
Sjálfstæðisflokkurinn

Sjálfstæðismenn funda í Valhöll
Þingflokkur Sjálfstæðisflokksins fundar í Valhöll núna klukkan 14:15.

Málverkið af Bjarna ekki í fundarherberginu fræga
Mike Pence fær ekki að sjá málverkið af Bjarna Benedikssyni í fundarherberginu fræga í Höfða, þegar hann skoðar í dag vettvang leiðtogafundarins árið 1986.

Verður málverkið af Bjarna uppi á veggnum í Höfða?
Það virðist sem það ráðist af því hvort það eru sjálfstæðismenn eða vinstri menn sem fari með völdin í borginni hvort málverkið er haft uppi á veggnum eða haft í lokaðri geymslu, hulið almenningi.

Spurning hvort Bjarni hrókerar langt eða stutt
Nýr ráðherra verður kynntur í vikunni.

Nýr ritstjóri í Eyjum hafður til marks um grimma valdabaráttu
Sindri Ólafsson er nýjasti ritstjóri Íslands og umdeildur áður en hann byrjar.

Harðlínudeild
Andstæðingar Sjálfstæðisflokksins hafa alveg sérstaklega ástæðu til að fagna. Þeir þurfa ekki lengur að beita sér af hörku gegn þessum stærsta flokki landsins. Sjálfstæðismenn hafa sjálfir tekið það verk að sér.

Hugsanlegt að komið verði til móts við andstæðinga Orkupakkans
Hugsanlega verður hægt að koma til móts við áhyggjur sem hafa sprottið upp vegna þriðja orkupakkans við stefnumótun í orkumálum, að sögn þingflokksformanns Sjálfstæðisflokksins. Sjálfstæðismenn sem krefjast atkvæðagreiðslu innan flokksins um málið hafa framlengt undirskriftasöfnun. Tilskyldu marki hefur ekki verið náð en undirskriftum verður þó líklega skilað fyrir atkvæðagreiðslu á þingi eftir viku.

Ekki orðinn úrkula vonar um að Sjálfstæðisflokkurinn hafni þriðja orkupakkanum
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Miðflokksins, horfir sérstaklega til þeirrar óánægju sem hefur gætt í baklandi Sjálfstæðisflokksins um þriðja orkupakkann þegar segist ekki vera búinn að missa alla von um að þingflokkur Sjálfstæðisflokksins muni hafna innleiðingu þriðja orkupakkans á svokölluðum "þingstubbi“ um mánaðamótin þegar orkupakkinn verður til umfjöllunar.

Hefur ekki áhyggjur af framtíð Sjálfstæðisflokksins
Bjarni segist ekki hafa áhyggjur af því að flokkurinn myndi fara illa út úr orkupakkamálinu þrátt fyrir óánægjuraddir.

Hyggst leggja fram tillögu um nýjan dómsmálaráðherra áður en þingið hefst að nýju
Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir mun ólíklega halda áfram að gegna stöðu dómsmálaráðherra á komandi þingári.

Óskar þjarmar óþyrmilega að þingmönnum Sjálfstæðisflokksins
Hitafundur í Rangárþingi. Bændur afar ósáttir við forystuna.

Miðstjórnar flokksins að meta undirskriftir
Engin auðkenning er í skráningu á undirskriftalistanum sem andstæðingar þriðja orkupakkans í Sjálfstæðisflokknum standa fyrir. Jón Kári Jónsson segir að það sé miðstjórnar flokksins að meta hvort söfnunin sé traust.

Þingflokkurinn geti ekki „hlaupið til“ eftir því hvernig „einhver skoðanakönnun innan Sjálfstæðisflokksins kemur út“
Sigríður Andersen segir að ekki sé ástæða til að efna til þjóðaratkvæðagreiðslu um þriðja orkupakkann.

Gunnar Bragi vonar að almennir flokksmenn Sjálfstæðisflokksins komi viti fyrir forystuna
Varaformaður Miðflokksins segir að vissulega hafi hann undirbúið innleiðingu þriðja orkupakkans í lög ráðherratíð sinni eins honum bar að gera. Hann hafi hins vegar ekki verið í ríkisstjórn þegar ákveðið var að leita ekki eftir undanþágu frá innleiðingunni. Hann vonar að flokksmenn stjórnarflokkanna komi viti fyrir forystuna í þessu máli.

Segir málflutning Miðflokksmanna um þriðja orkupakkann eins og atriði í hringleikahúsi
Bjarni Benediktsson formaður Sjálfstæðisflokksins líkti málflutningi forystu Miðflokksins um þriðja orkupakkann við atriði í hringleikahúsi á opnum fundi í Valhöll í dag. Hann hafnar því alfarið að innleiðing þriðja orkupakkans feli í sér afsal á orkuauðlindunum. Ekkert mál hafi fengið eins mikla umræðu á Alþingi og fá mál verið eins vel undirbúin. Forsvarsmaður undirskriftarsöfnunar um málið innan flokksins segir hann vera klofinn.

Sakar Sigmund Davíð um „blekkingu eða í besta falli útúrsnúning“
Sigmundur gagnrýndi Bjarna í Facebook-færslu í dag fyrir það sem fram kom á fundi Sjálfstæðismanna sem fram fór í Valhöll í dag.

Sigmundur Davíð skýtur á Bjarna
Sigmundu Davíð Gunnlaugsson, formaður Miðflokksins, gagnrýndi Bjarna Benediktsson, formann Sjálfstæðisflokksins fyrir það sem fram kom í umræðu um þriðja orkupakkann á fundi Sjálfstæðismanna sem fór fram í Valhöll í dag.

Telur þriðja orkupakkann brenna heitar á landsbyggðinni
Opinn fundur hófst í Valhöll í morgun þar sem Bjarni Benediktsson formaður Sjálfstæðisflokksins ræðir stjórnmálaviðhorfið og aðrir þingmenn sitja fyrir svörum.

Fullt út úr dyrum í Valhöll
Fullt er út úr dyrum í Valhöll en klukkan ellefu hófst þar fundur þar sem Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, ræðir stjórnmálaviðhorfið og situr hann ásamt öðrum þingmönnum fyrir svörum.

Hvorki né
Sjálfstæðisflokkurinn á undir högg að sækja í skoðanakönnunum. Flokkurinn sem lengi vel gat gengið að þriðja hverju atkvæði vísu, mælist nú með tæplega tuttugu prósenta fylgi.

Ríkisstjórnin hristir sig saman við Mývatn
Ríkisstjórnin hélt ríkisstjórnarfund í Mývatnssveit í dag og fundaði með sveitarstjórnum og hagsmunaðilum á svæðinu. Þá notaði hún tækifærið til að hrista sig saman fyrir komandi þingvetur

Sjálfstæðismenn safna undirskriftum gegn 3. orkupakkanum
Með framtakinu nýtir Jón Kári sér 6. grein skipulagsreglna flokksins sem kveður á um að miðstjórn Sjálfstæðisflokksins skuli boða til atkvæðagreiðslu ef að minnsta kosti fimm þúsund flokksbundnir félagar óska eftir því.

Fylgi Sjálfstæðisflokksins ekki mælst minna síðan í hruninu
Samkvæmt nýjasta Þjóðarpúlsi Gallup nýtur Sjálfstæðisflokkurinn 21,6 prósenta fylgis. Í nóvember 2008, eða í efnahagshruninu, var fylgi flokksins 20,6 prósent. Viðreisn bætir við sig tveimur prósentustigum á meðan fylgi annarra flokka helst svo til óbreytt.

Hannes hefur engar áhyggjur af útgáfunni: „Hann má skrifa það sem hann vill mín vegna“
Karl Th. Birgisson, ritstjóri Herðubreiðar, hefur áður gefið út bók um Engeyingaættina. Í haust gefur hann út bók um Hannes Hólmstein Gissurarson, háskólaprófessor.

„Portrett af áróðursmanni“: Karl gefur út bók um Hannes Hólmstein
Ritstjóri Herðubreiðar er höfundur bókar um Hannes Hólmstein.

Fullyrðir að Bjarni Benediktsson hætti ekki í haust
Friðjón segir ummæli fyrrum foringja Sjálfstæðisflokksins vonbrigði.

Fylgissveiflur áhugaverðar í ljósi þriðja orkupakkans
Sjálfstæðisflokkurinn hefur aldrei mælst með jafn lítið fylgi í skoðanakönnun MMR og í þeirri sem var gerð 17. júlí síðastliðinn.

Fylgi Sjálfstæðisflokksins dalar en Miðflokkurinn sækir í sig veðrið
Fylgi Sjálfstæðisflokksins mælist 19 prósent í nýrri könnun MMR sem birt er í dag. Fylgi flokksins minnkar um rúm þrjú prósentustig frá mælingu MMR í júní.

Tengdafaðirinn gefur lítið fyrir orðróm um brotthvarf Bjarna
Baldvin Jónsson blæs á sögusagnir þess efnis að tengdasonur hans, Bjarni Benediktsson, muni segja skilið við stjórnmálin í haust.

Alþingismaður segir Rammaáætlunina ónýta
Brynjar Níelsson þingmaður Sjálfstæðisflokksins og Jón Steindór Valdimarsson þingmaður Viðreisnar ræddu um skýrslu Landsnets um meintan orkuskort og þróun orkunýtingu hérlendis í útvarpsþættinum Sprengisandi í dag.