Holland

Holland

Höfuðborg: Amsterdam. Mannfjöldi: 17,9 milljónir (2025). Flatarmál: 41.543 ferkílómetrar.


Fréttamynd

Hætta við að hætta við að hætta við

Hollendingar munu ekki taka þátt í Eurovision á næsta ári eftir allt saman. Þjóðin sniðgekk keppnina í fyrra og ætlaði að gera það aftur í ár þar til að talsmenn sjónvarpsstöðvarinnar NPO tilkynntu að þjóðin yrði með. Nú er hins vegar orðið ljóst að ekkert verður af þátttökunni, Hollendingarnir eru þar með hættir við að hætta við að hætta við að taka þátt í Eurovision.

Tónlist

Fréttir í tímaröð

Fréttamynd

Steinunn kjörin næsti forseti Alþjóðasamtaka lækna

Steinunn Þórðardóttir, formaður Læknafélags Íslands, var um helgina kosin næsti forseti Alþjóðasamtaka lækna, World Medical Association (WMA), fyrir tímabilið 2027–2028. Steinunn greinir frá þessu á Facebook-síðu sinni en hún sótti aðalfund samtakanna í liðinni viku.

Innlent
Fréttamynd

Til­kynna refsi­að­gerðir gegn hátt­settum aðilum Alþjóðasakamáladómstólsins

Marco Rubio, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, hefur tilkynnt refsiaðgerðir gegn forseta og yfirlögfræðingi Alþjóðaglæpadómstólsins (ICC). Dómstóllinn í Haag var stofnaður árið 2002 til að sækja til saka stríðsglæpi, þjóðarmorð og glæpi gegn mannkyni. Meðal þess sem felst í refsiaðgerðunum er að allar eignir sem einstaklingarnir kunna að eiga í Bandaríkjunum verði frystar.

Erlent
Fréttamynd

„Gott og vel við skulum trúa ráð­herranum“

Guðlaugur Þór Þórðarson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins og fyrrverandi utanríkisráðherra, kallar eftir skýrum svörum frá Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur utanríkisráðherra varðandi samtöl hennar við Hollendinga um mögulega undanþágu frá sameiginlegri sjávarútvegsstefnu Evrópusambandsins.

Innlent
Fréttamynd

NATO-stjóri segir Trump hafa rétt fyrir sér um allt

Framkvæmdastjóri Atlantshafsbandalagsins segir að Donald Trump Bandaríkjaforseti hafi haft á réttu að standa í gagnrýni sinni á evrópsk bandalagsríki og með því að ráðast á Íran. Hann segir að sér líki vel við forsetann.

Erlent
Fréttamynd

Kenningin um útskiptin miklu sem um­breytti vest­rænum stjórn­málum

Vesturlönd hafa gengið í gegnum pólitíska umbrotatíð frá aldamótum. Samspil efnahagslegra og samfélagslegra áfalla hefur skapað frjóan jarðveg fyrir þjóðernispopúlisma þar sem samsæriskenningar á borð við um „útskiptin miklu“ hafa færst úr afkimum internetsins og inn í hjarta stjórnmálanna.

Lífið
Fréttamynd

Nú­verandi hita­bylgja „sú al­var­legasta sem mælst hefur“

Útlit er fyrir að hitamet verði slegin víðs vegar um Evrópu í dag. Búist er við því að hiti verði allt að 34 stig í Danmörku. Gefin hefur verið út rauð viðvörun víða um álfuna og búist við því að hiti nái allt að 40 stigum í Þýskalandi og Hollandi. Á Balkanskaga á einnig hiti að vera verulegur. Tugir hafa látist í Frakklandi og Spáni síðustu daga og þar á meðal fjögur ung börn.

Erlent
Fréttamynd

Átta­tíu ára gamalt hitamet slegið í Sviss

Áttatíu ára gamalt hitamet hefur verið slegið í Sviss en á fjórum mismunandi veðurstöðvum fór hitinn yfir þrjátíu og sjö gráður en er þetta hæsti hiti sem mælst hefur í landinu í júnímánuði. Í hitabylgjunni sem nú gengur yfir Evrópu hefur hiti víða farið yfir þrjátíu og fimm gráðurnar og er áætlað að allt að fjögurhundruð milljón manns muni upplifa hita yfir þrjátíu gráður í álfunni á næstu dögum.

Erlent
Fréttamynd

Gugga gestur í af­mælis­boði Kanye West

„Ég bara panikkaði og vissi ekki hvað ég ætti að segja við hann. Hann er algjör dúlla,“ segir áhrifavaldurinn og þáttastjórnandinn Guðrún Svava, betur þekkt sem Gugga í gúmmíbát, um rapparann Kanye West en hún var gestur í afmælisveislu hans í Hollandi á dögunum. Blaðamaður ræddi við hana um þetta ógleymanlega kvöld.

Lífið
Fréttamynd

Kónga­fólkið dansaði í klefa Curacao

Curacao náði í sitt fyrsta stig í sögu heimsmeistaramótsins þegar liðið gerði markalaust jafntefli við Ekvador á HM um helgina. Leikmenn liðsins fengu síðan óvænta heimsókn í búningsklefann í leikslok.

Fótbolti
Fréttamynd

Tón­listin bjarg­ráð eftir erfiða kulnun

Hollenski píanóleikarinn og tónskáldið Joep Beving flytur verk af nýrri plötu sinni ásamt völdum verkum úr fyrri útgáfum í Fríkirkjunni í september. Beving hefur síðustu ár starfað sem píanisti en var fyrir það í auglýsingum. Hann leitaði aftur í tónlist eftir að hafa farið í kulnun og segir það í raun lán í óláni, þá hafi hann fundið leið til að gera það sem hann raunverulega langaði að gera. 

Tónlist
Fréttamynd

Allir far­þegar farnir frá borði og skipinu siglt til Hollands

Allir farþegar MV Hondius hafa nú yfirgefið skipið, eftir að hantaveira kom upp um borð. Skipið hefur lagt úr höfn frá Tenerife og er á leið til Hollands. Frakki og Bandaríkjamaður greindust með hantaveiru eftir að hafa yfirgefið skipið og haldið heim. Báðir eru í einangrun.

Erlent
Fréttamynd

Fyrstu far­þegar hantaveiruskipsins farnir frá borði á Tenerife

Skemmtiferðaskipið MV Hondius lagðist við höfn á Tenerife klukkan hálf sex í morgun og hafa fyrstu farþegar farið frá borði. Það hafði verið ágreiningur meðal yfirvalda allt fram á síðustu stundu um hvernig þetta ferli ætti að fara fram en höfnin var valin vegna þess hversu afskekkt hún er þrátt fyrir að vera nálægt flugvelli. Allir um borð skipsins hafa verið skimaðir og reyndust allir einkennalausir.

Erlent
Fréttamynd

Babb í bátinn enn eina ferðina

Eldur sem kviknaði í gagnaveri í Amsterdam setur enn eitt strik í reikninginn hjá forsvarsmönnum Herjólfs. Vegna eldsvoðans liggur bókunarkerfið niðri.

Innlent
Fréttamynd

Sé ekki það sama og fyrir sex árum með Co­vid-19

Hantaveirusmit sem upp kom um borð í skemmtiferðaskipinu MV Hondius er ekki upphaf heimsfaraldurs, að sögn heilbrigðisstofnunar Sameinuðu þjóðanna. Heilbrigðisyfirvöld keppast nú við að rekja slóð fjölda fólks sem nýlega fór frá borði úr hollenska skipinu. Alls hafa þrír dáið vegna veirunnar og er talið að að minnsta kosti átta til viðbótar hafi smitast.

Erlent