Kjaramál

Eins og vænn starfslokasamningur
Umfram lífeyrisréttindi opinberra starfsmanna á launafólk á almennum markaði jafnast á við tíu milljóna króna starfslokasamning, miðað við ákveðnar forsendur. Framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins segir að jafna þurfi kjörin en það verði að gerast með því að draga úr réttindum opinberra starfsmanna.

Ætla að kæra Impregilo
Starfsgreinasambandið ætlar að kæra Impregilo til Vinnueftirlitsins fyrir að brjóta ákvæði um hámarksvinnutíma. Hitastig í svefnskálum við Kárahnjúkavirkjun fór niður í tíu stig í desember. Framkvæmdastjóri Starfsgreinasambandsins segir skálana ekki byggða fyrir íslenskar aðstæður.

Kjarasamningur við LÍÚ samþykktur
Félagsmenn í Sjómannasambandi Íslands og Farmanna- og fiskimannasambandinu samþykktu kjarasamning við Landssamband Útvegsmanna með tæplega 58% greiddra atkvæða. Lítil þátttaka var í atkvæðagreiðslunni því einungis 43% félagsmanna tóku þátt.

Samningum við SA sagt upp?
Alþýðusambandið telur sig hafa forsendur fyrir því að segja upp samningum við Samtök atvinnulífsins í haust, ef verðbólga lækkar ekki frá því sem nú er. Þetta segir Gylfi Arnbjörnsson, framkvæmdastjóri ASÍ.

Umdeildur samningur samþykktur
Sjómenn hafa samþykkt kjarasamning við Landssamband Íslenskra útvegsmanna. Alls 57,6 prósent sjómanna samþykktu samninginn en 42,4 prósent þeirra höfnuðu honum. "Það fer ekkert milli mála að þessi samningur er umdeildur," segir Sævar Gunnarsson, formaður Sjómannasambands Íslands.

Impregilo neitar öllum ásökunum
Ásakanir Alþýðusambands Íslands um að ítalska verktakafyrirtækið Impregilo greiði erlendum verkamönnum ekki laun samkvæmt íslenskum kjarasamningum eiga sér enga stoð í raunveruleikanum, segir í yfirlýsingu frá Impregilo.

ASÍ krefjist endurskoðunar
Margt bendir nú til þess að Alþýðusamband Íslands muni í haust krefjast endurskoðunar á kjarasamningnum sem sambandið gerði við Samtök atvinnulífsins í fyrra þar sem forsendur hans viðrast brostnar.
Talningu sjómanna frestað
Ekki tókst að telja atkvæði sjómanna um kjarasamning þeirra við útgerðarmenn, sem undirritaður var 30. október, í gærkvöldi.
Nýr kjarasamningur undirritaður
Félag tónlistarskólakennara og Félag íslenskra hljómlistarmanna og Launanefnd sveitarfélaga undirrituðu nýjan kjarasamning í húsakynnum ríkissáttasemjara um klukkan ellefu í gærkvöldi. Kjarasamningurinn hefur gildistíma til 30. september 2006.

Ánægð með kjarasamningi leikskóla
Enn vantar upp á að jafna laun leikskólakennara að kjörum grunnskólakennara, segir Björg Bjarnadóttir, formaður Félags leikskólakennara. Á það verði stefnt með næstu samningum árið 2006.

Leikskólakennarar skrifuðu undir
Samningamenn leikskólakennara og sveitarfélaga undirrituðu nýjan kjarasamning í gærkvöldi hjá Ríkissáttasemjara en leikskólakennarar voru búnir að vera með lausa samninga síðan í sumar. Samningurinn gildir til 30. september árið 2006 eða nokkuð skemur en samningar sem gerðir hafa verið að undanförnu.

Samkomulag ekki í augnsýn
Samninganefndir leikskólakennara og sveitarfélaga áttu klukkustundarlangan fund hjá ríkissáttasemjara í morgun og hefur annar fundur verið boðaður klukkan tvö. Lítið þokaðist í samkomulagsátt í morgun. Engar tillögur til lausnar kjaradeilu leikskólakennara hafa enn verið kynntar en deilendur hafa rætt saman um ýmis atriði sem snerta helstu kröfur.

Deilunni vísað til sáttasemjara
Launanefnd leikskólakennara hefur ákveðið að vísa launadeilu sinni við samninganefnd sveitarfélaga til Ríkissáttasemjara í dag þar sem viðræður voru ekki lengur að skila árangri að mati nefndarinnar.

Deilan leysist ekki á næstunni
Björg Bjarnadóttir, formaður Félags leikskólakennara, segist ekki of bjartsýn á að kjaradeila félagsins við sveitarfélögin verði leyst á næstunni. Fulltrúar leikskólakennara og launanefndar sveitarfélaga voru á fundi með ríkissáttasemjara í morgun.

Konur með hærri laun en karlar
Konur eru með hærri heildarlaun en karlar í tveimur stéttarfélögum, Félagi íslenskra leikara og Félagi íslenskra fræða.

Ræðum við þá sem setja verðmiðana
Karlar í Starfsmannafélagi ríkisstofnana hafa allt að 29,5 prósentum hærri tekjur en konurnar. Leiðrétting á launamun kynjanna er inni í kröfugerð félagsins. </font /></b />
Samningar lausir hjá BSRB
Samningar flestra aðildarfélaga BSRB voru lausir frá og með 30. nóvember.

Sækjast eftir langtímasamningi
Samningamenn leikskólakennara eru hættir við að sækjast eftir skammtímasamningi eins og stefnt var að áður en samið var við grunnskólakennara. Á næsta samningafundi, sem haldinn verður í dag, er stefnan sett á langtímasamning.

Ráðherra hlusti á launþega
Formaður BSRB segir nær að forsætisráðherra hlusti á kröfur launþega í stað þess að skammast út í þá. Í ræðu sinni á miðstjórnarfundi Framsóknarflokksins í gær boðaði forsætisráðherra verri stöðu í efnahagsmálum, ef allir fengju jafnmiklar launahækkanir og kennarar.

Ekki tímabært að ræða verkfall
Björg Bjarnadóttir, formaður Félags leikskólakennara, segir ekki tímabært að ræða það hvort leikskólakennarar nýti sér verkfallsrétt til að ná fram kröfu um sömu laun og aðrir kennarar. Hún er hæfilega vongóð um að sveitarfélögin gangi að kröfum þeirra.

Funda aftur á miðvikudag
Samninganefndir leikskólakennara og sveitarfélaga komu saman í húsakynnum Ríkissáttasemjara klukkan níu í morgun og fara leikskólakennarar fram á svipaðar kjarabætur og aðrir kennarar sömdu um. Samningar þeirra hafa verið lausir síðan í ágústlok. Fundurinn stóð í tvær klukkustundir og ætla samningamenn að hittast aftur á miðvikudag.

Leikskólakennarar hjá sáttasemjara
Samninganefndir leikskólakennara og sveitarfélaga komu saman hjá Ríkissáttasemjara nú klukkan níu og fara leikskólakennarar fram á svipaðar kjarabætur og aðrir kennarar sömdu um. Samningar þeirra hafa verið lausir síðan í ágústlok.
Mismikil hækkun launa
Kaupmáttur launa hefur aukist að meðaltali um 1,3 prósent frá því á þriðja ársfjórðungi í fyrra. Í tilkynningu kjararannsóknarnefndar kemur fram að laun á almennum vinnumarkaði hafi hækkað að meðaltali um 4,9 prósent frá þriðja ársfjórðungi 2003.
Kjósa ekki um verkfall
Samninganefnd Félags leikskólakennara ákvað á fundi í gær að fara ekki í atkvæðagreiðslu meðal félagsmanna sinna um boðun verkfalls. Þess í stað hefur nefndin óskað eftir skammtímasamningi við sveitarfélögin fram á næsta ár.
Blaðamannafélagið semur við SA
Samninganefndir Blaðamannafélags Íslands og Samtaka atvinnulífsins undirrituðu í gær skammtímakjarasamning til eins árs. Samningurinn nær aðeins til blaðamanna Morgunblaðsins, en aðrir fjölmiðlar semja sér.

Vélstjórar gagnrýna Félagsdóm
Vélstjórafélag Íslands hefur ekki tekið tekið afstöðu til þess hvort fella eigi hafnarfrí út úr kjarasamningum þess. Helgi Laxdal, formaður Vélstjórafélagsins, segir í það minnsta ljóst að ekki verði af afnámi hafnarfría fyrir árslok 2005.
Fjórtán samningafundir
Fjórtán fundir leikskólakennara og launanefndar sveitarfélaga hafa farið fram frá því að kjarasamningur þeirra á milli rann út í lok ágúst.
Vill afnema sjómannaafsláttinn
Ég hefði viljað sjá sjómannaafsláttinn felldan niður af þeirri einföldu ástæðu að ég er þeirrar skoðunar að allir eigi að greiða jafn hátt skatthlutfall, burt séð frá þeim störfum sem menn vinna" segir Sigurður Kári Kristjánsson, þingmaður Sjálfstæðisflokks.

Ekki ákveðið að afnema afsláttinn
Halldór Ásgrímsson forsætisráðherra vísar á bug gagnrýni á ríkisstjórnina fyrir að lýsa yfir því að sjómannaafsláttur verði til ársins 2008 í tengslum við kjarasamninga sjómanna. Hann segir ekki hægt að bera þetta saman við afskiptaleysi ríkisins af kennaradeilunni.

Níu milljarða hækkun
Pétur Blöndal, alþingismaður, hafnar því að ríkið sé stikkfrí í kennaradeilunni og bendir á að ef kennarar samþykkja miðlunartillögu ríkissáttasemjara hækka lífeyrisskuldbindingar ríkisins um níu milljarða.