Vilja reisa 35 vindmyllur á fjöllum norðan Gilsfjarðar Kristján Már Unnarsson skrifar 1. október 2018 21:00 Hafliði Ólafsson, bóndi frá Garpsdal. Stöð 2/Egill Aðalsteinsson.
Vindorkuver með 35 vindmyllum gæti risið á fjöllum ofan Garpsdals í Gilsfirði, miðað við áform sem orkufyrirtæki í eigu Dana og Íra hefur kynnt heimamönnum. Fjárfestingin er talin nema yfir sextán milljörðum króna. Þetta kom fram í fréttum Stöðvar 2. Gilsfjörður er sá fjörður sem næstum klýfur Vestfjarðakjálkann frá öðrum landshlutum. Garpsdalur opnast fyrir miðjum firðinum að norðanverðu og þar vilja menn núna virkja vindinn. En fyrst þurfti að spyrja Garpsdalshjónin Hafliða Ólafsson og Ingibjörgu Kristjánsdóttur. „Það komu hingað útlendingar í vetur og höfðu áhuga fyrir þessu,“ segir Hafliði bóndi frá Garpsdal.Séð norður yfir Gilsfjörð inn í Garpsdal.Stöð 2/Egill Aðalsteinsson.Þeir voru frá danska vindmylluframleiðandum Vestas og írska orkufyrirtækinu EM Power, sem nú hafa stofnað félagið EM Orku um verkefnið. „Mér líst ágætlega á það, ef það verður einhverntímann að veruleika,“ segir Hafliði og segir þetta mjög stórar hugmyndir; að reisa 115 megavatta vindmylluorkuver á fjöllunum inn af Garpsdal fyrir 16,2 milljarða króna. Það yrði stærsta fjárfesting í sögu Reykhólahrepps. „Þetta er ótrúlegt. 35 vindmyllur, - ég held að hvert stykki sé 150 metrar á hæð. Mér skilst að orkan frá þessu sé á við tvær Hvalárvirkjanir, þannig að ég held að það hljóti allir að fagna þessu,“ segir Ingimar Ingimarsson, oddviti Reykhólahrepps.Ingimar Ingimarsson er oddviti Reykhólahrepps.Stöð 2/Egill Aðalsteinsson.Ríkarður Örn Ragnarsson, verkefnastjóri EM Orku, segir vindmælingar hafnar sem og umhverfismat. Staðsetningin þýði að mannvirkin verði úr augsýn flestra íbúa. Ingimar oddviti kveðst þó sannfærður um að einhverjum muni þykja þetta ljótt. „En þetta er 25 ára líftími sem vindmyllur hafa. Og eftir 25 ár þarftu að taka þetta niður og þá sést ekkert í náttúrunni eftir þetta. Þannig að: Prufa þetta í 25 ár,“ segir oddvitinn. Ef öll leyfi fást er stefnt að því að framkvæmdir hefjist eftir þrjú ár og raforkuframleiðsla árið 2022. „Að minnsta kosti hefur verið talað um 4-6 störf. Þá erum við að tala um tæknimenntuð störf sem við myndum nú fagna hér í sveitinni,“ segir Ingimar. Vindmyllurnar er áformaðar á fjöllunum inn af Garpsdal fyrir miðri mynd.Stöð 2/Egill Aðalsteinsson.„Okkur vantar eitthvað fleira en búskapinn hérna. Það er allt til bóta,“ segir Hafliði í Garpsdal. Svo kæmu af þessu umtalsverð fasteignagjöld, segir oddviti Reykhólahrepps. „Ég myndi segja að þetta hefði mjög góð áhrif fyrir þetta sveitarfélag. Og fyrir utan náttúrulega rafmagnsöryggið,“ segir Ingimar. Hér má sjá frétt Stöðvar 2:
Reykhólahreppur Tengdar fréttir Langt í að raforkuframleiðsla með vindorku geti hafist í Dölum Húsfyllir var á íbúafundi í Dalabyggð þar sem sveitarstjórn kynnti áform um uppbyggingu vindorkuvers, níu kílómetra utan við Búðardal. 1. febrúar 2018 14:30 Vill gullna söguhringinn um sveitir Sturlunga til að styrkja Dalabyggð Svavar Gestsson, fyrrverandi ráðherra, vill treysta byggð í Dalasýslu með því að búa til gullna söguhringinn. Byrjað verður á minningarreit um Sturlu Þórðarson. 6. nóvember 2017 21:54 Ólafsdalur verður einn fjölsóttasti staðurinn við Breiðafjörð Endurreisn fyrsta búnaðarskóla landsins er að hefjast í Ólafsdal við Gilsfjörð. Spáð er að þar verði einn fjölsóttasti ferðamannastaður við Breiðafjörð þegar uppbyggingu lýkur. 4. nóvember 2017 14:27 Vilja vindorkugarð á sauðfjárbú í Dalabyggð Eigendur Storm Orku vilja reisa allt að 40 vindmyllur á Hróðnýjarstöðum skammt frá Búðardal. Þeir undirrituðu í september viljayfirlýsingu ásamt Dalabyggð. Keyptu jörðina í ágúst og ætla að halda íbúafund í næsta mánuði. 18. október 2017 06:00 Húsfyllir í Dalabúð vegna íbúafundar um vindorkuver Fjárfestar skoða nú kosti þess að byggja upp vindorkuvirkjanir í Dölum. Um milljarða fjárfestingu er að ræða en uppbyggingin hefur lítið sem ekkert verið kynnt íbúum. 31. janúar 2018 20:45 Mest lesið Bein útsending: Marco Rubio heimsækir Ísland Innlent Skora á borgina að bæta ekki við beygjuvasa Innlent Rubio: Ísland í miðjunni Innlent Verði að gera fyrirvara við rannsókn um karlmennsku Innlent Bjarni segir ekkert hæft í að verið sé að úthýsa Aþenu Innlent Umdeildur metsöluhöfundur látinn Erlent Greinir skýran vilja til meira samstarfs Innlent Ólíklegt að pestin berist til Íslands Innlent Þurfa að hætta við mótorakaup fáist ekki fé frá ríkinu Innlent Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Innlent Fleiri fréttir Segja boltann hjá stjórnvöldum Ólíklegt að pestin berist til Íslands Óþolinmæði að fylla Læknavaktina Ekkert leyndarmál að herinn sé önnum kafinn Greinir skýran vilja til meira samstarfs Leggja fram þingmál um að draga umsóknina til baka Engar leyniskyttur gættu Rubio Hafnar sælgætis- og fæðingarorlofsmálum sem rökum fyrir bókun 35 Bíði og bíði eftir Bjarna Leita manna sem grunaðir eru um hópárás Hafi þegar tryggt fjármögnun varamótoranna Guðmundur Fertram og Fanney opna nýsköpunarsetur Segir gjald fyrir túlkun eftir þrjú ár sanngjarna kröfu „Viljum ekki að það sé verið að leika sér að fullveldi Íslands“ Ný skýrsla Umhverfis- og orkustofnunar: Hverfandi líkur á að olía finnist á Drekasvæðinu Rubio farinn af landi brott Verði að gera fyrirvara við rannsókn um karlmennsku Leit að eftirmanni Harðar hefði hafist í haust eða vetur Bjarni segir ekkert hæft í að verið sé að úthýsa Aþenu Samtalið efnismeira en áður þó talsverð gjá sé á milli Einn í framboði til varaformanns enn sem komið er Ögurstund í kjaramálum og Marco Rubio í heimsókn Skora á borgina að bæta ekki við beygjuvasa Rubio: Ísland í miðjunni Þurfa að hætta við mótorakaup fáist ekki fé frá ríkinu Bein útsending: Marco Rubio heimsækir Ísland Tvær líkamsárásir á borði lögreglu Brotist inn í fjóra bíla í þremur hverfum Afgerandi niðurstaða um að slíta kjarasamningum Auglýsingatekjur Rúv undir fyrirhuguðu þaki þrjú ár í röð Sjá meira
Langt í að raforkuframleiðsla með vindorku geti hafist í Dölum Húsfyllir var á íbúafundi í Dalabyggð þar sem sveitarstjórn kynnti áform um uppbyggingu vindorkuvers, níu kílómetra utan við Búðardal. 1. febrúar 2018 14:30
Vill gullna söguhringinn um sveitir Sturlunga til að styrkja Dalabyggð Svavar Gestsson, fyrrverandi ráðherra, vill treysta byggð í Dalasýslu með því að búa til gullna söguhringinn. Byrjað verður á minningarreit um Sturlu Þórðarson. 6. nóvember 2017 21:54
Ólafsdalur verður einn fjölsóttasti staðurinn við Breiðafjörð Endurreisn fyrsta búnaðarskóla landsins er að hefjast í Ólafsdal við Gilsfjörð. Spáð er að þar verði einn fjölsóttasti ferðamannastaður við Breiðafjörð þegar uppbyggingu lýkur. 4. nóvember 2017 14:27
Vilja vindorkugarð á sauðfjárbú í Dalabyggð Eigendur Storm Orku vilja reisa allt að 40 vindmyllur á Hróðnýjarstöðum skammt frá Búðardal. Þeir undirrituðu í september viljayfirlýsingu ásamt Dalabyggð. Keyptu jörðina í ágúst og ætla að halda íbúafund í næsta mánuði. 18. október 2017 06:00
Húsfyllir í Dalabúð vegna íbúafundar um vindorkuver Fjárfestar skoða nú kosti þess að byggja upp vindorkuvirkjanir í Dölum. Um milljarða fjárfestingu er að ræða en uppbyggingin hefur lítið sem ekkert verið kynnt íbúum. 31. janúar 2018 20:45