
Bretland

Tók síðustu ljósmyndirnar af Elísabetu
Ljósmyndarinn Jane Barlow var ein þeirra sem tók myndir af Elísabetu II og Liz Truss á þriðjudaginn er sú síðarnefnda var gerð að forsætisráðherra Bretlands. Óafvitandi var Barlow að taka síðustu myndirnar af Elísabetu.

Telur að spurningar um tilgang krúnunnar verði áleitnari eftir fráfall Elísabetar
Eiríkur Bergmann, prófessor í stjórnmálafræði, telur að spurningin um tilgang krúnunnar muni leita ákaft á breskan almenning og á þjóðir Breska samveldisins í kjölfar fráfalls Elísabetar Bretlandsdrottningar. Hann segir sjálfsmynd bresku þjóðarinnar vera á hreyfingu nú á miklu umbreytingaskeiði en að fráfall þjóðarleiðtoga sem naut virðingar og hylli muni, til skamms tíma, hafa sameinandi áhrif á bresku þjóðina.

Karl og Kamilla heilsuðu upp á fólkið fyrir utan Buckingham-höll
Karl Bretakonungur og Kamilla, eiginkona hans, heilsuðu upp á fólk sem hafði safnast saman fyrir utan Buckingham-höll í Lundúnum um klukkan 13.

Óvænt stödd í miðri þjóðarsorg
„Það er svakalega löng röð af fólki með blóm: Sólblóm og hvítar rósir. Það stendur í marga klukkutíma í röð til að fá að leggja blómin sín upp að hallarveggnum,“ segir Nanna Elísa Jakobsdóttir sem er stödd fyrir utan Buckingham höll í Lundúnum þegar blaðamaður nær af henni tali.

Stjörnurnar minnast drottningarinnar
Stjörnurnar senda fallegar kveðjur til konungsfjölskyldunnar eftir að drottningin kvaddi þennan heim í gær. Elísabet II Bretlandsdrottning var 96 ára gömul þegar hún lést í Balmoral í Skotlandi. Heimurinn fygdist með þegar fjölskyldumeðlimir komu sér þangað til að vera við hlið hennar.

Hvernig breytast seðlar og myntir breska konungsveldisins?
Andláti Elísabetar 2. Englandsdrottningar fylgja breytingar á ýmsum sviðum. Breyta þarf öllu frá þjóðsöng landsins að lögreglubúningum og vegabréfum en það sem vekur hvað helst áhuga minn eru seðlar og myntir víða um heim.

Skrefinu nær bóluefni gegn malaríu en Bretar gætu slaufað verkefninu
Þessa stundina er R21 bóluefnið gegn malaríu prófað í Búrkínu Fasó, Kenía, Malí og Tansaníu. Efnið hefur sýnt allt að 77 prósent virkni en allt gæti farið í vaskinn ef Bretar hætta við aðkomu sína að verkefninu.

Hætt við mínútu þögn í Skotlandi vegna óláta áhorfenda
Áhorfendur sem gerðu sér ferð á Tynecastle-völlinn í Edinborg að sjá leik Hearts og Istanbul Basaksehir í gærkvöld höfðu lítinn áhuga á að virða minningu Elísabetar II Bretadrottningar. Fyrirhuguð mínútu þögn varð kaótísk.

Ekkert spilað á Englandi um helgina
Öllum fyrirhuguðum íþróttaviðburðum á Englandi um helgina hefur verið frestað. Því verða engir leikir í enska boltanum.

Netflix frestar tökum á The Crown
Peter Morgan höfundur Netflix þáttanna The Crown hefur tilkynnt að tökum verði frestað ótímabundið af virðingu við drottninguna. Elísabet Bretlandsdrottning lést í gær 96 ára að aldri, en Morgan hefur áður talað um að þættirnir séu „ástarbréf“ til hennar.

Svona greindu bresku sjónvarpsstöðvarnar frá andláti drottningar
Fjölmiðlar um allan heim eru nú undirlagðir fréttum af andláti Elísabetar II Bretadrottningar, nýjum þjóðhöfðingja og konungi Bretlands, Karli III, og því sem í vændum er.

Þjóðarsorg þar til sjö daga eftir útför drottningarinnar
Buckingham höll hefur tilkynnt að Karl konungur sé búinn að taka ákvörðun um að þjóðarsorg muni ríkja frá deginum í dag þar til sjö daga eftir útför Elísabetar annarrar Bretadrottningar.

Karl og Anna ein hjá Elísabetu þegar hún lést
Eftir að fréttir bárust í gærmorgun um hrakandi heilsu Elísabetar Bretadrottningar flýttu fjölskyldumeðlimir hennar sér til Balmoral í Skotlandi til að vera við hlið hennar. Einungis Karl og Anna, tvö af fjórum börnum hennar, voru hjá henni þegar hún lést.

Vaktin: Syrgir móður sína ásamt heimsbyggðinni
Elísabet II Bretadrottning lést í gær, 96 ára að aldri, í faðmi fjölskyldu sinnar í Balmoral kastala í Skotlandi. Karl sonur hennar er nú orðinn konungur Bretlands en hann mun ávarpa þjóð sína í fyrsta sinn sem konungur hennar í dag.

Myndasyrpa: Bretar syrgja drottninguna
Eftir að fréttir um fráfall Elísabetar II Bretadrottningar barst breskum almenningi í gær safnaðist fólk víða saman til að syrgja þann leiðtoga þjóðarinnar sem lengst sat í hásæti.

Einhyrningsáætlun hrundið af stað eftir andlát drottningar
Löngum hefur verið rætt um að breska krúnan sé með viðbragðsáætlanir í handraðanum, sem gripið er til þegar þjóðhöfðinginn deyr. Elísabet II Bretlandsdrottning lést í dag, og því ljóst að gera þarf ýmsar ráðstafanir, til að mynda hvað varðar útför hennar.

Sorgin fest á filmu
Breska þjóðin syrgir nú Elísabetu II Bretlandsdrottningu, sem lést síðdegis í dag. Elísabet var þaulsetnasti þjóðhöfðingi í sögu Breta, og ríkti í rúm 70 ár. Sonur hennar, Karl III Bretakonungur, er tekinn við krúnunni.

Ólíklegt að leikið verði á Englandi um helgina
Eftir andlát Elísabetar II Bretlandsdrottningar í dag þykir afar ólíklegt að leikir í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu, sem og neðri deildum landsins, muni fara fram.

Elísabet II leiddi Breta í gegnum súrt og sætt í 70 ár
Elísabet II Bretlandsdrottning hefur leitt bresku þjóðina í gegnum súrt og sætt í sjötíu ár. Hún gerði sér grein fyrir að hún varð drottning fyrir tilviljun örlaganna og yrði að ávinna sér ást og virðingu þjóðarinnar.

Katrín minnist Elísabetar: „Ein kona sem bjó yfir allri þessari sögu“
Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra segir að andlát Elísabetar II Bretlandsdrottningar marki endalok merkilegs tímabils í sögðu Vesturlanda. Hún minnist Elísabetar, sem hún hitti árið 2019, af mikilli hlýju og segist skilja hvers vegna drottningin var jafn dáð af þjóð sinni og raun ber vitni.

Verður Karl III Bretlandskonungur
Karl Bretakonungur, sonur Elísabetar Englandsdrottningar, verður þekktur sem Karl III Bretlandskonungur. Hann er tekinn við sem konungur Bretlands eftir að móðir hans lést í dag.

Elísabet II Bretlandsdrottning er látin
Elísabet önnur, drottning Bretlands er látin. Hún var 96 ára gömul. Heilsu drottningarinnar hafði hrakað hratt á undanförnum mánuðum en hún lést í kastala sínum í Skotlandi.

Harry fór til Skotlands en Meghan varð eftir
Harry prins er kominn til Skotlands, vegna fráfalls Elísabetar Bretlandsdrottningar, ömmu hans. Meghan Markle, eiginkona hans, fór ekki með honum.

Vaktin: Elísabet Bretlandsdrottning er fallin frá
Elísabet II Bretlandsdrottning er látin. Karl, sonur hennar, er nú orðinn konungur Bretlands.

Drottningin undir sérstöku eftirliti lækna
Elísabet önnur Bretlandsdrottning er nú undir sérstöku eftirliti lækna í Balmoral-kastalanum í Skotlandi. Ákvörðun þessa efnis var tekin í kjölfar þess að heilsu hennar hrakaði í morgun. Allir í nánustu fjölskyldu drottningar eru þegar komin til Balmoral eða eru nú á leiðinni þangað.

Nafna Liz Truss hrekkir Íhaldsmenn og þjóðarleiðtoga
Eigandi notendanafnsins @LizTruss á Twitter er ekki nýr forsætisráðherra Bretlands, heldur bresk kona að nafni Liz Trussel. Fjöldi fólks hefur merkt Trussel í færslur á Twitter og hefur hún gripið gæsina og orðið heimsfræg í leiðinni.

Enginn stuðningsmanna andstæðingsins fær sæti í ríkisstjórn Truss
Liz Truss nýr forsætisráðherra Bretlands hefur skipað marga af sínum nánustu vinum, samstarfsmönnum og skoðanabræðrum í ríkisstjórn sína eftir að hún tók við embættinu af Boris Johnson í gær.

Truss heitir skattalækkunum og tafarlausum aðgerðum í orkumálum
Liz Truss hét því í dag þegar hún tók við embætti forsætisráðherra að lækka skatta og grípa til aðgerða strax í næstu viku til að létta byrðarnar á breskum almenningi vegna hækkandi orkuverðs. Hún er fjórði forsætisráðherra Íhaldsflokksins á sex árum.

Liz Truss stelur stíl Védísar tíu árum síðar
Védís Sigurðardóttir, sérfræðingur hjá Landsbankanum, rak upp stór augu þegar hún sá mynd af verðandi forsætisráðherra Bretlands í nákvæmlega sama kjól og hún átti.

Mun venjulegri stjórnmálamaður í Downing stræti
Liz Truss er nýr formaður Íhaldsflokksins og næsti forsætisráðherra Bretlands. Hún lofar skattalækkunum á sama tíma og óðaverðbólga er í landinu og er sökuð um að vera frekar umhugað um fyrirtækjaskatt en heimilin. Eiríkur Bergmann prófessor í stjórnmálafræði segir að með valdaskiptunum sé kominn mun venjulegri stjórnmálamaður í Downing stræti.