Heilbrigðismál

Leita að nýrnagjafa fyrir Katrínu Emmu sem er á lokastigi nýrnabilunar
„Katrín Emma fæddist með aðeins eitt nýra sem hefur um það bil tíu prósent starfsemi og er því með lokastigs nýrnabilun,“ segir Ester Frímannsdóttir. Þar sem ekki hefur fundist nýrnagjafi fyrir dóttur hennar treystir Ester nú á mátt samfélagsmiðla í von um að gjafi finnist.

Sjúkrarúm frá Akureyri gengin í endurnýjun lífdaga í Síerra Leone
Aurora velgerðasjóður starfrækir þróunarsamvinnuverkefni í Sierra Leone og afhenti 43 sjúkrarúm til sjúkrahúsa í landinu.

„Þetta er margs konar klúður“
Sérfræðingar sem komu fyrir velferðarnefnd í morgun lýstu yfir áhyggjum af stöðu skimana fyrir leghálskrabbameini, að sögn nefndarformanns. Hún segir breytingar á þjónustunni klúður sem stefni heilsu kvenna í hættu. Þingmenn ráku í dag á eftir skýrslu heilbrigðisráðherra um efnið.

Send aftur heim með dáið barn í maganum og segir Landspítalann hafa brugðist
„Hvernig er hægt að leggja það á fólk að vera heima með dáið barn í maganum yfir helgi?“ Sigríður Jónsdóttir og Magnús Kjartan Eyjólfsson eignuðust andvana stúlku þriðjudaginn 27. apríl og gagnrýna heilbrigðiskerfið fyrir viðbrögðin eftir að þeim var tilkynnt að barnið þeirra hefði dáið í móðurkviði.

Yfirbyggðir sjúkrasleðar hjá danska hernum á Grænlandi
Danski herinn á Grænlandi, Arktisk Kommando, hefur tekið þrjá sjúkrasleða til notkunar á afskekktum svæðum þessarar strjálbýlu nágrannaeyju Íslands. Sleðunum er ætlað að auka öryggi danskra hermanna, þar á meðal Síríus-sérsveitarinnar, en einnig vísindamanna og annarra á ferð um hrjóstrugar slóðir fjarri byggðum.

Þungaðar konur geta þegið bólusetningu en ekki á fyrsta þriðjungi meðgöngu
Konur sem tilheyra forgangshópum sem hafa verið bólusettir vegna Covid-19 hafa getað þegið bólusetningu þrátt fyrir að vera þungaðar en mælt er með því að bólusetja á öðrum eða þriðja þriðjungi meðgöngu.

Mikilvægt að börn og ungmenni þurfi ekki að bíða eftir ADHD greiningu
Talið er að allt að sjö prósent barna og ungmenna séu með athyglisbrest með ofvirkni samkvæmt erlendum rannsóknum. Börn sem alast upp við erfiðar félagslegar aðstæður eru með erfiðari einkenni en þau sem búa við öryggi segir forseti sálfræðideildar HR. Birtingarmyndir séu ólíkar milli kynja og líklegt að stelpur fái síður greiningu.

Ójöfnuður í samfélaginu hvað varðar aðgengi að iðjuþjálfun
„Þú þarft í rauninni að koma til okkar í gegnum lækni,“ segir Gunnhildur Jakobsdóttir iðjuþjálfi á Æfingastöðinni. Hún segir að aðgengi að iðjuþjálfum sé mjög ábótavant hér á landi.

Íslenskt par talið hafa grætt 84 milljónir vegna sölu lyfseðilskyldra lyfja
Íslenskt par er grunað um að hafa grætt rúmlega 84 milljónir króna á sölu og dreifingu lyfseðilskyldra lyfja. Talið er að parið, ásamt tveimur öðrum, hafi stundað glæpi kerfisbundið í tæpan áratug.

Viðbrögð heilsugæslunnar við svörum Landspítala: Forstjórinn kannast ekki við eigin tölvupóstsamskipti
Forstjóri Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins hefur skilað heilbrigðisráðuneytinu viðbrögðum vegna jákvæðra svara Landspítala um að taka við rannóknum á leghálssýnum vegna skimunar eftir leghálskrabbameinum.

Sex þúsund einstaklingar fullbólusettir með bóluefninu frá Janssen
Framundan er önnur stór vika í bólusetningum gegn Covid-19 og verður bólusett með þremur bóluefnum; frá Pfizer, Janssen og Moderna.

Velferð allra landsmanna
Gífurleg tækifæri liggja í því að efla enn frekar fjarheilbrigðisþjónustu sem er bæði ódýrara rekstrarform fyrir ríkið, hagstæðara fyrir einstaklinginn og veitir landsbyggðinni aukinn aðgang að sérfræðiviðtölum og meðferð.

Þrír greindust innanlands og allir í sóttkví
Þrír greindust með kórónuveiruna innanlands í gær og voru þeir allir í sóttkví. Enginn greindist með veiruna á landamærum samkvæmt bráðabirgðatölum frá almannavarnadeild ríkislögreglustjóra.

Getur reynst mörgum konum erfitt sem vilja hafa stjórn á öllu
„Ég vissi snemma hvað ég vildi verða,“ segir ljósmóðirin Inga María Hlíðar Thorsteinsson. Hún var að gefa út bók um fæðingar í þeirri von að sem flestir hafi jákvæða upplifun af þessari lífsreynslu.

Opið bréf til Læknafélags Íslands
Í útvarpsfréttum RÚV í gær, 30.apríl, kom fram að bæði Læknafélag Íslands og Ríkislögreglustjóri legðist gegn frumvarpi Svandísar Svavarsdóttur um afglæpavæðingu vímuefna, sem nú er í ferli inni á Alþingi.

Vísir á vettvangi: Þegar Þórólfur, Steini Aðalsteins, Örn Árna, Heimir Már, ég og allir hinir fórum í bólusetningu
Ég var á ritstjórnarfundi að morgni fimmtudags í miðri ræðu um mikilvægi blaðamennskunnar þegar síminn kvartaði undan því að það hafi verið að detta inn SMS. Ég skaut öðru auganu á símann, opnaði skeytið og rak í rogastans.

Nokkur hundruð þegar fengið bóluefni Janssen á Íslandi
Þótt bólusetning með bóluefni Janssen hefjist ekki á höfuðborgarsvæðinu fyrr en í næstu viku er heilbrigðisstofnanir á landsbyggðinni þegar komnar með skammta af bóluefninu. Til að mynda hófst bólusetning með bóluefni Janssen á Suðurnesjum í vikunni.

Veittu ekki viðunandi leiðbeiningar vegna heimsóknarbanns
Heilbrigðisráðuneytið, embætti landlæknis og hjúkrunarheimili veittu manni sem óskaði eftir undanþágu til að geta heimsótt eiginkonu sína á hjúkrunarheimili þegar heimsóknarbann var við lýði vegna kórónuveirufaraldursins í fyrra ekki viðunandi leiðbeiningar um rétt til að kæra ákvörðunina.

130 konur ganga saman á Hvannadalshnjúk um helgina
„Ég er svo þakklát og snortin yfir þessum kvennakrafti,“ segir Sirrý Ágústsdóttir, forsprakki tæplega 130 kvenna hóps sem ætlar á topp Hvannadalshnjúks, hæsta tind Íslands, um helgina.

Um 80 prósent þiggja bólusetningu: Sama hlutfall þiggur bóluefni AstraZeneca og Pfizer
Um 80 prósent þeirra sem voru boðaðir í bólusetningu með bóluefninu frá AstraZeneca þáðu bólusetningu í Laugardalshöll í gær. Þetta er sama hlutfall og mætti í bólusetningu á þriðjudaginn, þegar bólusett var með bóluefninu frá Pfizer.

Ekkert sem bendir til þess hérlendis að breska afbrigðið sé skæðara
Allt bendir til þess að hið svokallaða breska afbirgði Covid-19 sé álíka skætt og afbrigðin sem Íslendingar glímdu við fyrr í kórónuveirufaraldrinum. Þetta sagði Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir á upplýsingafundi rétt í þessu.

Svartíminn átta vikur á næstunni: Kenna Krabbameinsfélaginu og Covid-19 um langan biðtíma
Svartími vegna leghálssýna verður átta vikur á næstunni, að því er fram kemur í tilkynningu á vef Heilsugæslunnar á höfuðborgarsvæðinu. Þar segir að vel gangi að koma sýnum út og svör berist innan þriggja vikna frá komu á rannsóknarstofuna.

Útskúfunin hættulegri þessum einstaklingum en fitan
„Ég er komin á þann stað, að ef þú ætlar ekki að fræða þig og ef þú ætlar ekki að gera betur, nennirðu að sleppa því að tala. Bara plís,“ segir Erna Kristín Stefánsdóttir um fitufordóma.

Alþingi vill svör frá heilbrigðisráðherra
Þung gagnrýni á heilbrigðisráðherra í kjölfar breytinga á skipulagi og framkvæmd skimana fyrir krabbameini í leghálsi leiddi til þess að Alþingi fól ráðherranum um miðjan mars að vinna skýrslu um málið.

Konur eiga betra skilið
Það er ljóst að það hefur því miður ríkt ófremdarástand í einu af mikilvægustu heilbrigðismálum þessa kjörtímabils sem snúast um heilbrigði kvenna; breytingar á skimun á legháls – og brjóstakrabbameini.

Heilbrigðisráðherra segir óásættanlegt að sumir sérfræðilæknar innheimti aukagjald
Heilbrigðisráðherra segir algerlega óásættanlegt að sumir sérfræðilæknar innheimti sérstakt gjald af þjónustu sinni við sjúklinga sem þeir einir standi undir. Á næstunni verði gefin út reglugerð um að læknum sem innheimti þetta gjald verði ekki endurgreiddur kostnaður sem annars heyri undir hlut sjúkratrygginga í kostnaði sjúklinga.

Þúsundir bólusettar í Laugardalshöll í vikunni
Í morgun kl. 9 hófust bólusetningar í Laugardalshöll en stefnt er að því að bólusetja um sex þúsund manns í dag og níu þúsund á morgun. Um 25 þúsund manns verða bólusettir í vikunni, í umfangsmestu bólusetningaraðgerð kórónuveirufaraldursins hingað til.

Fékk sýkingu eftir sýnatöku á landamærum og neyddist til að sæta tveggja vikna sóttkví
Íslendingur sem kom til landsins fyrir tæpum tveimur vikum segist hafa fengið sýkingu í nefkok vegna sýnatökupinna eftir skimun á landamærum. Hann hafnaði í kjölfarið að gangast undir seinni sýnatöku og gagnrýnir að það hafi ekki verið fyrr en málinu var skotið til dómstóla sem sóttvarnayfirvöld féllust á að taka mætti sýni úr hálskoki. Hann sætir enn sóttkví ásamt maka sínum á sóttvarnahótelinu við Rauðarárstíg sem lýkur í fyrramálið.

„Í guðanabænum þiggið björgina og látið bólusetja ykkur“
Kári Stefánsson, forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar, segir bóluefni AstraZeneca gegn kórónuveirunni vera næstum hættulaust og hvetur hann fólk „í guðanabænum“ til að þiggja bóluefni AstraZeneca. Sjálfur hafi hann fengið bóluefnið fyrir nokkrum vikum og hafi ekki hlotið nokkurn skaða af.

Síðasta æviskeiðið og lífslokin
Í fréttum helgarinnar var bent á að stíga þurfi stór skref til að rétta af rekstur hjúkrunarheimila. Langflest þeirra séu rekin með tapi. Samkvæmt niðurstöðu verkefnastjórnar, sem heilbrigðisráðherra skipaði til að greina rekstur hjúkrunarheimila, nemur tapið 3,5 milljarði króna á árunum 2017 til 2019.