

Fjárframlagakerfi til breska ríkisútvarpsins tekur miklum breytingum á allra næstu árum að sögn Nadine Dorries, menningarmálaráðherra Bretlands, sem kynnti framtíðaráætlanir ríkisstjórnarinnar í dag. Afnotagjöld breska ríkisútvarpsins verða felld niður eftir fimm ár.
Lögmenn Andrésar Bretaprins vilja fá að yfirheyra sálfræðing Virginiu Giuffre, sem hefur sakað prinsinn um nauðgun, og segja hana þjást af „fölskum minningum“.
Svo virðist sem að hægja sé á smitum sums staðar í Bretlandi og Bandaríkjunum. Hin margumrædda kúrfa er að fletjast út í Lundúnum, suðaustur- og austurhluta Englands og hægt hefur á greiningum í norðurhluta landsins.
Harry Bretaprins hefur farið fram á að dómstólar taki fyrir ákvörðun breska innanríkisráðuneytisins um að neita honum um að greiða fyrir lögregluvernd þegar hann og fjölskylda hans heimsækja Bretland.
Gylfi Þór Sigurðsson, leikmaður Everton og íslenska landsliðsins í knattspyrnu, verður áfram laus gegn tryggingu fram í miðja næstu viku. Þá ætti að skýrast hvort lögregla ætli að leggja fram kæru á hendur Gylfa en hann grunaður um kynferðisbrot gegn ólögráða stúlku.
Starfsmenn Downingsstrætis 10, skrifstofu forsætisráðherra Breta hafa nú enn og aftur verið sakaðir um veisluhöld á sama tíma og almenningi var gert að fara eftir ströngum sóttvarnareglum sem bönnuðu allt slíkt.
Andrés prins hefur afsalað sér titlum sínum vegna ásakana gegn honum um kynferðisbrot. Um er að ræða titla hans innan hersins og konungsfjölskyldunnar og mun hann ekki koma að opinberum viðburðum en þessi ákvörðun var tekin með samþykki Elísabetar drottningar, móður Andrésar.
Fólk sem greinist með Covid-19 á Englandi þarf einungis að sæta einangrun í fimm daga að lágmarki í stað sjö frá og með næsta mánudegi. Þetta tilkynnti Sajid Javid, heilbrigðisráðherra Breta, í neðri málstofu breska þingsins í dag.
Virginia Giuffre mun að öllum líkindum ekki sætt sig við sátt í málinu gegn Andrési Bretaprins ef hún felur aðeins í sér fjárhagslegar skaðabætur. Lögmaður Giuffre segir hana vilja að sannleikurinn verði leiddur í ljós, fyrir sig og aðra þolendur Jeffrey Epstein.
Bresku samtökin Internet Watch Foundation segja árið 2021 hafa verið það versta frá upphafi þegar kemur að barnaníð á netinu. Magn efnis þar sem börn á aldrinum sjö til tíu ára séu misnotuð hafi þrefaldast.
Staða Borisar Johnson, forsætisráðherra Bretlands, þykir nokkuð óviss og eru þingmenn Íhaldsflokksins byrjaðir að kalla opinberlega eftir því að hann láti af embætti. Það er í kjölfar þess að í ljós kom að hann sótti garðveislu við Downingstræti tíu í maí 2020, þegar harðar samkomutakmarkanir voru í gildi í Bretlandi.
Breska stórstjarnan Adele var rétt í þessu að gefa út tónlistarmyndband við lagið sitt Oh my God.
Dómari í máli Virginiu Giuffre gegn Andrési prins hefur hafnað því að málinu verði vísað frá dómstólum í Bandaríkjunum.
Boris Johnson, forsætisráðherra Bretlands, baðst í dag afsökunar á að hafa sótt garðveislu sem fram fór í garði Downingstrætis 10 í maí 2020 þegar harðar samkomutakmarkanir voru í gildi í Bretlandi. Stjórnarandstæðingar hafa krafist afsagnar forsætisráðherrans vegna málsins.
Boris Johnson forsætisráðherra Breta situr fyrir svörum í breska þinginu í dag og er fastlega búist við því að þingmenn stjórnarandstöðunnar og einnig hans eigin flokksmenn muni ganga hart fram gegn honum.
Lögregluembætti Lundúna hefur verið sakað um að hygla valdamönnum með því að hafa ekki rannsakað teiti sem haldin voru í forsætisráðuneytinu þvert á samkomutakmarkanir.
Bretar með einkenni Covid-19 þurfa ekki lengur að gangast undir PCR próf eftir að hafa fengið jákvæða niðurstöðu úr hrað- eða heimaprófi. Bresk heilbrigðisyfirvöld segja breytinguna mega rekja til mikillar útbreiðslu og nákvæmni hraðprófanna.
Um eitt hundrað starfsmönnum forsætisráðuneytis Englands var boðið í garðpartí þann tuttugasta maí 2020, þegar einungis tveir máttu koma saman utandyra í Englandi.
Stjórnvöld á Bretlandseyjum segja nær allar þungaðar konur sem lagðar hafa verið inn með Covid-19 hafi verið óbólusettar. Yfirvöld hafa ráðist í herferð til að fá óléttar konur til að þiggja bólusetningu.
Íslenskur læknir sem starfar á sjúkrahúsi í Lundúnum segir stöðuna ágæta á spítalanum, þrátt fyrir uppgang ómíkron-afbrigðis kórónuveirunnar og tiltölulega vægar samkomutakmarkanir. Hann bindur vonir við að dramtískur endapunktur faraldursins sé í nánd.
Svo gæti farið að til þess að mega spila leiki í ensku úrvalsdeildinni eftir ferðalög út fyrir Bretland þá þurfi leikmenn að vera fullbólusettir, annars þurfa þeir að sæta sóttkví í 10 daga. Þetta segir menningarmálaráðherra Bretlands, Nadine Dorries.
Frumkvöðullinn Nökkvi Fjalar Orrason er um þessar mundir búsettur í London en það er staður sem hann hefur dreymt um að búa á síðan hann man eftir sér.
Fyrsti íslenski listi ársins 2022 fór í loftið fyrr í dag á FM957 en listinn er fluttur alla laugardaga frá klukkan 14:00-16:00.
Benjamin Mendy, leikmaður Englandsmeistara Manchester City, hefur verið látinn laus gegn tryggingu.
Þegar áhöfn tundurspillisins HMS Northumberland var að leita að rússneskum kafbáti í Norður-Atlantshafi kom það þeim verulega á óvart þegar kafbáturinn sigldi á hljóðsjá skipsins. Talið er öruggt að um slys hafi verið að ræða.
Athafnakonan og samfélagsmiðlastjarnan Tanja Ýr Ástþórsdóttir er að flytja til Manchester. Hún sagði frá því á Instagram að þar væri planið að koma hárlengingamerkinu Glamista hair í verslanir erlendis.
Um það bil 200 hermenn hafa verið kallaðir til starfa á sjúkrahúsum í Lundúnum til að mæta auknum fjölda Covid-veikra og fjölda veikra starfsmanna. Fjörtíu herlæknar munu aðstoða við umönnun sjúklinga en aðrir innrita sjúklinga og halda utan um birgðastöðu, svo eitthvað sé nefnt.
Alþjóðaheilbrigðisstofnunin segir varhugavert að kalla ómíkron-afbrigðið vægara en önnur afbrigði. Milljónir manna smitist af afbrigðinu á degi hverjum og þrátt fyrir að fyrstu rannsóknir sýni að afbrigðið sé vægara en önnur afbrigði verði að bíða eftir niðurstöðum úr frekari rannsóknum.
Bólusettir ferðalangar á leið til Englands þurfa ekki lengur að fara í fara í sýnatöku 48 klukkustundum fyrir komuna til landsins. Þá þurfa ferðamenn heldur ekki að vera í sóttkví á meðan beðið er eftir niðurstöðum úr PCR prófi.
Benjamin Mendy, leikmaður Manchester City sem er sakaður um átta kynferðisbrot, hefur verið færður í eitt alræmdasta fangelsi Englands vegna ótta um öryggi hans.