
Evrópusambandið

Heilbrigðis- og matvælastjóri ESB vill verða forseti í heimalandinu
Litháinn Vytenis Andriukaitis hefur boðið sig fram til forseta í heimalandinu.

Þýskir Jafnaðarmenn á siglingu
Fylgi þýska Jafnaðarmannaflokksins (SPD) hefur aukist síðustu daga í kjölfar þess að flokkurinn kynnti nýja áætlun sína í velferðarmálum.

Segja tilskipun ESB eyðileggja internetið
Úrslitastund nálgast eftir margra ára deilur um höfundarrétt og framtíð internetsins. Atkvæði greidd um umdeilda tilskipun í Evrópuþinginu á næstu vikum. Þingmaður segir reglurnar útiloka frjálsa miðlun á upplýsingum.

Annar ósigur gæti beðið May á þingi
Greidd verða atkvæði um ályktun um að lýsa stuðningi við áframhaldandi viðræður May forsætisráðherra við Evrópusambandið. Harðlínumenn í Íhaldsflokknum gætu fellt ályktunina.

Sádi-Arabía og Panama á svartan lista Evrópusambandsins
Fyrir á listanum voru ríki eins og Íran, Sýrland og Norður-Kórea.

Breski seðlabankinn varar við útgöngu án samnings
Seðlabankastjóri Bretlands lýsir Brexit án samnings sem efnahagslegu áfalli fyrir landið og mögulega hagkerfi heimsins.

May biður um lengri tíma
Theresa May, forsætisráðherra Bretlands, mun óska eftir því við breska þingið að fá lengri tíma til að semja um breytingar á útgöngusamningi við Evrópusambandi, einkum hvað varðar umdeildustu þætti samningsins er varða landamæri Norður-Írlands. Hún hyggist leita til þingsins í vikunni eftir að hafa reynt að sannfæra yfirvöld í Brussel um að gera breytingar fyrirliggjandi samningi á skömmum tíma.

Forseti Úkraínu vill ólmur ganga í ESB og NATO
Forsetinn er undir í skoðanakönnunum í aðdraganda kosninga.

Vandi Bretlands ekki leystur með Brexit
New Economics Foundation kalla eftir "nýju hagkerfi“ og öðruvísi og grænni leiðum til að skipuleggja það. Framkvæmdastýra segir að breytingarnar verði að vera í samráði við fólk og að ávallt þurfi að gæta að félagslegu jafnr

Ánægja með Corbyn hrynur þrátt fyrir veika stöðu May
Færri treysta leiðtoga Verkamannaflokksins til að taka réttar ákvarðanir í Evrópumálum en May forsætisráðherra. Það gerist þrátt fyrir að vinsældir May séu litlar.

Kalla sendiherra sinn heim vegna „árása“ Ítalíu
Það var gert vegna "árása og svívirðilegra yfirlýsinga“ frá ríkisstjórn Ítalíu undanfarna mánuði.

May komin til Brussel að ræða baktrygginguna
Ekki er búist við miklum árangri af nýjustu viðræðum breska forsætisráðherrans við evrópska ráðamenn í dag.

Harðorður um Brexit-sinna
Fundur Tusks og Varadkars snerist um Brexit.

EES-samningurinn í 25 ár: Drifkraftur og mikilvægasti samningur Íslandssögunnar
Forstjóri Umhverfisstofnunar segir að EES-samningurinn sé sá drifkraftur sem Íslendingar þurfi til að takast á við mikilvæg umhverfisverndarmál. Samingurinn gekk í gildi fyrir 25 árum. Framkvæmdastjóri Félags atvinnurekenda telur hann vera mikilvægasta viðskiptasamning Íslandssögunnar.

Tusk segir „sérstakan stað í helvíti“ fyrir forsprakka Brexit
Donald Tusk, forseti leiðtogaráðs Evrópusambandsins, segir sérstakan stað í helvíti fyrir þá sem hvöttu til útgöngu Breta úr Evrópusambandinu, án þess að hafa hugmynd hvernig ætti að gera það á öruggan hátt.

Hvetja íslenska nema til að halda sig við fyrirætlanir þrátt fyrir Brexit
Menntamálaráðherra Noregs og Íslands eru ósammála um hvort óhætt sé að sækja um nám í breskum háskólum eftir útgöngu Bretlands úr Evrópusambandinu. Fulltrúar breska háskólasamfélagsins segja að þrátt fyrir óvissu sé lítið að óttast. Bæði ESB og Bretland vilji tryggja gott samstarf á sviði menntunar og rannsókna.

May heldur til Brussel til viðræðna á fimmtudag
Breski forsætisráðherrann er sagður ætla að brýna fyrir evrópskum leiðtogum nauðsyn þess að þeir fallist á breytingar á svonefndri baktryggingu á írsku landamærunum.

Segir að betra hefði verið að halda þjóðaratkvæðagreiðslu um umsóknina að ESB
Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra, segir að það hafi ekki verið rétt ákvörðun af hálfu ríkisstjórnar Vinstri grænna og Samfylkingarinnar árið 2009 að halda ekki þjóðaratkvæðagreiðslu áður en sótt var um aðild að Evrópusambandinu og fá þannig fram vilja þjóðarinnar til þess að sækja um.

Maduro útilokar ekki að borgarastríð brjótist út
Hart er sótt að forseta Venesúela þessa dagana.

Allt útlit fyrir að Evrópuríki viðurkenni Guaidó sem forseta
Fastlega er gert ráð fyrir því að Bretland, Frakkland, Þýskaland og fjöldi annarra Evrópuríkja viðurkenni Juan Guaidó sem sitjandi forseta Venesúela á morgun, hafi Nicolas Maduro, forseti ríkisins, ekki boðað til kosninga fyrir morgundaginn.

Búa sig undir að koma drottningunni undan fari Brexit á versta veg
Kaldastríðsáætlanir um öryggi konungafjölskyldunnar hafa verið endurvaktar ef óeirðir brjótast út í London eftir útgöngu úr ESB án samnings.

May segist ákveðin í að Brexit fari fram á tilætluðum tíma
Þrátt fyrir að leiðtogar ESB hafi útilokað að semja um írsku baktrygginguna svonefndu segist breski forsætisráðherrann ætla til Brussel með endurnýjað umboð, hugmyndir og ákveðni.

ESB kallar Gíbraltar nýlendu Bretlands
Yfirvöld Bretlands hafa kvartað yfir því að Evrópusambandið skilgreini Gíbraltar sem breska nýlendu. Sú skilgreining er talin sýna að ESB ætli að standa við bakið á Spánverjum í deilunni um svæðið í kjölfar úrsagnar Bretlands úr sambandinu.

Kjöt af sjúkum pólskum kúm selt til annarra Evrópuríkja
Um það bil tvö og hálft tonn af nautakjöti af sjúkum kúm sem slátrað var með ólöglegum hætti í Póllandi var selt til ellefu Evrópuríkja.

Evrópuþingið viðurkennir Guaidó sem forseta
Evrópusambandið hefur verið hikandi við að viðurkenna leiðtoga stjórnarandstöðunnar sem forseta Venesúela. Það er sagt óttast hvers konar fordæmi það væri í ljósi þess að hann lýsti sjálfan sig forseta.

Mögulegt að fresta þurfi útgöngu Breta úr ESB
Í viðtali við BBC segir breski utanríkisráðherrann að ef nýr samningur næst rétt fyrir fyrirhugaðan útgöngudag gæti þurft að seinka honum á meðan mikilvægar lagabreytingar væru samþykktar.

Segir ekki standa til boða að breyta Brexit sáttmálanum
Jean-Claude Juncker, forseti framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins, neitar að breyta Brexit samkomulaginu.

May fær umboð til að semja aftur við ESB sem virðist þó ekki vilja semja
Meirihluti þingmanna breska þingsins samþykkti tillögu þess efnis að fella út svokallað Backstop ákvæði úr úrsagnarsamningi Bretlands úr Evrópusambandinu. Theresa May hefur nú umboð til að semja á ný við ESB en forseti Evrópuráðsins segir að ekki sé í boði að semja upp á nýtt.

Pórósjenkó: Úkraína sæki um aðild að ESB árið 2024
Petró Pórósjenkó, forseti Úkraínu, tilkynnti í morgun að hann sækist eftir endurkjöri en forsetakosningar fara fram í landinu þann 31. mars.

Breska þingið fjallar um fimmtán breytingartillögur við Brexit-samning
Fimmtán breytingartillögur við lagafrumvarp um útgöngusamning Theresu May, forsætisráðherra Bretlands, úr Evrópusambandinu verða til umræðu á breska þinginu í dag. Líkurnar á því að Bretar hætti í Evrópusambandinu án samnings eru taldar aukast á hverjum degi.