
Pakistan

John Snorri alls ekki sá eini sem er að reyna sigra K2
Fjallgöngugarpurinn John Snorri Sigurjónsson er ekki sá eini sem freistar þess að verða sá fyrsti sem kemst á topp K2-fjallsins að vetri til. Þrír aðrir hópar eru með ferðir í undirbúningi á næstu vikum og dögum, þar á meðal maðurinn sem John Snorri gagnrýndi eftir að hætta þurfti við síðustu atlögu hans að toppi fjallsins.

Snælduvitlaust veður í grunnbúðunum hjá John Snorra
„Veðrið var klikkað í nótt og sum tjöldin þar á meðal eldhústjaldið sprungu,“ segir John Snorri Sigurjónsson fjallgöngukappi. Hópur hans kom í grunnbúðir í gær og bar sig vel. Veðrið í nótt fór hins vegar illa með nýuppsettar búðir.

Fyrrverandi forsætisráðherra Pakistans látinn
Zafarullah Khan Jamali, fyrrverandi forsætisráðherra Pakistans, er látinn, 76 ára að aldri. Jamali lést af völdum hjartaáfalls á sjúkrahúsi í Rawalpindi, suður af höfuðborginni Islamabad.

Cher kemur einmana fíl til bjargar
Söngkonan Cher er nú stödd í Pakistan þar sem hún tekur þátt í björgun fílsins Kaavan, sem hefur verið kallaður sá fíll heimsins sem er mest einmana. Kaavan hefur varið 35 árum í dýragarði í Pakistan en maki hans dó árið 2012 og síðan þá hefur hann verið einn.

Börn á meðal hinna látnu eftir árás í Peshawar
Að minnsta kosti sjö eru látnir eftir að öflug sprengja sprakk í trúarlegum skóla í Pakistan í nótt. Börn á breiðu aldursbili eru á meðal hinna látnu.

Hátt í sextíu farendur taldir af í Tyrklandi
Hátt í sextíu farendur gætu hafa farist í bát sem sökk í stöðuvatninu Van í Tyrklandi í síðustu viku. Þetta segir innanríkisráðherra Tyrklands en Tyrkir settu af stað leit, meðal annars með þyrlum, þegar ljóst var að báturinn með fólkinu um borð hefði ekki skilað sér til hafnar þann 27. júní síðastliðinn.

Malala Yousafzai lýkur námi við Oxford háskóla
Baráttukonan og Nóbelsverðlaunahafinn Malala Yousafzai lauk í dag síðustu lokaprófunum við Oxford háskóla í Bretlandi þar sem hún hefur stundað nám í heimspeki, hagfræði og stjórnmálafræði.

Ásökunum um „siðspillt“ líferni rignir yfir fyrirsætu sem lést í flugslysi
Pakistönsk fyrirsæta, sem talin er hafa farist í flugslysi í Pakistan í síðustu viku, sætir nú eftir andlátið miklu aðkasti á samfélagsmiðlum.

Lifði af flugslysið í Pakistan: „Ég heyrði bara öskrin“
Annar þeirra tveggja sem komst lífs af úr flugslysi í pakistönsku borginni Karachi í gær segist aðeins hafa séð eld eftir að vélin brotlendi.

97 létust í flugslysinu
Í það minnsta 97 létust þegar pakistönsk farþegaþota brotlenti í íbúðarhverfi í borginni Karachi í gær. Flugriti vélarinnar er fundinn og munu flugmálayfirvöld rannsaka slysið.

Tugir fórust í flugslysinu í Pakistan
Að minnsta kosti þrjátíu og sjö fórust og enn fleiri er saknað eftir að pakistönsk farþegaflugvél brotlenti í íbúðahverfi í borginni Karachi í dag. Þremur hefur verið bjargað enn sem komið er, tveimur farþegum og einum íbúa hverfisins.

Flugvél hrapaði á íbúðahverfi í Pakistan
Flugvél Pakistan International Airlines hefur hrapað til jarðar á íbúðasvæði nærri Jinnah alþjóðaflugvellinum í Karachi. 107 voru um borð.

Nærri því tíu þúsund ný smit í Rússlandi
Smituðum hefur aldrei fjölgað svo mikið í landinu og í raun hækkaði fjöldi nýrra smita um tuttugu prósent á milli daga.

Dauðadómi vegna morðs blaðamanns Wall Street Journal snúið við í Pakistan
Dómstóll í Pakistan hefur snúið við dauðadómi yfir pakistönskum manni vegna mannráns og morðs blaðamanns Wall Street Journal árið 2002.

100 þúsund hungruðum öndum ætlað að tækla engisprettufaraldur
Stjórnvöld í Kína vilja stöðva "innrás“ engispretta frá Pakistan með "lífrænum vopnum“ í formi anda.

Dauðadómur yfir fyrrverandi forseta Pakistans ógiltur
Stofnun og skipan sérstaks dómstóls sem dæmdi Pervez Musharraf til dauða var talin stríða gegn stjórnarskrá.

Dauðadómur Musharrafs markar tímamót í Pakistan
Fyrrverandi einræðisherra Pakistans var dæmdur til dauða í dag. Þar með lauk sex ára löngum málaferlum þar sem hann var sakaður um landráð.

Fyrrverandi forseti Pakistans dæmdur til dauða
Fyrrverandi leiðtogi Pakistans, hershöfðinginn Pervez Musharraf, var í morgun dæmdur til dauða í höfuðborginni Islamabad.

Illa gengur að bera kennsl á hin látnu
Að minnsta kosti 74 fórust þegar lest varð alelda í Pakistan í dag. Eldurinn er sagður hafa kviknað út frá prímus.

71 látinn eftir að eldur kom upp í farþegalest
Slysið varð í sunnanverðu Punjab-héraði í Pakistan.

Bróðir samfélagsmiðlastjörnu dæmdur í lífstíðarfangelsi fyrir morðið á henni
Baloch var 26 ára þegar hún fannst látin á heimili sínu í grennd við borgina Multan í Pakistan árið 2016.

Tugir fórust og hundruð særðust í jarðskjálfta
Fjöldi heimila, verslana, vega og annarra innviða stórskemmdust í skjálftanum í pakistanska Kasmír.

Trump segist eiga Nóbelsverðlaun skilið
Donald Trump, Bandaríkjaforseti, fundaði í dag með Imran Khan forsætisráðherra Pakistan, í New York þar sem Allsherjarþing Sameinuðu þjóðanna fer fram í vikunni. Á blaðamannafundi leiðtoganna ræddu þeir meðal annars átökin í Kasmír ríki en Trump var ákveðinn í að leysa deilurnar.

Bandaríkjaforseti staðfestir að sonur bin Laden hafi verið drepinn
Í yfirlýsingu Donald Trump Bandaríkjaforseta kemur fram að Hamza bin Laden, sonur stofnanda Al-Kaída hryðjuverkasamtakanna, sé látinn.

Aftur skorið á samskiptin
Stjórnvöld á Indlandi drógu ákvörðun sína um að heimila síma- og internetnotkun í ýmsum hverfum borgarinnar Srinagar í indverska hluta Kasmír til baka í gær. Þá var útgöngubann sett aftur á sömuleiðis. Þetta hafði Reuters eftir heimildarmönnum á svæðinu en tugir höfðu særst fyrr um daginn í átökum lögreglu og íbúa.

Sameining eða þjóðarmorð
Forsætisráðherrar Indlands og Pakistans báru hvor út sinn boðskapinn um hina eldfimu stöðu sem er uppi í indverska hluta Kasmírhéraðs. Svæðið hefur verið svipt sjálfstjórn og íbúar búa við útgöngubann, net- og símaleysi.

Mótmæltu við sendiráð Indlands á Túngötu
Nokkur fjöldi fólks kom saman fyrir utan sendiráð Indlands við Túngötu í höfuðborginni í dag til að mótmæla aðgerðum yfirvalda á Indlandi í Kasmír-héraði.

Priyanka Chopra kölluð hræsnari af ráðstefnugesti
Leikkonan Priyanka Chopra kom fram á Beautycon-ráðstefnunni sem fram fór í Los Angeles nú um helgina.

Spenna í Kasmír
Vaxandi spenna er í Kasmír-héraði á landamærum Indlands og Pakistans eftir að indversk stjórnvöld sviptu þann hluta héraðsins sem lýtur þeirra stjórn sérstökum réttindum. Pakistönsk stjórnvöld saka Indverja um að hafa með framferði sínu brotið gegn ályktun Öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna.

Indverjar afnema sérstöðu Kasmír-héraðs
Ríkisstjórn Indlands hefur í hyggju að fella úr gildi ákvæði í stjórnarskrá ríkisins sem kveður á um sérstöðu Kasmír-héraðs. Yfirvöld í Indlandi hafa á undanförnum dögum flutt þúsundir hermanna til Kasmír-héraðs.