Kjaramál

Óskiljanlegar boltalíkingar ekki Seðlabankanum sæmandi
Framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins gerir athugasemdir við röksemdir Seðlabankans fyrir vaxtahækkunum. Það standist ekki skoðun að nýgerðir kjarasamningar séu ástæða hækkunar, þar sem seðlabankastjóri hafi lýst ánægju með þá fyrir skömmu.

Seðlabankastjóri segir aðila vinnumarkaðarins hafa skorað sjálfsmark
Seðlabankastjóri segir höfuðstól óverðtryggðra lána hafa lækkað um tíu prósent á einu ári þrátt fyrir vaxtahækkanir. Aðilar vinnumarkaðarins hafi skorað sjálfsmark með nýgerðum kjarasamningum. Jafnvel þurfi að hækka vexti meira í næsta mánuði vegna krafna um enn meiri launahækkanir en þegar hafi verið samið um.

Tilraun til að leiða deilur við Eflingu í jörð
Halldór Benjamín Þorbergsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins, segir ákvörðun ríkissáttasemjara, um að falla frá aðfararbeiðni til að fá kjörskrá Eflingar afhenta, tilraun til að leiða deilur embættisins við Eflingu í jörð.

Fellur frá aðfararbeiðni eftir fund með lögmanni Eflingar
Ríkissáttasemjari hefur fallið frá aðfararbeiðni sinni til sýslumanns um að fá kjörskrá félagsmanna Eflingar afhenta. Þetta er niðurstaðan eftir fund lögmanns Eflingar með sáttasemjara síðdegis í dag. Efling hefur lofað að afhenda félagaskrána staðfesti Landsréttur úrskurð úr héraði um lögmæti miðlunartillögu sáttasemjara.

Segja verkfallsbrot framin á Grand Hótel
Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður Eflingar, segir verkfallsbrot hafa verið framin á Grand Hóteli í dag. Hún segir að verið sé að mæta þeim sem sinna verkfallsvörslu með fordæmalausri hörku.

Munu ekki semja nema laun milli markaða verði jöfnuð
Kennarasamband Íslands, BSRB og BHM hafa ákveðið að ganga saman til kjaraviðræðna um ákveðna meginþætti en kjarasamningar renna út í mars. Helsta verkefnið er að jafna laun á milli markaða að sögn formanns BSRB og verður ekki samið án þess að það náist. Formaður Kennarasambandsins tekur undir og reiknar með að viðræðurnar hefjist af krafti fljótlega.

Saka Eflingu um hótanir og hleypa verkfallsvörðum ekki inn
Forsvarsmenn Íslandshótela tóku þá ákvörðun nú eftir hádegi í dag að hleypa verkfallsvörðum Eflingar ekki frekar inn á hótel sín. Í tilkynningu frá Íslandshótelum segir að ástæðan sé sú að verkfallsverðir tóku að hóta starfsmönnum annarra stéttarfélaga sem sannarlega séu ekki í verkföllum, sem og yfirmönnum, aðgerðum.

Vilhjálmur segir Seðlabankann versta óvin launafólks
Vilhjálmur Birgisson, formaður Starfsgreinasambandsins, fordæmir stýrivaxtahækkun Seðlabankans og segir hana þurrka upp allan ávinning af nýjum kjarasamningum.

Seðlabankastjóri átti ekki von á sjálfsmarki þegar hann gaf upp boltann
Seðlabankastjóri og varaseðlabankastjóri skutu fast á aðila vinnumarkaðarins og hið opinbera fyrir að haga sér með óábyrgum hætti á opnum fundi í morgun. Rannveig Sigurðardóttir varaseðlabankastjóri sagði að þegar Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri gaf upp boltann í október síðastliðnum hafi Seðlabankinn ekki gert ráð fyrir þeir sem tækju við knettinum myndi spila „sóló“. Við það greip Ásgeir orðið og stakk inn: „Eða að þeir myndu skora sjálfsmark!“

Ganga saman til kjaraviðræðna
Heildarsamtökin BHM, BSRB og KÍ hafa ákveðið að ganga saman til kjaraviðræðna og hafa formenn samtakanna fundað óformlega með fulltrúum opinberra launagreiðenda.

Verkföll samþykkt með góðum meirihluta
Hótelstarfsfólk og bifreiðastjórar hafa samþykkt verkfallsaðgerðir stéttarfélagsins Eflingar með yfir 80 prósent atkvæða.

Færa gesti á önnur hótel til að ráða við verkföllin
Forstjóri Íslandshótela, þar sem Eflingarliðar hafa lagt niður störf, segir að hótelin hafi þurft að færa gesti á önnur hótel. Hann sér ekki fyrir sér að öll sjö hótel Íslandshótela á höfuðborgarsvæðinu geti verið opin ef verkföllin vara í nokkra daga.

Hefur lagt fram aðfararbeiðni hjá sýslumanni til að fá kjörskrána
Ríkissáttasemjari segist ekki líta svo á að hann sé vanhæfur um að miðla málum milli Eflingar og Samtaka atvinnulífsins í yfirstandandi kjaradeilu. Efling lýsti í morgun yfir vantrausti á sáttasemjara vegna miðlunartillögunnar se hann hefur sett fram.

Segir SA líta svo á að verkafólk eigi hvorki betri laun né líf skilið
Starfsmenn Íslandshótela sem hófu verkfall klukkan 12 á hádegi hafa safnast saman í Iðnó á baráttufundi Eflingar. Meðlimur í samninganefnd Eflingar segir Samtök atvinnulífsins ekki vilja ræða málin og líta svo á að félagsmenn Eflingar eigi hvorki betri laun, vinnuaðstöðu né líf skilið.

Verkfall er hafið á Íslandshótelum
Verkföll eru hafin hjá Eflingarfélögum á Íslandshótelum. Tæplega þrjú hundruð starfsmenn hótelanna lögðu niður störf klukkan tólf á hádegi og hafa þeir safnast saman í Iðnó.

Margt sem bendi til svipaðrar þróunar og fyrir hrun
Margt bendir til þess að á Íslandi gætu farið að gerast hlutir sem ekkert eru ósvipaðir því sem gerðist við aðdraganda hruns að sögn formanns VR. Efnahagsráðgjafi SA segir stöðuna vera snúna en með mjög litlum hætti sambærilega við hvernig hún var stuttu fyrir hrun.

Segir kjörskrána ekki vera til
Verkfallsaðgerðir hjá félögum Eflingar á Íslandshótelum hefjast á hádegi í dag. Formaður Eflingar segir stemninguna í hópnum vera góða. Hún ætlar ekki að afhenda kjörskrána og segir hana ekki vera til.

Segir Eflingu brjóta lög og hagnast á ólögmætu ástandi
Halldór Benjamín Þorbergsson framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins segir óboðlegt að Efling hyggist ekki afhenda ríkissáttasemjara kjörskrá sína þrátt fyrir úrskurð héraðsdóms þess efnis. Afhendi Efling hana ekki sé sú staða komin upp að lög gildi ekki í landinu.

Vonbrigði að Efling hafi ekki mætt til fundar
Aðalsteinn Leifsson, ríkissáttasemjari, segir vonbrigði að samninganefnd Eflingar hafi ekki mætt til fundar sem hann boðaði hana á í morgun. Samninganefnd Samtaka atvinnulífsins mætti á fundinn, þar sem atkvæðagreiðsla vegna miðlunartillögu sáttasemjara, var til umræðu.

Segja Aðalstein vanhæfan og krefjast þess formlega að hann víki
Efling - stéttarfélag sendi í morgun kröfu til embættis ríkissáttasemjara um að Aðalsteinn Leifsson víki sæti sökum vanhæfis í kjaradeilu Eflingar við Samtök atvinnulífsins. Er þess krafist að skipaður verði staðgengill hans til að fara með málið.

Óvissa um fundi hjá ríkissáttasemjara
Ekki hefur verið hægt að halda fund beggja deiluaðila með ríkissáttasemjara um atkvæðagreiðslu hans um miðlunartillögu. Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður Eflingar, segir að tölvusamskipti hafi átt sér stað í gær milli hennar og ríkissáttasemjara um mögulegan fundartíma og síðast rætt að hann gæti orðið klukkan 14. Ekkert formlegt fundarboð hafi hins vegar komið til ríkissáttasemjara.

Verkföllum haldið til streitu eftir viðburðaríkan dag
Efling mun hefja verkfallsaðgerðir í hádeginu a morgun eftir úrskurð Félagsdóms um að verkfallsboðun félagsins hafi verið lögleg. Fyrr í dag úrskurðaði Héraðsdómur Reykjavíkur að ríkissáttasemjari fái aðgang að kjörskrá Eflingar.

Trúir því ekki að ríkissáttasemjari ætli að þvinga fram aðför
Formaður Eflingar hefur ritað ríkissáttasemjara bréf vegna fundarboðs hans á morgun. Hann segir niðurstöðu Héraðsdóms Reykjavíkur, um heimila aðför til þess að fá kjörskrá Eflingar afhenta, óumdeilanlega kæranlega. Efling trúir því ekki að ríkissáttasemjari ætli að þvinga fram aðför á grundvelli niðurstöðu lægra dómstigs á meðan beðið er eftir endanlegri niðurstöðu æðri dómstóla.

Skora á Eflingu að fresta og áskilja sér rétt til bótakrafna
Samtök atvinnulífsins hafa skorað á Eflingu að fresta vinnustöðvun, sem félagið hefur boðað á morgun. Þá segir að samtökin áskilji aðildarfélögum sínum bótarétt vegna alls tjóns sem af ólögmætum aðgerðum Eflingar kunni að hljótast.

„Ég neita að trúa því að Efling fylgi ekki lögum“
Ríkissáttasemjari segir úrskurð Héraðsdóms Reykjavíkur ákaflega skýran um það að miðlunartillaga hans í deilu Eflingar og SA hafi verið löglega fram sett og að Eflingu beri að framvísa félagatali.

Who mediates the mediator?
I write this article as a direct response by the courts, forcing Efling to hand over their membership lists to the state mediator, in order for him to facilitate a union-wide vote on a contract.

Nú hljóti félagatalið að nást úr krumlum forystu Eflingar
Framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins býst við því að þar til bærir embættismenn muni einhenda sér í það verkefni að „ná atkvæðaskránni úr krumlum forystu Eflingar.“

Verkfall Eflingar fær grænt ljós og Sólveig heldur fast í kjörskrána
Félagsdómur fellst ekki á kröfur Samtaka atvinnulífsins að boðað verkfall hjá félagsmönnum Eflingar hafi verið ólögmætt. Verkfallsaðgerðir Eflingar á Íslandshótelum hefjast að óbreyttu á hádegi á morgun. Formaður Eflingar fagnar sigri og ætlar ekki að afhenda sáttasemjara kjörskrá Eflingarfélaga strax.

Héraðsdómur segir Eflingu að afhenda sáttasemjara félagatalið
Ríkissáttasemjari á að fá félagatal Eflingar afhent til að hægt sé að greiða atkvæði um miðlunartillögu hans í kjaradeilu Samtaka atvinnulífsins og Eflingar. Þetta er niðurstaða Héraðsdóms Reykjavíkur sem úrskurðaði í málinu á öðrum tímanum.

Í beinni: Dómstólar kveða upp dóma sína í kjaradeilunni
Von er á því að bæði Héraðsdómur Reykjavíkur og Félagsdómur komist að niðurstöðu varðandi það annars vegar hvort Efling þurfi að afhenda sáttasemjara félagatal sitt og hins vegar hvort boðað verkfall tæplega þrjú hundruð félagsmanna Eflingar á morgun standist lög.