
Sjálfstæðisflokkurinn

Þingflokkurinn fagni afsögn eigin formanns sem hans besta verki
Ráðherrar Sjálfstæðisflokksins skiptust á ráðuneytum í dag. Þingmenn stjórnarandstöðunnar segja stjórninni haldið í öndunarvél og að hún minni á dauðadæmdan þjálfara sem fær stuðningsyfirlýsingu frá félagi sínu. Ólafur Harðarson telur að Bjarni sé nú búinn að koma böndum á villiketti flokksins.

Tekur bjartsýn en raunsæ við nýjum verkefnum
Þórdís Kolbrún R. Gylfadóttir segist spennt taka við nýjum verkefnum. Hún muni leggja sig allan fram í þau. Verkefnin séu þung, en augljós. Hún segir það í forgangi að halda áfram með sölu á hlut ríkisins í Íslandsbanka.

Sannfærður um að vikan hafi þétt raðir ríkisstjórnarinnar
Formenn ríkisstjórnarflokkanna þriggja ræddu framtíð ríkisstjórnarinnar og erindi hennar eftir að Bjarni tilkynnti um afsögn sína. Þau telja sig enn eiga erindi og vilja ljúka verkefnum sem sett voru fram í stjórnarsáttmála fyrir tveimur árum.

Vaktin: Lyklaskipti á mánudag
Bjarni Benediktsson verður utanríkisráðherra og Þórdís Kolbrún R. Gylfadóttir, verður fjármálaráðherra. Þetta kom fram á blaðamannafundi forsætisráðherra, fráfarandi fjármála- og efnahagsráðherra í Eddu, húsi íslenskunnar. Lyklaskipti verða á mánudag.

Bjarni og Þórdís muni skiptast á stólum
Bjarni Benediktsson, fráfarandi fjármála-og efnahagsráðherra verður utanríkisráðherra og mun Þórdís Kolbrún R. Gylfadóttir, núverandi utanríkisráðherra, taka við fjármálaráðuneytinu.

„Þau hanga saman á óttanum við kjósendur“
Jóhann Páll Jóhannsson þingmaður Samfylkingar segir óttann ráða för hjá ríkisstjórnarflokkunum, óttann við kosningar. Hann segir stjórnarkreppu ríkja í landinu.

Mikill meirihluti vill að Bjarni hætti í ríkisstjórn
Ríflega sjötíu prósent svarenda nýrrar könnunar Maskínu vilja að Bjarni Benediktsson hætti alfarið í ríkisstjórn í stað þess að taka við öðru ráðuneyti.

Boða til blaðamannafundar
Forsætisráðherra, fjármála- og efnahagsráðherra og innviðaráðherra boða til blaðamannafundar á morgun klukkan 11:00 í Eddu, húsi íslenskunnar.

Evrópuríki banna samkomur til stuðnings Palestínumönnum
Þrjú Evrópulönd hafa bannað fólki að koma saman til að sýna Palestínumönnum stuðning og innanríkisráðherra Breta segir palestínska fánann jafn mikið hatursmerki og hakakrossinn. Formaður utanríkismálanefndar gerir ráð fyrir að þarna sé um vel ígrundaðar öryggisákvarðanir að ræða þó það sé alvarlegt að afskipti séu höfð af tjáningarfrelsinu.

Þingmennirnir mættir til Þingvalla
Stjórnarþingmenn og ráðherrar ríkisstjórnarinnar eru mættir til Þingvalla. Þangað ferðuðust þeir í rútu á vinnufund. Forsætisráðherra segir fundinn hafa verið boðaðan fyrir löngu, ráðherraskipti verði ekki rædd þar.

Kemur vel til greina að Bjarni taki annan ráðherrastól
Sigurður Ingi Jóhannsson, innviðaráðherra og formaður Framsóknar, segir vel koma til greina að Bjarni Benediktsson taki að sér annan ráðherrastól. Hann segist virða ákvörðun Bjarna um að stíga til hliðar sem fjármálaráðherra.

Eiga ekki von á að ráðherramálin verði rædd
Þingflokksformaður Framsóknarflokksins segir fund stjórnarþingmanna sem fram fer á Þingvöllum í dag hafa verið skipulagðan fyrir nokkrum vikum síðan. Hún á ekki von á því að ráðherramálin verði rædd.

Óli Björn segir Covid-aðgerðir hafa gengið of langt
Óli Björn Kárason, fyrrum þingflokksformaður Sjálfstæðisflokksins, er gestur Frosta Logasonar í viðtalsþætti hans Spjallinu og telur að það verði að fara fram risauppgjör við aðgerðir yfirvalda á Covid-tímum.

Stjórnarþingmenn funda á Þingvöllum í dag
Þingflokkar stjórnarflokkanna ætla að funda sameiginlega á Þingvöllum í dag. Þetta kemur fram í Morgunblaðinu í morgun. Áformaður er ríkisráðsfundur á Bessastöðum á morgun þar sem Bjarni Benediktsson mun hverfa úr embætti fjármálaráðherra.

Bjarni segir hrókeringar lítið ræddar: „Með stærri atburðum í mínu lífi“
Bjarni Benediktsson, fráfarandi fjármálaráðherra og formaður Sjálfstæðisflokksins, segir að forsvarsmenn ríkisstjórnarflokkanna noti tilefnið nú til að ræða stöðuna á kjörtímabilinu og hvað sé framundan í samstarfinu. Lítið hafi verið rætt um ráðuneytaskipan. Hann segir atburði síðustu daga með þeim stærri í sínu lífi.

„Hann á að vera hættur, af hverju er hann hérna?“
Samantekin ráð stjórnarandstöðunnar voru í óundirbúnum fyrirspurnartíma um að spyrja Bjarna Benediktsson sem fjármála- og efnahagsráðherra einskis í ljósi þess að hann hefur sagt af sér sem slíkur.

Funduðu um „verklag og áherslur“ í Ráðherrabústaðnum
Fulltrúar stjórnarflokkanna þriggja funduðu í Ráðherrabústaðnum í Tjarnargötu í morgun. Meðal fundargesta voru formenn flokkanna þriggja og þingflokksformaður Sjálftstæðisflokksins.

Segir að gera eigi kröfu um að Bjarni verði forsætisráðherra
Þingflokkur Sjálfstæðisflokksins ætti að gera þá kröfu að Bjarni Benediktsson verði forsætisráðherra, segir Sigríður Á. Andersen, fyrrverandi dómsmálaráðherra.

„Menn ætla að axla ábyrgð með því að gerast utanríkisráðherrar“
Þingmenn stjórnarandstöðu ræddu margir hverjir afsögn Bjarna Benediktssonar á þingi í dag. Formaður Viðreisnar segir óvissu ýta undir óstöðugleika og að það ríki ringulreið. Þingmenn gagnrýndu það að hann fari mögulega í annan ráðherrastól. Bjarni verður til svars í óundirbúnum fyrirspurnum á morgun.

Nærmynd af Benedikt Sveinssyni: Óvæntur örlagavaldur í pólitísku lífi sonarins
Bjarni Benediktsson tilkynnti um afsögn sína sem fjármála- og efnahagsráðherra í gær. Ástæðan varðaði kaup föður hans á hlut í Íslandsbanka, en það er ekki í fyrsta skipti sem faðir Bjarna, Benedikt Sveinsson, hefur áhrif á pólitískan feril sonarins. Benedikt hefur verið áberandi í íslensku samfélagi í áratugi. Hann hefur meðal annars verið kallaður „Stjórnarformaður Íslands“

Telur að forsætisráðherra hefði átt að óska eftir afsögn fyrir löngu
Fyrrverandi fjármálaráðherra telur að forsætisráðherra hefði átt að fara fram á að Bjarni Benediktsson segði af sér ráðherraembætti um leið og kom í ljós að faðir hans var á meðal kaupenda að hlut ríkisins í Íslandsbanka. Samkvæmt lögum hefði fjármálaráðherra átt að vita af aðild föður síns þegar hann samþykkti að selja hlutinn í bankanum. Þá myndi það hvergi gerast í nágrannalöndum að ráðherra sem segir af sér embætti sé samstundis orðaður við annan ráðherrastól.

„Ég útiloka það alls ekki að ég verði áfram í ríkisstjórninni“
„Ég tók eina ákvörðun í dag og ég á eftir að taka ýmsar aðrar ákvarðanir en ég útiloka það alls ekki að ég verði áfram í ríkisstjórninni,“ sagði Bjarni Benediktsson, fráfarandi fjármála- og efnahagsráðherra, í samtali við Morgunblaðið í gær.

Pólitísk plott fari sjaldnast eftir handritinu
Stjórnmálafræðiprófessor segir vel geta verið að afsögn Bjarna Benediktssonar fjármálaráðherra sé liður í pólitískri refskák. Pólitísk plott séu þó þess eðlis að þau fari sjaldnast alveg eftir handritinu. Óvenjulegt sé að Bjarni hafi aðeins greint frá afsögn sinni, en ekki hver tekur við embættinu eða hvað hann ætli sér að gera í framhaldinu.

„Höfum hingað til þurft að hafa virkilega fyrir því að losna við þá“
Stjórnarandstöðuþingmenn sem fréttastofa hefur rætt við eru sammála um að ákvörðun Bjarna Benediktssonar um að segja af sér embætti fjármálaráðherra hafi verið rétt. Formaður Flokks fólksins undrast hve auðveldlega hann fór frá, en formaður Samfylkingarinnar bendir á langan aðdraganda að ákvörðun Bjarna.

Umdeilt hvort Bjarni sé að axla ábyrgð
Hvort að Bjarni Benediktsson sé að axla pólitíska ábyrgð með afsögn sinni var á meðal þess sem var rætt í Pallborðinu á Vísi í dag. Fyrrverandi formaður Sjálfstæðisflokksins segir það eiga eftir að koma í ljós. Þingflokksformaður Sjálfstæðisflokksins segir Bjarna hafa axlað ábyrgð. Stjórnmálafræðingur segir það matsatriði.

Katrín segir hugsanlegt að Bjarni taki annað ráðuneyti
Forsætisráðherra segir ákvörðun Bjarna Benediktssonar um að segja af sér ráðherraembætti vera virðingarverða og rétta. Ákvörðunin hafi þó alfarið komið frá honum sjálfum. Stjórnin standi traustum fótum og ekki sé von á kosningum. Hugsanlega komi Bjarni til með að taka við öðru ráðherraembætti.

Bjarni bæði hæfur og vanhæfur í senn
Hildur Sverrisdóttir, þingflokksformaður Sjálfstæðisflokksins, og Björn Leví Gunnarsson, þingmaður Pírata, tókust á um túlkun sína á áliti umboðsmanns Alþingis sem hefur orðið til þess að Bjarni Benediktsson hefur sagt af sér sem fjármála- og efnahagsráðherra.

„Fróðlegt að sjá hver viðbrögð matvælaráðherra verða“
Ákvörðun Bjarna Benediktssonar, formanns Sjálfstæðisflokksins, um að segja af sér sem fjármálaráðherra vekur gríðarlega athygli. Álitsgjafar á samfélagsmiðlum eru ýmist hvumsa yfir ákvörðuninni, fagna henni eða bæði. Vilhjálmur Birgisson, formaður Verkalýðsfélags Akraness, segir ákvörðunina marka ný viðmið um ábyrgð ráðherra.

Bein útsending: Rýnt í afsögn Bjarna og framhaldið
Þorsteinn Pálsson, fyrrverandi formaður Sjálfstæðisflokksins og ráðherra, Hildur Sverrisdóttir, formaður þingflokks Sjálfstæðisflokksins, og Ólafur G. Harðarsson stjórnmálafræðingur verða gestir Pallborðsins klukkan 15 í dag.

Bjarni sá ellefti til að segja af sér
Bjarni Benediktsson er ellefti ráðherrann til að segja af sér embætti. Fjórir ráðherrar hafa sagt af sér embætti undanfarinn áratug en sjö árin áttatíu og þrjú þar á undan frá því Hannes Hafstein varð fyrstur ráðherra árið 1904.