Akureyri

Engin merki um byrlun
Engin merki voru um deyfilyf eða fíkniefni í sýnum sem tekin voru vegna gruns um að þremur einstaklingum hafi verið byrlað á skemmtistöðum eða heimahúsum á Akureyri í lok október.

Þaulskipulagðir merkjavöruþjófar dæmdir
Tveir rúmenskir karlmenn hafa verið dæmdir í nokkurra mánaða fangelsi fyrir að hafa látið greipar sópa í ýmsum verslunum víðs vegar um landið á skipulagðan hátt. Þeir virðast hafa verið sólgnir í úlpur og aðra merkjavöru.

Þrír sakfelldir fyrir að ræna áfengi og appelsínum úr sumarbústað
Þrír karlmenn hafa verið dæmdir í þrjátíu daga skilorðsbundið fangelsi fyrir að hafa brotist inn í sumarbústað á Akureyri og stolið appelsínum og áfengi.

Þrenn jarðgöng uppfylla ekki lágmarksöryggiskröfur EES
Eftirlitsstofnun EFTA, ESA, telur að þrjú af þeim fjórum jarðgöngum á Íslandi sem tilheyra hinu Samevrópska veganeti uppfylli ekki lágmarksöryggiskröfur EES fyrir jarðgöng.

Stefnt að því ný kirkja rísi í Grímsey næsta sumar
Undirbúningur við byggingu nýrrar kirkju í Grímsey er vel á veg kominn og er stefnt að því að ný kirkja rísi þar næsta sumar. Á nýja kirkjan að hafa augljósa skírskotun til kirkjunnar sem brann í september en verði aðeins stærri en fyrri vegna nútíma krafna.

Sævar semur fyrir Skugga-Svein og vinnur plötu með Sony
Tónskáldið og píanistinn Sævar Jóhannsson semur og útsetur tónlistina fyrir Skugga-Svein sem Leikfélag Akureyrar frumsýnir í janúar 2022. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Leikfélaginu.

Allt að verða klárt í Hlíðarfjalli
Stefnt er að því að opna skíðasvæðið í Hlíðarfjalli við Akureyri á föstudaginn. Vonir standa til að jafnvel verði hægt að vígja nýja stólalyftu í fjallinu í þessum mánuði.

Framkvæmdastjóraskipti og skipulagsbreytingar hjá Slippnum
Páll Kristjánsson hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri Slippsins á Akureyri og tekur við starfinu um áramótin. Páll hefur stýrt framleiðslusviði félagsins og tekur við starfinu af Eiríki S. Jóhannssyni sem hefur verið framkvæmdastjóri í sex og hálft ár.

Jónína kjörin varaformaður kennara
Jónína Hauksdóttir, skólastjóri leikskólans Naustatjarnar á Akureyri, hefur verið kjörin varaformaður Kennarasambands Íslands. Hún tekur við embættinu af Önnu Maríu Gunnarsdóttur á þingi Kennarasambandsins sem fram fer í apríl á næsta ári.

„Þetta verður örugglega algjört ævintýri“
Það ræðst í kvöld hvort að Akureyringurinn Birkir Blær Óðinsson fari með sigur af hólmi í sænsku Idol-söngkeppninni.

Birkir Blær svaf lítið í nótt vegna spennu
Birkir Blær Óðinsson sem keppir í úrslitum sænska Idolsins í kvöld segist lítið hafa sofið í nótt og er spenntur fyrir kvöldinu. Mikið er í húfi þar sem sigurvegarinn fær plötusamning við Universal-útgáfuna.

Alvarlegur grunur um geislavirkni reyndist sem betur fer rangur
Umsjónarmaður fasteigna við Háskólann á Akureyri segist hafa verið verulega létt þegar í ljós kom að hann hafði ekki komist í snertingu við geislavirkt efni. Torkennilegur hlutur mun þó reynast Geislavörnum ríkisins vel.

Mun stýra starfshópi um barnaheimilið á Hjalteyri
Jón Gunnarsson innanríkisráðherra hefur skipað þriggja manna starfshóp undir forystu Vigdísar Häsler Sveinsdóttur lögfræðings til að afla nauðsynlegra gagna og upplýsinga um starfsemi heimilisins á Hjalteyri.

Mikið tjón í vatnsleka í Ráðhúsi Akureyrar
Allt tiltækt lið Slökkviliðs Akureyrar var kallað út í morgun vegna vatnsleka í ráðhúsi bæjarins. Samkvæmt heimildum fréttastofu sprakk lögn í eldhúsi á fjórðu og efstu hæð hússins.

Skipar starfshóp til að rannsaka Hjalteyrarmálið
Jón Gunnarsson dómsmálaráðherra ætlar að skipa starfshóp til að fara yfir málefni barnaheimilisins á Hjalteyri strax eftir helgi.

Akureyrarbær megi ekki við því að baka sér frekari óvild kattavina
Ragnheiður Gunnarsdóttir, eigandi Kisukots á Akureyri, segir farir sínar ekki sléttar eftir samskipti við heilbrigðiseftirlit Norðurlands og stjórnsýslu Akureyrarbæjar.

Tíu haft samband vegna Hjalteyrarhjónanna: Gættu að minnsta kosti 170 barna í Garðabæ
Hjónin sem sökuð hafa verið um alvarlegt ofbeldi gagnvart börnum á Hjalteyri á síðustu öld að minnsta kosti á annað hundrað barna í Garðabæ á sautján ára tímabili á þessari öld. Tíu einstaklingar hafa þegar óskað eftir upplýsingum eða samtölum vegna starfa hjónanna í bænum.

Fannst heil á húfi eftir heila nótt úti í kuldanum
Umfangsmikil leit að konu á áttræðisaldri sem farið hafði að heiman frá sér á Akureyri í nótt bar árangur. Konan, sem er Alzheimer-sjúklingur, hafði þá verið úti í kuldanum í um sjö tíma.

Freyja sinnir nú sínu fyrsta verkefni
Nýjasta varðskip Landhelgisgæslunnar, Freyja, sinnir nú sínu fyrsta verkefni en hún er með flutningaskipið Franciscu í togi áleiðis til Akureyrar.

Bein útsending: Átta teymi kynna nýsköpunarverkefni sín í Vaxtarrými
Lokadagur Vaxtarrýmis fer fram í dag þar sem átta frumkvöðlar og fyrirtæki munu kynna nýsköpunarverkefni sín. Teymin tóku þátt í átta vikna viðskiptahraðli sem er sá fyrsti sem haldinn hefur verið á Norðurlandi.

Þórsarar bíða enn eftir íþróttahúsinu sem þeir áttu að fá 1995
Haustið 1995 töldu Þórsarar á Akureyri sig vera að fá íþróttahús á félagssvæði sínu við Hamar. Þeir bíða hins vegar enn eftir því.

Leggja til að fallið verði frá tillögu sem heimilar háhýsin á Oddeyrinni
Skipulagsráð Akureyrarbæjar hefur samþykkt að leggja til við bæjarstjórn að fallið verði frá auglýstri tillögu að breytingu á aðalskipulagi Oddeyrar, sem verið hefur í brennidepli undanfarin ár vegna hugmynda um byggingu háhýsa á Gránufélagsreitnum svokallaða.

Skýrist væntanlega í dag hvernig stjórnvöld hyggjast rannsaka Hjalteyrarmálið
Forsætisráðuneytið og dómsmálaráðuneytið vinna saman að því með hvaða hætti stjórnvöld geta komið að rannsókn á starfsemi vist-og meðferðarheimila þar sem grunur er um að börn hafi orðið fyrir ofbeldi. Það skýrist væntanlega í dag hver niðurstaðan verður.

Segir að bæjarfulltrúar á Akureyri hafi beðið Þór um að hætta með handbolta
Bæjarfulltrúar á Akureyri hafa beðið hæstráðendur hjá Þór að hætta með handbolta vegna aðstöðuleysis.

Hafi verið látin dúsa í viku í kaldri kolakompu og hýdd með belti
Kona sem var sem barn neydd til að dvelja á barnaheimilinu á Hjalteyri segir að hún hafi dögum saman og ítrekað verið lokuð inni, án matar og drykkjar, í kaldri kolakompu. Hún hafi verið misnotuð og beitt harkalegu líkamlegu ofbeldi.

Endurskipulagning á fjárhag Vaðlaheiðarganga dregst á langinn
Meira en einu og hálfu ári eftir að viðræður hófust um fjárhagslega endurskipulagningu Vaðlaheiðarganga er málið enn í vinnslu. Ríkissjóður hefur frestað innheimtuaðgerðum vegna gjaldfallinna lánssamninga fram yfir áramót.

Taka þurfi erfiðar ákvarðanir til að ná fram 370 milljóna hagræðingu
Reiknað er með að rekstrarniðurstaða Akureyrarbæjar fyrir næsta ár verði neikvæð um 672 milljónir. Stefnt er að því að hagræða í rekstri bæjarins um 370 milljónir króna. Bæjarstjórnin segir ljóst að til að ná fram þeirri hagræðingu þurfi að taka erfiðar ákvarðanir.

Telur rétt að endurvekja vistheimilisnefnd vegna ásakana um illa meðferð á börnum
Umsjónamaður sanngirnisbóta segir að nýjar ásakanir um illa meðferð barna á vistheimilum komi sífellt fram og því rétt að endurvekja störf vistheimilinefndar. Málin hafi ekki verið kláruð á sínum tíma. Hann hefur áránna rás fengið kvartanir um Hjalteyrarheimilið.

Vill láta rannsaka málefni Hjalteyrarheimilisins
Bæjarstjóri Akureyrar telur að rannsaka eigi málefni barnaheimilisins á Hjalteyri eftir að fólk sem þar dvaldi sem börn hefur stigið fram. Þar lýsir fólkið hræðilegu kynferðislegu,líkamlegu og andlegu ofbeldi sem það varð fyrir.

Barnaverndarráð Íslands sópaði kvörtunum út af borðinu
Fyrrverandi félagsmálastjóri Akureyrar segir Barnaverndarráð Íslands ekki hafa tekið kvartanir sínar um barnaheimilið á Hjalteyri alvarlega. Málinu hafi verið sópað út af borðinu. Hefði hann vitað af kynferðislega ofbeldinu sem nú hefur verið greint frá hefði málið alltaf verið kært til lögreglu.