Tinder

Úrval einhleypra bænda á „Bænder“
Í nýjasta tölublaði Bændablaðsins sem kom út í dag, má finna heilsíðu þar sem finna má „hnarreist úrval af einhleypum bændum landsins.“ Þar hafa nokkrir bændur birt af sér myndir og auglýst eftir maka. Yfirskrift síðunnar er „Bænder,“ sem er skemmtilegur orðaleikur þar sem snúið er upp á nafn vinsæla stefnumótaforritsins Tinder.

Tinder-notendur fá að vita hvers vegna þeim er boðinn afsláttur
Stefnumótaforritið Tinder þarf að byrja að láta notendur sem það býður persónusniðinn afslátt vita hvers vegna í þessum mánuði. Þetta er niðurstaða samráðs við framkvæmdastjórn Evrópusambandsins og neytendayfirvöld sem töldu ósanngjarnt að upplýsa ekki neytendur um hvers vegna afsláttartilboðum væri haldið að þeim.

Jóhann er 83 ára og sjóðandi heitur á Tinder
Þeir Jóhann Scheihter og Einar Baldvin Brimar bjuggu saman í íbúð í þrjá daga síðasta sumar. Jóhann er fæddur árið 1940 og starfar sem leiðsögumaður. Einar Baldvin er 25 ára heimsspeki- og laganemi, og þjálfar einnig ungt fólk í fótbolta.

Á í stormasömu sambandi við stefnumótaöpp
Hlaðvarpsdrottningin og snyrtivörusnillingurinn Lilja Björg Gísladóttir starfar sem markaðsfulltrúi hjá Hagkaup. Hún á þó nokkra aðra auka atvinnuhatta sem hún smellir á sig af og til.

Þrjátíu og fjögur stefnumót í nítján löndum
Þegar Loni James lagði af stað í heimsreisu fyrir rúmu ári síðan var hún með einfalt markmið: Að fara á stefnumót með nýjum aðila í hverju landi sem hún heimsótti. Síðan þá hefur hún farið á alls þrjátíu og fjögur fyrstu stefnumót í nítján mismunandi löndum.

Hin fyrstu kynni
Þrír karlmenn standa saman við biðskýli. Tveir þeirra eru í yngri kantinum, rétt yfir tvítugt. Einn þeirra er kominn á fimmtugsaldur. Allir hafa þeir símann við hönd. Framhjá labbar fögur ung kona í klæðilegum klæðnaði sem sýnir kannski fullmikið fyrir suma.

Íslendingar á Tinder: Konur upplifa meiri skömm en karlar
„Kannski þegar maður var að byrja var einhver skömm, og þegar forritið var nýtt, en núna eru bara allir á þessu sem eru á lausu og þetta orðið bara normalíserað,“ segir íslenskur karlmaður á þrítugsaldri sem notar stefnumótaforritið Tinder reglulega.

Giftist þeirri fyrstu sem hann hitti á Tinder
Hjónin Steinþór Helgi Arnsteinsson og Glódís Guðgeirsdóttir giftu sig við hátíðlega athöfn á Flateyri í ágúst. Þau kynntust í gegn um stefnumótaforritið Tinder fyrir sex árum síðan en Glódís var sú fyrsta sem Steinþór „matsaði“ við á forritinu.

Tinder-svindlarinn og hætturnar á netinu
Tilraunir til fjársvika á netinu aukast stöðugt og dæmi eru um að Íslendingar hafi tapað milljónum til svindlara á netinu. Oft er verið að spila með tilfinningar og góðmennsku fólks og mikilvægt að fólk þekki einkenni svikatilrauna, hvort sem þau beinast gegn þér eða þínum nánustu.

Guðný María gefur út lag og myndband um Tinder
„Þetta var lokaverkefnið mitt í raftónlist í vor, en ég hef verið í stöðugu námi í FÍH og MÍT síðustu tvo vetur og meira að segja síðasta sumar líka,“ segir tónlistarkonan Guðný María Arnþórsdóttir sem frumsýnir nýtt tónlistarmyndband við lagið Tinder.

Tinder ætlar að veita bakgrunnsupplýsingar um notendur
Notendur stefnumótasnjallforritsins Tinder í Bandaríkjunum geta brátt nálgast opinberar upplýsingar um sakaferil og ofbeldi annarra notenda sem þeir gætu farið á stefnumót með. Til stendur að þjónustan verði tekin upp á fleiri stefnumótaforritum fyrirtækisins í fyllingu tímans.

Tinder fær heljarinnar uppfærslu í sumar
Myndsímtöl í Tinder eru handan við hornið.

Keppandi númer 2 í Tinderlauginni svarar fyrir sig
Arnar Hjaltested tók á dögunum þátt í stefnumótaþættinum Tinderlaugin og var hann keppandi númer 2.

Þú ert sætur
Þú ert sætur. Segi ég óvart við kúnna sem ég er að afgreiða. Ég ætlaði að segja eitthvað allt annað. Freudian slip.

Kona sem hræðist karla
Í síðustu viku hafði systir mín ákveðið að fara á Tinder stefnumót með manni sem hún hafði einungis talað við í rúma viku. Þetta stefnumót átti að endast eina sundferð en ílengdist í næstum tvo sólarhringa, fjölskyldunni og vinum til mikils ama.

Svæpaðu til hægri ef þú vilt stefnumót með kú
Til eru ýmis konar stefnumótasíður og forrit fyrir okkur mannfólkið þegar við viljum reyna fyrir okkur í tilhugalífinu.

Pítsusendlar segja frá
Pítsusendlar gægjast inn í líf fólks í gegnum þrönga dyragættina. Þeir fá að kynnast öllum hliðum mannlífsins og lenda oft í spaugilegum aðstæðum. Nokkrir núverandi og fyrrverandi pítsusendlar segja sögur af ævintýralegum uppákomum.