

Lyfjastofnun og lyfjaheildsalar vinna nú hörðum höndum að því að útvega undanþágulyf vegna hins landlæga skorts á ADHD-lyfinu Elvanese Adult.
Hrund Traustadóttir segir betur fara um föður sinn en hann er kominn á aðra deild á Landakoti, í tveggja manna herbergi þar sem hann hefur sjónvarp útaf fyrir sig, og hefur fengið aukna verkjastillingu.
Sérfræðingur í skaðaminnkun frá Bandaríkjunum segir þær aðferðir og meðferðir sem standi vímuefnanotendum til boða úreltar og oft gagnslausar. Hann er á landinu til að fræða um nýja aðferð þar sem fólki er boðið í meðferð jafnvel þótt það sé enn í neyslu.
Steinunn Þórðardóttir, sérfræðingur í öldrunar- og lyflækningum, hefur verið ráðin í nýja stöðu framkvæmdastjóra lækninga hjá Hrafnistu frá og með 1. nóvember.
Aðstandandi krabbameinssjúklings á níræðisaldri fordæmir þá meðferð sem hann hefur fengið á Landspítalanum og segist vera niðurbrotin og svefnlaus af áhyggjum.
Pabbi minn, tæplega 83 ára gamall hefur legið inni á Krabbameinsdeild Landspítalans í nokkrar vikur. Hann er með beinkrabbamein á 4. stigi sem byrjaði í blöðruhálskirtli eins og algengt er.
Konur með ADHD segja ófáanlegt lyf hafa breytt lífi þeirra og gefa lítið fyrir ráðleggingar forstjóra Lyfjastofnunar um að fólk taki sér lyfjafrí. Á föstudaginn greindum við frá því að ADHD lyfið Elvanse í styrkleika þrjátíu og fimmtíu milligrömm væri ófáanlegt og það sama ætti við um samheitalyfið. Þrátt fyrir að skorturinn væri alþjóðlegur hafi hann komið fram fyrr hér á landi en annars staðar.
Undanfarnar vikur hefur orðið mikil fjölgun Covid smitaðra hér á landi. Sóttvarnalæknir segir ólíklegt að grípa þurfi til aðgerða en hvetur eldra fólk og áhættuhópa til að þiggja bólusetningu vegna Covid í haust
Formaður ADHD samtakanna segir lyfjaskort setja allt úr skorðum hjá þeim einstaklingum sem eru með ADHD og fá ekki lyfin sín. Lyfið sé jafn ófáanlegt á svörtum markaði og í apótekum.
ADHD lyfið Elvanse hefur verið ófáanlegt hér á landi í rúman mánuð. Dæmi eru um að fólk reyni að útvega lyfið á svörtum markaði. Forstjóri Lyfjastofnunar brýnir fyrir fólki að nota ekki annarra manna lyf.
Einstaklingar á miðjum aldri sem eru í yfirþyngd og með örlítla blóðþrýstings-, kólesteról- eða blóðsykurshækkun eru þrefalt líklegri að deyja fyrir aldur fram en aðrir. Þá eru þeir 35 prósent líklegri til að fá hjartaáfall og heilablóðfall og upplifa þau tveimur árum fyrr en jafnaldrar þeirra.
Dæmi eru um að einn einstaklingur hafi leitað 100 hundrað sinnum á bráðamóttökuna vegna sýkinga í kjölfar neyslu vímuefna í æð. Hjúkrunarfræðingur á smitsjúkdómadeild segir fleiri leita þangað og neyta vímuefna í ótryggum aðstæðum eftir að neyslurýminu Ylju var lokað.
Hildur Sverrisdóttir, þingkona Sjálfstæðisflokksins, hyggst leggja fram frumvarp um að eggheimta sem sé komin til vegna krabbameinsmeðferðar verði tekin inn í greiðsluþátttökukerfi Sjúkratrygginga. Þetta kom fram í Leggönguboði 66°Norður á Hafnartorgi í gærkvöldi.
Ný rannsókn bendir til þess að framleiðendur fæðubótarefna sem innihalda fiskiolíu séu ófeimnir við að markaðsetja hana sem góða fyrir hjarta- og æðakerfið, jafnvel þótt rannsóknir hafi sýnt fram á að áhrif þeirra séu lítil eða engin.
Hjúkrunarfræðingur á Klíníkinni segir ekki rétt að tala um plataðgerðir í þeim tilfellum sem Íslendingar hafa farið erlendis í efnaskiptaaðgerð og hún hafi ekki skilað tilætluðum árangri. Vissulega hafi aðgerðir verið framkvæmdar en ekki nægilega góðar.
Óbragð sem fannst í drykkjarvatni á Akranesi skýrist að öllum líkindum af grænþörungum sem uxu í lóni í nágrenni bæjarins. Lónið hefur nú verið hreinsað og ætti óbragðið því að heyra sögunni til.
„Fær martraðir um að missa röddina“ var fyrirsögn að viðtali við söngkonuna Klöru Elíasdóttir. Það er í raun sorglegt at lesa þetta vegna þess að þetta ber vitni um almennt þekkingarleysi á rödd. Sé ekki um sjúkdóma að ræða, á röddin ekki að gefa sig ef þekking er fyrir hendi. Hins vegar vegna þess hve fólk veit almennt lítið um rödd veit það ekki hvað getur skemmt hana.
Móðir stúlku með átröskun segir meðferð þurfa að hefjast miklu fyrr. Það tekur stofnandi og formaður samtakanna SÁTT undir. Ný skýrsla heilbrigðisráðuneytisins segir fólk veikjast meira en það þarf vegna gata í þjónustu.
Engar skaðlegar örverur fundust í sýnum sem voru tekin úr drykkjarvatni á Akranesi í gær eftir að íbúar kvörtuðu undan óbragði af því. Forstöðumaður hjá Veitum segir leit standa yfir að orsökum óbragðsins í lóni í nágrenni bæjarins.
Píeta-samtökin stefna að því að opna úrræði með gjaldfrjálsri þjónustu í hverjum landshluta fyrir þá sem glíma við sjálfsvígshugsanir. Nýtt Píeta-skjól verður opnað á Húsavík í dag en um sjö hundruð leita til samtakanna á hverju ári.
Svínsnýra sem var grætt í heiladauðan mann fyrir meira en mánuði síðan virkar enn og stefnt er að því að fylgjast með þróun mála í að minnsta kosti mánuð til viðbótar. Sérfræðingur segir nýrað starfa jafnvel enn betur en nýra úr manneskju.
Ráðning í embætti forstjóra Heilsugæslu höfuðborgarsvæðiðsins, sem auglýst var laust til umsóknar í maí, er enn í ferli.
Sóttvarnalæknir segir greiningum á Covid-19 smitum hérlendis hafa fjölgað upp á síðkastið. Þau afbrigði sem flakka nú á milli manna eru ekki skæðari en önnur afbrigði miðað við þær rannsóknir sem gerðar hafa verið.
Heilbrigðisráðuneyti hefur fellt úr gildi ákvörðun Lyfjastofnunar sem gerði umboðsmanni lyfsins Septabene að fjarlægja mynd af roða í hálsi og ljósan borða á umbúðum lyfsins. Taldi ráðuneytið ákvörðunina ekki samræmast jafnræðisreglu þar sem fjöldi annarra lyfja væru áletruð með sambærilegum myndum.
Kona sem nýtti neyslurými Ylju reglulega segist heyra af fíkniefnatengdu andláti í hverri viku. Það sé mikil synd að ekki takist að opna nýtt úrræði. Ekkert neyslurými hefur verið rekið í um hálft ár og ráðherra segir einungis vanta húsnæði.
„Nú veit ég að ég er mjög klár, ég hef dúxað í öllu sem ég hef tekið í skóla og útskrifast með hæstu meðaleinkunnir og ég er rosalega góð í að greina vandamál og tækifæri og slíkt. Það var aldrei, fannst mér, tekið mark á því sem ég hafði fram að færa og ég var alltaf svona annars flokks starfsmaður að vissu leyti vegna þess hversu stór ég var,“ segir íslensk kona í yfirþyngd sem hefur verið á vinnumarkaðnum í fjölda ára.
Hjartastopp eru ekki algengari en áður, að sögn Davíðs O Arnar hjartalæknis. Fjallað hefur verið um hjartastopp íþróttamanna á undanförnum árum en Davíð segir íþróttaiðkun geta ýtt undiraðstæður þar sem illvígar hjartsláttartruflanir spretta fram.
Sífellt fleiri tilkynningar berast eitrunarmiðstöð Landspítala vegna barna sem innbyrða nikótínpúða að sögn sérfræðings. Stefanía Ösp Guðmundsdóttir móðir nítján mánaða drengs sem rétt náði að koma í veg fyrir að hann borðaði púða á leikvelli í vikunni segir þá algjöra plágu.
Hvernig lítur líkami út sem hefur verið geymdur ofan í ferðatösku í þrjú ár? Vaxa neglur eftir dauðann? Hvað tekur langan tíma fyrir lík að verða að beinagrind? Allt eru þetta spurningar sem Pétur Guðmann Guðmannsson hefur fengið. Og hann kippir sér lítið upp við það.
Framkvæmdastjóri Foreldrahúss segir mikla aukningu hafa verið á tilkynningum í júlí. Þær eigi sameiginlegt vímuefnaneyslu og hegðunarvanda ungmenna. Hún segir þeim fjölga sem leiti til þeirra vegna yngri barna.