka útgjöld um 193 milljarða. Hann furðar sig á afstöðu fjármálaráðherra til verðbólgu og segir enga ríkisstjórn hafa aukið útgjöld jafn mikið.

Er Ísland þriðja heims ríki?
Þegar við hugsum um þriðja heims ríki dettur mönnum líklega Ísland alls ekki í hug. Líklega myndi fæstum láta sér detta til hugar að setja Ísland í þann hóp ríkja.

Hver leikstýrir Svf. Árborg?
Sveitarfélagið Árborg hefur vaxið mikið á undanförnum árum og stefnir í áframhaldandi vöxt vegna eftirspurnar frá nýjum íbúum og áforma landeigenda um uppbyggingu.

Úthugsað illvirki
Í síðustu viku urðum við Íslendingar, því miður, vitni að úthugsuðu og þaulskipulögðu illvirki. Í beinni útsendingu níddust yfirvöld á þremur konum sem höfðu enga möguleika á því að bera hönd fyrir höfuð sér.