

ASÍ segir þetta mestu breytingu á vinnutíma í hálfa öld en í tilkynningu frá Eflingu segir að ákvæðið feli ekki í sér neina tryggingu fyrir því að vinnutími verði styttur hjá verkafólki.
Á opinberum vinnumarkaði losnuðu í heildina 152 kjarasamningar um síðustu mánaðarmót. Þumalputtareglan er sú að almenni vinnumarkaðurinn semji á undan hinum opinbera og því hafa samningaviðræður þar verið á rólegri nótum.
Vilhelm Gunnarsson, ljósmyndari Vísis, stóð vaktina fram yfir miðnætti og myndaði atburðarásina í Borgartúni og Tjarnargötu í gærkvöldi.
Seðlabankastjóri segir að viðnámsþróttur þjóðarbúsins sé mikill og að fall Wow air og loðnubrestur ógni ekki stöðugleika. Mikið svigrúm sé til vaxtalækkana borið saman við mörg önnur lönd.
Fundur í kjaradeilu iðnaðarmanna og Samtaka atvinnulífsins hefst klukkan 14 í dag hjá ríkissáttasemjara.
Vegið er að sjálfstæði Seðlabankans í nýjum kjarasamningi að sögn Þorsteins Víglundssonar þinmanns Viðreisnar. Óeðlilegt sé að gefa bankanum fyrirmæli en forsenda samningsins er að vextir lækki verulega á samningstímabilinu.
Vinnutímabreytingin ýmist sögð sögulega mikil eða minniháttar.
Nýsamþakktir kjarasamningar gefa um margt góð fyrirheit að mati Konráðs S. Guðjónssonar, hagfræðings Viðskiptaráðs.
Forseti ASÍ segir að stytting vinnuvikunnar sé stór breyting en á sama tíma mjög spennandi verkefni.
Forsvarsmenn Sambands íslenskra sveitarfélaga mælast til þess við sveitarfélögin að þau hækki ekki gjaldskrár sínar á árinu, umfram það sem þegar er komið til framkvæmda, og þá til að stuðla að verðstöðugleika.
Sigurður Ingi Jóhannsson samgönguráðherra segir aðgerðir ríkisstjórnarinnar til takmarkanna á verðtryggingunni fyrstu skref í átt að algjöru afnámi hennar.
Kjarasamningar verslunar-, skrifstofu- og verkafólks sem undirritaðir voru í dag gilda frá 1. apríl síðastliðnum og til 1. nóvember 2022. Um er að ræða þriggja ára og átta mánaða samningstíma.
Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður Eflingar, sagði í viðtali við fréttastofu rétt í þessu að Efling hefði stefnt að hækkun lágmarkslauna upp í 425 þúsund krónur en þessi samningur skili um 72 prósentum af þeirri kröfu.
Stjórnvöld ætla að kynna svokölluð hlutdeildarlán á næstunni. Um er að ræða nýja tegund af húsnæðislánum sem er hugsuð fyrir tekjulága.
Í nýundirrituðum kjarasamningum á almenna vinnumarkaðnum er að finna ákvæði um styttingu vinnuvikunnar.
Ríkisstjórnin kynnti yfirlýsingu sína vegna lífskjarasamninga aðila vinnumarkaðarins á blaðamannafundi í Ráðherrabústaðnum í kvöld.
Hreinar launahækkanir til þeirra sem starfa á töxtum nema 90 þúsund krónum í fjórum hækkunum yfir samningstímann, sem er til 3 ára og 8 mánaða.
Ríkisstjórnin og aðilar vinnumarkaðarins hafa boðað til blaðamannafundar klukkan 22:30 í kvöld, í Ráðherrabústaðnum við Tjarnargötu.
Kjarasamningar um þrjátíu stéttarfélaga og SA voru undirritaðir í húsakynnum ríkissáttasemjara um klukkan 22:20 í kvöld.
Ríkisstjórnin og aðilar vinnumarkaðarins hafa boðað til blaðamannafundar klukkan 22:30 í kvöld, í Ráðherrabústaðnum við Tjarnargötu.
Skrifað verður undir kjarasamninga um þrjátíu stéttarfélaga og Samtaka atvinnulífsins í húsakynnum ríkissáttasemjara fyrir klukkan 22.
Vonir standa þó til að hægt verði að undirrita samningana í kvöld.
Ragnar Þór Ingólfsson, formaður VR, segir að ástæðan fyrir þeim töfum sem hafa orðið á undirritun kjarasamninga sé sú að samningagerðin sé tímafrek vinna. Fólk vilji ekki fara sér óðslega. Það sé sérstaklega mikilvægt að vanda til verka í orðalagi samningsins.
Dregist hefur um tvær klukkustundir að skrifa undir kjarasamninga í húsakynnum Ríkissáttasemjara við Borgartún. Enn liggur ekkert fyrir um hvenær skrifað verði undir.
Þetta er bara á allra allra allra allra síðustu metrunum. Við erum langt komin með að klára þetta núna. Ég reikna fastlega með því að hér hefjist undirritun von bráðar, segir Vilhjálmur Birgisson, formaður Verkalýðsfélags Akraness.
Ýmsir, þeirra á meðal Gylfi Magnússon og Helgi Seljan, eiga erfitt með að sjá hvernig bann við verðtyggðum lánum komi sér vel fyrir ungt fólk.
Til stendur að skrifa undir kjarasamninga Samtaka atvinnulífsins við nítján félög innan Starfsgreinasambandsins, VR og önnur félög innan Landssambands verslunarmanna í dag.
Ragnar Þór Ingólfsson, formaður VR, segist ætla að fylgja samkomulagi um verðtryggingu fast á eftir.
Í umfjöllun Kjarnans kemur fram að á meðal aðgerða ríkisstjórnarinnar sé þróun Keldnalands undir íbúðabyggð, hækkun ráðstöfunartekna í lægsta skattþrepinu um tíu þúsund krónur á mánuði og nýjar leiðir til að hjálpa við kaup á húsnæði.
Halldór segist vona að hægt verði að kynna nýstárlega kjarasamninga. Það sé mat hans að vel hafi tekist til í þetta sinn en hann telur að kjarasamningarnir muni draga úr sundrungu á meðal þjóðarinnar og séu þannig jákvætt innlegg í samfélagsumræðuna.