Indland

Rann af flugbrautinni og fór í tvennt
Farþegaflugvél með um 180 farþega innanborðs rann af flugbraut flugvallarins í Kozhikode í Kerala-héraði Indlands.

Faraldurinn nær nýjum hæðum á heimsvísu
Heimsfaraldur nýju kórónuveirunnar, sem veldur Covid-19, hefur náð nýjum hæðum víða um heim. Svo virðist sem að smituðum fari fjölgandi víða en Johns Hopkins háskólinn segir 19,1 milljón manna nú hafa smitast.

Aldrei hafa fleiri greinst á einum sólarhring
Kórónuveirusmitum á heimsvísu hefur aldrei fjölgað jafn mikið og síðasta sólarhring, samkvæmt gögnum frá Alþjóðaheilbrigðismálastofnuninni (WHO). Á 24 klukkustundum hafa 259.848 greinst með veiruna.

Staðfest smit á Indlandi fleiri en milljón
Indland er nú þriðja ríki heimsins þar sem staðfest tilfelli kórónuveirunnar eru fleiri en milljón. Aðeins tvö önnur ríki eru með fleiri greind smit.

Þúsundir þorpa á floti í mannskæðum monsúnflóðum á Indlandi
Að minnsta kosti fimmtíu manns eru látnir og fleiri en tvær milljónir manna hafa orðið fyrir áhrifum af miklum monsúnflóðum í Assam-ríki á norðaustanverðu Indlandi.

Þrír ættliðir frægrar fjölskyldu smitaðir
Kórónuveiran greindist um helgina í þremur ættliðum Bachchan-fjölskyldunnar, einnar frægustu fjölskyldu Indlands.

Faraldurinn í sókn í Ástralíu og Indlandi
Stjórnvöld í Ástralíu lokuðu í dag fylkjamörkum Nýja Suður-Wales og Viktoríu vegna kórónuveirufaraldursins.

Kórónuveirutilfellum á heimsvísu aldrei fjölgað meira
Tilfellum kórónuveirunnar sem valdið getur Covid-19 sjúkdómnum hefur aldrei fjölgað meira á heimsvísu en síðasta sólarhringinn, samkvæmt upplýsingum frá WHO.

Indverjar banna TikTok og fleiri kínversk forrit
Eftir átök milli hersveita á landamærum Kína og Indlands hefur indverska ríkisstjórnin gripið til þess ráðs að banna yfir fimmtíu kínversk smáforrit í landinu þar sem að þau gætu stofnað öryggi og fullveldi Indlands í hættu.

Smit í tíu milljónum á heimsvísu
Staðfest smit Covid-19 á heimsvísu hafa náð tíu milljónum. Nærri því hálf milljón manna hafa dáið vegna sjúkdómsins.

Smituðum fjölgar áfram hratt á Indlandi
Yfirvöld Indlands hafa nú staðfest að minnst 500 þúsund manns hafi smitast af Covid-19. Síðasta sólarhringinn greindust 17 þúsund nýsmitaðir og fer smituðum hratt fjölgandi í borgum landsins þar sem þéttbýli og návígi er mikið.

Fjölmargir hafa orðið fyrir eldingum á Indlandi
Minnst 107 hafa dáið vegna eldinga á undanförnum tveimur dögum á Indlandi og hafa margir þeirra beinlínis orðið fyrir eldingum.

Metfjöldi nýsmitaðra á Indlandi
Yfirvöld Indlands opinberuðu í dag að 16 þúsund nýsmitaðir af Covid-19 hafi greinst þar í landi og hefur sú tala aldrei verið hærri. Her Indlands hefur verið kallaður til til að byggja sjúkrahús í Nýju Delí, höfuðborg Indlands.

Kína sakar Indland um að egna til átaka viljandi
Kína hefur sakað Indverska herinn um að hafa egnt viljandi til átaka á landamærum ríkjanna á mánudag þegar minnst tuttugu indverskir hermenn létust.

Modi gefur hernum grænt ljós á að gera hvað sem er til þess að verja landamærin
Indverjar ætla að verja landamæri sín með kjafti og klóm

Indverjar íhuga að senda Kínverjum skilaboð
Aðilar innan herafla Indlands eru sagðir íhuga takmarkaðar aðgerðir gegn Kína í Himalæjafjöllum.

Sakar Kínverja um að nota frumstæð barefli í landamæradeilu
Háttsettur embættismaður í indverska hernum hefur sakað Kínverja um að hafa notað frumstæð barefli í átökum á landamærum ríkjanna. Hann laumaði mynd af bareflunum sem hann segir kínverska hermenn hafa notað til BBC.

Minnst tuttugu indverskir hermenn féllu í átökum við Kínverja
Yfirvöld Indlands segja átökin vera Kínverjum að kenna en þau eru þau mannskæðustu á landamærunum í áratugi og spennan þar hefur magnast til muna að undanförnu. Kína segir atvikið Indverjum að kenna.

Þrír indverskir hermenn létust í átökum við kínverska herinn
Þrír indverskir hermenn létu lífið í átökum við kínverska herinn í Ladakh vegna deilna um Kasmír héraðið. Samkvæmt upplýsingum frá indverska hernum sem birtar voru á vef breska ríkisútvarpsins munu yfirmenn beggja herja funda til að koma í veg fyrir frekari átök og bættu við að báðar hliðar hafi orðið fyrir áfalli.

Ein skærasta stjarna Bollywood fannst látin
Indverski leikarinn Sushant Singh Rajput er látinn, 34 ára að aldri.

Líkbrennslur í Nýju Delí hafa ekki undan
Þeim sem smitast af Covid-19 fer nú hratt fjölgandi í höfuðborg Indlands. Staðan þar hefur versnað til muna og hafa líkbrennslur ekki undan og geta ekki brennt líkin nógu hratt.

Gæti orðið fyrsti fellibylurinn til að skella á milljónaborgina frá 1891
Fellibylur sem nú nálgast indversku stórborgina Mumbai er að sækja í sig veðrið að sögn veðurfræðinga.

Frestar fundi G7 aftur
Donald Trump Bandaríkjaforseti tilkynnti í morgun að hann myndi þrátt fyrir allt fresta fundi G7 ríkjanna í ár fram í september. Trump sagði í síðustu viku að líklegast yrði fundurinn haldinn í Washington, þar sem leiðtogarnir myndu hittast augliti til auglits.

Ofurfellibylurinn Amphan fór illa með Kolkata
Indverska borgin Kolkata er illa leikin eftir að fellibylurinn Amphan gekk þar yfir. Alls hafa 84 látist í Indland og Bangladess af völdum byljarins.

Öflugasti stormurinn í áratugi
Fellibylurinn Amphan gekk á land á Indlandi og í Bangladess í dag. Bylurinn olli miklum flóðum og aurskriðum en þetta er öflugasti stormurinn sem herjar á svæðið í rúma tvo áratugi.

Sterkasti fellibylurinn í áratugi nálgast Indland og Bangladess
Úrhellisrigning og hvassviðri eru undanfari fellibylsins Amphan á austanverðu Indlandi og Bangladess. Fellibylurinn er sagður sá öflugasti á þessum slóðum í tvo áratugi og hefur milljónum manna verið gert að hafa sig á brot frá leið hans.

Tveimur milljónum manna gert að yfirgefa heimili sín vegna fellibylsins Amphan
Indverjar og Bangladessar búa sig undir komu fellibylsins Amphan sem nálgast nú landi.

Mörg ríki ekki undirbúin fyrir tilslakanir á félagsforðun
Víða um heim er verið að draga úr takmörkunum á ferðafrelsi og félagsforðun. Það er þó óljóst hve mörg ríki eru í raun undirbúin og sérfræðingar vara við því að mörg ríki séu það ekki.

Gasleki á Indlandi dregið tíu til dauða
Tíu létu lífið og hundruð veiktust alvarlega þegar gasleki kom upp í suðurhluta Indlands í gærkvöld

Indverski leikarinn Irrfan Khan er látinn
Indverski leikarinn Irrfan Khan, sem er hvað þekktastur á heimsvísu fyrir að leika í Slumdog Millionaire og Life of Pi og minni hlutverk í Jurassic World og Amazing Spider-Man, er látinn.