Svíþjóð

Óvæntar skilnaðartölur í faraldrinum í Svíþjóð
Íslenskur prestur búsettur í Svíþjóð segir skilnuðum hafa fækkað verulega þar í landi í kórónuveirufaraldrinum. Fólk neyðist til að ræða saman, leysa hlutina og leiti inn á við.

Fór í kynleiðréttingu og er nú kominn á atvinnumannasamning hjá karlaliði
Loui Sand, áður Louise Sand, hefur fengið samning hjá sænska handboltaliðinu Kärra HF.

Geir í Ósvör óvænt orðinn andlit sardínuframleiðanda
Geir Guðmundsson, sem eitt sinn var safnvörður í Ósvör í Bolungarvík, virðist vera orðinn að andliti sardínuframleiðanda í Svíþjóð. Fjölskylda Geirs hafði ekki hugmynd um að mynd af honum væri utan á sænskum sardínudósum, en framleiðandanum virðist hafa þótt vanta skegg á Geir.

Duplantis vann stangarstökkið og er annar Ólympíumeistari Svía á leikunum
Svíinn Armand Duplantis er nýr Ólympíumeistari í stangarstökki karla eftir glæsilegan sigur í úrslitunum á Ólympíuleikunum í Tókýó í dag.

Gull og silfur til Vésteins
Þó Ísland hafi ekki átt neina keppendur þegar keppt var til úrslita í frjálsum íþróttum á Ólympíuleikunum í Tókýó í dag var íslenskur þjálfari í eldlínunni.

Lærisveinn Vésteins sefur ekki á papparúmunum í Ólympíuþorpinu
Sænski kringlukastarinn Daniel Ståhl, sem Vésteinn Hafsteinsson þjálfar, sefur í sérhönnuðu rúmi í Ólympíuþorpinu í Tókýó.

Loftsteinn lýsti upp skandinavíska næturhimininn
Lögregla í Svíþjóð og Noregi fékk fjölmargar tilkynningar um að loftsteinn hefði fallið til jarðar síðla kvölds síðasta laugardag. Loftsteinninn lýsti upp næturhimininn í skamma stund.

Gíslatökunni lokið eftir tíu tíma og afhendingu tuttugu pítsa
Lögregla hefur handtekið gíslatökumennina tvo sem héldu tveimur fangavörðum í gíslingu í fangelsinu Hällbyanstalten í Eskilstuna í Svíþjóð í dag. Það tók tíu tíma að leysa pattstöðuna sem fól meðal annars í sér að fangar í sömu álmu fengu tuttugu pítsur.

Með tvo fangaverði í gíslingu og vilja fá þyrlu og 20 pítsur
Tveir dæmdir morðingjar hafa tekið tvo fangaverði í gíslingu í fangelsinu Hällbyanstalten í Eskilstuna í Svíþjóð. Þeir hafa farið fram á að fá þyrlu og tuttugu kebabpítsur.

Engin bilun varð í vélarbúnaði flugvélarinnar sem hrapaði
Níu fórust í flugslysi í Örebro í Svíþjóð í gær. Umfangsmikil rannsókn um orsakir og aðdraganda slyssins stendur nú yfir en samkvæmt gögnum sem sænska ríkisútvarpið hefur undir höndum er ekkert sem bendir til þess að bilun í vélinni hafi valdið því að hún hrapaði.

Hefja nýja rannsókn á flaki Estonia í dag
Ný rannsókn um orsök Estonia-slyssins hefst í dag og munu kafarar meðal annars halda niður að flaki farþegaferjunnar til að rannsaka gat á síðu skipsins sem sænskir heimildargerðarmenn uppgötvuðu í fyrra. Skipið hvílir nú á hafsbotni í Eystrasalti eftir að hafa sokkið í óveðri aðfaranótt 28. september 1994.

Sænskt par dæmt fyrir 181 nauðgun gegn barni
Sænskt par var í morgun sakfellt fyrir að hafa ítrekað nauðgað og misnotað tvö börn og að hafa átt og framleitt gríðarlegt magn af barnaklámi. Konan var dæmd í átta og hálfs árs fangelsi en maðurinn var dæmdur í 13 ára og sex mánaða fangelsi.

Níu látnir eftir alvarlegt flugslys í Svíþjóð
Níu eru látnir eftir að lítil flugvél hrapaði á flugvellinum í Örebrö í Svíþjóð um klukkan fimm að íslenskum tíma. Átta farþegar voru um borð í vélinni auk flugmanns en hún hrapaði skömmu eftir flugtak og lenti rétt fyrir utan flugbrautina.

Telja að hinn fullorðni hafi myrt börnin í lestarslysinu
Lögreglan í Hässleholm í Svíþjóð segir að frumrannsókn vegna lestarslyssins sem varð í gærmorgun í Tormestorp, rétt fyrir utan Hässleholm, muni taka langan tíma. Þrír dóu í slysinu, þar af tvö börn, en morðrannsókn hófst í gær aðeins klukkutímum eftir slysið.

Sakfelldur fyrir kynferðisofbeldi gegn börnum niður í eins árs aldur
Sænskur karlmaður á sjötugsaldri var í dag dæmdur í tíu ára fangelsi fyrir að hafa beitt börn á aldrinum eins til tólf ára kynferðislegu ofbeldi. Maðurinn var meðal annars ákærður fyrir að hafa nauðgað barni, kynferðislega brotið á átta börnum og að hafa átt barnaníðsefni.

Tvö börn og fullorðinn urðu fyrir lestinni og morðrannsókn hafin
Tvö börn og einn fullorðinn urðu fyrir lest fyrir utan Hässleholm í Svíþjóð í morgun og létust þau á vettvangi. Lögregla hefur þegar hafið morðrannsókn vegna slyssins og hafa ættingjar verið upplýstir um að börnin hafi látist.

Sænska þingið gefur grænt ljós á nýja stjórn Löfvens
Meirihluti sænska þingsins samþykkti í hádeginu tillögu þingforsetans um að Stefan Löfven verði áfram forsætisráðherra landsins.

Hópur fólks varð fyrir lest í Svíþjóð
Hópur fólks varð fyrir lest rétt fyrir utan Hässleholm í Svíþjóð í morgun. Ekki er vitað hve margir urðu fyrir lestinni en yfirmaður björgunarsveita sem brást við slysinu segir að það sé mjög alvarlegt.

Yfir þrjátíu stiga hiti á norðanverðum Norðurlöndunum
Hitamet hafa fallið í hitabylgju sem gengur nú yfir Skandinavíuskaga og Finnland. Hitinn hefur farið vel yfir þrjátíu gráður í Lapplandi undanfarna daga.

Tilnefnir Löfven sem forsætisráðherra
Andreas Norlén, forseti sænska þingsins, mun tilnefna Stefan Löfven sem forsætisráðherra landsins og mun þingið greiða atkvæði um tillöguna á miðvikudaginn.

Miðflokkurinn sagður ætla að samþykkja áframhaldandi stjórn Löfvens
Flokkstjórn sænska Miðflokksins er sögð reiðubúin að verja nýrri ríkisstjórn Stefans Löfven falli. Frá þessu greinir Svenska dagbladet (SvD) í morgun, en Löfven mun í dag tilkynna þingforsetanum Andreas Norlén hvort hann telji grundvöll fyrir því að mynda nýrri stjórn undir hans forsæti sem nyti stuðnings meirihluta þings.

Gefur Löfven tækifæri til að mynda nýja stjórn
Andreas Norlén, forseti sænska þingsins, hefur veitt Stefan Löfven, starfandi forsætisráðherra Svíþjóðar, umboð til að mynda nýja stjórn.

Segir ekki nægan stuðning fyrir hægristjórn og skilar umboðinu
Ulf Kristersson, formaður hægriflokksins Moderaterna, segir að ekki sé nægur fjöldi manna á sænska þinginu sem myndi styðja við nýja hægristjórn undir hans forsæti. Kristersson hefur því skilað því umboði sem þingforsetinn Andreas Norlén veitti honum til stjórnarmyndunar á þriðjudaginn.

Lögreglumaður skotinn til bana í Gautaborg
Lögreglumaður var skotinn til bana í Gautaborg í Svíþjóð í gærkvöldi.

Segir af sér sem ráðherra til að koma óstýrlátum varaþingmanni frá
Jennie Nilsson, ráðherra byggðamála í Svíþjóð, hefur sagt af sér ráðherraembætti til að geta aftur tekið sæti sem þingmaður. Nilsson segir af sér til að koma varaþingmanninum, sem tók sæti hennar á þingi þegar hún tók sjálf við sem ráðherra, frá og þannig geta greitt atkvæði með Stefan Löfven í mögulegum atkvæðagreiðslum á þingi um næsta forsætisráðherra.

Veitir Kristersson umboð til stjórnarmyndunar
Andreas Norlén, forseti sænska þingsins, hefur veitt Ulf Kristersson, formanni hægriflokksins Moderaterna, umboð til stjórnarmyndunar. Hann fær þrjá daga til að ræða við aðra flokksleiðtoga og kanna hvort grundvöllur sé til myndunar stjórnar.

Kannar hver á mestan möguleika að mynda nýja stjórn
Forseti sænska þingsins, Andreas Norlén, mun í dag ræða við leiðtoga allra þeirra flokka sem sæti eiga á sænska þinginu til að kanna hver á mestan möguleika að mynda nýja stjórn. Hann mun í kjölfarið veita einhverjum þeirra umboð til stjórnarmyndunar.

„Peps“ Persson fallinn frá
Sænski tónlistarmaðurinn Peps Persson er fallinn frá, 74 ára að aldri. Umboðsmaður Perssons segir að hann hafi látist á laugardaginn, eftir að hafa glímt við veikindi um nokkurt skeið.

Löfven segir af sér og hyggst reyna að mynda nýja stjórn
Stefan Löfven, forsætisráðherra Svíþjóðar, ætlar að segja af sér embætti. Hann hefur þó í hyggju að reyna að mynda nýja stjórn. Frá þessu greindi Löfven á blaðamannafundi klukkan 8:15 í morgun.

Komið að ögurstund hjá Löfven
Stefan Löfven, forsætisráðherra Svíþjóðar, hefur boðað til blaðamannafundar klukkan 8:15 að íslenskum tíma. Frestur hans til að tilkynna um næstu skref í kjölfar þess að þingið samþykkti vantraust á hann og ríkisstjórnina rennur út á miðnætti.