Tímamót

Síðustu sýningar í sextíu ára sögu Háskólabíós í dag
Síðustu sýningar kvikmyndahússins í Háskólabíói verða sýndar í dag þar sem bíóreksturinn lokar frá og með morgundeginum. Þar með lýkur 62 ára sögu reksturs kvikmyndahúss í húsnæðinu.

Gulli búinn að vinna síðustu vaktina
Útvarps -og sjónvarpsmaðurinn góðkunni, Gulli Helga vann sína síðstu vakt í dag. Síðastliðin tíu ár hefur hann vaknað snemma og vakið þjóðina ásamt félögum sínum í Bítinu. Hann segist þakklátur fyrir tímann en framundan séu jafnframt spennandi verkefni.

Ofurfyrirsæta á sextugsaldri eignaðist son
Enska ofurfyrirsætan Naomi Campbell greindi frá því í dag að hún hefði eignast son og væri orðin tveggja barna móðir, 53 ára að aldri.

Knattspyrnupar trúlofað
Glódís Perla Viggósdóttir greindi frá því fyrir skömmu að hún hefði trúlofast Kristófer Eggertssyni, kærasta sínum til margra ára. Það skammt milli fagnaðarefna hjá parinu en Glódís Perla varð 27 ára gömul í gær.

Nafnið hans var skrifað í skýin
Leikaraparið Ellen Margrét Bæhrenz og Arnmundur Ernst Backman eignuðust sitt annað barn fyrr á þessu ári en fyrir eiga þau soninn Krumma. Barnið, sem er drengur fékk nafnið sitt við fallega athöfn nú um helgina.

Snjólaug Lúðvíksdóttir á von á barni
Uppistandarinn og handritshöfundurinn Snjólaug Lúðvíksdóttir á von á barni en vinkonur hennar komu henni rækilega á óvart um helgina með glæsilegri barnasturtu.

Stjörnulífið: Svala fagnar ástinni og Edda Falak kvíðalaus á Ítalíu
Liðin vika hjá stjörnum landsins einkenndist af ferðalögum erlendis, rómantík og íslenskri náttúru.

Birnir og Vaka fjölga mannkyninu
Tónlistarmaðurinn Birnir Sigurðarson og kærasta hans Vaka Njálsdóttir eiga von á sínu fyrsta barni í október. Vaka deilir gleðitíðindunum á Instagram.

Buðu grunlausum manneskjum í tveggja ára afmælisfögnuð Play
Flugfélagið Play bauð tveimur manneskjum af handahófi frá Washington DC í Bandaríkjunum til Íslands til þess að fagna tveggja ára afmæli flugfélagsins. Þetta kemur fram í tilkynningu frá flugfélaginu en myndbandið má sjá neðst í fréttinni.

Brautskráningar Háskóla Íslands
Alls brautskrást 2.832 kandídatar úr grunn- og framhaldsnámi frá Háskóla Íslands í dag og hafa þeir aldrei verið fleiri. Vísir streymir frá brautskráningunni sem haldin er í Laugardalshöll.

„Nú er ég bara dottinn í það“
„Ég er nú bara dottinn í það hérna í Borgarnesi, þó ekki á rafskútu,“ segir Brynjar Níelsson léttur í bragði þegar blaðamaður sló á þráðinn til að leita viðbragða við vendingum í ráðherraliði Sjálfstæðisflokks. Lyklaskipti verða í dómsmálaráðuneyti á morgun þegar Guðrún Hafsteinsdóttir tekur við sem dómsmálaráðherra af Jóni Gunnarssyni, sem valdi sér Brynjar sem aðstoðarmann fyrir um átján mánuðum síðan.

Tinna Alavis tilkynnir fjölgun í fjölskyldunni
Áhrifavaldurinn og fegurðardísin Tinna Alavis á von á sínu öðru barni en fyrir á hún dótturina Ísabellu Birtu með Húsafellserfingjanum Unnari Bergþórssyni.

Þóra Karítas og Sigurður gengin í það heilaga
Listaparið Þóra Karítas Árnadóttir, leikkona og rithöfundur, og Sigurður Guðjónsson, myndlistarmaður, giftu sig í dómkirkjunni í Reykjavík í gær.

Gylfi og Alexandra saman í blíðu og stríðu
Alexandra Helga Ívarsdóttir, eiginkona knattspyrnumannsins Gylfa Þórs Sigurðssonar, fagnar brúðkaupsafmæli þeirra tveggja á Instagram.

Atli Fannar og Lilja eiga von á öðru barni
Atli Fannar Bjarkason fjölmiðlamaður og Lilja Kristjánsdóttir lögfræðingur eiga von á sínu öðru barni en fyrir á parið soninn Tind sem er á sjötta aldursári.

Arnar Jónsson hlaut heiðursverðlaun Grímunnar
Leikarinn Arnar Jónsson hlaut heiðursverðlaun Grímunnar við hátíðlega athöfn í kvöld. Guðni Th. Jóhannesson, forseti Íslands veitti honum verðlaunin.

Níu milljónir ferna drukknar af Kókómjólk árlega
Því er núna fagnað að Kókómjólkin á fimmtíu ára afmæli en hún hefur alltaf verið framleidd í mjólkurbúinu á Selfossi. Í dag eru um níu milljónir ferna drukknar af Kókómjólk á ári en Kókómjólkin er eitt dýrmætasta vörumerki Mjólkursamsölunnar í dag.

Þríburaforeldarnir fá fyrstu vöggugjafirnar
Í apríl varð Íslandsmet í þríburafæðingum, en þrjár fjölskyldur eignuðust þríbura. Ástrós Pétursdóttir er ein þeirra mæðra og lýsir hún því bæði sem dásamlegu og krefjandi verkefni. Fjölskyldurnar þrjár, þáðu fyrr í dag fyrstu Vöggugjafirnar frá Lyfju, ein gjöf fyrir hvert barn.

Brúðhjón og fyrirtæki flykkjast til útlanda
Brúðarkjólameistari finnur fyrir því að fleiri en áður kjósi að halda brúðkaup erlendis og segir það geta verið ódýrara en að halda veisluna hér á landi. Þá virðist lítið hafa dregið úr árshátíðarferðum fyrirtækja til útlanda þrátt fyrir verðbólgu.

Stjörnulífið: Brúðkaupsgestir klæddust sem Gummi kíró, nærfatamódel og barnalán
Liðin vika var sannkölluð tímamótavika hjá stjörnum landsins sem einkenndist af suðrænum brúðkaupum, barneignum og nafngiftum. Auk þess lögðu margir land undir fót og nærðu hina almennu útlandaþrá þar sem íslenska sumarið virðist ætla að láta bíða eftir sér, sérstaklega á suðvesturlandinu.

Hildur Björnsdóttir og Jón Skaftason eignuðust stúlku
Hildur Björnsdóttir, oddviti Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík, og Jón Skaftason, stjórnarformaður Sýnar, eignuðust stúlku laugardagskvöldið 10. júní.

Einstakar myndir sýna sögu Háskólabíós í gegnum tíðina
Nýlega var tilkynnt um að hætt verði rekstri kvikmyndahúss í Háskólabíó en þar með lýkur rúmlega 60 ára sögu bíósýninga í þessu sögufræga húsi. Ef marka má viðbrögð á samfélagsmiðlum er ljóst að Háskólabíó skipar stóran sess í huga marga Íslendinga.

Litli naglbíturinn kominn með nafn
Ljósmyndarinn og listakonan Saga Sigurðardóttir eignaðist sitt fyrsta barn nú fyrir stuttu með ástmanni sínum Vilhelm Antoni Jónssyni, söngvara og þáttagerðamanni.

Siggi Þór og Sonja eiga von á barni
Leikarinn Sigurður Þór Óskarsson, eða Siggi Þór eins og hann er kallaður, og unnusta hans Sonja Jónsdóttir vefhönnuður eiga von sínu fyrsta barni í nóvember.

Dóttir Arnhildar og Alfreðs komin í heiminn
Arnhildur Anna Árnadóttir kraftlyftingakona og kærasti hennar, Alfreð Már Hjaltalín, fyrrverandi knattspyrnumaður og heilsunuddari, eignuðust dóttur á dögunum.

Fólk spari tárin þrátt fyrir brotthvarf „drottningar bíóanna“
Kvikmyndaframleiðandi og ritstjóri Klapptré segir það á vissan hátt leitt að kvikmyndasýningum eigi að hætta í Háskólabíó. Hann segir lokunina rifja upp margar minningar en svo, að sjálfsögðu, heldur lífið bara áfram.

Kveður Bítið en reiknar með að vakna áfram snemma
Útvarps- og sjónvarpsmaðurinn Gunnlaugur Helgason, betur þekktur sem Gulli Helga, mun í lok mánaðar segja skilið við Bítið á Bylgjunni. Þá verða liðin tíu ár síðan hann hóf að vekja þjóðina alla virka morgna, þá ásamt Heimi Karlssyni og Huldu Bjarnadóttur.

Draumurinn um minni brjóst varð loksins að veruleika
Júlíanna Ósk Hafberg myndlistarkona setti nýverið af stað söfnun til styrktar brjóstaminnkunaraðgerð sem hún gekkst undir á dögunum. Hún segir stór brjóst oft og tíðum ganga í erfðir og eftirspurn eftir aðgerðum gríðarlegar. Aðgerðin gekk vel.

Reif sig úr spjörunum eftir sýningu og óskaði sér
Bíóunnendur eru ýmist í áfalli eða í ferðalagi niður slóðir nostalgíunnar eftir að tilkynnt í gær að fólk hefði út mánuðinn til að horfa á bíómynd í Háskólabíó í síðasta skipti. Minningarnar eru margar enda ljóst að tilkoma bíósins um miðja síðustu öld hafði mikil áhrif á menningarlíf landsmanna.

Tvenn tímamót hjá Sverri Inga og Hrefnu Dís
Mikið er um að vera í lífi knattspyrnukappans Sverris Inga Sverrissonar og Hrefnu Dísar Halldórsdóttur flugfreyju um þessar mundir. Parið eignaðist sitt annað barn og festu kaup á 400 fermetra einbýlishúsi í Kópavogi fyrir skemmstu.