
Herjólfur

Ákveðið síðar í dag hvort nýr Herjólfur hefur áætlunarsiglingar á morgun
Ákveðið verður síðar í dag hvort nýr Herjólfur hefur siglingar milli Vestmannaeyja og Landeyjahafnar á morgun eins og stefnt hefur verið að. Framkvæmdastjóri Herjólfs segir einungis fínstillingar eftir varðandi skip og svokallaða ekjubrú í Eyjum.

Fjórði Herjólfur til Eyja 60 árum eftir komu þess fyrsta
Fjölmenni var á móttökuhátíð í Vestmannaeyjum í dag þar sem komu nýs Herjólfs var fagnað, 60 árum eftir að fyrsta farþegaferjan með þessu nafni kom til Eyja. Samgönguráðherra segir langþráðum áfanga náð.

Herjólfur loksins afhentur og formlega kominn með nafn
Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra nefndi formlega nýjan Herjólf og Sigurður Ingi Jóhannsson, samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra, flutti ávarp þar sem hann afhenti Vestmannaeyingum hina nýju ferju.

Nýr Herjólfur hefji áætlunarsiglingar innan tveggja vikna
Stefnt er að því að nýr Herjólfur hefji áætlunarsiglingar innan tveggja vikna að sögn framkvæmdastjóra rekstrarfélags skipsins. Eyjamenn og gestir þeirra taka formlega á móti nýjum Herjólfi eftir hádegið í dag.

Eyjamenn taka á móti nýjum Herjólfi í dag
Formleg móttökuathöfn fyrir nýjan Herjólf fer fram í Friðarhöfninni í Vestmannaeyjum í dag.

Herjólfur kominn heim til Eyja
Nýr Herjólfur kom til Vestmannaeyja nú undir kvöld eftir rúmlega fimm sólarhringa siglingu frá pólsku hafnarborginni Gdynia.

Herjólfur á heimleið
Nýr Herjólfur er lagður af stað til Vestmannaeyja frá pólsku hafnarborginni Gdynia og við tekur um sex sólarhringa sigling heim til heimahafnar í Heimaey.

Herjólfur afhentur og íslenski fáninn dreginn að húni
Von er á nýjum Herjólfi til Vestmannaeyja þann 15. júní og að skipið hefji siglingar milli lands og Eyja um mánaðarmótin.

Stefnt að því að nýi Herjólfur hefji siglingar milli lands og Eyja eftir mánuð
Stefnt er að því að nýi Herjólfur komi til Vestmannaeyja frá Póllandi þann 15. júní næstkomandi og að hann hefji siglingar á milli lands og eyja fyrir mánaðamótin júní/júlí.

Deilan „óvenjulega“ leyst og Herjólfur brátt á leið til Heimaeyjar
Samkvæmt yfirlýsingu á vef Vegagerðarinnar hefur tilboði til Crist S.A. varðandi lokauppgjör vegna smíði nýja Herjólfs verið samþykkt og stendur til að undirrita það fljótlega.

Forsvarsmenn skipasmíðastöðvarinnar vilja leita sátta en þó reiðubúnir að selja nýja Herjólf
Vegagerðin innkallaði í síðustu viku bankaábyrgðir hjá bankanum sem gefið hefur út ábyrgðir fyrir Crist S.A. Ástæðan var sú að allt stefndi í að ábyrgðin félli úr gildi áður en viðeigandi skjöl til staðfestingar framlengingu ábyrgðanna bærust Vegagerðinni.

Vegagerðin vildi tryggja milljarðana sín megin
Vegagerðin segir það eindreginn ásetning sinn að samningar við skipasmíðastöðina Crist S.A. verði efndir og nýr Herjólfur afhent rekstraraðila til reksturs.

Landeyjahöfn opnuð í dag
Herjólfur siglir til Landeyjahafnar í dag, í fyrsta sinn á þessu ári.

Vegagerðin hafi neyðst til að innkalla bankaábyrgð til að tryggja fjárfestingu
Vegagerðin segist hafa neyðst til að innkalla bankaábyrgð vegna nýsmíði Herjólfs til að tryggja fjárfestingu ríkisins í verkefninu. Skipasmíðastöðin hafi áður í smíðaferlinu framlengt bankaábyrgðir á allra síðustu stundu.

Stefnt að opnun Landeyjahafnar á fimmtudag
Stefnt er að því að Herjólfur sigli um Landeyjahöfn á fimmtudagsmorgun. Framkvæmdastjóri Herjólfs segir að ákvörðunin sé tekin með fyrirvara um mælingar sem gerðar verða í höfninni á morgun, miðvikudag.

Vegagerðin innkallaði bankaábyrgðir vegna nýs Herjólfs
Íslenska ríkið hefur krafist þess að skipasmíðastöðin Crist í Póllandi sem smíðar nýjan Herjólf endurgreiði þann kostnað sem greiddur hefur verið vegna smíði skipsins. Björgvin Ólafsson, umboðsmaður skipasmíðastöðvarinnar hér á landi, segir þetta ígildi riftunar samnings um nýsmíðina.

Skipasmíðastöðin kynnir nýjan Herjólf til leiks í dramatísku myndbandi
Hinn nýji Herjólfur er hinn glæsilegasti ef marka má myndband sem pólska skipasmíðastöðin Crist S.A sendi frá sér fyrr í mánuðinum.

Pólski sendiherrann vonar að nýr Herjólfur verði afhentur í næsta mánuði
Pólski sendiherrann á Íslandi vonar að nýr Herjólfur verði afhentur Vegagerðinni í næsta mánuði. Hann hafði milligöngu um fund fulltrúa skipasmíðastöðvarinnar hjá samgönguráðherra fyrir helgi. Ráðherra segist hafa hvatt til þess að skipasmíðastöðin og Vegagerðin næðu saman sem fyrst svo afhenda megi skipið.

Samgönguráðherra ræddi við fulltrúa skipasmíðastöðvarinnar vegna nýs Herjólfs
Samgönguráðherra ræddi á föstudag við fulltrúa pólsku skipasmíðastöðvarinnar Crist um afhendingu nýs Herjólfs á fundi í samgönguráðuneytinu. Auk ráðherra og fulltrúa skipasmíðastöðvarinnar sat sendiherra Póllands á Íslandi fundinn.

Eyjamenn vonsviknir og saka Björgun um svik
Bæjarráð Vestmannaeyja lýsir vonbrigðum með að sá tími sem gafst til dýpkunar um páskana hafi ekki verið nýttur sem skyldi. Telur bæjarráð það tvímælalaust vanefndir á samningi milli aðila um dýpkun hafnarinnar.

Búið að dýpka um þriðjung fyrir Herjólf
Búið er að fjarlægja um 5.000 rúmmetra af sandi við Landeyjahöfn, um þriðjung þess sem þarf svo Herjólfur geti siglt þangað. Óvissa er um framhald dýpkunar vegna veðurspár.

Aðstæður oft verri en spáin
Framkvæmdastjóri Björgunar segir áætlunina hafa verið þannig að Vegagerðin ætlaði að mæla núna fyrri partinn í dag. Því var flýtt um einn sólarhring. Núna séu þeirra menn og búnaður sé kominn á staðinn og fara á fullt í það að vinna sín verk.

Björgun á leið í Landeyjahöfn til að dýpka
Vegagerðin óhress með viðbrögð forsvarsmanna fyrirtæksins.

Stefnt að fundi með pólsku skipasmíðastöðinni í næstu viku
Fulltrúar Vegagerðarinnar stefna að fundi með forsvarsmönnum pólsku skipasmíðastöðvarinnar í næstu viku þar sem reynt verður að ná samningum um afhendingu nýs Herjólfs.

Fulltrúar Vegagerðarinnar halda til viðræðna í Póllandi
Fulltrúar Vegagerðarinnar eru á leið til viðræðna um lokauppgjör vegna smíði á nýjum Herjólfi. Íris Róbertsdóttir, bæjarstjóri Vestmannaeyjabæjar greindi frá þessu á bæjarstjórnarfundi í kvöld.

Áfram er þörf á að dýpka
Nýr Herjólfur verður ekki til þess að hætta þurfi að dýpka Landeyjahöfn.

Segir Herjólfssmíðina komna í algjört rugl
Vegagerðin og skipasmíðastöðin Crist S.A. í Póllandi eru enn að vinna í lokauppgjöri á nýjum Herjólfi. Óljóst með afhendingu. Umboðsmaður Crist segir málið með ólíkindum.

Segir reikninginn tilhæfulausan og ekki standi til að greiða hann
Samgöngu- og sveitastjórnarráðherra segir að ekki sé við Vegagerðina að sakast að Herjólfur sé ekki tilbúinn.

Ríkið ætlar ekki að greiða aukalega fyrir Herjólf
Samgönguráðherra segir að aukareikningur pólskrar skipasmíðastöðvar sé tilhæfulaus.

Skipasmíðastöðin fer fram á rúman milljarð til viðbótar
Engin stoð er í samningi aðila fyrir þessari kröfu skipasmíðastöðvarinnar að mati Vegagerðarinnar.