

Þingflokksformaður Sjálfstæðisflokksins segir niðurstöðu MDE hvorki hrófla við skipan dómara við Landsrétt né niðurstöðu hans.
Tillaga Sjálfstæðisflokksins í borgarstjórn var í dag felld á fundi borgarstjórnar en borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins lögðu tillöguna fram, sem var í fjórum liðum, í þeirri von að liðka fyrir yfirstandandi kjarasamningum og kölluðu hana "kjarapakkann“.
Ingvar Smári frá SUS og Kristófer Alex frá Uppreisn ræddu stöðuna á íslenskum vinnumarkaði.
Sjálfstæðisflokkurinn er kominn með formennsku í helmingi fastanefnda þingsins eftir að stjórnarmeirihlutinn með stuðningi Miðflokks og þingmanns utan flokka kusu Jón Gunnarsson í embætti formanns umhverfis- og samgöngunefndar í stað Bergþórs Ólasonar á fundi í morgun.
Marinó G. Njálsson hefur reiknað út hvaða áhrif d'Hondt hefur á útkomu sveitarstjórnarkosninganna.
Fulltrúaráð Sjálfstæðisflokksins í Hafnarfirði hefur samþykkt framboðslistann sinn fyrir komandi bæjarstjórnarkosningar í Hafnarfirði.
Ný skoðanakönnun sýnir að mikill meirihluti er á því að dómsmálaráðherra eigi að segja af sér.
Sjálfstæðisflokkurinn fengi þriðjung atkvæða í kosningum til borgarstjórnar. Er næstum tvöfalt stærri en næstærsti flokkurinn. Núverandi oddviti segir fylgið á mikilli hreyfingu. Fjölmargir hafa ekki tekið afstöðu til flokka.
Segir þetta bestu leiðina til að efla aðkomu ungs fólks og kvenna í flokknum.
Forsætisráðherra telur að erfitt gæti orðið að vinna með flokki sem sé á vinstra kanti Vinstri grænna.
Rósa Guðbjartsdóttir leiðir lista Sjálfstæðisflokksins í Hafnarfirði.
Daníel Jakobsson leiðir lista Sjálfstæðisflokksins í Ísafjarðarbæ.
Halldór Halldórsson leiðir lista Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík.
Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir tjáir sig opinskátt um öll áföllin sem dundu á fjölskyldu hennar. "Það er ekkert réttlátara að aðrir fái þessi verkefni en við. Það er bara að reyna að takast á við þetta með einhverjum hætti.“
"Ég læt ekki áróðursbull og vitleysu stoppa mig. Það er eins gott að hætta þessu bara ef menn hrekjast undan hælbítum með lélegan málstað. Það kemur bara ekki til greina."
Enn ber á úrsögnum úr Sjálfstæðisflokknum í kjölfar prófkjörssigurs Árna Johnsens fyrir tæpum mánuði. Þetta er óþægindamál fyrir flokkinn, segir Gunnar Helgi Kristinsson prófessor í stjórmálafræði, sem þarf að klára sem fyrst. Í Pólitíkinni á Stöð 2 klukkan 19:40 í kvöld verður rætt um pólitíska ábyrgð, iðrun og fyrirgefningu.
Framboðslisti Sjálfstæðisflokksins í Suðvesturkjördæmi var ákveðinn á fundi í Valhöll á síðastliðinn laugardag. Miðstjórn flokksins á eftir að samþykkja hann en Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir sem sigraði prófkjör flokksins í kjördæminu leiðir listann.
Rúmlega þrjú þúsund manns tóku þátt í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Norðausturkjördæmi sem lauk klukkan 18. Tæplega 3.300 voru á kjörskrá en í utankjörfundaratkvæðagreiðslu greiddu tæplega 500 atkvæði og um tvö þúsund og fimm hundruð manns greiddu atkvæði í dag.
Sigríður Andersen, sem hafnaði í 10. sæti í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík, hefur birt uppgjör á kostnaði við prófkjör sitt. Sigríður telur að flokkar og framboð eig að hafa sjálfdæmi um hversu mikið af upplýsingunum þau birta.
Sjálfstæðismenn í Norðvesturkjördæmi samþykktu í dag framboðslista sinn fyrir komandi Alþingiskosningar á kjördæmisþingi í Borgarnesi. Flokkurinn fékk þrjá þingmenn kjörna í síðustu kosningum, ráðherrana Sturlu Böðvarsson og Einar K. Guðfinnsson, og þingmanninn Einar Odd Kristjánsson. Þeir skipa áfram þrjú efstu sæti listans. Í fjórða sæti er Herdís Þórðardóttir.
Geir H. Haarde, forsætisráðherra og formaður Sjálfstæðisflokksins segir að Árni Johnsen njóti fyllsta trausts forystu Sjálfstæðisflokksins. Árni hlaut annað sæti í prófkjöri flokksins í Suðurkjördæmi um helgina. Geir sagði í Ríkisútvarpinu í morgun, að Árni nyti trausts þrátt fyrir fyrri brot í trúnaðarstörfum sínum.
Prófkjör Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík fyrir komandi alþingiskosningar hófst á hádegi. Samfylkingarfólk í Norðvesturkjördæmi ætlar einnig að nota helgina til að velja hverjir leiða lista flokksins fyrir kosningarnar í vor.
Sigurður Kári Kristjánsson þingmaður Sjálfstæðisflokksins sækist eftir 2. sæti framboðslista flokksins í öðru hvoru Reykjavíkurkjördæmanna. Hann hefur því ákveðið að gefa kost á sér í 4. sætið í komandi prófkjöri flokksins.
Formaður Sjálfstæðisflokksins segir dómsmálaráðherra bera ábyrgð á uppreisn æru fyrrverandi þingmanns flokksins, Árna Johnsens. Formaðurinn blæs á alla gagnrýni á framkvæmd málsins og segir það eingöngu formsatriði hvort handhafar forsetavaldsins hafi skrifað undir eða forseti sjálfur.
Sjálfstæðisflokkurinn og samherjar hafa ákveðið að halda áfram meirihlutasamstarfi um sjtórn sveitarfélagsins Rangárþings eystra kjörtímabiliið 2006 til 2010. Unnur Brá Konráðsdóttir í Sjálfstæðisflokki verður bæjarstjóri, Ólafur Eggertsson, Samherjum verður oddviti og Elvar Eyvindsson, Sjálfstæðisflokki verður formaður Byggðaráðs. Á kjörtímabilinu verður meðal annars lögð áhersla á menntamál, málefni eldri borgara og umhverfismál.
Hjalti Þór Vignisson hefur verið ráðinn í starf bæjarstjóra í sveitafélaginu Hornafirði. Á fréttavefnum Horn.is kemur fram að það hafi verið samdóma álit nýs meirihluta framsóknarmanna og Samfylkingar að ráða Hjalta í starfið.
Sjálfstæðisflokkur og Frjálslyndir og óháðir mynduðu meirihluta í bæjarstjórn á fundi í gærkvöldi. Fréttavefurinn Skessuhorn punktur is greinir frá því að samkvæmt áreiðanlegum heimildum þá verði Gísli S. Einarsson fyrrverandi þingmaður Samfylkingarinnar næsti bæjarstjóri.
Fulltrúar Fjarðarlistans og Framsóknarflokksins í Fjarðabyggð hafa ákveðið að halda meirihlutasamstarfi sínu áfram, en nú stækkar sveitarfélagið um Austurbyggð, Mjóafjarðarhrepp og Fáskrúðsfjörð.
Sjálfstæðisflokkurinn og Frjálslyndi flokkurinn funda í dag um myndun nýs meirihluta á Akranesi. Á Akranesi féll meirihluti Framsóknarflokksins og Samfylkingarinnar. Sjálfstæðisflokkurinn fékk fjóra menn í kosningunum. Framsóknarflokkurinn, Frjálslyndi flokkurinn og Vinstri-grænir einn hver og Samfylkingin tvo menn.