

Stjórn Donalds Trump, forseta Bandaríkjanna, stefnir á að gefa út víðtækar ferðatakmarkanir fyrir ríkisborgara 43 landa. Löndunum er skipt í þrjú stig en ríkisborgum ellefu landa verður alfarið bannað að ferðast til Bandaríkjanna.
Að minnsta kosti 110 manns voru myrtir í einhverju fátækasta hverfi Port-au-Prince, höfuðborg Haítí, í nýlegu ódæði. Glæpamenn eru sagðir hafa myrt fólkið eftir að leiðtogi glæpagengis varð sannfærður um að galdrar hefðu valdið banvænum veikindum sonar hans.
Þegar lögregluþjónar frá Kenía mættu til Haítí fyrr á þessu ári voru íbúar ríkisins nokkuð vongóðir um að nú gæti dregið úr gífurlega umfangsmiklu ofbeldi glæpagengja þar. Þær vonir hafa ekki raungerst enn og búa íbúar Haítí enn og aftur við mikla óvissu.
Að minnsta kosti sjötíu manns liggja í valnum eftir að glæpamenn sem tilheyra Gran Grif genginu á Haítí gengu berserksgang á götum Pont-Sonde. Glæpamennirnir gengu um bæinn og skutu fólk að virðist af handahófi.
Edgar Leblanc Fils, bráðabirgðaforseti Haítí, átti nokkuð neyðarlegt atvik á allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna í New York í gær á meðan hann fór með ræðu fyrir þingsal. Í miðri ræðu virðist Fils hafa orðið þyrstur en þá greip hann í vatnskönnuna í staðinn fyrir glasið sitt og ætlaði að fá sér vænan sopa af vatninu.
Donald Trump, forsetaframbjóðandi repúblikana, hét því að vísa þúsundum löglegra haítískra innflytjenda frá einni tiltekinni borg í Ohio úr landi í dag. Hann virtist ruglaður í ríminu þegar hann sagðist ætla að senda fólki „aftur til Venesúela“.
Tugir þúsunda hafa flúið ofbeldið og átökin Port-au-Prince, höfuðborg Haítí, á undanförnum vikum. Glæpagengi stjórna stórum hlutum borgarinnar og hafa glæpamenn rænt, skemmt og brennt fyrirtæki, apótek og skóla.
Forsætisráðherra Haítí hefur sagt af sér eftir margra vikna ófremdarástand í landinu þar sem glæpahópar hafa í raun tekið völdin.
Miklar óeirðir og átök voru í Port-au-Prince, höfuðborg Haítí um helgina. Þungvopnuð gengi réðust á þjóðhöllina og kveiktu í húsnæði innanríkisráðuneytisins. Þetta kemur í kjölfar árásar á alþjóðaflugvöllinn, en lokað er fyrir alla flugumferð. Forsætisráðherra landsins, Ariel Henry, kemst ekki inn í landið.
Kólumbískir málaliðar, sem handteknir voru í kjölfar morðs Jovenel Moise, fyrrverandi forseta Haítí, eru meðal þeirra örfáu sem flúðu ekki úr tveimur stærstu fangelsum landsins þegar ráðist var á þau á laugardagskvöld. Þeir kölluðu þess í stað eftir aðstoð á samfélagsmiðlum.
Stjórnvöld á Haítí hafa lýst yfir neyðarástandi og komið á útgöngubanni í kjölfar óeirða um helgina, þar sem meðal annars var ráðist inn í tvö fangelsi með þeim afleiðingum að þúsundir fanga sluppu.
Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna samþykkti í gær að senda fjölþjóðlegt herlið, sem leitt verður af Kenía, til Haítí. Þar eiga mennirnir að reyna að binda enda á óöldina sem hrjáð hefur landið um árabil. Tæp tuttugu ár eru síðan friðargæsluliðar Sameinuðu þjóðanna yfirgáfu Haítí.
Rúm 80 prósent allra fanga á Haíti eru gæsluvarðhaldsfangar sem enn hafa ekki hlotið dóm. Dæmi eru um að fólk sitji árum saman í gæsluvarðhaldi fyrir litlar sakir.
Vopnaðir menn rændu í síðustu viku bandarískum hjúkrunarfræðingi og dóttur hennar á Haítí. Hjúkrunarfræðingurinn Alix Dorsainvil var að vinna við hjálparstörf í eyríkinu þegar henni og dóttur hennar var rænt.
Minnst tólf meintir glæpamenn voru barðir og brenndir til dauða fyrir allra augum og um miðjan dag í Port-au-Prince, höfuðborg Haítí. Hálfgerð óöld og stjórnleysi ríkir í landinu og segja alþjóðastofnanir stutt í að mannúðarkrísa skapist.
Rúmlega hundrað núverandi og fyrrverandi lögregluþjónar mótmæltu á götum Port-au-Prince, höfuðborgar Haítí, í gær. Þeir lokuðu götum, skutu út í loftið og brutu sér leið inn í flugvöll borgarinnar og heimili forsætisráðherra landsins til að mótmæla því hve margir lögregluþjónar hafa verið skotnir til bana af meðlimum glæpagengja að undanförnu.
Lögreglan í Flórída leitar nú að sex mönnum frá Haítí sem hurfu af hótelherbergjum sínum á mánudaginn. Einn einstaklinganna átti að keppa á bandarísku Special Olympics sem hófust á mánudaginn.
Bandarísk yfirvöld hafa ákært fyrrverandi öldungadeildarþingmann frá Haítí vegna morðsins á Jovenel Moise, forseta eyríkisins, í fyrra. Þingmaðurinn er ákærður fyrir að leggja á ráðin um að drepa eða ræna forsetanum.
Þungvopnaðir glæpamenn reyndu að myrða Ariel Henry, forsætisráðherra Haítí, í um helgina, þar sem hann var á viðburði til að marka sjálfstæði ríkisins. Henry og föruneyti hans þurfti að flýja vegna mikillar skothríðar í borginni Gonaives en öryggissveitir svöruðu skothríðinni.
Lögreglan í Tyrklandi handtók karlmann í tengslum við rannsókn á morðinu á Jovenel Moise, forseta Haítí, í gær. Enginn hefur verið ákærður eða sakfelldur vegna morðsins.
Forgangsverkefni SOS á Haítí eru meðal annars uppsetning á barnvænum svæðum og að veita umkomulausum börnum stuðning og börnum sem hafa orðið viðskila við fjölskyldur sínar.
Götur Haítí eru nánast tómar þessa dagana og fjölda fyrirtækja hefur verið lokað. Þá er óttast að loka þurfi sjúkrahúsum á næstu dögum en þau eru oftar en ekki knúin af ljósavélum vegna skorts á raforku.
Leiðtogi glæpagengis sem rændi sautján trúboðum og fjölskyldumeðlimum þeirra á Haítí fyrr í mánuðinum, birti í dag myndband þar sem hann hótaði að myrða fólkið. Það myndi hann gera ef ekki yrði gengið að kröfum hans.
Glæpagengi sem rændi sautján bandarískum trúboðum á Haítí um helgina krefst milljónar dollara í lausnargjald fyrir hvern og einn þeirra, samtals jafnvirði tæplega 2,2 milljarða íslenskra króna.
Hópur af trúboðum, ásamt fjölskyldum þeirra, var rænt nálægt höfuðborg Haítí, Port-au-Prince, í gær.
Ólafur Loftsson fór á vegum Slysavarnafélagsins Landsbjargar og utanríkisráðuneytisins til Haíti.
Sérstakur sendifulltrúi Bandaríkjastjórnar vegna ástandsins á Haítí sagði af sér í dag til að mótmæla umdeildum brottvísunum Haíta sem sóttust eftir hæli í Bandaríkjunum. Hundruðum Haíta hefur verið flogið til heimalandsins þrátt fyrir ófremdarástand sem ríkir þar.
Bandaríkjastjórn flaug á fjórða hundrað Haítíbúum úr landi í gær og kom í veg fyrir að fjöldi annarra kæmist yfir landamærin frá Mexíkó. TIl stendur að senda enn fleiri Haítíbúa til síns heima þrátt fyrir hamfarir og pólitískan óstöðugleika þar.
Ríkissaksóknari Haítí var rekinn í skyndi eftir að hann fór fram á að forsætisráðherra landsins yrðu ákærður í tengslum við rannsókn á morði fyrrverandi forseta landsins. Sérfræðingar segja brottreksturinn sjónarspil og að ástandið í Haítí sé ruglingslegt vegna baktjaldamakks.
Í kjölfar jarðskjálftans á Haíti í ágúst hefur nærri 60 prósent almennings á þessum svæðum ekki aðgengi að hreinu vatni.