Frakki lífshættulega veikur af hantaveirunni Kjartan Kjartansson skrifar 13. maí 2026 07:42 Bichat-sjúkrahúsið í París þar sem franska konan liggur þungt haldin af hantaveiru á gjörgæslu. AP/Michel Euler Frönsk kona sem var um borð í hollenska skemmtiferðaskipinu Hondius er sögð lífshættulega veik og í gervilunga á sjúkrahúsi í París. Ellefu manns eru taldir hafa smitast í hópsýkingunni til þessa.
Faraldsfræðingur við franska sjúkrahúsið segir að konan sé með hættulegt afbrigði veirunnar sem leggist á lungu og hjarta. Hún fær meðferð með svonefndu gervilunga, tæki sem blóði sjúklings er dælt í gegnum þar sem það er mettað súrefni og koltvísýringur fjarlægður áður en því er dælt aftur í líkamann. Greint hefur verið frá ellefu tilfellum hantaveirusmits í hópsýkingunni sem tengist hollenska skipinu en níu þeirra hafa verið staðfest, að sögn AP-fréttastofunnar. Allir þeir sem hafa smitast til þessa eru farþegar og áhöfn skipsins samkvæmt upplýsingum Alþjóðaheilbrigðisstofnunarinnar (WHO). Þrír eru þegar látnir, þar á meðal hollensk hjón sem veiktust fyrst af veirunni um borð í skipinu. Tedros Ghebreyesus, framkvæmdastjóri WHO, segir ekkert benda til þess að stærri faraldur sé í uppsiglingu. Aðstæður gætu þó breyst og fleiri smit uppgötvast þar sem meðgöngutími veirunnar sé langur. Hvorki er til meðferð né bóluefni gegn hantaveiru en WHO segir að hægt sé að bæta lífslíkur smitaðra umtalsvert með því að greina smit og hefja meðferð snemma. Upptök hópsýkingarinnar eru enn ókunn. Argentínsk stjórnvöld tilkynntu í gær að þau ætluðu að senda hóp sérfræðinga til þess að rannsaka tilgátur um að farþegar skipsins kunni að hafa smitast af veirunni af nagdýrum á vinsælum fuglaskoðunarstað við borgina Ushuaia, nærri syðsta odda Suður-Ameríku, þaðan sem Hondius lagði upp.
Hantaveirusmit um borð í MV Hondius Holland Frakkland Argentína Tengdar fréttir Hafna því að hantaveiran hafi borist frá hjara veraldar Yfirvöld í ferðamannabænum Ushuaia á syðsta odda Suður-Ameríku þræta fyrir að hópsýking hantaveiru eigi upptök sín í borginni. Argentínskir sérfræðingar telja mögulegt að veiran hafi borist í ferðamenn á vinsælum fuglaskoðunarstað í Ushuaia. 11. maí 2026 07:38 Mest lesið Aukafundur borgarfulltrúa: Tugir stöðugilda í nýrri hrinu uppsagna og niðurskurðar Innlent Bein útsending: Hildur svarar fyrir uppsagnir Innlent Fækka um rúmlega sjötíu stöðugildi Innlent Gefur meirihlutanum falleinkunn Innlent Sjötíu ákærðir fyrir svíkja fé út úr Landsbankanum Innlent Ákærður fyrir að drepa tvo af gáleysi Innlent Segir Íslendinga á tímamótum og verða að bregðast við Innlent Nota rústamyndavél við leit að Lúðvík Innlent „Ljóst að þetta snýst um rekstur borgarinnar“ Innlent Markmið að kanna aðstæður en ekki björgun Innlent Fleiri fréttir Efins um „einkaframtak Norðmanna og Finna“ Tveir ákærðir vegna uppákomu við bandaríska herstöð á Englandi Ákæra Comey enn eina ferðina Stubb og Støre ræddu við Pútín Fóðruðu loftslagsvá aðeins minna en metárið á undan Kjörstaðir opnir í Ísrael Óljóst hver mun leiða ríkisstjórn Stúdenta í Serbíu Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Biskupar sjá eftir bænastund með Trump Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Stór hluti Oxford Street orðinn göngugata Sagðir vilja fá Orbán til að stýra Sameinuðu þjóðunum Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Sjá meira
Hafna því að hantaveiran hafi borist frá hjara veraldar Yfirvöld í ferðamannabænum Ushuaia á syðsta odda Suður-Ameríku þræta fyrir að hópsýking hantaveiru eigi upptök sín í borginni. Argentínskir sérfræðingar telja mögulegt að veiran hafi borist í ferðamenn á vinsælum fuglaskoðunarstað í Ushuaia. 11. maí 2026 07:38