Reykhólahreppur

Bændur gegn brú yfir Þorskafjörð og segja að bújörðum yrði fórnað
Stórbrú þvert yfir mynni Þorskafjarðar í stað vegar um Teigsskóg mætir harðri andstöðu eigenda fjögurra bújarða í Reykhólasveit. Þeir segja sorglegt að orðið sáttaleið sé notað um þessa tillögu.

Vilja reisa 35 vindmyllur á fjöllum norðan Gilsfjarðar
Vindorkuver með 35 vindmyllum gæti risið á fjöllum ofan Garpsdals í Gilsfirði, miðað við áform sem orkufyrirtæki í eigu Dana og Íra hefur kynnt heimamönnum.

Vestfirðingar sagðir mosavaxnir á biðinni eftir vegi um Teigsskóg
Samgönguráðherra vonast til að vegarlagning um Teigsskóg geti hafist sumarið 2019, eftir rúmt ár, og að verklok verði haustið 2022.

Nýkjörin sveitarstjórn opin fyrir að skoða aðra leið en um Teigsskóg
Nýkjörin sveitarstjórn Reykhólahrepps er öll opin fyrir því að endurskoða ákvörðun um veglínu um Teigsskóg, komi fram raunhæfari lausn í úttekt norskrar verkfræðistofu.

Íbúar Flateyjar vilja undir Stykkishólm
Allir íbúar Flateyjar á Breiðafirði hafa óskað eftir því að stjórnsýsla eyjunnar verði færð frá Vestfjörðum yfir á Snæfellsnes.

Sveitarstjórn auglýsir eftir kaupmanni
Sveitarstjórn Reykhólahrepps hefur samþykkt að auglýsa eftir aðila sem er tilbúinn að taka að sér að reka matvöruverslun á Reykhólum.

Íbúar Reykhóla vakna á nýju ári við enga verslun
Einu matvöruversluninni á Reykhólum, Hólakaupum, var lokað á gamlársdag. Eigendurnir, þau Eyvindur Magnússon og Ólafía Sigurvinsdóttir, ákváðu að hætta rekstrinum vegna mikillar bindingar og vinnuálags fyrir fjölskylduna.

Eyðijörð á Vestfjörðum orðin að frístundabýli
Afskekkt eyðibýli, sem áður dröbbuðust niður sökum þess að enginn vildi búa þar, hafa hvert af öðru lifnað á ný.

Brunabíll Kvígindisfjarðar sprautar 50 metra bunu
Slökkvilið Kvígindisfjarðar hefur yfir að ráða öflugum slökkvibíl, með sprautubyssu sem dregur tugi metra.

Fyrstu sjónvarpsmyndir sýndar úr Kvígindisfirði
Samt rísa þar nú fleiri íbúðarhús en annarsstaðar á Vestfjörðum.

Svona gerist þegar lofað er lopapeysu á hvert barn
Oddvitinn í Reykhólahreppi, sem lofaði lopapeysu á hvert barn sem fæddist í sveitinni, hefur enn þurft að herða prjónaskapinn.

Barnasprengja á Reykhólum eftir að oddvitinn lofaði peysu
Óvenju mörg börn hafa fæðst í Reykhólasveit að undanförnu og er hlutfall barna orðið það hæsta á Vestfjörðum.